Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 Stela öllu sem ekki er naglfast London. Reuter. Hótelgestir, sem eru á nálum yfir að taka baðsápuna ófrjálsri hendi, eiga margt ólært. Upp- stoppaður björn, píanó og upp- skera af laukum eru meðal þess sem gestir stela samkvæmt könnun á 2000 breskum hótel- um. Eitt hótelanna greindi frá því, að ruðningsboltalið, sem gisti þar eitt sinn, hefði numið tvo barþjóna á brott, en látið þá lausa gegn bjór á heilu línuna. „Ef það er ekki naglfast, getur það horfíð," sagði framkvæmdastjóri eins hótelsins. Könnunin var gerð fyrir Félag bifreiðaeigenda og niðurstöðumar birtast í leiðarvísi þess. Hóteleig- endur voru beðnir um að greina frá því, hveiju gestir stælu, hvað þeir skildu eftir, hvers konar tjóni þeir yllu og hvaða ósanngjörnu kröfur þeir gerðu. Skríni með ösku af látnum ætt- ingja, poki með snákum í og gervi- bijóst voru meðal hluta, sem gleymst höfðu á yfírgefnum hótel- herbergjum. Einn hótelgesturinn hafði kvartað yfír, að það væri fisk- bragð af túnfískinum og annar kveinkaði sér yfír að geta ekki sofið fyrir veðurgnýnum. A lista yfír það sem brotið hefði verið skrifaði einn framkvæmda- stjóranna: Nefið á mér. Galbraith segir pen- ingastefnuna ónýta London. Reuter. PENINGASTEFNAN er ónýt sem sljórntæki í rikisfjármálum og við af henni ætti að taka „raunsæi og framkvæmdasemi". Kom þetta fram hjá hinum kunna, banda- ríska hagfræðingi John Kenneth Galbraith, sem sagði ennfremur, Dreymir hanu um „hvít jól!? Moxi skópskóparnir gefa henni það sem hún óskar sér. Meira rými. Með breyti- legum hillum ge/ma þeir jafnt stígvél sem hóhæla skó. Því ekki þessi jól, fyrir hana. Maxi skóskóp í svefnher- bergið eða forstofuna. Þýsk gæðavara. Litir hvitt, svart og eik. Nýborgr# Skútuvogur 4, sími 812470. að hægri- og vinstrimönnum yrði að láta sér skiljast, að blandað hagkerfi væri eina lausnin. Galbraith, sem er 84 ára að aldri og hefur haft mikil áhrif með ritum sínum, sagði í fyrirlestri, sem hann flutti hjá rannsóknastofnun í Lond- on, Institute for Public Policy Rese- arch, að peningastefnumenn (mó- netaristar) og sósíalistar yrðu að gleyma hugmyndafræðilegum ágreiningi og einbeita sér að því að vinna bug á efnahagssamdrætt- inum. „Meginatriði hins blandaða hag- kerfís eru komin til að vera en við þurfum hins vegar að gera það skilvirkara í þágu allra þegnanna. Við lifum ekki á tímum algildra kenninga, heldur á tímum skynsam- legra lausna og framkvæmda," sagði Galbraith. Um efnahagserfiðleikana í Bandaríkjunum sagði hann, að þeir stöfuðu af „örlæti" Ronalds Reag- ans, fyrrverandi forseta, við hina ríku og þrengingar Breta rakti hann til þess hve háðir þeir hefðu verið peningastefnunni á stjómarárum Margaret Thatchers. „Vissulega dregur peningastefn- an úr verðbólgu með því að valda atvinnuleysi og erfíðu rekstramm- hverfí, samdrætti og kreppu. Gegn samdrættinum er peningastefnan aftur á móti næstum einskis nýt.“ LEIKHÚS í KIRKJU Leiklist Bolli Gústavsson Leikfélag Sauðárkróks, nem- endur úr Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og nokkur ferm- ingarbörn 1993. Kirlgan okkar. Höfundur texta og leikstjóri: Jón Ormar Ormsson. Aðstoð við leikstjórn: Edda V. Guðmunds- dóttir. Tónlist: Kirkjukór Sauð- árkróks. Stjórnandi og undir- leikari: Rögnvaldur Valbergs- son. Árið 1891 gekkst Leikfélag Sauðárkróks fyrir leiksýningum, og ágóði af þeim, 250 krónur, rann til kirkjubyggingar, en þá vom aðeins 20 ár liðin frá því búseta hófst á Sauðárkróki. Þetta framtak leikfélagsmanna fyrir einni öld var ýmsum ofarlega í huga, þegar söfnuðurinn á Sauð- árkróki minntist aldarafmælis kirkju sinnar 22. nóvember sl., ekki síst fyrir það að sagan var sögð af félögum úr leikfélaginu og ungu fólki úr skólum bæjarins. Á dramatískan hátt var byggðar- og kirkjusaga Sauðárkróks rakin í kór hinnar aldargömlu kirkju af hópi listamanna á þann veg, að viðstaddir munu tæpast gleyma henni í bráð. Hin síðari ár hafa menn gert sér það ljóst, að boðskapur kirkj- unnar verður ekki einungis tjáður í prédikun prests, lofsöng kirkju- kórs, tónum orgels og í helgimynd- um myndlistarmanna. Leiklistin getur einnig verið áhrifamikil tján- ingarleið á þeim vettvangi. Einn helsti fmmkvöðull boðunar eftir þeirri Iistrænu leið hér á landi var séra Jakob Jónsson dr. theol., sem samdi allmörg dramantísk verk til flutnings í kirkju. Minnist ég þess að hafa séð íburðarmikla sýningu á leikriti hans um Bartimeus blinda í Bessastaðakirkju fyrir rúmum 30 ámm þar sem margir kunnustu leikarar Þjóðleikhússins komu fram. Nær ævilokum séra Jakobs vom sýndir þrír einþát- tungar undir heitinu „Sjáið mann- inn“ í Hallgrímskirkju á kirkju- listahátíð 1989, sem mörgum munu í fersku minni. í Hallgríms- kirkju má segja að vagga leiklistar af þessu tagi hafí staðið. Þar má nefna minnilega sýningu leikverks um danska skáldprestinn séra Kai Munk, eftir Guðrúnu Ásmunds- dóttur. Nú vill svo til, að höfundur og stjómandi athyglisverðrar leiksýn- ingar á aldarafmæli Sauðárkróks- kirkju, Jón Ormar Ormsson, mun hafa starfað við það tilraunaleik- hús í kirkjunni miklu á Skóla- vörðuholti. Hann skortir heldur ekki tilfínningu fyrir því viðfangs- efni, er hann tókst á hendur hér fyrir norðan. Sýningin er að mestu byggð á látbragði leikhópsins, sem fylgir tónlist og lesinni frásögn. í henni mætast kynslóðimar, gam- alreyndir leikarar og ungt fólk, sem mislangt er komið á skóla- bekk. En leikstjóranum hefur tek- ist prýðilega að samstilla þennan hóp, þannig að hinir sviðsvönu styðja nýliðana í túlkun atburð- anna. Ljóð Stefáns frá Hvítadal, „Kirkjan ómar öll“, er vel til þess fallin að vera eins konar „praelud- ium“ og „postludium" sýningar- innar, en umgerð og ívaf sögunn- ar, flutt af kirkjukómum. Upp- spretta þeirrar sögu, sem Jón Ormar hefur búið í prýðilegan leik- rænan búning, er stórvirki Krist- mundar Bjamasonar á Sjávar- borg, Saga Sauðárkróks. Þar er af nógu að taka og því einmitt mikill vandi að setja sér takmörk. Það tekst Jóni með mikilli prýði, svo sýningin er hæfílega löng, atburðarás hröð og textinn vand- aður. Og túlkun textans var senni- lega mestur styrkur þessarar sýn- ingar. Hinn gamalreyndi leikari, Haukur Þorsteinsson, flutti hann með þeim lifandi blæbrigðum, sem sönnum listamanni er einum fært að ná fram, án allrar tilgerðar eða fjálgleika. Hann nær fram óskil- greinanlegum hverfílitum, eftir því hver hughrif atburðirnir eiga að velg'a, þ.e.a.s. röddin gefur þeim lit, sem breytist með atburðarás- inni á ólíkum tímum, í gleði og mótlæti, erfíði og skemmtan. Sviðsbúnaður er enginn, búningar í svörtu og hvítu, en sérstakur ljósabúnaður var settur í kirkjuna af þessu tilefni, enda mikilvægt og nýttist vel. Það fór einkar vel á því, að organistinn, Rögnvaldur Valbergsson, lék tónlist undir flutningi eftir þijá fyrrverandi organista Sauðárkrókskirkju, Ey- þór Stefánsson, Jón Þ. Bjömsson og Pétur Sigurðsson. Og þá kemur manni í hug, að hinn ágæti lista- maður, Eyþór Stefánsson, var jafnframt ein af styrkustu stoðum Leikfélagsins um langt skeið, af- bragðs leikari og leikstjóri. Séra Hjálmar Jónsson og söfn- uður hans hefði getað valið þá hefðbundnu leið, að fá sögufróðan mann til þess að segja þessa sögu í ítarlegu erindi. Sannfærður er ég um það, að sami áhugi hefði ekki verið vakinn með öldnum og ungum og raun varð á. Hér var vel að verki staðið og verður það listræna framtak vonandi til eftir- breytni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.