Morgunblaðið - 04.11.1992, Síða 46
46
■ BARCELONA, handhafi Evr-
ópubikarsins í knattspymu, fær
CSKA frá Moskvu í heimsókn í kvöld
er síðari leikir 2. umferðar Evrópu-
keppninnar fara fram.
■ JOHAN Cruyff, þjálfari Barce-
lona, er bjartsýnn á að lið hans
komist áfram, en fyrri leiknum í
Moskvu lauk 1:1 og liðið hefur ekki
þótt sannfærandi í keppninni til
þessa.
■ ÞJÁLFARINN getur stillt upp
sterkasta liði sínu, en sagði: „Jafn-
teflið í Moskvu var ekki slæmt, en
kenndi að við verðum að bera virð-
ingu fyrir mótheijunum."
■ JOSE Bakero kom Barcelona
áfram í átta liða úrslitin í fyrra með
því að skora á síðustu mínútu gegn
Kaiserslautern, og hann segir fé-
lagið ekki treysta á markalaust jafn-
tefli í dag, þó það myndi duga. „Ég
hef trú á að við förum áfram...og
gerum það með því að gera mörk.“
■ AC Milan, sem hefur haft mikla
yfirburði í ítölsku deildinni í vetur,
ætti að vera öruggt áfram í átta liða
úrslitin í keppni meistaraliða. Liðið
vann Slovan Bratislava í fyrri leikn-
um í Tékkóslóvakíu.
■ HOLLENSKI landsliðsmaður-
inn Ruud Gullit er enn meiddur og
franski framheijinn Jean-Pierre
Papin fær líklega að hvíla sig í
kvöld, þannig að Frank Rijkaard
hinn hollenski geti leikið á ný, en
hann hefur verið frá vegna meiðsla
undanfarið.
■ HINIR útlendingamir tveir, sem
voru með gegn Tórinó í deildinni
um helgina, Marco van Basten og
Zvonimir Boban leika báðir í kvöld.
■ ALBERIGO Evani er einnig
meiddur og missir af leiknum, og
_^J>á er vafasamt hvort landsliðsmenn-
írnir Stefano Eranio og Mauro
Tassotti geti leikið af sömu ástæðu.
■ FRANCO Baresi, fyrirliði AC
Milan, sem er 32 ára, tilkynnti í
fyrradag að hann myndi gefa kost
á sér í ítalska landsliðið á ný, aðeins
32 dögum eftir að hann ákvað að
hætta.
■ BARESI á 63 landsleiki að baki,
og ljóst var eftir 2:2 jafnteflið gegn
Sviss á Sikiley á dögunum að hans
var enn þörf í vörn landsliðsins.
■ HANN sagðist hafa hætt til að
geta eytt meiri tima en áður með
eiginkonu sinni og 15 mánaða göml-
um syni — en konan hefði sagt að
hann væri bara til ama er hann
væri svona mikið heima!
41 PORTO fær svissneska liðið
Sion í heimsókn. Fyrri leiknum í
Sviss lauk 2:2, Portúgalamir telja
sig því nokkuð örugga áfram og eiga
ekki von á mörgum áhorfendum.
Antas-leikvangur þeirra tekur
90.000 manns og eru miðar boðnir
gegn mjög vægu gjaldi til að fá sem
flesta.
■ JEAN Paul Brigger þjálfari
Sion sagðist bjartsýnn er hann kom
til Oporto. „Ef við tryðum því ekki
að við gætum unnið hefðum við ekki
komið hingað," sagði hann.
■ LEEDS fær skosku meistarana
Glasgow Rangers í heimsókn á
Elland Road. Forráðamenn skoska
liðsins óttast að áhangendur liðsins
—ferðist suður á bóginn og reyni að
komast á leikinn, en félögin sömdu
um það að einungis stuðningsmönn-
um heimaliðsins yrðu seldir miðar á
hvorn leik. Rangers vann fyrri leik-
inn 2:1.
■ LEEDS er taplaust í ensku deild-
inni í vetur. „Það getur enginn slak-
að á sem kemur á Elland Road,“
sagði miðvallarleikmaðurinn David
Rocastle. „Lið sem koma hingað
verða að beijast ef þau ætla sér eitt-
hvað — beijast í 90 mínútur.“
■ BOBBY Gould, stjóri Coventry
hældi liði Leeds í hástert eftir leik
félaganna í deildinni um heigina —
líkti því við hið frábæra Liverpool-
lið þegar það var upp á sitt besta.
■ MARSEILLE leikur heima gegn
Dinamo Búkarest og segir Barn-
ard Tapie, forseti franska liðsins,
þetta mikilvægasta leik þess á
keppnistímabilinu. Nú ræðst hvort
Marseille kemst í átta liða úrslit
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1992
KNATTSPYRNA / AHORFENDUR
Viðmiðunartölur KSÍ
ekki sambærilegar
Áhorfendafækkun því minni á milli ára en veldur samt áhyggjum
Fálr áhorfendur valda víða áhyggjum.
UPPGEFNAR áhorfendatölur
frá KSÍ varðandi leiki í 1. deild
karla á síðasta keppnistímabili,
sem greint var frá í blaðinu í
gær, eru ekki sambærilegar við
tölur fyrra árs hvað Fram og
FH varðar. Sérstakir gjafamið-
ar voru áður taldir með hjá
Fram, en ekki í ár. Séu sömu
viðmiðunartölur notaðar var
fækkunin hjá Fram 31% á milli
ára, en 35,6% sé gjafamiðun-
um sleppt í báðum tilfellum.
Hjá FH voru ársmiðar með í
dæminu í fyrra en ekki í ár, en
varðandi önnur félög er ein-
göngu um selda miða að ræða.
Almennir boðsmiðar eru hvergi
teknir með í reikninginn.
óhann G. Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri knattspymu-
deildar Fram, sagði að deildin hefði
ávallt ráðstafað ákveðnum fjölda
miða til styrktaraðila og fleiri og
greitt tilskilin gjöld af þeim rétt
eins og af öðrum miðum. Því væri
í raun um selda miða að ræða og
hefðu þeir verið samtals 1.805 á
síðasta tímabili, en aðrir seldir mið-
ar 7.367 eins og greint var frá í
gær. Samsvarandi tölur fyrir síð-
asta ár voru 1.884 gjafamiðar og
11.442 aðrir seldir miðar.
Reykjavíkurfélög greiða 6% af
seldum miðum til IBR og auk þess
greiða Framarar 10% í vallarleigu.
Jóhann sagði að Framarar vildu
hafa þann hátt á að kaupa miða
af sjálfum sér til að gefa, því þó
þeir þyrftu að borga af þeim gjöld
teldu þeir sér hag í því að geta
sýnt sem flesta selda miða. „Það
hafa allir hag af því að vera með
sem hæsta tölu,“ sagði Jóhann.
Hann bætti við að áhorfendum á
heimaleikjum Fram hefði fjölgað
um 41% frá 1990 til 1991 og fækk-
unin í ár væri því mikil, en ætti sér
skýringar. „Fækkunin í sumar er
fyrst og fremst vegna þess að við
þurftum að rokka á milli valla, en
spilamennska liðsins vegur einnig
þungt. Það skiptir öllu að leika ekki
á sama tíma og aðrir og vera auk
þess i toppbaráttunni," sagði Jó-
hann.“
Fækkunin áhyggjuefni
Þórir Jónsson, formaður knatt-
spyrnudeildar FH, sagði að aðsókn-
in á heimaleiki FH væri sveiflu-
kennd frá ári til árs, en þó ársmið-
amir væm teknir með hefði fækk-
unin verið mikil í ár og almennt
væm fáir áhorfendur hjá FH. Liðið
ætti þijá „stóra“ leiki á ári, en tveir
þeira hefðu bmgðist — gegn Fram
í síðustu umferð, því þá hefði mótið
verið búið, og gegn KR, þegar FH
var í mikilli lægð.
„Við emm á svipuðu róli og Val-
ur og Breiðablik, en emm hvorki
með sterkar rætur í fótboltanum
né stjömur. Til að mynda hef ég
trú á að 5 til 10% áhorfenda hjá
ÍA hafi eingöngu komið til að sjá
tvíburana — þetta er eins og þegar
Geir Hallsteinsson var í handboltan-
um á áram áður.
Málið er að fótboltinn verður að
vera skemmtilegur til að laða að
áhorfendur. Samkeppnin við aðra
tómstundaiðju er mikil og ljóst er
að það er ýmislegt, sem við þurfum
að laga. Fækkunin almennt í sumar
hefur ekkert með Evrópukeppnina
og Ólympíuleikana að gera heldur
verðum við að líta í eigin barm.
Við verðum að taka á vandanum
og hvað mig varðar þá styð ég nú
fastan leikdag."
Evrópukeppni meistaraliða — þar
sem leikið er í tveimur riðlum — en
liðið datt út í 16 liða úrslitum í fyrra.
■ TAPIE dreymir um að lið hans
verði það fyrsta sem nái Evrópubik-
arnum til Frakklands. Jean Fern-
andez, þjálfari Marseille, fór með
leikmenn sína í felur úti í sveit á
sunnudaginn til að undirbúa það.
Fyrri leikurinn var markalaus.
■ í YFIRLÝSINGU frá Marseille
segir, að komist félagið í átta liða
úrslit fái það andvirði fjögurra til
sex milljóna dollara í aðra hönd; 230
til 350^ milljónir ÍSK.
■ RÚMENARNIR em staðráðnir
í að standa sig. „Við getum komist
áfram ef við leikum eins og í fyrri
leiknum... en Dinamo verður að
skora í Marseille," sagði þjálfarinn
Alexandru Moldovan.
■ PENINGAR em líka ofarlega í
huga forystumanna liðs IFK frá
Gautaborg, sem fara til Póllands
og mæta Lech Poznan. Svíarnir
unnu fyrri leikinn 1:0. „Það á eftir
að koma í ljós hvernig við komum
út fjárhagslega eftir keppnistímabil-
ið — það veltur mikið á því hvemig
okkur gengur gegn Lech Poznan,"
sagði Thomas Wernerson, einn af
forystumönnum sænska liðsins.
■ AEK sigraði PSV Eindhoven í
fyrri leiknum í Aþenu, 1:0, en þjálf-
arinn Dusan Bayevic óttast veðrið
í Hollandi í kvöld. „Við erum ekki
vanir að leika við svo lágt hitastig,"
sagði hann.
■ GERALD Vanenburg, fyrirliði
PSV, og rúmenski varnarmaðurinn
Gica Popescu em báðir meiddir og
verða varla með í kvöld.
■ OLYMPIAKOS tekur á móti
Mónakó, sem lék til úrslita í Evrópu-
keppni bikarhafa sl. vor. Grikkirnir
unnu fyrri leikinn 1:0 í Mónakó og
reiknað er með 40.000 áhorfendum
á völlinn í Aþenu.
■ OLEG Blokhin, fyrmm lands-
liðsmaður Sovétríkjanna, þjálfar
Olympiakos og hefur lofað að leika
stífan sóknarleik.
Hvemig líður IAIM ROSS á botni 2. deildarmeð Huddersfield?
Ottast ekki
brottrekstur
IAN Ross naut mikillar velgengni þegar hann þjálfaði hér á
landi fyrir nokkrum árum, stýrði Valsmönnum tvívegis að ís-
landsmeistaratitli og jafn oft varð liðið í öðru sæti. Lið KR
var einnig í toppbaráttu undir stjórn hans, lék til úrslita í bikar-
keppninni annað árið og var jaf nt Fram í efsta sæti deildarinn-
ar en missti af meistaratitlinum vegna lakara markahlutfalls.
Nú er „Roscoe" hins vegar við stjórnvölinn hjá enska 2. deild-
arfélaginu Huddersfield, sem er í neðsta sæti deildarinnar —
sem er í raun gamla 3. deildin, þar sem sú efsta heitir nú
úrvalsdeild.
Skapti
Hallgrímsson
skrifar
Huddersfield tapaði um helgina
0:5 gegn Stockport á útivelli
en Ross bar sig karlmannlega þrátt
fyrir slæmt gengi
er Morgunblaðið
sló á þráðinn til
hans í gær.
„Meiðsli heija á
liðið. Sjö úr aðalliðinu frá því síð-
asta vetur hafa verið frá í langan
tíma, þannig að við þurfum að
treysta á unga stráka," sagði Ross.
Er það ekki rétt munað að þið
voruð nálægt því að færast upp
um deild síðastliðið vor?
„Það er rétt, og það eru menn
úr liðinu þá sem við söknum nú.
Fjórir hafa ekkert verið með í vet-
ur og þrír lítið, þannig að ungling-
arnir fá tækifæri og það tekur þá
alltaf einhvern tíma að læra. Heim-
urinn er erfiður og miskunnarlaus
á stundum."
En ertu samt bjartsýnn á að iið-
inu fari að ganga skár?
Já, ég er mjög bjartsýnn; veit
að við verðum ekki á þessum stað
í deildinni þegar upp verður staðið
í vor.“
Þegar þú þjálfaðir hérlendis
varstu alltaf í toppbaráttunni. Er
það ekki niðurdrepandi að vera í
botnbaráttu í 2. deild?
„Ekki niðurdrepandi en mjög
ergilegt. Ég hef aldrei lent í þess-
ari stöðu áður því alls staðar þar
sem ég hef verið hafa liðin átt
velgengni að fagna, og ég er stað-
ráðinn í að svoleiðis verður það
hér — þetta er ný reynsla fyrir
mig, en við komumst gegnum
þetta þó staðan sé slæm eins og
er. Ég er sannfærður um það. Sem
betur fer er tímabilið ekki bara
18 leikir einsog á íslandi heldur
46, þannig að það er nóg eftir.“
Voru menn ekki bjartsýnir fyrir
tímabilið eftir gott gengi síðasta
vetur?
„Jú, allir voru mjög bjartsýnir
en menn verða einnig að vera raun-
sæir. Og áhangendur og aðrir gera
lan Ross fylgist með mönnum sín-
um er hann þjálfaði KR. Lið hans
er nú á botni ensku 2. deildarinnar.
sér grein fyrir því að meiðslin eru
aðal ástæðan fyrir slæmu gengi.“
Þjálfarar eru oft reknir í Eng-
landi þegar illa gengur, hvort sem
meiðslum er um að kenna eða öðru.
Ertu ekki hræddur um að missa
vinnuna?
„Þannig er lífið, en ég hef aldr-
ei verið hræddur um að missa vinh-
una. Ég geri alltaf mitt besta,
hvar sem ég starfa og trúi því að
ég geti náð árangri hér.“
En þú hefur enga peninga til
að kaupa nýja leikmenn og styrkja
liðið þannig meðan lykilmenn eru
meiddir, eða hvað?
„Nei, því miður er fjárhagsstað-
an þannig að við getum ekki keypt
nýja menn, annars værum við bún-
ir að því. Það væri auðvelt að
styrkja liðið ef hægt væri að kaupa
betri menn, en hluti af starfi þjálf-
ara er að bæta þá leikmenn sem
fyrir eru og ná sem mestu út úr
mannskapnum sem er til staðar.
Það hefur mér tekist áður og trúi
að það takist hér.“
Þegar svona illa gengur hjá þér
ytra hvarflar hugurinn ekki stund-
um til íslands — hefurðu hugleitt
að gott væri að þjálfa hér aftur?
„Ég get sagt þér að ég hugsa
stöðugt um ísland, því mér leið svo
vel þar og liðunum mínum gekk
báðum vel. Ég á marga vini á Is-
landi og það var erfið ákvörðun
sem ég tók þegar ég ákvað að
fara frá KR.“
Hefurðu aldrei séð eftir því?
„Ég sé aldrei eftir neinu sem
ég geri. Á þessum tíma tel ég
KR-liðið hafa verið betra en nokk-
uð mörg ár á undan og við hefðum
átt góða möguleika á að ná í ís-
landsmeistaratitilinn.“
Fylgistu enn með íslensku
knattspyrnunni á sumrin?
„Já, ég á marga vini á íslandi
eins og ég sagði áðan og fylgist
vel með — fæ úrslitin úr íslensku
deildinni í hverri viku.“