Morgunblaðið - 20.11.1992, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Óvænt þróun mála í vinn-
unni breytir fyrirætlunum
varðandi frístundir. Þú færð
samt tíma til að heimsækja
góðan vin.
Naut
(20. apríl - 20. mat)
Þér gefast ný tækifæri í
vinnunni. Eitthvað getur
truflað þig og samstarfs-
maður er eitthvað miður sín.
Einbeittu þér.
Tvíburar
(21. ma! - 20. júní)
Þú gætir fengið gott heim-
boð í dag. Gamall skólafélagi
kemur við sögu á ný. Barn
gæti valdið óvæntum út-
gjöldum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HsB
Sumir eru að ráðgera tals-
verðar fjárfestingar vegna
heimilanna. Náinn vinur er
eitthvað laus í rásinni um
þessar mundir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagdraumar eða þunglyndi
geta truflað þig í vinnunni
í dag. Vinur gefur þér góð
ráð. Ferðaáætlanir eru á
dagskrá.
Meyja
(23. ágúst - 22. septemberl
Fljóttekinn gróði getur einn-
ig verið fljótur að fara.
Gættu hófs í peningamálum.
Þú kemur miklu í verk í dag.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú gætir heimsótt eftirlætis
veitingastaðinn í dag eða
notið tómstundanna. Sjálfs-
traustið fer vaxandi, en ijöl-
skyldumál veldur áhyggjum.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember) HilS
Heimilisstörfín eru tímafrek
í dag. Þú hefur heppnina
með þér og nýtur þess. Láttu
ekki órökstuddan orðróm á
þig fá.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þér verður hugsanlega boðið
í hóf í kvöld. Astæðulaust
er að lána óábyrgum vini
peninga. Lærðu að segja nei.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð gott tækifæri í vinn-
unni. Ekki klúðra því. Þú
vilt fara eigin leiðir og gæt-
ir verkað móðgandi á aðra.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Nú er upplagt að undirbúa
ferðalag. Sambandið við ein-
hvem tengdan þér er ekki
nógu gott. Þið virðist ekki
eiga samleið.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) —
Peningamálin þróast til betri
vegar, en láttu ekki aðra
misnota þig. Breytingar
gætu orðið á fyrirætlunum
kvöldsins.
Stjörnusþána á ad lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
5711 □ crs C=»
CD
X
SMÁFÓLK
YE5;MAAM..I WALKEP TO
5CM00L IN THE RAIN...
Já, kennari ... ég labbaði í skólann En hafðu ekki áhyggjur.
I rigningunni...
Ég er samanskroppin fyrir!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Varstu búinn að heyra af spili
22?“
„Nei, reynar ekki.“
„Það var skemmtilegt spil.“
„Jæja.“
„Ertu með blað og blýant?"
„Já.“
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ Á75
V DG106
♦ 85
♦ Á1095
Vestur
♦ D9832
♦ K
♦ G93
♦ K842
Austur
♦ KG
♦ 54
♦ D10642
♦ D763
Suður
♦ 1064
♦ Á98732
♦ ÁK7
♦ G
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
1 spaði 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
„Spil-22“ kom upp í barómeter-
tvímenningi hjá Bridsfélagi Reykja-
víkur í síðustu viku. Fjögur hjörtu
voru spiluð út um víðan völl, enda
10 slagir upplagðir og 11 ef menn
fella hjartakónginn blankan. Tveir
sagnhafar náðu hins vegar 12 slög-
um: þeir Helgi Sigurðsson og
Magnús Ólafsson.
Helgi fékk út lítinn spaða eftir
ofanritaðar sagnir. Hann stakk upp
ás og fór í skoðunarferð áður en
hann hreyfði trompið. Spilaði tígli
upp á ásinn og laufgosa að heiman.
Þegar vestur lét lítið, drap Helgi á
ásinn og trompaði lauf. Tók næst
tígulkóng og trompaði tígul. Gosinn
birtist í vestur og austur auglýsti
drottninguna. Helgi trompaði lauf
og hugleiddi framhaldið.
Ýmislegt var nú vitað um spil
AV. Fyrsti slagurinn benti til að
austur ætti KG blankt í spaða.
Laufháspilin virtust skipt og senni-
lega lá liturinn 4-4. Og tígulstaðan
lá ljós fyrir eftir upplýsandi afkast
austurs. Vestur virtist því eiga
5-1-3-4. Hann átti ekki mikið af
punktum, svo Helgi ákvað að eigna
honum hjartakónginn. Næst lagði
hann því niður hjartaás og felldi
kónginn. Spilaði svo hjarta inn í
borð og trompaði síðasta laufið.
Nú var ekkert eftir nema tromp á
báðum höndum og tveir spaðar.
Helgi spilaði spaða. Austur átti
þann slag á kónginn, en varð síðan
að spila út í tvöfalda eyðu og gefa
12. slaginn.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Skákklúbbamót Taflfélags
Reykjavíkur fer fram í kvöld,
föstudagskvöld, í félagsheimilinu
í Faxafeni 12. Öllum er heimilt
að mynda fjögurra manna sveitir
og vera með, en mótið er einkum
ætlað þeim sem teflt hafa í heima-
húsum og á vinnustöðum. Þessi
staða kom einmitt upp- í einum
slíkum klúbbi, sem félagamir
nefna sjálfír Visa-klúbbinn. Einar
S. Einarsson hafði hvítt og átti
leik, en Júlíus G. Óskarsson var
með svart. Umhugsunartíminn
var aðeins sjö mínútur á skákina.
19. Rg5! (Stórhættulegur leikur
og sá sterkasti í stöðunni) 19. —
hxg5? (19. - g6?, 20. Re6! var
önnur gildra, en svartur átti að
reyna 19. - Bxg5) 20. hxg5 -
g6 (Leyfir mát í næsta leik, en
það var orðið of seint að bjarga
svörtu stöðunni) 21. Hh8 mát.
Snilldartilþrif í hraðskákum fara
oft forgörðum, en Einar bjargaði
fléttunni frá gleymsku með því
að ná ljósmynd af stöðunni áður
en raðað var upp í næstu skák.