Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
15
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Grafíkmyndir
„Upphaflega virtust þau sprottin
upp í huga mér án fyrirvara eða
hugsunar. Virtust helst koma utan
úr geim þegar minnst varði. En
eftir á þegar ég lít yfir farinn veg
finnst mér þau berlega endurspegla
það sem efst hefur verið í huga
mér síðustu árin, heimspekilegar
vangaveltur um lífsins tilgang og
hvort hér sé allt sem sýnist.“
Þetta er trúlega rétt ályktað og
verkin bera að auk sterkan svip af
menntun listakonunnar í textílum
í þá veru að formin hafa yfir sér
svip skreytilistar. Þetta eru frekar
átakaiítil, en einkar elskuleg verk
sem bera það með sér, að hin unga
listakona búi yfir hæfileikum til að
ná mun lengra á sviði grafíklistar-
innar. Einkum vil ég vísa til mynda
eins og „Hringrás" (4), „í Öndvegi"
(6), „Hús draumanna" (7) og „Því
trúi ég“ (11), en þær búa allar yfir
form- og grafískum eigindum auk
þess sem þær bera vitni um dijúga
sköpunargleði.
Myndlist
Bragi Asgeirsson
í listhúsinu Sneglu á Grettisgötu
7 sýnir um þessar mundir Hrafn-
hildur Sigurðardóttir 17 grafík-
myndir, sem skiptast í sáld-
þrykk/æting og einþrykk.
Hrafnhildur útskrifaðist úr text-
íldeild MHÍ árið 1986 og hefur
stundað framhaldsnám við
Arrowmont School of Arts and
crafts í Bandaríkjunum í ár. Hún
hefur haldið eina einkasýningu í
Gallerí 15 við Skólavörðustíg 1988
og tekið þátt í ýmsum samsýning-
um.
Sé tekið mið af sýningu Hrafn-
hildar í Gallerí 15 má ljóslega
marka af þessum myndverkum að
hún er í sókn á listasviðinu. Þau
eru frekar smá og burðarás mynd-
efnisins er iðulega sóttur í heim-
spekileg tákn. Sjálf hefur hún þetta
að segja um verkin í sýningarskrá:
Ævisaga Asgeirs Asgeirsson-
ar fyrrum forseta komin út
ÁSGEIR Ásgeirsson - Ævisaga
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ævisögu Ásgeirs Ásgeirssonar fagnað, (t.v.) yala Ásgeirsdóttir Thor-
oddsen, Jóhann Páll Valdimarsson, Björg Ásgeirsdóttir, Þórhallur
Ásgeirsson og Gylfi Gröndal.
eftir Gylfa Gröndal, er komin út
á vegum Forlagsins. Böm Ásgeirs
og konu hans frú Dóru Þórhalls-
dóttur, Vala, Björg og Þórhallur,
aðstoðuðu Gylfa við heimildaöflun
en stuðst er við heimildir sem
margar hafa ekki komið fram
áður. Má þar nefna bréf, minn-
isbækur, drög að endurminning-
um og ýmsa smáhluti. Á blaða-
mannafundi vegna útkomu bókar-
innar í gær kom fram að Ásgeir,
sein á unga aldri hafði ætlað sér
að verða prestur, hafi staðið í eldl-
ínu íslenskra stjórnmála í a.m.k.
30 ár. Hann var kosinn forseti
lýðveldisins árið 1952 og sat á
forsetastóli í 16 ár. Fram kom að
verkið væri persónulegt um leið
og það endurspeglaði helstu við-
burði íslandssögunnar á þessari
öld. Ævisagan er 486 blaðsíður
og prýdd fjölda mynda.
„Hér er um að ræða yfirgrips-
mikla ævisögu þar sem er sagt frá
öllum helstu æviþáttum Ásgeirs,
bernsku hans á Mýrum, æsku og
skólaárum, kosningabaráttu fyrir
vestan, stormasamri ráðherratíð,
átökum innan Framsóknarflokksins,
starfi í Alþýðuflokknum og starfi
hans sem forseti Islands," sagði Jó-
hann Páll Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, m.a. á
blaðamannafundinum.
Gylfi Gröndal þakkaði fram-
kvæmdastjóranum og börnum Ás-
geirs aðstoðina. Hann þakkaði Þór-
halli Ásgeirssyni sérstaklega. „Ég
er búinn að vera eilífur augnakarl á
hans heimili um langt skeið. Við
höfum hist reglulega, venjulega á
mánudagsmorgnum milli 10 og 12,
og hann hefur látið mér í té aldeilis
ómetanlega heimildir um Ásgeir Ás-
geirsson, háa bréfabunka, drög að
endurminningum, minnisbækur og
smálega hluti eins og boðskort. Þess-
ar góður heimildir hafa gert mér
kleift _að lýsa mjög mörgum þáttum
í lífi Ásgeirs og þegar heimildir eru
svona ítarlegar er hægt að bregða
upp svipmyndum og jafnvel svið-
setja. Það er alltaf kostur og gerir
ævisögur læsilegri," bætti hann við.
Gylfí sagði að sér hefði komið
mest á óvart hversu merkilegur
stjórnmálamaður Ásgeir hefði verið.
„Hann var forsætisráðherra frá ár-
unum 1930 til 1932 og fjármálaráð-
herra áður og öllu sú pólitíska saga
fínnst mér mjög spennandi og ég
hygg að margt sé í þessari bók sem
ekki hafi komið fram áður og varpi
nýju ljósi t.d. á mikil átök sem voru
í Framsóknarflokknum á sínum
tíma,“ sagði Gylfi.
Hann segist hafa orðið mjög undr-
andi þegar hann hafi áttað sig á því
hvernig forsetakosningarnar árið
1952 hefði gengið fyrir sig. „Það er
í rauninni alveg makalaust hvernig
stjórnmálaflokkamir, aðallega tveir
stærstu flokkarnir, ætluðu hreinlega
að eigna sér forsetaembættið. En
góðu heilli þá lærðum við af þessum
kosningum og forsetakosningar hafa
verið ópólitískar síðan,“ sagði hann.
Þórhallur Ásgeirsson kom á fram-
færi þökkum til Forlagsins. „Útgáfa
forsetabókanna um Kristján Eldjárn
í fyrra og Ásgeir Ásgeirsson í ár er
mikilvægt framlag til varðveislu á
nútíma sögu okkar. Og verður von-
andi framhald á þeim með ævisögu
Sveins Björnssonar og seinna meir
Vigdísar forseta. En því aðeins er
útgáfa forsetabókarinnar fagnaðar-
efni að vel takist með val á höfundin-
um. Held ég að allir geti verið sam-
mála um að svo hah verið. Tel ég
það sérstakt ián að Gylfi Gröndal
varð fyrir valinu,“ sagði Þórhallur.
Hann sagði að það hefði veitt sér
mikla ánægju aðstoða Gylfa við að
safna gögnum í bókina. „Fyrir það
samstarf og bókin alla vil ég þakka
honum alveg sérstaklega um leið og
ég óska honum til hamingju með
þetta mikla afrek,“ Þórhallur.
STORGLÆSILEGT TILBOÐINOVEIUBER!
HEREFORD-BORÐ
MEÐ MARMARAPLÖTU
kr. 29.500,- stgr.
Áður kr. 39.900,- stgr.
COVENT-GARDEN
RÚM M/SPRINGDÝNU
kr. 23.900,- stgr.
Áðurkr. 27.300,-stgr.
ATHUGIÐ: GLÆSILEGUR MYNDALISTI FÆST
í VERSLUN OKKAR Á KR. 200,-.
MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA KL. 10.00 - 18.00
Á LAUGARDÖGUM KL. 10.00 - 16.00
□ næg bílastæoi
LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870
HILLUR OG
STÓLAR SEM
PRÝÐA HEIMILIÐ
CHUBB
S T Ó L /\ R
GLÆSILEGIR OG VANDAÐIR
CHUBB-TÁGASTÓLAR.
VERÐ KR. 9.490,- STGR.
LADDER
LADDER-HILLURNAR,
STÍLHREINAR OG
ÁFERÐAFALLEGAR
VERÐKR. 18.800,- STGR.
J