Morgunblaðið - 29.11.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992
29
og eru þau öll búin að stofna heim-
ili og eignast börn sem kölluðu
Stellu ömmu sína með virðingu og
þökk fyrir allt sem hún var þeim
frá því þau muna fyrst eftir sér,
þau biðja góðan Guð að geyma
hana ömmu.
Svo að lokum kveð ég mína kæru
frænku og þakka henni samveruna
hér og hlakka til að rifja upp með
henni gamla daga, þegar við hitt-
umst hinumegin. Guð lýsi henni inn
í eilífðarlöndin.
Svo þegar loksins leggst ég hvíldar til
og líf og starf og frændur við ég skil
og þegar ljós ei lengur augað sér
þú líknin allra vertu þá hjá mér.
(Jónas Þorbergsson)
Elísabet Helgadóttir.
Kveðja frá Thorvaldsens-
félaginu
Á morgun mánudaginn 30. nóv-
ember kveðjum við félagskonur í
Thorvaldsensfélaginu hinstu kveðju
frá Dómkirkjunni heiðursfélaga
okkar Friðrikku Sigríði Sveinsdótt-
ur. Friðrikka gekk í Thorvaldsens-
félagið 25. janúar 1935. Alla tíð
mjög virk og áhugasöm félagskona.
Friðrikka var mikil hæfileika-
kona. Stálgreind og vel að sér á
flestum sviðum. Fylgdist með og
var vel heima í allri þjóðmálaum-
ræðu til hinstu stundar. Hún var
mikill mannvinur og lét sér velferð
annarra miklu skipta. Það fór því
ekki hjá því að Friðrikka hlaut að
vera valin til trúnaðar hjá þeim fé-
lögum sem hún gekk til liðs við og
þannig var það einnig hjá Thor-
valdsensfélaginu. Hún var kosin í
stjórn félagsins og til ýmiskonar
átaksverkefna að söfnun fjár til
styrktar þeim málefnum sem félag-
ið hefur beitt sér fyrir. Öll voru þau
störf unnin og innt af hendi af þeim
eðlisþáttum sem einkenndu Frið-
rikku, dugnaði, greind en jafnframt
yfirlætisleysi.
Friðrikka átti traustar rætur í
uppruna sínum þar sem heimilið var
hornsteinn þjóðfélagsins. Hún var
alin upp á miklu myndar- og menn-
ingarheimili í miðborg Reykjavíkur,
í húsi sem faðir hennar byggði á
Hverfisgötu 47. í því húsi stofnaði
hún heimili sitt og átti þar heimili
þar til fyrir nokkrum árum að hún
flutti upp í Breiðholt, þá komin
hátt á áttræðisaldur. Það var við
þau tímamót að ég áttaði mig á því
að Friðrikka var óvenju jákvæð
mannéskja. Er ég spurði hana hvort
henni þætti ekki erfítt að flytja
svona langt frá miðborginni þar
sem hún hefði átt flest sín spor.
Svaraði Friðrikka að bragði: Nú er
ég ennþá nær miðborginni. Strætis-
vagninn stoppar við dyrnar hjá mér
og eftir smástund er ég komin nið-
ur á torg. Þannig var Friðrikka.
Tekist var á við viðfangsefnin af
þrautseigju og bjartsýni. Þó árin
færðust yfir var skapað nýtt heim-
ili á nýjum stað til að geta hlúð að
fjölskyldu og samferðafólki. Aldrei
var kvartað þó oft steðjuðu að erfíð-
leikar og veikindi.
Friðrikka lést á Borgarspítalan-
um aðfaranótt 19. nóvember, sem
er afmælisdagur félagsins okkar. Á
þessum degi frá stofnun félagsins
fyrir 117 árum hafa félagskonur
komið saman til að fagna og gleðj-
ast. í þau rúm 60 ár sem Friðrikka
var félagskona í Thorvaldsensfélag-
inu var hún ætíð þátttakandi í af-
mælisgleði félagskvenna. Við trú-
um því að svo hafi einnig verið nú
þótt hún hafi verið komin yfir móð-
una miklu. Við fögnum einnig með
henni að hafa fengið að sofna á
hljóðlátan hátt frá erfiðum veikind-
um. Thorvaldsensfélagið þakkar
Friðrikku fyrir öll hennar störf fyr-
ir félagið. Félagskonur þakka vin-
áttu og góða samleið gegnum árin.
Fjölskyldunni sendum við innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing góðrar konu.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
_________Brids___________
Umsjón ArnórG. Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Þá er iokið 25 umferðum af 31 í
barómetemum.
Staðan:
Ragnar Jónsson - Þröstur Ingimarsson 294
Sigrún Pétursdóttir—Alda Hansen 172
Guðmundur Grétarsson - Ámi Már Bjömsson 170
RagnarBjörnsson-SævinBjamason 162
Murat Serdar - Jóhannes Guðmannsson 156
Halldór Þorvaldsson - Guðni R. Ólafsson 136
Stefán R. Jónsson - Jón Páll Siguijónsson 127
Kvöldskor:
RagnarJónsson-Þrösturlngimarsson 100
Sigurður ívarsson - Jón Steinar Ingólfsson 79
JensJensson-ErlendurJónsson 71
Murat Serdar - Jóhannes Guðmannsson 65
Keppninni lýkur næsta fimmtudag.
Bridsdeild Húnvetn-
ingafélagsins í Reykjavík
Síðastliðinn miðvikudag lauk fimm
kvölda hraðsveitakeppni félagsins.
Sveit Þórarins Ámasonar hafði leitt
mest alla keppnina og stóð að lokum
uppi sem sigurvegari með 3082 stig.
Með Þórami í sveit spiluðu Þorleifur
Þórarinsson, Friðjón Margeirsson og
Valdimar Sveinsson.
Lokastaðan:
SveitÞórarinsÁmasonar 3082
SveitGunnarsBirgissonar 2998
SveitEðvarðsHallgrímssonar 2961
SveitTryggvaGíslasonar 2951
Hæsta skor yfir kvöldið:
SveitEðvarðsHallgrímssonar 636
SveitTrj'ggvaGíslasonar 627
SveitÞórarinsÁmasonar 607
Næsta miðvikudag hefst tveggja
kvölda einmenningur, skráning er hjá
Vaidimar í síma 37757 sem fyrst.
Reykj avíkurmótið í
sveitakeppni
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni,
sem jafnframt er svæðamót og keppni
um sæti í undankeppni íslandsmóts,
verður að venju í janúarmánuði. Tekin
hefur verið ákvörðun af stjóm Brids-
sambands Reykjavíkur um að breyta
fyrirkomulagi keppninnar. Sveitum
verður í upphafi skipað í tvo riðla og
spila allar sveitimar í riðlunum inn-
byrðis 16 spila leiki.
Að lokinni riðlakeppninni fara fjórar
efstu sveitimar úr hvorum riðli áfram
í útsláttarkeppni. Efsta sveitin úr A-
riðli fær að velja sér andstæðing úr
B-riðli, síðan fær efsta sveitin úr B-
riðli að velja andstæðing úr A-riðli og
þannig áfram þar til leikir hafa verið
ákveðnir. Leikir í 8 liða úrslitum em
32 spil. Sveitimar sem sigra í þeim
leikjum spila saman innbyrðis í undan-
úrslitum, 48 spila leiki. Síðan verður
spilaður 64 spila úrslitaleikur um
fyrsta sætið en 32 spila leikur um 3.
sætið.
Keppnisstjóri á Reykjavlkurmótinu
verður Kristján Hauksson og hann
mun jafnframt reikna út árangur allra
paranna með Butler-útreikningi.
Spiladagar á Reykjavíkurmótinu verða
4., 5., 7., 9., 10., 12., 13., 16., 17.,
23. og 24. janúar. Skráning í keppnina
er þegar hafin í símum 689360 (BSÍ)
og 632820 (ísak).
Jólasveinatvímenningur Brids-
félags Breiðfirðinga
Nýlokið er aðalsveitakeppni Brids-
félags Breiðfirðinga með þátttöku 16
sveita. Öruggur sigurvegari keppninn-
ar var sveit Páls Þórs Bergssonar, sem
leiddi allt mótið. Auk Páls em í sveit-
inni Sveinn Þorvaldsson, Gísli Stein-
grímsson og Sigurður Steingrímsson.
Lokastaðan í keppninni varð þessi:
Páll Þór Bergsson 282
ÞórðurJónsson 259
HansNielsen 255
Sigþór Ari 251
DröfnGuðmundsdóttir 235
Helgi Nielsen 234
LeifurK.Jóhannsson 233
GuðrúnJóhannesdóttir 229
Það tmflaði nokkuð framgang
keppninnar að ein sveit, sveit Jóns
Ingþórssonar, sem skráði sig í mótið,
mætti ekki tvo síðustu keppnisdagana
og hafði ekki fyrir því að tilkynna
forföll.
Næstu þijá fimmtudaga verður spil-
aður jólasveinatvímenningur hjá félag-
inu og hver einstakur fimmtudagur
er sjálfstæð keppni. í verðlaun verður
jólaglaðningur. Ekki er nauðsynlegt
að skrá sig fyrirfram. Spilaður verður
tölvuútreiknaður Mitchell og spila-
mennska hefst stundvíslega klukkan
19.30.
Bridsfélag byijenda
Sl. þriðjudagskvöld 17. nóvember
var spiiaður eins kvölds tvímenningur
að vanda. Alls mættu 20 pör og urðu
úrslit eftirfarandi:
N/S riðill
Álfheiður Gísladóttir—Pámi Gunnarsson 210
Erling Amar Óskarsson - Unnar Jóhannesson 198
HeklaSmith-BjömSigurðsson 191
A/V riðill
HallgrímurKristjánss.-MagnúsHalldórss. 189 ’
Daisy Karlsd. - Ragnheiður Guðmundsd. 187
Þorbjörg Bjarnadóttir - María Jónsdóttir 178
Næsta spilakvöld er þriðjudaginn
1. desember og er spilað í húsi Brids-
sambandsins í Sigtúni 9. Allir byijend-
ur era hvattir til að mæta en spila-
mennskan hefst kl. 19.30.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Sl. mánudag 23. nóvember hófst
aðalsveitakeppni félagsins og í mótinu
taka þátt 12 sveitir í A-riðli og 6 sveit-
ir í B-riðli sem ætlaður er byijendum
eingöngu. Staðan eftir fyrsta kvöldið
er eftirfarandi:
A-riðill
Diöfn Guðmundsdóttir 48
VinirHafnaiflarðar ' 42
ÁrsællVignisson 34
Haukur í Holti 33
KristóferMagnússon 33
B-riðiU
VinirRagnars 25
Biyndís Eysteinsdóttir 23
Margrét Pálsdóttir 18
Nk. mánudag vérður spiluð félags-
keppni gegn Bridsfélagi kvenna og
hefst spilamennskan kl. 19.30 í
íþróttahúsinu v/Strandgötu.
tfóhanw
^onssonau skálds'
Á sírhim
A síðum þessarar bókar birtast stórmerk
bréf Jóhanns Jónssonar skálds sem
fundust óvænt uppi á háalofti norður á
Húsavík á útmánuðum 1992.
Bréfin varpa nýju ljósi á lítt kunnan kafla
í lífi upgs manns sem reynir að fóta sig í
veröld á hverfanda hveli. Hér heldur á
penna leiftrandi snillingur sem Halldór
Laxness sagði að verið hefði
„skáldskapurinn holdi klæddur“.
UNDARLEGT ER LIF MITT!
Gjöf handa fóUti á öllum aldri!
VAKA-HEIGAFELL
Síðumúla 6, 108 Reykjavík