Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 56
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Flatbökum-
ar ódýrastar
á Akureyri
FLATBÖKUR, öðru nafni
pizzur, reyndust mun ódýr-
ari á veitingastöðum á Akur-
eyri en í Reykjavík í skyndi-
könnun sem kynnt er í
„Verðkönnun vUcunnar“ í
blaðinu í dag.
Verð á 12 tommu flatbökum
var kannað í níu veitingahús-
um, sjö i Reykjavík og tveimur
á Akureyri. Lægsta verðið var
hjá Bautanum á Akureyri, 780
kr., og Greifanum á Akureyri,
860 kr. stykkið. Lægsta verðið
í Reykjavík var á Hominu þar
sem bakan kostaði 920 krónur.
Sjá bls. 34.
Dökkt útlit er í byggingariðnaðinum að sögn forystumanna í greitiinni
Vinnutími styttist, launin
lækka og atvinnuleysi eykst
„MENN eru þvingaðir til að sæta kostum sem þekktust í upphafi aldar-
innar, atvinnuleysi eykst, vinnutími styttist og launin lækka. Við höfum
aldrei fundið þetta meira en nú á síðustu mánuðum," segir Grétar
Þorsteinsson, formaður sambands byggingarmanna. Viðmælendum
blaðsins ber saman um að í byggingariðnaði stefni í óefni vegna harðn-
andi samkeppni um verkefni sem ekki eru á hveiju strái. Ástandið
bitni ekki aðeins á launum iðnaðarmanna og verkafólks, verslun með
byggingarefni og framleiðendur finni einnig fyrir þvi.
Steindór Guðmundsson, verkfræð-
ingur er forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar Innkaupastofnunar
ríkisins. Hann segir að nú sé tími
kaupenda, menn keppist um að vinna
verk fyrir sem fæstar krónur og
geti ekki gert sömu arðsemiskröfur
og áður. Hann segir að fjárhæðir
tilboða í verk hafí greinilega farið
lækkandi síðustu mánuði og geri það
væntanlega áfram, verktakar reyni
að lækka launakostnað og prútta um
verð á efni.
„Laun hafa yfirleitt verið um
helmingur af kostnaði verktaka,"
segir Steindór, „en nú hefur dregið
talsvert úr greiðslum umfram samn-
inga. Verslun með hráefni fínnur líka
mikið fyrir vaxandi samkeppni, það
er meira um afslátt til verktaka og
framleiðendur eins og steypustöðvar
Tálbeita frá bandarísku tollgæslunni stóð tvo íslendinga að verki
Teknir með hormónalyf
fyrir milljónir í Flórída
TVEIR íslendingar sitja nú í fangelsi í Flórída, í nágrenni borgarinn-
ar Orlando, eftir að lögreglumenn frá bandarísku tollgæslunni hand-
tóku þá á sunnudaginn var. Þeir munu hafa reynt að selja tálbeitu
frá bandarisku toUgæslunni töluvert magn af hormónalyfjum og
er brot þeirra talið það alvarlegt að þeir fá ekki að setja fram trygg-
ingu tU að losna úr fangelsinu þar til dómur hefur faUið í máli þeirra.
Jón Egilsson, sendiráðunautur söluna á hormónalyfjum sem þó
íslands í Washington, vill lítið tjá
sig um mál þetta að svo stöddu en
segir: „Þetta er mjög alvarlegt mál
og á viðkvæmu stigi sem stendur."
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ákæruskjal saksóknar-
ans í málinu upp á 19 blaðsíður
og þar að fínna ýmislegt annað en
er aðalatriði ákærunnar. Eins og
áður segir er um töluvert magn
að ræða og í ákæruskjalinu kemur
fram að verðmæti hormónalyfjanna
nemi tugum þúsunda dollara eða
nokkrum milljónum króna.
Þegar hefur fyrsta yfírheyrsla
farið fram yfír mönnunum hjá dóm-
ara og í lok hennar var það ákvörð-
un dómarans að mönnunum tveim-
ur væri ekki heimilt að setja fram
tryggingar gegn lausn sinni úr
fangelsi. Mennimir tveir og lög-
fræðingur þeirra í Bandaríkjunum
munu halda því fram að tollgæslan
hafí leitt þá í gildm.
Eftir að íslendingamir höfðu
verið handteknir höfðu lögregluyf-
irvöld á staðnum samband við
Hilmar Skagfíeld, ræðismann ís-
lands í Thallahassie. Hann kom
upplýsingum um málið til sendi-
ráðsins í Washington sem aftur
hafði samband við utanríkisráðu-
neytið hér heima.
Hilmar Skagfield segir að hann
hafí útvegað mönnunum tveimur
lögfræðinga og sé í stöðugu sam-
bandi við þá. Málið sé rekið sem
alríkismál. Mennirnir séu hafðir í
haldi í sýslufangelsinu í Sanford í
nágrenni Orlando. Hilmar veit ekki
hvað mennimir vom upphaflega
að gera í Flórída er þeir lentu í
smyglmáli þessu en hann hefur
heyrt að hormónalyfín séu upp-
mnalega frá Indlandi.
faræekki varhluta af þessu.“
Grétar segir að menn séu í sífellt
auknum mæli gerðir að nokkurs kon-
ar undirverktökum til að vinnuveit-
andinn sleppi við ýmis gjöld og þeir
beri þá alla ábyrgð sjálfír. Viðsemj-
andinn geti sagt þeim upp fyrirvara-
laust og hafí engum skyldum að
gegna ef þeir veikist eða slasist. f
annan stað sé fastráðnum starfs-
mönnum fyrirtækja æ oftar gert að
sæta þessum kostum. Grétar segir
að dregið hafi mikið úr yfirborgun-
um, menn nálgist margir lágmark í
samningum,_ allt niður í 600 krónur
á tímann. Utkoma undirverktakans
sé langt undir lágmarkskaupi þegar
staðið hafí verið skil á öllu.
Forystumenn múrara og málmiðn-
aðarmanna taka í sama streng. Öm
Friðriksson, forseti Málm- og skipa-
smiðasambandsins, segir að menn
keppist um að bjóða lágt í verk en
grunnlaun virðist hafa haldist sam-
kvæmt samningum í haust. Hins
vegar hafi ráðstöfunartekjur lækkað
verulega vegna minni yfirvinnu. Öm
segir að uppsögnuni fjölgi, atvinnu-
lausir málmiðnaðarmenn í Reykjavík
nálgist nú 60, sem er nálægt 4%.
Magnús Geirsson, forseti Rafíðn-
aðarsambands íslands, segir at-
vinnuleysið aldrei hafa verið eins
mikið síðan á árunum upp úr 1950.
„Meira að segja í samdrættinum í lok
sjöunda áratugarins gátu menn leit-
að til Norðurlandanna eftir vinnu.
Nú er ástandið enn verra þar,“ segir
hann. Magnús segir að stór fyrirtæki
í rafiðnaði hafí dregið mjög úr yfír-
vinnu starfsmanna, Rafmagnsveitur
ríkisins hafí til dæmis sagt mönnum
upp aukavinnu sem verið hafí í
fímmtán ár og vegna þess lækki laun
starfsmanna um þriðjung í mars.
A HALUM IS
Morgunblaðið/Sverrir
Efnahagsráðstafanir
Skilyrði ASÍ að
hafa hátekju- og
fj ármagnsskatta
HELSTU ágreiningsefni stjórnarflokkanna um með hvaða hætti ráðist
skuli að rótum efnahagsvandans eru samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins þau, að Alþýðuflokkurínn er hlynntur fjármagnstekjuskatti
en Sjálfstæðisflokkur ekki, Alþýðuflokkur er hlynntur hátekjuskatt-
þrepi, en Sjálfstæðisflokkurínn er ekki samstíga i afstöðu sinni gagn-
vart slíkrí tekjuöflunarleið.
Raunar er talið útilokað, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að nokkurt samkomulag náist
um efnahagsráðstafanir við Alþýðu-
sambandið, nema fjármagnstekju-
skattur og hátekjuskattur verði hluti
þeirra aðgerða sem ákyeðnar verða.
Báðir stjómarflokkamir munu þó
telja óraunhæft með öllu að viðmið-
unin um hátekjuskattþrep verði sú
sem Alþýðusambandið leggur til,
eða 160 þúsund króna mánaðartekj-
ur einstaklinga og 320 þúsund
króna tekjur hjóna og sambýlis-
fólks. Telja báðir stjórnarflokkamir,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, að slík viðmiðunarmörk
séu allt of Iág. Auk þess eru áhöld
um hvort þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins sé reiðubúinn til þess að
fallast á hækkun tekjuviðmiðunar-
marka einyrkja í atvinnurekstri.
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvangi á miðopnu.
Sjöfn VE
með ólöglega
möskvastærð
VARÐSKIPIÐ Týr stóð bátinn
Sjöfn VE að meintum ólöglegum
veiðum skammt austan við Vest-
mannaeyjar í gær, miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar var Sjöfn með 5,5
tommu möskva í þorskaneti en riðill-
inn þarf að vera 6 tommur til að
vera löglegur.