Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 18

Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 18 Nýskípan hafnamála eftir Svein Andra Sveinsson Á nýafstöðnum aðalfundi Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) var samþykkt áiykt- un þar sem hvatt er til stórfellds flutnings verkefna frá ríki til sveit- arfélaga. Meðal þessara verkefna er uppbygging og fjármögnun hafna- framkvæmda. í grein þessari vill undirritaður gera grein fyrir sjónar- miðum sínum og er rétt að taka fram að með þeim er ekki verið að túlka sjónarmið SSH. Miðstýring ríkisvaldsins Núverandi skipan hafnamála er í stuttu máli með þeim hætti að upp- bygging og rekstur hafna er í hönd- um sveitarfélaga, en fjármögnun og ákvarðanataka um uppbyggingu og tekjur hafna er í höndum stjóm- valda; Alþingis og samgönguráð- herra. Um uppbyggingu og rekstur hafna gilda hafnalög nr. 69/1984. Yfirstjóm hafnamála er í höndum samgönguráðherra, en hafnaráð er honum til ráðuneytis, en í því sitja tveir fulltrúar ráðuneytis og einn fulltrúi tilnefndur af Hafnasambandi sveitarfélaga. Hafnaráð fjalla um öll stærri málefni Hafnamálastofnunar og fylgist með rekstri hennar, auk þess að vera ráðgefandi um fram- kvæmdaáætlun og um fjármál hafn- anna, þar á meðal gjaldskrárbreyt- ingar. Hafnamálastofnun fer með fram- kvæmd hafnamála og veitir hafna- málastjóri henni forstöðu. Er sér- staklega kveðið á um það í lögum að stofnunin skuli vel búin tækjum og sérþjálfuðu starfsliði til að sinna þeim verkefnum og rannsóknum sem henni er falin. Samkrull ríkis og sveitarfélaga Eigendur hafnamannvirkjanna eru sveitarfélög, eitt eða fleiri og skulu þau kjósa sér hafnastjómir og hafa þær með höndum stjóm hafna og hafnasjóða. Hafnasjóðum eru tryggðir ákveðnir tekjustofnar til rekstrar og nýbygginga, en ákvörð- unarvald um gjaldskrár er að lang- mestu leyti í höndum hafnaráðs og skal ákvörðun staðfest af ráðherra. Hafnaframkvæmdir em að hluta til fjármagnaðar af eigendum hafn- anna og að hluta til með framlegi úr ríkissjóði. ítarlegar reglur gilda í hafnalögum um hvaða framkvæmdir eru tækar til styrkja úr ríkissjóði. Hafnaframkvæmdir eru að stómm hluta til fjármagnaðar af ríkissjóði; um milljarður á síðasta ári. Alþingi eða fjárlganefnd hennar tekur ákvarðanir um fjárveitingar til hafnamannvirkja á grundvelli fram- kvæmdaáætlunar til nokkurra ára, sem unnin er af Hafnamálastofnun að höfðu samráði við fjölmarga að- ila. Stjómmálamenn víkja þó oft frá þessari áætlún. Bæði fjármögnun og rekstur hafnamannvirkja er þannig undir sameiginlegum hatti ríkis og sveit- arfélaga þar sem ekki fer saman fjár- mögnun og rekstur. Sveitarfélögun- um er þannig annars vegar ætlað að reka hafnir og byggja upp að hluta á gmndvelli eigin tekna sem ákveðnar em af ríkisvaldinu og hins vegar þurfa þau að sækja til ríkis- valdsins fé til framkvæmda á eigin vegum; fyrirkomulag sem fyrir löngu ætti að hafa rannið sitt skeið á enda. Verkefnið heim Undirritaður er eindregið þeirrar skóðunar að ríkisvaldið eigi með öllu að hætta afskiptum af gerð hafna- mannvirkja og að rekstur og upp- bygging þeirra verði að öllu leyti verkefni sveitarfélaga. í tillögum nefndar sem vann á vegum stjórnar SSH að tillöguflutningi um verkefni ríkis og sveitarfélaga er gert ráð fyrir að hafnamál verði alfarið verk- efni sveitarfélaga og á móti breytist hlutfall sveitarfélaga í staðgreiðslu á kostnað ríkissjóðs. Megintilgangurinn með slíkri verkefnatilfærslu væri sá að stuðla að betri ráðstöfun fjármagnsins og skynsamlegri uppbyggingu hafna- mannvirkja. Með miðstýrðri ákvarð- anatöku er ekki tryggt að fjárveit- ingum sé veitt einmitt til þeirra mannvirkja er mest er þörf á; þar geta ýmis önnur sjónarmið spilað inn í, stundum hrein og klár hrossa- kaup. Með því að allt fé til uppbygg- inga hafna sé í höndum sveitarfé- laga, sníða þau sér stakk eftir vexti. Staður hafna í forgangsröðun á fjár- hagsáætlun sveitarfélaga réðist þá af mikilvægi hafnamannvirkja fyrir sveítarfélög. Fyrirkomulag þetta gæti í auknum mæli leitt af sér sam- starf hafna og sveitarfélaga um uppbyggingu stærri hafnamann- virkja í stað kapphlaups á hlaupa- brautum fjárveitingavaldsins. Mætti hugsa sér byggðasamlög um stærsu hafnamannvirkin. Allri samræming- arvinnu á landsvísu mætti hæglega fela Hafnasambandi sveitarfélaga eða öðmm samstarfsvettvangi eig- enda hafnanna. Að sjálfsögðu er það á skjön við allt sem heitir sjálfstæði sveitarfé- laga að ríkið skuli stjóma gjaldskrár- málum hafna; að sjálfsögðu á slíkt að vera í höndum eigenda hafnanna. Hafnabótasjóður og Hafnamálastofnun lögð niður Auk þess að hafa stjóm á stóram hluta framkvæmdafjár í gegnum íjárlög og íhlutun í gjaldskrár hafna, Sveinn Andri Sveinsson „Undirritaður er ein- dregið þeirrar skoðun- ar að ríkisvaldið eig'i með öllu að hætta af- skiptum af gerð hafna- mannvirkja, og rekstur og uppbygging þeirra verði að öllu leyti verk- efni sveitarfélaga.“ stjórnar ríkisvaldið Hafnabótasjóði, sem að mestu leyti er fjármagnaður af eigendum hafna. Eðlilegur fylgi- fiskur tilflutnings ákvarðanavalds til sveitarfélaga frá ríki væri að leggja niður Hafnabótasjóðinn. Hins vegar mætti vel hugsa sér að einhver jöfn- un ætti sér stað milli eigenda hafna, líkt og gert er með jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Stofnun slíks sjóðs ætti að vera samkomulagsatriði milli Sveitarfélaga, sem síðar mætti skapa lagalegan grundvöll. Um Hafnamálastofnun er það að segja, að starfsemi hennar skiptist í grófum dráttum í þijá hluta: 1. Vinnu við framkvæmda- og fjár- hagsáætlun. 2. Verkfræðilega hönn- unarvinnu. 3. Grundvallarrannsókn- ir. Vinnu við fjárhags- og fram- kvæmdaáætlun er sjálfhætt við til- færslu verkefnisins. Um hönnunar- vinnuna er það að segja að hæglega má búa svo um hnútana að þeir eig- endur hafna sem ekki sjá um þetta sjálflr leiti til verkfræðistofa. Sé vilji fyrir því að halda uppi þeirri rann- sóknarstarfsemi sem í dag er sinnt af Hafnamálastofnun, gætu eigend- ur hafna kostað slíka rannsóknar- vinnu og jafnvel rekið eigin rann- sóknastofnun. Það er því eðlilegt að leggja Hafnamálastofnun niður í núverandi mynd. í stuttu máli er eftirfarandi lagt til: 1. Ákvarðanataka um uppbygg- ingu hafna og fjarmögnun verði færð til sveitarfélaga. 2. Sveitarfélögin fái samsvarandi hækkun útsvars og hlutur ríkis í tekjuskatti lækki. 3. Hafnarráð verði lagt niður. 4. Hafnamálastofnun verði lögð niður í núverandi mynd. 5. Hafnabótasjóður verði lagður niður. 6. Ákvörðun um gjaldskrár verði alfarið hjá eigendum hafna. Höfundur er borgarfulltrúi, varamaður í hafnarstjóm Reykjavíkur og formaður Samtaka sveitarfélaga & höfuðborgarsvæðinu. Námsstefna um vinnuum- hverfi heilbrigðisstétta í TILEFNI af evrópsku vinnu- verndarári munu Endurmennt- unarstofnun Háskóla íslands og Yinnueftirlit ríkisins í samvinnu við félög hjúkrunarfræðinga, iðju- þjálfa, sjúkraliða og sjúkraþjálf- ara standa að námsstefnu um vinnuumhverfi heilbrigðisstétta í Borgartúni 6 fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13-17.15. Markmið námsstefnunnar er að veita yfirlit yfxr helstu álagsþætti í vinnuumhverfí heilbrigðisstétta og áhrif þeirra með sérstakri áherslu á andlegt álag á þessar stéttir. Áhersla verður lögð á að kynna aðferðir sem nýst geta deildum og stofnunum og sem miða að aukinni ábyrgð starfsmanna á eigin vinnu- vemd. Fyrirlesarar verða: Guðný Krist- jánsdóttir vinnusálfræðingur, Rúdólf Adolfsson, geðhjúkmnarfræðingur, bæði á Borgarspítala, Eydís Svein- bjamardóttir lektor og Magnús Ól- afsdóttir, deildarstjóri geðdeild Landsspítala, Hörður Bergmann fræðslustjóri Vinnueftirliti ríkisins, Ágústa Guðnadóttir, starfsmanna- sjúkraþjálfari Borgarspítala. Nám- stefnustjóri verður Valgerður Gunn- arsdóttir sjúkraþjálfari. Þátttökugjald er 1.800 krónur. Nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu Endurmenntunarstofn- unar. (Fréttatilkynning) Fremstur meðal jafningja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.