Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 55
I
I
I
i
I
I
I
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR PIMMTUDAGúk lð' NÖVEMBER 1992
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Selfyssingar hristu af
Fram-skrekkinn
SELFYSSINGAR náðu sínum
fyrsta sigri á Fram í íþróttahús-
inu á Selfossi í gær og hristu
af sér Framskrekkinn sem var
umtalaður fyrir leikinn. Eftir
jafnan og oft tvísýnan leik urðu
lokatölurnar 27:25.
Bæði liðin byijuðu leikinn af
krafti og greinilegt var að
Selfyssingar tóku alvarlega fyrir-
skipun Einars þjálf-
Sigurður ara að ná sigri í
Jónsson leiknum. „Eg er
skrilarfrá auðvitað mjög
e/foss/ svekktur með að
tapa þessum leik. Við áttum fylli-
laga skilið að ná öðru stiginu og
ég hefði sætt mig við jafntefli. Það
er alltaf erfítt fyrir lið að rífa sig
upp þegar það er í botnbaráttu.
En við áttum góðan leik og ég er
ánægður með margt í leik minna
manna, við stóðum fyllilega jafn-
fætis Selfyssingum í þessum leik,“
sagði Atli Hilmarsson þjálfari
Fram.
„Við eigum alltaf í erfíðleikum
með Fram. Við náðum ekki nógu
góðum vamarleik og verðum að
gera betur ef við ætlum að halda
okkur á toppnum. Þeir spiluðu
grimmt og voru erfíðir en nú höld-
um við strikinu og náum toppnum
fyrir jól,“ sagði Sigurður Sveins-
son.
Einar Þorvarðarson, þjálfari,
tók í sama streng. „Ég þakka fyr-
ir að við náðum báðum stigunum.
Leikurinn víxlaðist allan tímann
en þeir féllu á eigin sóknarmistök-
um sem við náðum að nýta okkur
í lokin.“
Karl Karlsson var Selfossliðinu
sérlega erfiður en hann sýndi oft
á tíðum ótrúlega snerpu. Framarar
áttu í stökustu vandræðum með
stórskyttur Selfossliðsins þegar
þær náðu sér á strik og sigldu inn
í vöm þeirra. Hvað eftir annað
náði Einar Gunnar að skjóta þó
einn og tveir vamarmenn héngu
í honum. Sama var að segja um
Sigurð Sveinsson, það héldu hon-
MorgunblaðiðKristinn
Sigurjón Bjarnason og félagar hans í Selfossliðinu náðu að tryggja sér sigur gegn Fram í baráttuleik á lokamínút-
unum, 26:24. Hér svífur hann inn að marki Fram eftir að hafa látið skotið ríða af.
um engin bönd þegar hann náði
sér á ferð inn á milli vamarmann-
anna. Þá sýndi Einar Guðmunds-
son að snilldarskot hans og gegn-
umbrot eru verulega hættuleg.
Einar Gunnar Sigurðsson og
Sigurður Sveinsson áttu einna
bestan leik Selfyssinga úti á velli
en Gísli Felix var góður í mark-
inu. Karl Karlsson var yfírburða-
maður hjá Fram.
Lauflétt hjá
FH-ingum
ISLANDSMEISTARAR FH áttu
ekki í miklum erfiðleikum með
afspyrnuslakt lið HK í Digra-
nesi, unnu með níu marka
mun, 17:26. Kópavogsliðið náði
aðeins að gera fimm mörk f
fyrri hálfleik á meðan Hafnfirð-
ingarnir settu ellefu.
^%rátt fyrir að sigur FH-inga
hafi verið stór léku þeir ekki
af fullum styrk allan leikinn. Þeir
voru í vandræðum
með sóknarleikinn í
fyrri hálfleik en það
kom ekki að sök því
ekkert gekk upp hjá
mótheijunum og Bergsveinn var vel
á verði í markinu.
FH hafði síðari hálfleikinn í hendi
sér og þegar staðan var orðin 11:20
settust Kristján Arason og Alexej
Trúfan á varamannabekkinn og létu
óreyndari strákana um að klára
leikinn og þeim var ekki skotaskuld
úr því. HK-menn áttu ekkert svar
og voru búnar að játa sig sigraða
um miðjan hálfleikinn.
Kristján, Trúfan, Hálfdán og
Bergsveinn voru bestir í jöfnu liði
FH. Kristján var góður baeði í vöm
Valur B.
Jónatansson
skrífar
og sókn, átti þijár línusendingar
sem gáfu mörk, fiskaði eitt víti og
gerði eitt mark. Trúfan fellur vel
inní FH-liðið og var í miklu stuði í
fyrri hálfleik - gerði þá sjö af 11
mörkum liðsins. Bergsveinn var
einnig í stuði í fyrri hálfleik, varði
þá 11 skot þar af eitt vítakast.
Hálfdán gerði §ögur mörk og
fiskaði þijú víti.
HK-menn hafa ekki verið sann-
færandi í undanfömum leikjum og
ekki breyttist það í gær. Liðið er
skipað ágætis einstaklingum, sem
einhverra hluta vegna ná ekki sam-
an. Aðalskytta liðsins, Hans Guð-
mundsson, brást algjörlega og mun-
ar um minna. Hann átti 13 skot á
markið en gerði aðeins eitt mark
og kom það í 11. tilraun. Tonar var
heldur ekki eins og hann á að sér,
átti 12 skot og gerði fimm mörk.
■ FH gerði 7 mörk eftir hraðaupp-
hlaup, 5 með langskotum, 4 af linu,
2 úr homi, 2 eftir gegnumbrot og
6 úr vítaköstum.
■ HK gerði 4 mörk eftir hrað-
aupphlaup, 3 með langskotum, 4
af línu, 3 úr homi, 1 eftir gengnum-
brot og 2 úr vítaköstum.
Valsmenn kaf-
shjldii Víkinga
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Valsmenn áttu i litlum erfiðleikum
með að sigra Víkinga að Hlíðar-
enda í gærkvöldi. Mjög góð byijun
heimamanna setti
gestina út af laginu
og eftirleikurinn var
nánast formsatriði,
þó Víkingum tækist
að minnka muninn timabundið um
miðjan seinni hálfleik. Valsmenn
höfðu sjö marka forystu í hléi, 12:5,
en unnu 24:16 og tróna enn á toppn-
um.
Sóknamýting Valsmanna var frá-
bær fyrsta stundarfjórðunginn, níu
mörk úr 11 sóknum. Að sama skapi
tóku þeir hraustlega á móti Víkingum
í vöminni og höfðu sérstaklega góðar
gætur á Birgi Sigurðssyni á línunni
eftir að hann jafnaði 1:1, en það var
eina mark hans í fyrri hálfleik. Vík-
ingar voru að auki einstaklega lán-
lausir í sókninni á þessum tíma, tvö
vítaköst rötuðu ekki rétta leið, tvisvar
small boltinn í stöng og þrisvar misstu
Víkingar boltann klaufalega frá sér.
Víkingar mættu ákveðnari til síð-
ari hálfleiks, höfðu góðar gætur á
Degi Sigurðssyni og Jóni Kristjáns-
syni og Gunnar þjálfari Gunnarsson
tók af skarið í sókninni með góðum
árangri. Reynir Reynisson fór í mark-
ið i stöðunni 15:9 og Víkingar náðu
að minnka muninn í fjögur mörk, en
þeim tókst hvorki að nýta sér liðs-
muninn, þegar rúmlega fjórar mínút-
ur voru til leiksloka, né ráðleysi Vals-
manna, sem skoruðu ekki á tæplega
fímm mínútna kafla. Valdimar
Grímsson gerði endanlega út um von-
ir gestanna með 21. marki Vals og
fylgdi því eftir með því að gera síð-
ustu þijú mörkin eftir hraðaupphlaup.
Breiddin var aðal Vals að þessu
sinni og stóðu sig allir með sóma.
Leikmennimir unnu vel saman í vöm
sem sókn, en slökuðu á klónni, þegar
ljóst var hvert stefndi.
Vamarleikur Víkings var ekki góð-
ur og sóknarleikurinn ómarkviss.
Birgir Sigurðsson var tekinn föstum
tökum og Gunnar Gunnarsson var
allt í öllu, en einn maður, þó góður
sé, á sér ekki viðreisnar von gegn
sterkri liðsheild.
FOLK
I RÚNAR Sigtryggsson, sem
verið hefur einn besti maður Þórs
á Akureyri í vetur, lék ekki með
liðinu i gærkvöldi. Hann meiddist í
leiknum gegn ÍBV og reyndist hafa
tognað á ökkla, en gert er ráð fyrir
að hann verði með i næsta leik.
■ GUÐMUNDUR Hrafnkelsson
varði glæsilega af línu, þegar liðlega
17 mínútur vom til leiksloka og
staðan 16:11 fyrir Val gegn Vík-
ingi. Hann fékk boltann í höfuðið
og vankaðist.
■ FRIÐLEIFUR Friðleifsson var
borinn útaf I sömu sókn, en virtist
ekki alvarlega meiddur.
■ VALDIMAR Grímsson og Júl-
íus Gunnarsson fóm skömmu áður
smávægilega meiddir af velli, en
komu fljótlega inná aftur.
■ VALDIMAR gerði mörk sín í
kippum. í fyrri hálfleik gerði hann
þijú af fjórum mörkum Vals í röð
og síðan fjögur þau síðustu í leikn-
um.
I VALSMENN vígðu nýja blaða-
mannastúku og er ástseða til að
óska þeim til hamingju með fram-
takið.
I HANS Guðmundsson gerði að-
eins eitt mark fyrir HK gegn sínum
gömlu félögum í FH og það í 11.
tilraun þegar 9 mínútur vom til
leiksloka. FH-ingar klöppuðu fyrir
Hans þegar hann náði loks að skora.
■ HK-Iiðið gerði annað mark sitt
í leiknum gegn FH þegar 16,25
mínútur vom liðnar af leiknum. Þá
hafði Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður FH, varið 8 skot.
Góð ferð
KA til Eyja
„ÞETTA var mjög mikilvægur
sigur fyrir okkur. Það sem gerði
útslagið og er breytt frá undan-
förnum leikjum okkar var að
markvörðurinn varði vel,“
sagði Alfreð Gíslason, þjálfari
KA, eftir sigurá ÍBV, 17:19.
Heimavöllur Eyjamanna hefur enn
ekki skilað þeim einum einasta
sigri. Leikurinn gegn KA einkenndist
af mikilli baráttu
enda mikið í húfi fyr-
ir bæði lið, sem em
við botn deildarinnar.
Jafnt var allan fyrri
hálfleikinn en það vom þó Eyjamenn
sem vom ávallt skrefinu á undan.
Markmenn liðanna vom í aðalhlut-
verki og Sigmar Þröstur varði alls 9
skot í fyrri hálfleik. ÍBV hafði þá
yfír, 11:10.
Það var kraftur í KA-mönnum
þegar þeir mættu til síðari hálfleiks;
þeir gerðu 5 mörk á fyrstu 5 mín.
og náðu þriggja marka forskoti,
12:15. Heimamenn náðu aldrei að
jafna eftir það. Á lokamínútunum
varði Iztok Race í marki KA m.a. tvö
vitaköst og munar um minna. Loka-
tölumar urðu 17:19 fyrir KA.
KA lék vömina framarlega allan
leikinn og gafst það lengstum vel.
Markvarslan var einnig góð, en ein-
staklingsframtak Óskars Elvars Ósk-
arssonar hélt KA-mönnum á floti í
sókninni. ÍBV lék oft ágæta vöm og
Sigmar Þröstur varði vel, en sóknar-
leikur liðsins var vandraéðalegur.
Sigfús Gunnar
Guðmundsson
skrífar
Loksins heimasigur hjá Þór
frfcórsarar fögnuðu sigri á heima- velli sínum, eftir §óra tapleiki í röð á Akureyri, þegar þeir fengu ÍR-inga í hejmsókn. Tómas Sævar Ámason Hermannsson skoraði sigurmark skrífar þeirra þegar 20 sek. voru til leiksloka með því að fara inn úr homi og vippa knettinum yfir Magnús Sig- mundsson, markvörð ÍR-inga. Sigur Þórs virtist í öruggri höfn þegar fimm mín. voru til leiksloka. Þá vom þeir með þriggja marka forskot, 23:20. Þá small allt í baklás hjá þeim og tvsivar var knötturinn dæmdur af þeim eftir hnoð fyrir framan vöm ÍR-inga, sem náðu að jafna, 23:23, í þremur sóknarlotum - jöfnunarmarkið kom þegar 1.50 mín. vom eftir. Undir lokin var stig- inn mikill darraðadans og var Þórs- ararnum Sigurpáli Áma Aðalsteins- syni vísað af leikvelli. ÍR-ingar fengu tækifæi að gera út um leik- inn, en misstu knöttinn og heima- menn branuðu fram í hraðaupp- hlaup sem lauk með því að Sævar skoraði eins og áður sagði. Sigurpáll Ámi lék best hjá Þór í fyrri hálfleik og skoraði þá flest af átta mörkum sínum, en í seinni hálfleik tók Ole Nielsen við hlut- verki hans. Þeir vom bestu menn Þórs, en hjá ÍR var Rafn Rafnsson bestur í slöku liði. Vamarleikur ÍR var lélegur og markvarslan eftir því.