Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 22

Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992 Lífeyrissjóðirnir kaupa hlut ríkisins í Þróunarfélaginu Sala til lífeyrissjóðanna að öllu leyti góður kostur - segir Hreinn Loftsson formaður einkavæðingarnefndar SAMNINGUR um sölu á eignarhlut ríkissjóðs í Þróunarfélagi íslands athugunar. Með milligöngu Þróunar- hf. til tólf af stærstu lífeyrissjóðum landsins verður undirritaður í dag. Nafnverð 29,02% hlut ríkissjóðs í félaginu er 100 miHjónir en líf- eyrissjóðirnir kaupa hlutabréfin á 130 miHjónir kr. og verður kaupverð- ið staðgreitt. Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar ríkis- sljórnarinnar, segir að sala hlutabréfanna til lífeyrissjóðanna sé að öllu leyti góður kostur, bæði fyrir einkavæðingaráform ríkisstjórnarinn- ar og atvinnulífið. Þorgeir Eyjólfsson formaður Landssambands lífeyr- issjóða segir að Þróunarfélagið geti orðið samstarfsvettvangur lífeyris- sjóðanna við þátttöku þeirra í verkefnum á sviði þróunar og nýsköpunar. Hreinn Loftsson sagði í samtali geta hleypt nýju lífí í það. Hlutverk við Morgunblaðið að sala á hlut ríkis- sjóðs í Þróunarfélaginu til lífeyris- sjóðanna væri að öllu leyti mjög góð- ur kostur. Landsbréf hf. önnuðust söluna. Hreinn sagði að verðbréfa- fyrirtækið teldi niðurstöðuna vel við- unandi, bæði fyrir ríkissjóð og ijár- magnsmarkaðinn þar sem tekist hafí að selja mjög stóran hlut í fyrirtæki á hlutabréfamarkaðnum þrátt fyrir þann samdrátt sem þar hafi verið. „Þessi sala staðfestir að þrátt fyr- ir þá erfíðu stöðu sem er í efnahags- lífi þjóðarinnar nýtist hlutabréfa- markaðurinn við einkavæðinguna. Það er ekki síður mikilvægt fyrir áform okkar að lífeyrissjóðimir skuli vera kaupendurnir. Eitt af markmið- um einkavæðingarinnar er að hafa sem dreifðasta eignaraðild að þeim fyrirtækjum sem ríkið selur og tryggja þar með áhrif almennings með beinum eða óbeinum hætti. Líf- eyrissjóðimir eru íjöldahreyfíng og hefur þetta markmið því náðst með sölunni. Ég tel að það sé afar mikilvægt að lífeyrissjóðimir komi inn í Þróun- arfélagið, því að með því er búið að tengja þá beint við stærsta þróunarfj- ármögnunarfyrirtækið og ætti að Þróunarfélagsins er að leggja fé í þróunarverkefni og ný atvinnufyrir- tæki. Með kaupum lífeyrissjóðanna skapast sá farvegur sem vantað hef- ur fyrir hugmyndir að nýjum verk- efnum inn í lífeyrissjóðina. Lífeyris- sjóðimir geta með þessu aukið þátt sinn í atvinnulífínu og ætti það að styrkja undirstöður atvinnuveganna í framtíðinni," sagði Hreinn Loftsson. Bæði lífeyrissjóðasamböndin, það er Samband almennra lífeyrissjóða og Landssamband lífeyrissjóða, höfðu forgöngu um kaupin. Þorgeir Eyjólfsson, formaður Landssam- bands lífeyrissjóða, sagði þegar hann var spurður um ástæður þess að líf- eyrissjóðimir ákváðu að kaupa hluta- bréf ríkisins í Þróunarfélaginu: „Helstu ástæðumar, auk hagnað- arvonar, eru að með kaupunum opn- ast möguleiki fyrir lífeyrissjóðina að beina til athugunar félagsins óskum sem berast einstökum lífeyrissjóðum um hlutabréfakaup í óskráðum félög- um eða fyrirtækjum sem em á þróun- arstigi. í stað þess að einstakir lífeyr- issjóðir þurfí að taka afstöðu til slíkra erinda myndast möguleiki með þátt- töku í Þróunarfélaginu fyrir sjóðina að vísa erindum þangað til faglegrar félagsins geta lífeyrissjóðimir nálg- ast áhættusamari hluta fjármagns- markaðarins án þess að taka of mikla áhættu með kaupum hlutabréfa í einstökum óskráðum hlutabréfum. Mikil nauðsyn er á nýsköpun í atvinnulífí landsmanna með tilliti til mikils aflasamdráttar á komandi áram og vaxandi atvinnuleysis. Þátt- taka lífeyrissjóðanna í Þróunarfélag- inu á þessum hluta fjármagnsmark- aðarins er því viðleitni af hálfu lífeyr- issjóðanna til eflingar atvinnulífsins við þessar erfiðu aðstæður. Þróunar- félagið getur því orðið samstarfsvett- vangur lífeyrissjóðanna til þess að nýta sem miðpunkt þátttöku þeirra í verkefnum á sviði þróunar og ný- sköpunar en í Þróunarfélaginu er til staðar mikil þekking og reynsla starfsmanna í aðkomu að áhættufj- ármagnsverkefnum," sagði Þorgeir. Eftirtaldir tólf iífeyrissjóðir standa að kaupunum: Lífeyrissjóður Dags- brúnar og Framsóknar, Lífeyrissjóð- ur Hlífar, Lífeyrissjóðurinn Samein- ing, Lífeyrissjóður lækna, Lífeyris- sjóður verkfræðinga, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Lífeyrissjóður verkalýðsfélga á Suðurlandi, Lífeyr- issjóður rafíðnaðarmanna, Lífeyris- sjóður stéttarfélaga í Skagafírði, Líf- eyrissjóður bænda, Sameinaði lífeyr- issjóðurinn og Söfnunarsjóður lífeyr- isréttinda. Sjóðirnir munu gera með sér samkomulag um innbyrðis skipt- ingu hlutabréfanna. Dávíð Oddsson forsætisráðherra og Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra munu undirrita samninginn í dag fyrir hönd ríkissjóðs. Gripinn með felgujárnið Fj órmenningar stöðv- uðu mann við innbrot Orðabók til Danadrottningar Sendiherra Danmerkur á íslandi, Villads Villadsen, tók við eintaki númer eitt af Dansk-íslenskri orðabók ísafoldar, fyrir hönd Margrét- ar Danadrottningar, en ísafoldarútgáfa gefur Danadrottningu fyrsta eintak bókarinnar til þakka fyrir stuðning frá dönskum aðilum við gerð bókarinnar, þar á meðal framlag úr sjóði í nafni Margrétar drottningar. Það voru ritstjórar bókarinnar, Hrefna Arnalds og Ingi- björg Johannesen, sem afhentu sendiherranum bókina í Danska sendi- ráðinu. MAÐUR sem reyndi að bijótast inn í verslunina Teigakjör í fyrri- nótt var stöðvaður af fjórmenningum sem áttu leið hjá. Þeir héldu honum uns lögregla kom á vettvang og sögðu að maðurinn hefði boðist til að borga þeim fyrir að sleppa sér. Hann kvaðst aðeins hafa ætlað að ná sér í mat. Fjórir menn á heimleið í bíl sáu hvar maður var að baksa við að komast inn í verslunina með felgu- jámi um tvöleytið í fyrrinótt. Þeir ákváðu að skerast í leikinn og gerðu jafnframt lögreglu viðvart. Maðurinn viðurkenndi að hafa ætl- að að brjótast inn, kvaðst þó ekki hafa ætlað að taka peninga eða tóbak, hann hafí bara viljað ná sér í mat. Bifreið mannsins var skammt frá versluninni. Maðurinn sagði lögreglu að þetta væri í fyrsta sinn í þijú ár sem hann reyndi að brjótast inn. Dómsmeðferð málningarfötumálsins hafin 5 árum eftir að upp um það komst Segja játningar hjá lögreglu vera fengnar með þvingunum DÓMSRANNSÓKN málningafötumálsins svonefnda hófst í héraðs- dómi Reykjavíkur í gær en í því eru tveir menn ákærðir fyrir að hafa í félagi staðið fyrir innflutningi á 67-70 kg af hassi hingað til lands í níu skipaferðum frá því í desember 1985 uns þeir voru handteknir 16. nóvember 1987. Efnið eru mennirnir taldir hafa flutt inn í málningarfötum og við handtöku höfðu þeir nýverið leyst úr tolli sendingu af málningarfötum sem í voru 10,7 kg af hassi. Annar mannanna, Stefán Einarsson, 43 ára, neitaði öllum sakargiftum í gær en hinn, Hallgrímur Ævar Másson, 49 ára, ját- aði að hafa tekið þátt i að dreifa allt að 10 kg af hassi en að skip- un Stefáns, sem haft hafi á sér fjárhagslegt tangarhald sem hann hafi óspart beitt. Báðir kváðu mennimir játningar sem þeir hefðu gefið fyrir lögreglu um aðild að málinu fengnar með þvingunum meðan þeir sátu í gæsluvarðhaldi. Lögregla hefði hótað gera það sem oft væri gert, að koma fyrir hassi í bílum þeirra eða heima hjá þeim og tengja þá þannig við efnin með hætti sem tryggt væri að dygðu til sakfellingar. Hallgrímur bar að tilhæfulaus játning hans hefði verið lesin sér fyrir að forskrift rannsóknarlögreglu- manns og þáverandi yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar. Samkvæmt ákæru í málinu, sem gefin var út 27. júlí 1990 en fyrst birt Hallgrími Ævari 2. nóvember á þessu ári, keypti ákærði Stefán hassið í Hollandi á um 100-120 þúsund krónur kílóið og kom fyrir í málningarfötum og þannig um borð í flutningaskip sem venjuleg- um vörusendingum í Belgíu en Hallgrímur Ævar seldi megnið af efninu hér á landi með milligöngu tveggja aðila fyrir 350 til 430 krón- ur grammið. í máli beggja kom fram að þeir hefðu þekkst frá forni fari er Stef- án var í menntaskóla og vann í málningarvinu hjá Hallgrími, og kynni tekist með þeim að nýju er Hallgrímur fékk aðstoð Stefáns, sem er viðskiptafræðingur, við að forða sér frá gjaldþroti. Skuld- heimtumenn gengu hart að Hall- grími vegna 500 þúsund króna víx- ils sem hann gat ekki greitt. Með aðstoð Stefáns hafi tekist að bjarga málinu með því að útbúa skuldabréf sem þinglýst var á einu eign Hallgríms, íbúð í blokk, til að koma veði á undan víxilkröf- unni og styrkja þannig samning- stöðu Hallgríms gagnvart kröfu- hafanum, sem féllst á að ljúka málinu gegn því að fá hluta kröf- unnar greiddan. Stefán kveðst hafa verið skráður skuldareigandi á þessu mála- myndarskuldabréfi, sem þinglýst var á íbúðina en aldrei hafa haft það undir höndum en Hallgímur segir að Stefán hafi haft bréfíð og notað tilvist þess til að árétta að hann hefði Hallgrím á valdi sínu, hann ætti í raun íbúðina hans vegna veðsetningarinnar. Undir þessum formerkjum segir Hallgrímur að Stefán fengið sig til að taka þátt í gjaldeyrisbraski með sér og síðan innflutningi á málningu og hassi. Tölvuborð á hringferð um hafið Gjaldeyrisbraskinu sem báðir könnuðust við að hafa tekið þátt í lýsti Stefán þannig að borist hefði í tal milli þeirra Hallgríms um 1983 hvaða aðferðir íslenska álfé- lagið notaði til að koma hagnaði úr landi. Á þeim árum var svoköll- uð hækkun í hafi á skautum til álversins mjög í umræðunni. Stef- án segir að þeir hafi sameiginlega ákveðið að nota sömu aðferð til að koma hagnaði úr landi og ná þannig í gjaldeyri til að selja með hagnaði hérlendis á þessum tímum gjaldeyrisleyfa. Aðferðin hafí verið sú að Stefán hafí keypt ódýr tölvuborð í nafni eigin fyrirtækis í Þýskalandi. Það fyrirtæki hafi selt fyrirtæki Hall- gríms á íslandi tölvuborðin á upp- sprengdu verði, í dæmi Stefáns var notuð upphæðin 200 þúsund. Þeg- ar borðin komu til íslands fékkst gjaldeyrisleyfi til viðskiptanna og sá gjaldeyrir var greiddur hinu þýska fyrirtæki Stefáns, sem keypti tölvuborðin svo aftur af fyr- irtæki Hallgríms fyrir 100 krónur (þessar tölur voru notaðar í dæm- inu). Síðan voru borðin flutt aftur úr landi og þannig var þessari hringrás við haldið. Söluverð borð- anna til útflutnings héðan var svo lágt að ekki kom til tollaaf- greiðslu. Sá gjaldeyrishagnaður sem varð eftir hjá þeim félögum þegar ávísanirnar höfðu verið inn- leystar í erlendum bönkum var svo seldur aðilum hér á landi, með 20-30% hagnaði og að sögn Stef- áns fékkst með þessu 118% ávöxt- un á gjaldeyri. Fyrir dómi kvaðst Hallgrímur ekki hafa gert sér grein fyrir hvernig stóð á þessum tölvuborða- innflutningi, það hefði alfarið verið mál Stefáns, sem hins vegar sagði að báðir ,hefðu komið þama að. Stefán hafði enga tölu á hversu marga hringi tölvuborðin hefðu farið en þessi viðskipti hefðu stað- ið þar til reglum um innflutning bifreiða var breytt. Vegna hverrar sendingar hafði Stefán þurft að ferðast milli íslands og Hollands, til að ganga frá sendingum og inn- leysa ávísanir í hollenskum bönk- um. Ekki gat Stefán nefnt fýrir dómi hver heildarhagnaðurinn varð. Málningardósum varpað fyrir Vogastapa í máli Hallgríms Ævars Másson- ar kom fram að þegar fyrrgreint gjaldeyrisbrask hefði staðið yfir um nokkurt skeið hefðu viðskipti þeirra félaga tekið á sig flóknari mynd að forskrift Stefáns, sem farið hefði að gefa sér fyrirskipan- ir sem Hallgrímur kvaðst ekkert hafa botnað í. Eftir að Stefán hafði sjálfur tek- ið á leigu undir fölskum nöfnum fímm herbergi í jafnmörgum hús-^ um víðs vegar í Reykjavík og í Kópavogi hafi hann skipað Hall- grími að leigja einnig undir fölsku nafni bílskúr við hús í Fossvogi. Hallgrímur kvaðst ekki geta sagt ósatt og því hefði hann farið á staðinn og tekið bílskúrinn á leigu undir eigin nafni og þannig kallað yfír sig mikla reiði Stefáns. Stefán kveðst hafa tekið herbergin á leigu fyrir Hallgrím og að hans ósk ekki gefið upp rétt nafn. Um þetta leyti segir Hallgrímur að Stefán hafi keypt erlendis máln- ingu og sent nokkrar dósir hingað til lands á nafn fyrirtækis Hall- gríms. Að sögn Hallgríms leysti hann þessar dósir út tolli að boði Stefáns og síðan fóru þeir félagar með dósirnar að Vogastapa og vörpuðu þeim þar fyrir björg. Hall- grímur sagði að sér hefði þótt þetta ansi skrýtið en Stefán hefði sagt þetta tengjast gjaldeyrisbraskinu. Stranglega væri bannað að selja málninguna. Stefán neitar harð- lega þátttöku í þessu. Skömmu síðar hafí önnur máln- ingarsending borist og hún farið sömu leið. Þá kvaðst Hallgrímur hafa yfirheyrt Stefán um hvað hann hygðist eiginlega fyrir og hann sagst vera að koma sér upp kerfi til að flytja inn hass og væri að prófa hvort það gengi upp. Hallgrímur kvaðst nú hafa viljað losna úr tengslum við Stefán en hann hafi þá enn leitt talið að skuldabréfinu og veðsetningu íbúð- arinnar. Hann segir að Stefán hafi sagt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.