Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992
33
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Keppnin um Landslagið 1992 fer fram í Sjallan-
um annaðkvöld og hafa keppendur æft sig af
kappi síðustu daga, en stærri myndin var tekin
á æfingu í gær. Á innfelldu myndinni syngur
Sigrún Sif Jóelsdóttir.
gj Landslagið
undirbúið
ÞAÐ hefur verið mikill erill í Sjallanum síð-
ustu daga og hefur húsið breytt um svip, en
undirbúningur er nú á lokastigi vegna keppn-
innar um Landslagið 1992 sem fram fer í
Sjallanum annaðkvöld, föstudagskvöld.
Kolbeinn Gíslason, framkvæmdastjóri Sjallans,
sagði að mikill áhugi væri fyrir þessari keppni
og kæmi mikið af fólki til bæjarins í tilefni af
henni. „Það kemur fólk alls staðar að af landinu
og það er greinilegt að fólk er spennt fyrir þessu.
Ég tel að það sé mikill fengur fyrir bæinn að
þessi keppni er haldin hér.“
Kolbeinn sagði að eitthvað á annað hundrað
manns legði fram vinnu vegna Landslagskeppn-
innar, en nú er m.a. búið að setja upp nýja leik-
mynd í húskynnum skemmtistaðarins, koma þar
fyrir myndatökuvélum og fullkomnu hljóðkerfi,
en bein útsending verður á Stöð 2 frá keppninni.
Tíu lög keppa til úrslita og voru þau valin úr
um 250 lögum sem bárust í keppnina. Æfingar
stóðu yfir í gær og keppendur mun einnig æfa
sig á morgun, en sem fyrr segir er keppnin á
föstudagskvöld.
„Það hefur allt gengið hnökralaust fyrir sig
fram til þessa, engin stór vandamál komið upp
þannig að þetta leggst bara vel í okkur,“ sagði
Kolbeinn.
Súkkulaðiverksmiðj uniii Lindu
veitt heimild til nauðasamninga
Sorg og sorgarviðbrögð
Fyrirlestur
ummissibarna
og skólann
Már Magnússon sálfræðingur flyt-
ur fyrirlestur á fundi Samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í kvöld,
fímmtudagskvöldið 19. nóvember kl.
20.30. Már ræðir í erindi sínu um
missi bama og skólann.
----♦ ......
Skólanefnd MA
Framkvæmd-
inn við skóla-
byggingu
yerði hraðað
SKÓLANEFND Menntaskólans á
Akureyri hefur mótmælt seina-
gangi við undirbúning byggingar-
framkvæmda við skólann. Nefndin
kom saman til fundar í vikunni
þar sem þetta var samþykkt.
í samþykkt skólanefndar er vísað
til nýrrar skýrslu Tryggva Gíslasonar
skólameistara um byggingarmál
skólans og er vakin á þvi athygli,
að rými fyrir hvem nemanda í not-
hæfu kennsluhúsnæði er aðeins 4,4
fermetrar, sem er það lakasta sem
þekkist í framhaldsskólum landsins.
„Af þeim sökum ætti Menntaskólinn
á Akureyri að njóta forgangs við
úthlutun framkvæmdafjár."
Þá lýsir nefndin einnig andstöðu
við hugmyndir um að hvika frá þeirri
stefnu menntamálaráðuneytisins, að
skólinn rými 600 nemendur. „Með
hliðsjón af þeirri menningarlegu og
efnahagslegu þýðingu sem öflugur
menntaskóli hefur fyrir Eyjafjarðar-
svæðið skorar skólanefnd Mennta-
skólann á Akureyri á Héraðsnefnd
Eyjafjarðar og Alþingi að veita skól-
anum öflugan stuðning og hraða
framkvæmdum við nýja skólabygg-
ingu.“
FULLTRÚAR Kvenfélagsins Ið-
unnar í Eyjafjarðarsveit afhentu
í gær Sighvati Björgvinssyni
heilbrigðisráðherra mótmæli
gegn skerðingu á starfsemi
Kristnesspítala. Undir mótmælin
rita 1.186 Eyfirðingar. Kolfínna
Gerður Pálsdóttir og Anna Guð-
mundsdóttir afhentu listana. Kol-
finna Gerður sagði að ráðherra
hefði tekið þeim ljúfmannlega.
Sagðist hún ráða af svari hans
að yfirvöld væru ekki lengur að
ræða um að leggja starfsemi spít-
alans niður heldur hygðu á skipu-
lagsbreytingar í tengslum við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri.
Undirskriftum var safnað í Eyja-
íjarðarsveit, á Svalbarðsströnd, í
Olafsfirði, í Hrísey og á Árskógs-
strönd og einnig lágu listar frammi
á Dalvík. í yfirskrift listanna er
eindregið mótmælt allri skerðingu
á starfsemi Kristnesspítala, hvort
heldur þjónustu við aldraða eða að
dregið verði úr uppbyggingu og
starfsemi endurhæfingardeildar.
Kolfinna Gerður Pálsdóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið að söfn-
unarfólki hafi alls staðar verið vel
tekið. Nefndi hún sem dæmi að all-
ir fullorðnir íbúar í Eyjafjarðarsveit
sem náðist í hafi skrifað undir.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda
fékk í gær samþykkt frumvarp
til nauðasamninga, en að undan-
förnu hafa staðið yfír viðræður
við lánardrottna fyrirtækisins.
Vonast er til að fjárhagslegri
endurskipulagninu félagsins
ljúki fyrir áramót.
Sigurður Amórsson fram-
kvæmdastjóri Súkkulaðiverksmiðj-
Kolfínna Gerður sagði að ástæða
þess að Kvenfélagið Iðunn gekkst
fyrir undirskriftasöfnuninni væri
megn óánægja héraðsbúa með þá
skerðingu sem fyrirhuguð væri á
flárveitingum til Kristnesspítala
samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs. Hún sagði að Kristnes-
spítali skipaði sérstakan sess í hug-
unnar Lindu sagði að búið væri að
ganga frá frumvarpi að nauða-
samningum fyrirtækisins og kæmi
það í framhaldi af greiðslustöðvun
sem fyrirtækinu var veitt í ágúst
síðastliðnum. Greiðslustöðvunar-
tímabilið rennur út 10. desember
næstkomandi.
Sigurður sagði að ijárhagsleg
endurskipulagning fyrirtækisins
um Eyfirðinga. Kristneshæli hafi
verið komið á fót til þess að berkla-
sjúklingar af Norðurlandi þyrftu
ekki að fara suður á Vífílsstaði til
lækninga. Til byggingar hælisins
hafi verið safnað peningum á öllu
Norðurlandi að frumkvæði eyfir-
skra kvenna og hafi söfnunin geng-
ið svo vel að söfnunarféð nægði
hefði hafíst fyrir tveimur áram og
væri hann nú hóflega bjartsýnn á
að henni færi að ljúka. „Viðræður
hafa verið í gangi við okkar lánar-
drottna og við höfum nú fengið
heimild til að ganga til nauðasamn-
inga. Við vonumst til að þær skipu-
lagsaðgerðir sem við höfum unnið
að í tvö ár fari að skila sér og að
málefni Lindu verði komin á hreint
fyrir um það bil helmingi bygging-
arkostnaðar.
í ávarpi Önnu og Kolfinnu Gerð-
ar til ráðherra segir m.a.: „Núna
hefur Kristnesspítali fengið nýtt
hlutverk, ekki síður mikilvægt, það
er að hjúkra sjúkum og öldruðum
og endurhæfa þá sem lent hafa í
slysum, gengist undir stórar að-
gerðir eða orðið fyrir öðrum þeim
áföllum sem erfítt er að yfirvinna,
nema til komi viðeigandi meðferð
og þjálfun. Okkur fínnst að upphaf-
legt markmið með stofnun Krist-
neshælis, það er að ekki þurfi að
flytja sjúklinga í hópum suður, sé
enn í fullu gildi og leggjum áherslu
á að sú þjónusta sem þar verði veitt
verði þar áfram. Ennfremur að lok-
ið verði uppbyggingu endurhæfíng-
ardeildar, svo að hægt verði að reka
spítalann með fullum afköstum.
Ekki má heldur koma til þess að
farlama gamalmenni sem dvelja á
hjúkrunardeild spítalans verði rifin
upp úr sínu umhverfi og flutt nauð-
ungarflutningum í önnur byggðar-
lög. Slíkt þætti okkur ekki sæm-
andi kristnu þjóðfélagi eða almenn-
um mannréttindum. Þessu til við-
bótar finnst okkur enn aukið á að-
stöðumun og stuðlað að ójafnvægi
í byggð landsins ef dregið er úr
þjónustu á landsbyggðinni og hún
í staðinn sett niður á höfuðborgar-
svæðinu,"
fyrir næstu áramót," sagði Sigurð-
ur.
Verksmiðjan hóf starfsemi árið
1948 og hefur framleiðslan ávallt
farið fram á Akureyri og er það
stefna stjómenda fyrirtækisins að
svo verði áfram. Hlutafé fyrirtækis-
ins var aukið fyrir tveimur árum
til að styrkja stöðu þess og komu
þá nokkrir nýir eigendur inn í rekst-
urinn. Var félaginu veitt greiðslu-
stöðvun í ágúst vegna slæmrar
lausafjárstöðu, en á meðal þess sem
til greina kemur að gera til að laga
stöðuna er að selja eignir til að
draga úr skuldum fyrirtækisins.
Mikil vinna hefur verið hjá verk-
smiðjunni að undanfömu, en þar er
í óðaönn verið að pakka konfekti
fyrir jólin. Unnið hefur verið allar
helgar frá þvi í október og er fjöldi
starfsfólks nú með mesta móti að
sögn Sigurðar.
-----»..» ♦-----
■ KIWANISKLÚBBURINN Em-
bla á Akureyri, sem er eingöngu
skipaður konum, verður vígður inn
í Kiwanishreyfinguna við athöfn á
Hótel KEA næstkomandi laugar-
dagskvöld, 21. nóvember, og hefst
hún kl. 19. Kiwanisfélagar víðs veg-
ar af landinu munu verða viðstaddir
þessa athöfn. Embla er þriðji kvenna-
klúbburinn innan Kiwanishreyfing-
arinnar hér á landi en sá fjórði innan
undæmisins Ísland-Færeyjar.
(MfHótel '
m^Harpa
Nýr gistivalkostur
áAkureyri
Auk hagstæðs gisti verðs, njóta
gestir okkar afsláttar á veitingahús-
unum Bautanum og Smiðjunni.
Fastagestum, fyrirtækjum og hóp-
um er veittur sérafsláttur.
Hótel Harpa
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sími 96-11400
k Ath.aðHótelHarpaerekkiísimaskrénni.
1186 mótmæla skerðingu
á starfsemi Kristnesspítala
Undirskriftarlistar afhentir heilbrigðisráðherra
Morgunblaðið/Gunnar Blöndal
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra tekur við mótmælum
Eyfírðinga gegn skerðingu á starfsemi Kristnesspítala úr hendi
Kolfinnu Gerðar Pálsdóttur. Fyrir miðju er Anna Guðmundsdóttir.