Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 12
Jochen Spilker þjálfari og skjólstæðingur hans, 400 metra spretthlaupar- inn Gaby Buss- mann; þau urðu hjón. Thomas Springstein þjálfari og spretthlauparinn Katrín Krabbe á eyjunni Krít í maí sl. Í sumum til- vikum lofa iþrótfaþjálf- arar stúlk- unum jafn- vel kynlifs- unadi aó launum fyrir allt erfióió og þær píslir sem óhjá- kvæmilega Christian Gehrmann þjálfari í kúluvarpi Heimsmethafi í 400 metra hlaupi kvenna, Marita Koch (35) og eigin- eru samfara og Eva Wilms meistari í fimmtarþraut. maður hennar og þjálfari, Wolfgang Meier (49). LENGI vel var lyfjanotk- un íþróttamanna nánast forboðið umræðuefni, en annar næsta algengur þáttur í þjálfun íþrótta- fóiks hefur heldur ekki verið mikið til umræðu hingað til: Þjálfarar ungra íþróttakvenna ganga oft og tíðum svo rösklega til verks í mót- unarstarfi sínu að stúlk- urnar verða þeim sálrænt háðar í einu og öllu. Markmiðið með svo of- urnánu sambandi er að efla hvöt stúlknanna til enn meiri afreka, stæla vilja þeirra til að setja fleiri met. « Strangar sálrænar þjálfunar- aðferðir tryggja þjálfurun- um skilyrðislausa fylgi- spekt og hlýðni stúlknanna; í sum- um tilvikum lofa íþróttaþjálfarar stúlkunum jafnvel kynlífsunaði að launum fyrir allt erfiðið og þær píslir sem óhjákvæmilega eru sam- fara langvinnri þjálfun. Það nægir oft að þjálfarinn gefi örlitlar bend- ingar til að hafa stjórn á hlaupa- konunum tveimur: Ein bending með fingri og þær beygja hnífjafnt á kaflaskiptri hlaupabrautinni; ör- lítil höfuðhneiging og þær taka samtímis á sprett, hávaxna ljós- hærða stúlkan og svarthærða lág- vaxna stúlkan, láta eins vel að stjórn og grágæsirnar í atferlis- rannsóknum austurríska vísinda- mannsins Konrads Lorenz. í átta ár segist þýski frjálsíþróttaþjálfar- inn Thomas Springstein hafa unnið að því „að hræra stelpumar í lunga- mjúkt deig“. Spretthlauparinn Katrín Krabbe var 14 ára gömul þegar hún komst í hóp efnilegustu ungra íþrótta- stúlkna undir handleiðslu Spring- steins hjá íþróttafélaginu SC Neu- brandenburg árið 1984. Grit Breu- er, afar efnilegur 400 metra hlaup- ari, var einungis tólf ára þegar Springstein hóf að þjálfa hana. „Ég held þráðunum í sálarlífi þeirra í hendi mér,“ segir Springstein stolt- ur yfir áhrifum sínum. Katrín Krabbe, sem orðin er tvöfaldur heimsmeistari, beygir sig: „Ég þarf á einhverjum að halda sem gefur mér spark í botninn.“ Og Evrópu- meistarinn Grit Breuer játar lika: „Ég er öll á valdi þjálfara míns. Ef honum gengur vel, hugsa ég ekki út í neitt frekar." Það var ekki fyrr en þessi „skipulega sam- setta eining" hafði lent tvisvar í lyfjamálum á sex mánaða tímabili að nokkrir brestir þóttu komnir í þetta fyrirmyndar sigurverk. Sá endi sem fyrst um sinn hefur verið bundinn á gullverðlauna-verkstæð- ið í Neubrandenburg beinir athygl- inni að einni hlið mála í hinum langvinnri þjálfun. raunverulega íþróttaheimi sem lát- in hefur verið liggja í þagnargildi. í mörgum þjálfunarstöðvum víða um heim eru íþróttakonur með- höndlaðar sem hrein og bein við- fangsefni: „Liffærakerfi“ þeirra er tekið í þjónustu þjálfara og íþrótt- asérfræðinga sem hvert annað tæki til að ná settu marki. Þjálfararnir koma því inn hjá íþróttakonunum að þær séu samsteypa á jafnréttis- grundvelli sem í einu og öllu miði að því að ná sameiginlegu tak- marki — að setja met. Tilfinningamál Það er orðin hefð fyrir því að íþróttaþjálfarar séu karlmenn; þjálfunarbúðir eru nær alltaf að- greindar fyrir konur og karla. For- eldrar láta dætur sínar nánast skil- yrðislaust í umsjá þjálfara, sem á vissu skeiði gegna hlutverki uppal- andans. Þeir eru í fyrstu föðurlegir vinir, þá samstarfsmenn og að lok- um getur svo farið að ungæðislegar tilfinningar stúlknanna beinist að þeim. Það leiðir þá til ástleitins spennusambands sem er einstak- lega vænlegt til árangurs, þar sem hægt er að nota slíkt samband til að ná betri árangri ef kænlega er á málum haldið. Margar stúlkn- anna hlaupa einungis til að þókn- ast þjálfaranum sínum, og hver ný stúlka sem tekin er í þjálfunarhóp- inn eykur á ótta hinna sem fyrir eru um að „þurfa að deila“ þjálfar- anum með þeirri nýju. íþróttastúlk- ur líta sumar hverjar á það sem hámark allrar sælu ef þjálfarinn tárast af gleði og stolti yfír unnu afreki þeirra: „Það sýnir hvað hon- um þykir vænt um mig.“ Það er framar öllu hina langa dvöl í þjálfunarbúðunum sem gerir það að verkum að þjálfurunum gefast tækifæri til nánustu kynna. I könnun sem Félagsfræði- og skoðanakönnunarstofnunin í Zurieh lét gera á viðhorfum afreks- fólks í íþróttum sögðust 70% þeirra 478 sem spurðir voru „vera farin að sakna kynlífs" eftir að hafa verið meira en eina viku að heim- an. íþróttakonur sem frá upphafi afreksferils síns höfðu hlýtt leið- beinanda sínum í einu og öllu hófu næstum því sjálfkrafa „ástarsam- band við þjálfarann". Játningar Sú hörkuþjálfun sem afrekskon- ur í íþróttum þurfa sætta sig við leiðir í fjölmörgum tilvikum til held- ur ókvenlegs útlits vegna óhjá- kvæmilegrar aukningar á vöðvum, snerpu og afli. Þessar konur eru því oft einkar þakklátar þjálfurum sínum fyrir að ýta undir þá tilfinn- ingu að þær séu samt mjög aðlað- andi og eftirsóknarverðar sem kon- ur. í norska sjónvarpinu skýrðu fjór- ar fþróttakonur nýlega frá sam- bandi slnu við þjálfarana. Sautján ára stúlka lýsti því hvernig þjálfari sinn hefði neytt sig til að gangast undir fóstureyðingu eftir að hún varð þunguð af hans völdum, „til þess að ég eyðilegði ekki íþróttafer- il minn“. Önnur stúlka sagðist í fyrstu hafa verið hreykin af því að þjálfar- inn hafði sýnt henni ótvíræða ást- leitni, en svo hafí hún komist að því að hann var þá líka í tygjum við aðrar stúlkur í íþróttafélaginu. Forsetj norska íþróttasambandsins játaði að „það væri mun meira vandamál en hingað til hafði verið álitið að ungar íþróttakonur væru þvingaðar til að_ hafa kynmök við þjálfara sína“. Álitið er að ástand mála sé áþekkt þessu í öðrum lönd- um heims. Þýski þjálfarinn Christian Gehr- mann hefur verið tekinn sem dæmi um mann sem kann sálfræðileikina út í ystu æsar. Hann stóð í ástar- sambandi við heimsmeistarann Evu Wilms, kringlukastsdrottninguna Ingra Maneke og ólympíusigurveg- arann Claudiu Losch hveija á fætur annarri. íþróttaforystan lét kaldrif- jaðar aðferðir Gehrmanns viðgang- ast vegna þess hve góðum árangri hann náði. Stúlkurnar lögðu sig allar fram í þeirri von að verða eftirlætiskona Gehrmanns. En þeg- ar þjáflarinn var gagnrýndur svar- aði hann stutt og laggott: „Hveij- um kemur það við hvort ég fer út með laglegri stelpu?“ Heimild: Der Spiegel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.