Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
• •
Onnur umræða um frumvarp um frumvarp félagsmálaráðherra
Samkomulag um betri rétt
launþega við hópuppsagnir
EINNI setningu í lagafrumvarpi félagsmálráðherra um hópupp-
sagnir verður breytt. Þar með telja sljórnarandstæðingar frum-
varpið orðið ásættanlegt. Allir þingmenn telja að í frumvarpinu
felist nokkrar réttarbætur fyrir launþega ef/þegar hópuppsagnir
verða.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra mælti 18. september
síðastliðinn fyrir frumvarpi til laga
um hópuppsagnir. Þá kom fram í
framsöguræðu félagsmálaráðherra
að þetta frumvarp væri samið af
nefnd sem hún hefði skipað til að
undirbúa aðild íslands að fijálsum
atvinnu- og búseturétti á evrópska
efnahagssvæðinu, EES. Með sam-
þykkt frumvarpsins yrðu lögfestar
reglur þær, sem settar væru fram
í tilskipun Evrópubandalagsins nr.
75/129, um samræmingu á lögum
aðildarríkjanna um hópuppsagnir.
í frumvarpinu eins og það var
lagt fram var hugtakið hópupp-
sagnir skilgreint þannig að það
væri uppsagnir atvinnurekenda á
fastráðnum starfsmönnum þegar
fjöldi starfsmanna sem sagt væri
upp á 30 daga tímabili væri: a)
Að minnsta kosti 10 starfsmenn í
fyrirtækjum sem venjulega hafa
fleiri en 20 og færri en 100 starfs-
menn í vinnu. b) Að minnsta kosti
10% starfsmanna í fyrirtækjum
sem venjulega hafa hið minnsta
100 starfsmenn, en færri en 300
starfsmenn í vinnu. c) Að minnsta
kosti 30 starfsmenn í fyrirtækjum
sem venjulega hafa 300 starfs-
menn eða fleiri í vinnu.
I 2. grein frumvarpsins er
ákvæði um samráð atvinnurekenda
við trúnaðarmann starfsmanna eða
annan fulltrúa sem þeir hafa til
þess valið eins fljótt og auðið er.
Með samráðinu skal stefnt að því
að ná samkomulagi til að komast
hjá uppsögnum að svo miklu leyti
sem mögulegt er eða draga úr af-
leiðingum þeirra.
Frumvarpið felur í sér að sveit-
arfélög eða vinnumiðlanir, þar sem
þær starfa, eigi að annast þau
verkefni sem fylgja hópuppsögn-
um. Þar sem sveitarfélag er með
fleiri enn 500 íbúa verður þáð að
jafnaði stjórn vinnumiðlunar sem
annast þetta verkefni. En í sveitar-
félögum með færri en 500 íbúa
yrði þetta verkefni sveitarstjórnar
eða þess aðila sem hún fengi það
í hendur.
EES ei meir
Þessu frumvarpi Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra
var vísað til félagsmálanefndar 6.
október síðastliðinn. í gær gerði
Guðjón Guðmundsson (S-Vl)
varaformaður félagsmálanefndar
grein fyrir því að nefndin mælti
með samþykkt frumvarpsins með
einni breytingartillögu, þess efnis
að fyrsta setning 7. greinar verði
svohljóðandi: „Lög þessi öðlast
gildi 1. janúar 1993.“ En nefnd
sú sem hafði samið frumvarpið
hafði gert tillögu um textann: „Lög
þessi öðlast gildi um leið og samn-
ingurinn um evrópskt efnahags-
svæði öðlast gildi að því er ísland
varðar.“ Það kom þó fram í ræðu
varaformanns félagsmálanefndar
að einstakir nefndarmenn áskyldu
sér rétt til að flytja síðar breyting-
artillögur eða fylgja þeim sem fram
kynnu að koma.
Vel ásættanlegt
Kristinn H. Gunnarsson (Ab-
Vf) benti á að með breytingartil-
lögu félagsmálanefndar væri þetta
frumvarp ekki lengur EES-frum-
varp heldur almennt lagafrumvarp
sem myndi standa óháð því hver
yrðu afdrif frumvarpsins til stað-
festingar á samningnum um EES.
Mætti segja að frumvarpið um
hópuppsagnir væri orðið „vel
ásættanlegt“ og horfði til bóta
varðandi réttindi launþega á ís-
Guðjón Guð- Ingibjörg Pálma-
mundsson dóttir
landi.
Kristinn
greindi frá því
að umsagna-
raðilar hefðu
komið með
nokkar athuga-
semdir eða
ábendingar en
þær væru þó
ekki það veiga-
miklar efnis-
lega að þær
breytu hans afstöðu. Hann vildi
þó áskilja sér rétt til að leggja
frambreytingartillögur við þriðju
umræðu til að koma til móts við
óskir umsagnaraðila. Frumvarpið
gerir ráð fyrir samráði við trúnað-
armenn og vinnumiðlun þegar til
hópuppsagna kemur. Það hefðu
margir farið fram á breytingu á
skilgreiningu á því hvenær beita
ætti ákvæðum frumvarpsins. Nú
væri skilgreint í 1. greina að
ákvæði í frumvarpinu ættu við
m.a. samkvæmt a-lið: „Að minnsta
kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum
sem venjulega hafa fleiri en 20
starfsmenn og færri'en 100 starfs-
Rannveig Guð-
mundsdóttir
menn í vinnu." Fram hefðu komið
óskir um að breyta fyrstu tölunni
í 4 og annarri tölunni í 16. Krist-
inn vildi einnig áskilja sér allan
rétt til að athuga betur undan-
þáguákvæði frumvarpsins þar sem
uppsagnir á áhöfnum skipa væru
undanþegar. Við eftirgrennslan
hefði verið vísað til sjómannalaga
og alþjóðlegra kjarsamninga.
Kristinn gerði einnig að umtals-
efni að Samband íslenskra sveitar-
félaga hefði lagst gegn ákveðnum
þáttum frumvarpsins um að vinnu-
miðlun sveitarfélaga skyldi leita
lausnar á vandanum. í umsögn
sambandsins væri talað um „auk-
inn kostnað, eftirlit og skriffinnsku
og aukinn kostnað sveitarfélaga“.
Kristinn undraðist þessa afstöðu,
einkum í ljósi þeirrar áherslu sem
stjóm þessa sambands legði á það
að sveitarfélögin fengju aukin
verkefni.
Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl)
furðaði sig einnig á umsögn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Hún
dró enga dul á það að þingmenn
í félagsmálanefnd hefðu verið sam-
mála um að burtséð frá samningn-
um um EES væri þetta frumvarp
hið besta mál.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
(SK-Rv) sagði að hún gerði sama
fyrirvara og Kristinn H. Gunnars-
son varðandi a-lið 1. greinar. Mörg
íslensk fyrirtæki væru lft.il, hefðu
t.d. 20-21 starfsmann, og henni
þætti heldur mikið að segja þyrfti
nálega helmingi starfsmanna upp
til þess að samráðsferli færi í gang.
En Ingbjörg Sólrún taldi samt að
almennt væri þetta frumvarp
nokkur réttarbót fyrir launþega.
Rannveig Guðmundsdóttir
(A-Rn) formaður félagsmálanefnd-
ar vildi þakka nefndarmönnum
fyrir það góða samstarf sem hefði
tekist í nefndinni um afgreiðslu
þessa frumvarps sem væri óum-
deilanleg réttarbót fyrir launþega.
Umræðu varð lokið en atkvæða-
greiðslu frestað.
STUTTAR
ÞINGFRETTIR
Fríverslunarsamningur við
tékkneska og slóvakíska
sambandslýðveldið
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra mælti í gær fyrir til-
lögu til þingsályktunar um full-
gildingu fríverslunarsamnings
milli ríkja Fríverslunarsamtaka
Evrópu og tékkneska og slóvak-
íska sambandslýðveldisins.
Fríverslunarsamningurinn
byggist að mestu á samningum
sem einstök EFTA-ríki gerðu við
Efnahagsbandalagið, EB, gerðu á
árunum 1972-73, þ.e. fríverslun
með iðnaðarvörur og heimild til
verðjöfnunar á vörum unnum úr
landbúnaðarvörum. EFTA-ríkin
fella niður innflutningstolla við
gildistöku samningsins en Tékkar
hafa 10 ára aðlögunartíma til fella
niður höft á innflutningi til Tékkó-
slóvakíku. Samingurinn felur í sér
að komið verður á fríverslun með
fisk strax við gildistöku.
Utanríkisráðherra sagði að
samkomulag væri milli ríkis-
stjórna í tékkneska og slóvakíska
sambandslýðveldinu um að leysa
sambandslýðveldið upp og stofna
tvö fullvalda ríki frá og með 1.
janúar 1993. En ákveðið hefði
Verið að koma upp tollabandalagi
þessara ríkja með fijálsu flæði
vöru og þjónustu. Ríkisstjórninar
hefðu lýst því yfír að þær myndu
taka yfir öll réttindi og skyldur
sem tékkneska og slóvakíska sam-
bandslýðveldið hefði gagnvart öðr-
um ríkjum.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að viðskipti íslend-
inga við Tékka og Slóvaka hafa
dregist mjög saman á undanföm-
um árum. Arið 1991 var útflutn-
ingur til þessa svæðis 17,7 milljón-
ir króna en innflutningur þaðan
nam 385,4 milljónum króna.
Lög frá Alþingi
í gær var samþykkt sem lög frá
Alþingi framvarp um stofnun
hlutafélags um Ríkismat sjávar-
afurða. Tuttugu og níu stuðnings-
menn ríkisstjómarinnar greiddu
frumvarpinu atkvæði. Átján
stjórnarandstæðingar sátu hjá.
Þingmennirnir Jóhann Ársælsson
(Ab-Vl), Svavar Gestsson (Ab-Rv)
og Stefán Guðmundsson (F-Nv)
greiddu atkvæði gegn frumvarp-
inu.
Morgunblaðið/Benedikt
| Grasvöllurinn á Eskifirði, fyrir neðan byggð-
ina innst í bænum. Á minni myndinni er
vaskur hópur Austrafélaga, sem tók þátt í
að tyrfa gamla völlinn í haust.
Grasvöllur á Eskifirði í sam-
vinnu bæiarins oor Austra
Eskifirði. 91 O
í ALLMÖRG ár hefur verið á
döfinni að gera grasvöll fyrir
knattspyrnumenn Austra á Eski-
firði. Þessi draumur varð að
veruleika nú í haust er lagningu
grass á gamla malarvellinum
innst í bænum lauk.
-< Bæjarstjórn Eskifjarðar lagði
nokkurt fjármagn í gerð grasvallar-
ins og stjórn Austra leitaði til fé-‘
laga um sjálfboðavinnu til að auð-
velda gerð hans. Skemmst er frá
því að segja, að félagar brugðust
vel við og um leið og íþróttaæsk-
unni voru búin betri skilyrði spjöll-
uðu menn og spáðu í framtíðina.
Á aðalfundi Austra á dögunum
flutti Arngrímur Blöndahl, bæjar-
stjóri, ávarp og þakkaði stjórn
Austra og öllum þeim sem lögðu
hönd á plóginn við gerð grasvallar-
ins. Bæjarstjórn Eskifjarðar bauð
síðan fundarmönnum uppá kaffi í
tilefni áfangans. BenediHt
Ráðstefna um
mögnleika íslensks
matvælaiðnaðar
HAGSMUNAAÐILAR í matvælaiðnaði í samvinnu við ráðu-
neyti sjávarútvegs-, iðnaðar- og landbúnaðar hafa ákveðið að
standa sameiginlega að ráðstefnu til að ræða framtíð íslensks
matvælaiðnaðar. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum
30. nóvember nk. og hefst kl. 8.30 með afhendingu ráðstefnu-
gagna.
Á ráðstefnunni er ætlunin að
ræða sameiginlega hagsmuni
hinna ýmsu greina iðnaðarins.
Aðstandur ráðstefnunnar
hafa fengið ýmsa sérfræðinga í
íslenskum matvælaiðnaði og
forrystumenn hagsmunasam-
taka honum tengdum til þess
að flytja erindi á ráðstefnunni.
Erlendis frá koma Kjartan Jó-
hansson, sendiherra Islands hjá
EFTA í Genf, og Valgerður
Bjarnadóttir, fulltrúi VSÍ og FÍI
í Brussel.
í frétt frá undirbúningsnefnd
um matvælaráðstefnu segir
m.a.:
„Miklar breytingar eru fyrir-
sjáanlegar á alþjóðaviðskiptum.
Viðskipti innan aðildarlanda
Evrópubandalagsins fara senn
óhindruð fram á einum markaði
og með stofnun evrópska efna-
hagssvæðisins, EES, er stefnt
að enn frekari fríverslun í Evr-
ópu. Með GATT-samningnum
verður viðskiptahindrunum enn
frekar rutt úr vegi og þá á
heimsvísu. Þetta á ekki síst við
um viðskipti með matvæli og við
tilkomu þessa alþjóðlega við-
skiptaumhverfis verða íslenskir
matvælaframleiðendur að
bregðast og ræða með hvaða
hætti þeir geti best varið stöðu
sína og sótt inn á erlenda mark-
aði.“
Miklar breytingar eru fyrir-
sjáanlegar í alþjóðaviðskiptum.
Viðskipti innan aðildarlanda
Evrópubandalagsins fara senn
óhindrað fram á einum markaði
og með stofnun evrópska efna-
hagssvæðisins, EES, er stefnt
að enn frekari fríverslun í Evr-
ópu.