Morgunblaðið - 04.11.1992, Síða 31
seet flaaMSvöw .1 auoAauHivgiM aiaAjaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
08
31-
Hollt o g gott
Fallegt, auðvelt, fljótlegt og
ódýrt. Mörg eru lýsingarorðin, en
þetta er það sem nútímamaðurinn
vill sameina. í ríkisútvarpinu einn
morguninn í vikunni kom fram
skemmtileg tillaga, en hún var sú
að friðlýsa heimilin milli sex og
átta á kvöldin. Maður brosir, en
alvara fylgir þessu máli, þótt á
gamansaman hátt sé sett fram.
Hvað er að gerast í okkar þjóð-
félagi, heimilin og bömin, sem eru
undirstaða velfamaðar okkar,
verða útundan. Þegar örþreyttir
foreldrar koma heim úr vinnu,
þurfa þeir að fara í alls konar lík-
amsrækt til að ná úr sér verkjun-
um og laga vöxtinn, og bömin em
sett í margs konar aukatíma á
meðan. íþróttirnar er svo ekki
hægt að stunda án þess að stæll
sé á fatnaði og öðmm útbúnaði.
Það tekur foreldra talsvert langan
tíma að vinna fyrir honum. Ekki
em öll böm svo heppin að eiga
foreldra, sem geta keypt auka-
tíma handa þeim, og þau sitja
fyrir framan sjónvarpið í staðinn
oft með skyndimatinn á hnjánum,
þar sem enginn tími er til að elda.
Sá matur em í flestum tilfellum
miklu dýrari og verri en hinn
heimaeldaði, sem ekki er þó alltaf
tímafrekt að elda. Börn hafa sagt
mér að þau borði keypta pizzu á
hveijum einasta degi og oftast er
djús eða gos dmkkið með. Órói
bama stafar ekki bara af því hvað
börnin em mikið ein, heldur líka
af óhollum mat og diykk. Börn
drekka orðið litla mjólk. Þau fá
að vísu mjólkurmat í formi sýrðr-
ar mjólkurvöra, en í hana er oft-
ast er bætt dísætum ávöxtum og
bragðefnum. Fæst böm drekka
vatn með mat, en vatnið okkar
er þó besti og ódýrasti drykkur-
inn. Gefíð bömunum vatn með
matnum, setjið klaka í hann, það
fínnst þeim spennandi, og gefíð
ykkur tíma til að elda og sitja
saman tii borðs.
Nota má hvaða grænmeti, sem
ykkur hentar í þennan rétt. Bæði
ferskt og frosið.
Grænmetishiaup
‘Akg blómkál eða sprota-
kál (brokkoli)
6-8 meðalstórar gulræt-
ur
2 meðalstórir blaðlaukar
3 papríkur, gul, græn og
rauð
1 dós jógurt án bragð-
efna
1 dl ijómi
1 bréf ljóst hlaup frá Toro
2Vi dl sjóðandi vatn, nokkrar
skinusneiðar, ristað brauð
1. Þvoið blaðlaukinn vel, skerið
í sneiðar, skiptið blómkáli eða
sprotakáli í greinar. Takið stilk
og steina úr papríku, þvoið gulr-
ætur vel. Sjóðið hveija grænmet-
istegund fyrir sig í litlu saltvatni
í 5 mínútur. Hellið vatninu af.
2. Setjið grænmetið í lögum í
aflangt álform.
^ 3. Leysið hlaupið upp í 2'/i dl
af sjóðandi vatni (helmingi minna
en stendur á pakkanum). Kæiið
án þess að það hlaupi saman.
4. Setjið jógúrt og rjóma út í
hlaupsafann, hellið yfír grænmet-
ið. Látið standa í kæliskáp í 2-3
klst. eða lengur.
5. Hvolfíð hlaupinu á fat, berið
skinku og ristað brauð með.
Ávaxtahlaup
1 lítil ferna eplasafí
1 lítil fema ananssafi
6 blöð matarlím eða 2 msk.
matarlímsduft
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar SIGURÐUR ÞORKELSSON
1 stórt epli
1 stór pera
1 appelsína
20 vínber, helst steinalaus.
1. Leggið matarlímsblöðin í
bleyti í kalt vatn í 5 mínútur.
2. Hellið eplasafanum f pott,
hitið að suðu, takið af hellunni,
vindið matrlímsblöðin úr kalda
vatninu, setjið þau í heitan eplas-
afann og látið leysast upp eða
setjið matarlímsduftið út í og lát-
ið leysast upp.
3. Hellið ananassafanum út í,
setjið í kæliskáp í um 15 mínútur
eða þar til safínn er orðinn kaldur
án þess að hlaupa saman.
4. Afhýðið epli, peru og appels-
ínu, takið kjama úr epli og pem,
en steina úr appelsínu, skerið allt
í litla bita. Skerið vínberin í
tvennt, flarlægið steina ef ein-
hveijir em.
5. Setjið ávextina í djúpt ál-
form, hellið kældum safanum yf-
ir. Setjið formið í kæliskáp og
látið stífna í 3-4 klst.
Meðlæti: Jógúrt eða þeyttur
ijómi með stöppuðum banönum.
(iS'w
Afmæli
Kiistjáii Signrðsson,
Eyri, Siglufirði, níræðiir
í dag er 90 ára hinn aldni heið-
ursmaður Kristján Sigurðsson á
Eyri í Siglufírði. Kristján er fædd-
ur í Siglufírði. Kristján fæddist í
Siglufirði 4. nóvember árið 1902
og vom foreldrar hans þau Sigurð-
ur Jónsson og Andrea Sæby. Krist-
ján kvæntist árið 1931 Ólöfu
Gísladóttur frá Skarðsdal í Siglu-
fírði, sem látin er fyrir allmörgum
ámm. Ekki varð þeim bama auðið.
Ekki treysti ég mér til að rekja
ættir Kristjáns, þannig að gagn
sé að, svo því skal sleppt en þess
í stað lítillega drepið á æviferil
hans og mannkosti.
Þó ég hafí þekkt til Kristjáns
svo lengi sem ég man, lágu leiðir
okkar ekki saman fyrr en 1970, í
félagsskap sem okkur var báðum
hugleikinn, sem var Sameignarfé-
lag fjáreigenda í Siglufirði.
Okkar fyrstu kynni í þessum
félagsskap voru reyndar nokkuð
stormasöm, því báðir voru þráir
og þverir og þóttust vita betur en
hinn. Þó fór svo að báðir vitkuð-
ust þegar fram liðu stundir og það
svo, að við urðum hinir bestu vin-
ir. Hefur ekkert skyggt á órofa
vináttu okkar síðan.
Ungur nam Kristján trésmíði
hjá Karli Sturlaugssyni hér í Siglu-
fírði og vann hann lengi við smíð-
ar, m.a. bátasmíði. Árið 1932 var
Kristján ráðinn verkstjóri hjá Sam-
vinnufélagi ísfirðinga, sem rak
síldarsöltun hér í Siglufirði. Krist-
ján vann hjá Samvinnufélaginu
allt þar til það var lagt niður, eft-
ir að síldin hvarf, nokkm fyrir
1970. Kristján vann fullan vinnu-
dag þar til fyrir 8 ámm, þá 82 ára.
Kristján gekk snemma í Verka-
lýðsfélag Siglufjarðar og var for-
maður þess um tíma. Hann hefur
alla tíð verið ódeigur máisvari
þeirra er minna mega sín og mörg-
um hefur hann rétt hjálparhönd
um dagana, oftar en ekki í kyrr-
þey og ekki krafist endurgjalds
af neinu tagi. Oft gustaði hressi-
lega í kringum Kristján í barátt-
unni, þá er verkalýðshreyfingin
var í mótun. Baráttan var hörð
og óvægin á þessum ámm en
hvorki þá né síðar hefur Kristján
farið dult með skoðanir sínar.
Hann hefur ætíð verið ómyrkur í
máli og sagt sína meiningu, hvort
heldur mönnum hefur líkað betur
eða verr.
Sem ungr maður gekk Kristján
í Alþýðuflokkinn og hefur alla tíð
síðan verið trúr hugsjón jafnaðar-
mennskunnar. Er mér til efs að
sannari jafnaðarmaður fyrirfínnist
á íslandi. Kristján hefur gegnt frjöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
Alþýðuflokkinn hér í Siglufírði.
Hann sat yfir 30 ár í bæjarstjóm,
lengst allra Alþýðuflokksmanna
hér í bæ, var formaður flokksfé-
lagsins um skeið og hefur átt sæti
í óteljandi ráðum og nefndum.
Kristján fylgist enn mjög vel með
bæjar- og landsmálum og lætur
ungu mennina óspart heyra það
þegar honum þykir víkja af leið.
Þó baráttan hafí oft verið hörð
og óvægin, bæði í verkalýðshreyf-
ingunni og pólitíkinni, þá veit ég
að Kristján á sér engan óvildar-
mann, því menn hafa virt hann
fyrir orðheldni og drengskap í
hvívetna.
Kristján á Eyri hefur mörgum
þótt hijúfur við fyrstu kynni, en
undir þeirri brynju slær hlýtt
hjarta í góðum dreng. Hann býr
við góða heilsu, jafnt til sálar og
líkama, þrátt fyrir háan aldur.
Allt fram á þetta ár hefur hann
ekið bifreið sinni, enda orðinn lú-
inn til gönguferða. Ekki hefur
Kristján skapað heilbrigðiskerfinu
mikil útgjöld um dagana, því öll
sín 90 ár hefur hann aðeins einu
sinni gist sjúkrahús í skamman
tíma, þá orðinn 85 ára.
Ekki get ég látið hjá líða að
geta Antons Sigurbjömssonar,
sem er bílstjóri hjá útibúi KEA
hér í Siglufirði. Anton hefur í
mörg undanfarin ár verið ólatur
við að taka Kristján með sér er
hann ekur um Siglufjörð og þann-
ig hefur hinn aldni heiðursmaður
fylgst gjörla með mannlífi og
framkvæmdum í bænum. Vart líð-
ur sá dagur að þeir félagar sjáist
ekki á ferð um bæinn.
Ég vil að endingu senda þér
mínar bestu afmæliskveðjur um
leið og beðið er að sú gata sem
ógengin er verði þér greiðfær og
ævikvöldið beri þér birtu og yl,
eins og þú hefur til sáð.
Lifðu í sæmd, eftirleiðis sem
hingað til. _
Ólafur Jóhannsson.
Kristján Sigurðsson trésmíða-
meistari, í áratugi forystumaður í
bæjarmálum Siglufjarðar og í fylk-
ingu jafnaðarmanna þar í bæ, er
níræður í dag. Hann fæddist í
Siglufírði 4. nóvember 1902. For-
eldrar hans vóru hjónin Andrea
Sæby og Sigurður Jónsson, verk-
stjóri. Kona hans var Ólöf Gísla-
dóttir, bónda og trésmiðs í
Skarðsdal í Siglufirði, og konu
hans, Önnu Þorláksdóttur. Hún
lézt fyrir mörgum ámm.
Þegar Kristján á Eyri leit fyrst
dagsins ljós norður í Siglufírði
fyrir níutíu árum vóru skráðir íbú-
ar þar innan við 150 talsins. ís-
lendingar vóru þá aðeins tæplega
80.000, eða tæplega þriðjungur
þess sem nú er, og að stærstum
hluta búandi í sveitum; aðeins um
22.000 höfðu þá búsetu í þéttbýli,
það er í kauptúnum og kaupstöð-
um.
Það hefur því margt breytzt í
bæjar- og þjóðlífí á æviferli Krist-
jáns Sigurðssonar. Siglufjörður óx
úr litlu þorpi í rúmlega þijú þús-
und manna byggð, þegar bezt lét,
sem reyndar margfaldaðist á
summm meðan síldarævintýrið
var og hét og silfur hafsins glóði
á Grímseyjarsundi. Eftir að sfldar-
stofninn hrandi, að hluta til vegna
ofveiði, fækkaði íbúum Siglufjarð-
ar á nýjan leik, en þar búa nú
rúmlega 1.700 manns í tiltölulega
blómlegu sjávarplássi, miðað við
aðstæður í þeirri undirstöðugrein.
Kristján Sigurðsson hefur lifað
mikla breytingatíma, bæði í
heimahögum og á landsvísu, og
var lengst af virkur þátttakandi i
atburðarásinni, bæði í sókn og
vörn. Auk starfs í iðngrein sinni,
báta- og húsasmíði, var hann ára-
tugum saman umsjónarmaður
með stórri sfldarverkunarstöð.
Hann fór lengi fyrir siglfirzkum
jafnaðarmönnum bæði í verkalýðs-
og bæjarmálum og sat um tíma í
miðstjóm Alþýðuflokksins. Hann
sat í bæjarstjóm Siglufjarðar
1946-1970. Var forseti og vara-
forseti bæjarstjórnar 1958-70.
Gegndi og fjölmörgum trúnaðar-
störfum öðmm fyrir flokk sinn og
bæjarfélag.
Við Kristján Sigurðsson áttun
um langt árabil gott samstarf
bæjarmálum Sigluijarðar, þótt vic
heymm hvor til síns stjómmála-
flokksins. Mér er því bæði ljúft
og skylt, í tilefni níutíu ára afmæl-
is hans, að þakka honum sam-
starfsárin í Siglufirði og áma hon-
um alls góðs í framtíðinni.
Stefán Friðbjarnarson.
B Scholtes
JOLATILBOÐ
20% afsláttui
af ellhústækjum
Verðdæmi:
F 4804 X
OFN
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, hvítt glerútlit,
klukka
kr. 39.150,-
TV 483 B
HELLUBORÐ
Keramik yfirborð hvítur
eða svartur rammi,
fjórar hellur
kr. 42.250,-
LV 8-343
UPPÞVOTTAVÉL
Hvít, 45 cm breið,
4 kerfi.hljóðlát
kr. 51.550,-
Funohöfða 19, sími 685680.
Söluaðili ó Akureyri:
Örkin hans Nóa, Glerórgöfu 32.
<- -