Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
23
afurðir á landamærum og þykir
sjálfsagt. Þannig er markvisst kom-
ið í veg fyrir að ríkisstyrkir hafi
truflandi áhrif á samkeppni milli
landa í iðnaði, sem notar landbúnað-
arafurðir sem hráefni. Innan EB eru
einnig í gangi strangar aðgerðir og
refsingar gagnvart löndum innan
og utan EB, sem ekki fara eftir
reglum á þessum sviðum. Gagnað-
gerðir EB eru því á hreinu gagn-
vart löndum innan sem utan EB ef
á rétt þeirra er gengið. Um órétt-
mæta viðskiptahætti, s.s. undirboð
(s.s. vegna ríkisstyrkja) eru einnig
ákvæði í alþjóðasamningum, s.s.
GATT, sem kveða á um réttmæti
gagnaðgerða í slíkum tilfellum.
Hluti skýringar á því hvers vegna
þetta hefur viðgengist er að hávær-
ar kröfur útgerðarinnar hafa komið
í veg fyrir að fiskvinnslan hér á
landi fengi það sjálfsagða réttlæti
að keppa við erlenda samkeppnisað-
ila á jafnréttisgrundvelli þar sem
þeira hafa m.a. lagst gegn álagi á
útfluttan óunninn fisk. Talsmenn
samtaka fiskvinnslunnar taka líka
oftast hagsmuni útgerðarinnar
framyfir hagsmuni fískvinnslunnar
í landi þegar velja þarf á milli, þar
sem margir reka einnig útgerð. Það
eru nefnilega ólíkir hagsmunir hjá
útgerð eða fiskvinnslu, þó að orðið
sjávarútvegur sé stundum notað til
að fólk haldi að þeir séu þeir sömu.
Undrun vekur jafnframt að samtök
verkafólks skuli ekki hafa tekið
miklu harðara á þessu sjálfsagða
jafnréttismáli, en skýringin er
eflaust að hluta til sú að sjómenn
eru jafnframt hluti af samtökum
verkafólks. Hagsmunir verkafólks
og atvinnurekenda í fiskvinnslu í
landi hafa því verið látnir sitja á
hakanum (hagsmunir EB teknir
framyfir) í þessu máli og er furðu-
legt langlundargeð verkafólks í
þessum málum. Ein afleiðing þessa
aðgerðarleysis er og verður ennþá
meira gjaldþrot fiskvinnslufyrir-
tækja, með viðeigandi tapi fyrir
þjóðfélag og verkafólk og er at-
vinnuleysi kvenna á Suðumesjum
nú komið í 12%, þó þar sé einnig
um að kenna flutningi kvóta burt
af svæðinu. Valdið er því útgerðar-
innar að því er virðist hvort heldur
er í gegnum atvinnurekendur
og/eða launþega. Eftir þessu fara
svo pólitíkusar sem of oft láta því
miður stjómast af hávæmm hags-
munahópum hveiju sinni, en ekki
málefnum og réttsýni með hags-
muni heildarinnar til lengri tíma að
leiðarljósi. í þessu sambandi er at-
hyglisvert að skoða til samanburðar
stjórnvaldsaðgerðir í S-Ameríku,
þar sem valdamiklir hagsmunahóp-
ar em ráðandi í aðgerðum stjóm-
valda. Spyija má hvort svipaðrar
tilhneigingar gæti hér á landi.
Gagnaðgerðir
í EES-samningunum vannst sig-
ur vegna tollanua (að mestu) og var
það mikið og gott skref og eiga
stjórnvöld og viðkomandi aðilar
heiður skilið fyrir þá framgöngu.
Misréttið vegna ríkisstyrkjanna á
eftir að leiðrétta, en það er hægt
að gera með einhliða aðgerðum ein-
göngu, s.s. sambærilegu 20% skerð-
ingu á kvóta á útfluttan óunninn
fisk. Sú skerðing komi til viðbótar
þeirri skerðingu sem fyrir er vegna
útflutts óunnins físks, þar sem hún
á sér allt aðrar ástæður, eins og
skýrt hefur verið. Svo lengi hefur
hinsvegar óréttlætið viðgengist
gagnvart fiskvinnslu á íslandi, að
aðilar eru farnir að líta á óréttlætið
sem sjálfsagt réttlæti í mörgum til-
fellum. Þannig virðist sem í sumum
tilfellum hafi orðið um „umpólun"
réttlætisvitundarinnar að ræða.
Nýleg ákvörðun núverandi ríkis-
stjórnar og þá sérstaklega forsætis-
ráðherra um ráðstöfun á kvóta Ha-
græðingarsjóðs, er þó vonandi merki
um að alræðisvald sumra hags-
munahópa kunni að fara þverrandi
í átt til „norrnal" áhrifa. Það er
vonandi merki um að samkeppnism-
ismunun, s.s. vegna ríkisstyrkja EB,
verði mætt og íslensk fiskvinnslan
g$ti átt von á því að mega keppa á
jafnréttisgrunni gegn fiskvinnslu
EB. Fiskvinnsla EB verði þannig
ekki lengur tekin framyfir þá ís-
lensku.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Félag ráðgjafarverkfræðinga
10% fækkun starfsmanna
hjá verkfræðifyrirtækjum
I KONNUN sem Félag ráðgjafar-
verkfræðinga hefur gert á
ástandi og horfum hjá 18 verk-
fræðifyrirtækjum, kemur fram
að starfsmönnum hefur fækkað
um 10% frá áramótum. Jafn-
framt, að fyrirsjáanlega muni
þeim fækka um allt að 5% að
auki fram til áramóta.
í september síðastliðnum sendi
skrifstofa FRV út könnunareyðublað
til FRV-fyrirtækja. Í fréttabréfi
kemur fram að svör hafi borist frá
átján fyrirtækjum af 32. Fyrirtækin
14, sem ekki hafa svarað, eru aðal-
lega minnstu fyrirtækin. Niðurstöð-
ur leiddu í ljós að um síðustu ára-
mót voru 304 starfsmenn hjá þessum
fyrirtækjum, 242 tæknimenn og 62
aðrir. 1. október voru tæknimenn
orðnir 221 og aðrir starfsmenn 55.
Þá segir, „Áætlað er að starfs-
mönnum fækki um 13 í viðbót til
áramóta og hefur starfsmönnum þá
fækkað um 41 á ári eða tæp 14%.
Yfirvinna hefur dregist saman en
hún hafði reyndar þegar minnkað
mikið um síðustu áramót. Þá var
yfirvinna 7,4% að meðaltali en var
5,5% í september. Um síðustu ára-
mót mátu menn stöðuna þannig að
fyrir lægju fimm og hálfs mánaðar
verkefni, en nú eru fyrirsjáanleg
verkefni til þriggja mánaða og
þriggja vikna.“
Þakkarávarp.
Innilegar hjartans þakkirfœrum við öllum þeim
fjölmörgu, vinum og vandamönnum, sem
heiöruðu okkur með nœrveru sinni, gjöfum,
blómum og skeytum í tilefni 50 ára brúðkaups-
afmœlis okkar þann 14. nóvember sl. og gerðu
okkur daginn þannig ógleymanlegan.
Sérstakar þakkir viljum við fœra Regluráði
Allsherjar - Sam - Frímúrarareglunnar fyrir
þess ómetanlegu aðstoð.
Megi góður Guð varðveita ykkur nú og um
alla framtíð.
Krístrún Jónsdóttir,
Valdimar Lárusson,
Hamraborg 26,
Kópavogi.
Dagana 19.-28. nóvember höldum
við upp á 40 ára starfsafmæli okkar.
Bjóðum 20%-60% afslátt af
leikföngum, plastmódelum og fl.
TÓmSTUnDRHÚSIÐ HF
Laugavegi 164, sími 21901