Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 43
2661 H38M323Q .8 HU0AQUTMMI3 QIQAJ8MU0H0M !IDRGUNBTagIgTIMTUDA(ruir37~DESEMBERT992~ ~ ~ ~~ r ÍS Minning Kristína M. Jó- hannesdóttir Fædd 10. júní 1933 Dáin 24. nóvember 1992 Sárt er að missa góða vinkonu á bezta aldri, en samt erum við þakk- látar fyrir að hún skuli ekki þjást meir og hafi nú fengið hvíld frá erfiðum sjúkdómi. Friður sé .með elsku Grétu og Guð blessi hana. Við Kristína Margrét höfum ver- ið vinkonur frá barnæsku og staðið saman í blíðu og stríðu. Stofnuðum saumaklúbb vorið 1950. Þá ný út- skrifaðar gagnfræðingar. Gréta er sú þriðja úr okkar hópi sem kveður þennan heim. Fyrst var Helga Elís- bergsdóttir er dó í slysi í febrúar 1963 og þá Hrönn Pétursdóttir er lézt í desember 1979 af völdum sama sjúkdóms og Gréta. BJessuð sé minning þeirra. Gréta var vel greind og dugleg í skóla, sérstak- lega góð í íslenzku máli og bók- menntum. Var Gréta ósérhlífin og góður starfskraftur til vinnu. Gréta giftist ung Georg Frankl- ínssyni og eignuðust þau þrjá syni og tvær dætur. Samgleðjumst við Grétu með þau, því öll eru þau svo indæl og dugleg. Ekki er hægt að óska sér betri ávöxt af sínu lífs- starfi. Miklir gleðigjafar voru barnabörnin henni. Alltaf var gott að koma heim til Grétu og Georgs bæði hér heima á íslandi og eftir að þau fluttu búferl- Utför RAGNARS JÓNSSONAR fv. skrifstofustjóra, Brautarlandi 9, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 4. desember kl. 13.30. Kristfn Einarsdóttir, Þorgerður Ragnarsdóttir, Gísli Heimisson, Jón Ragnarsson, Gyða Halldórsdóttir, Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, Ólafur Bjarnason, Einar Ragnarsson, Gerður Pálsdóttir. Kolfinna B. Bombard- ier — Kveðjuorð Fædd 21. apríl 1960 Dáin 27. október 1992 Mig langar til að minnast elsku vinkonu minnar Kollu, eins og hún var kölluð. Kolla barðist við sjúk- dóm sem hún dó úr. Við höfðum verið góðar vinkonur síðan á ungl- ingsárum. Hún kynntist eftirlifandi manni sínum, Kjartani M. Kjartans- syni, ung að árum og áttu þau fjög- ur börn saman en eitt þeirra dó aðeins 6 mánaða gamalt. Alltaf var Nanna Guð- mundsdóttir - Kveðjuorð Nanna frænka er látin. Ég er ánægð að hafa kynnst Nönnu afasystur minni. Það var sumarið sem ég var 13 ára. Ég átti að fara í sendiferðir fyrir hana og hjálpa til við minni háttar heimilisstörf. Þetta voru ánægju- legir eftirmiðdagar en oftar en ekki varð lítið úr sendiferðum og heimilisstörfum, en þeim mun meira töluðum við saman. Það var hægt að tala um allt milli himins og jarðar við Nönnu, en sérstak- lega þótti mér gaman að hlusta á hana segja frá æskuárum sínum. Seinna hélt ég áfram að koma í heimsókn á Stýró og var alltaf jafn velkomin. Nanna var falleg gömul kona, jafnt hið ytra sem innra. Hún var alltaf svo sterk og skapgóð, að maður var ósjálfrátt farin að líta á hana sem eilífa. Tómarúmið sem kom við fráfall hennar verður seint fyllt. Ég votta Kristjáni og fjölskyldu samúð mína. Söknuðurinn er mik- ill en minningin um Nönnu mun lifa. Sesselja Jiirvela. jafn gaman að koma inn á heimili þeirra hjóna. Alltaf fékk maður hlýjar móttökur. Aldrei kvartaði Kolla um veikindi sín heldur var hún alltaf hress, og kát. Öll fjöl- skylda hennar Kollu og vinir hafa átt þátt í að henni hefur liðið vel því hún hefur átt einstaka aðstand- endur og ég er mjög þakklát fyrir að hafa átt Kollu fyrir vinkonu og hennar verður sárt saknað. Ég bið góðan Guð að varðveita hana og styrkja Kjartan og alla fjölskylduna í þeirra miklu sorg. Hulda Reynisdóttir. um til Malmö í Svíþjóð árið 1970. Gréta var lagleg og fíngerð, hlé- dræg og prúð. Trygg og trú var hún vinum sínum. Fyrstu árin eftir að hún flutti utan skrifuðumst við á. En nú hin síðari ár hringdum við oft hver í aðra. Og ekki bara á tylli- dögum heldur var hugur Grétu það mikill hér heima, að þegar veik- indi, erfíðleikar og eitthvað bjátaði á hjá okkur vinkonunum, var það segin saga að Gréta hringdi heim til að uppörva og hughreysta og fylgjast með okkur. Oft var hlegið dátt á góðum sam- verustundum. Þakklátar erum við fyrir að hafa átt Grétu fyrir vin- konu og allar góðu minningarnar sem við eigum saman. Eiginmanni Grétu, Georg Franklínssyni, böm- um, barnabörnum, aldraðri móður, Huldu Lúðvíksdóttur, og systur, samhryggjumst við innilega. Hvíli vina vor í friði. Samúðarkveðjur, Vinkonurnar Anna, Lísa, Sigrún og Svava. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, KRISTÍN KRISTMUNDSDÓTTIR, Hjallavegi 11, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. desember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Dadda Sigriður Árnadóttir, Sverrir Ormsson, Ólafur Árnason, Elín Óiafsdóttir, Árni Sædal Geirsson, Jóna Pálmadóttir, barnabörn, barnabarnabörn, Elínborg Kristmundsdóttir, Guðjón Kristmundsson. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS FRIÐBJÖRNSSONAR fyrrverandi lögregluþjóns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Minni-Grundar og deildar 32A á Landspítala. Guð blessi ykkur. Birna Ó. Fawcett, Paul R. Fawcett, Sigþór Óskarsson, Halldóra Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. afi Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, og langafi, ÁSTRÁÐURINGVARSSON veiðieftirlitsmaður, Jöklaseli 11, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 4. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands. Steinunn G. Ástráðsdóttir, Magnús Gunnarsson, Ágúst Ástráðsson, Guðbergur Ástráðsson, Margrét Brandsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, unnusti og móðurbróðir, INDRIÐI EINARSSON, sem lést á Möltu 21. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Ás- kirkju í dag fimmtudaginn 3. desember kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vijdu minnast hans er bent á Minningarsjóð Félags einstæðra foréldra, Hring- braut 116, sími 11822. Stella Jóhannsdóttir, Arndis Einarsdóttir, Arna Guðlaug Einarsdóttir, Auður Albertsdóttir, Einar M. Vilhjálmsson. Erfidrykkjur Glæsileg ivíiiii- lilaðborð GalLegii’ salirogmjög góð þjónusta. Upplýsingar ísíma22322 P FLUGLEIDIR LOFTLEIBIR Systir okkar, GUÐMUNDA INGVELDUR SIGURÐARDÓTTIR, Stórholti 12, Reykjavík, verður jarðsett föstudaginn 4. desember frá Háteigskirkju kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast hinnar látnu láti Hjartavernd njóta þess. Systkini hinnar látnu. Lokað vepna jarðarfarar MARGRETAR JOHANNES- DÓTTUR, frá kl. 12.00- 15.00 í dag, fimmtudag. SAS, Laugavegi 172. AWOK34RDUR VIÐ SUND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.