Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBBR 1992
23
Forystugrein Vísbendingar um efnahagsráðstafanir
Aðgerðirnar draga úr líkum á
kaupmáttaraukningu á næstunni
Efnahagsráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar eru gagnrýndar í
forystugrein nýjasta heftis Vís-
bendingar, vikurits um viðskipti
og efnahagsmál. Þar segir að
umdeilt sé hvort aðgerða hafi
verið þörf og sú skoðun látin i
ljós að ráðstafanirnar dragi úr
líkum á kaupmáttaraukningu. á
næstunni. Þá er hlutverk Þróun-
arsjóðs sjávarútvegsins gagnrýnt
og ríkisvaldið þar sagt vera í hlut-
verki Hróa hattar. Ritstjóri Vís-
bendingar er Sigurður Jóhannes-
son.
í forystugrein Vísbendingar segir
að búast megi við því að verðbólga
vaxi á næstu mánuðum vegna geng-
isfellingarinnar. „Raunar er erfitt
að gera sér fulla grein fyrir áhrifum
gengisfellingarinnar á verðlag. Verið
getur að sumir noti tækifærið og
hækki verð meira en samsvarar
henni. Á hinn bóginn má búast við
að kaupmenn snúi innkaupum sínum
nú til Bretlands og annarra landa
þar sem gengi hefur fallið," segir í
Vísbendingu. „Verst er að nú hefur
verið gefið fordæmi, gengisfellingar-
leiðin er enn til og enginn veit hve-
nær gengið fellur næst. í greinar-
gerð með ráðstöfunum ríkisstjórnar-
innar segir að gengisvog verði
óbreytt, en hliðsjón verði höfð af
útflutningsvog við daglega ákvörðun
gengis. Þetta má skilja þannig að
notuð verði sú vog sem gefur lægra
gengi. Ný gengisfelling á næsta ári
myndi ekki koma jafnmikið á óvart
og þessi. Fast gengi hefur verið
helzta forsenda stöðugleikans und-
anfarin ár og öll áætlanagerð verður
erfiðari þegar þessi kjölfesta er horf-
in.“
Kauphækkunum eytt með
gengisfellingum
í greininni segir að skattar á fyrir-
tæki séu lægri hér á landi en víðast
hvar í nágrannalöndunum og ekki
þörf á að lækka þá af þeim sökum.
Þá sé launakostnaður fyrirtækja
mun lægri hér en á Norðurlöndum.
Meðaltímakaup í iðnaði hafi verið
40-60% lægra hér á landi en annars
staðar á Norðurlöndum. „Kaupmátt-
ur tímakaups Alþýðusambandsfólks
hefur ekki vaxið frá 1980. Skýringin
gæti legið í því að kauphækkunum
hér á landi hefur oftast verið eytt
jafnóðum rneð gengisfellingum. Þess
vegna hefur ekki verið næg ástæða
til þess að hagræða í rekstri fyrir-
tækja,“ segir í Vísbendingu.
Ríkisvaldið í hlutverki
Hróa hattar
Greinarhöfundur segir að fyrir-
KK-band á
Púlsinum
KK-BAND verður með tónleika
á Púlsinum í tilefni útkomu nýs
geisladisks „Bein leið“, í kvöld,
fimmtudaginn 3. desember, og
föstdaginn 4. desember.
Tónleikarnir í kvöld verða í beinni
itsendingu á Bylgjunni kl. 22-24
tónlistarþættinum Islenskt í önd-
'egi - Púlsinn á Bylgjunni í boði
Liðveislu - Námsmannaþjónustu
sparisjóðanna.
Hljómsveitina KK Band skipa:
Þorleifur Guðjónsson, Kormákur
Geirharðsson og Kristján Kristjáns-
son.
3M
Slípivörup
tækjum í sjávarútvegi hafi löngum
verið innrætt að þau beri ekki fulla
ábyrgð á rekstrinum, og með Þróun-
arsjóði sjávarútvegsins sé ýtt undir
það hugarfar. „Sum fyrirtæki í
greininni hafa verið vel rekin, en nú
er gert ráð fyrir að þau leggi sitt
af mörkum til þess að borga mistök
hinna. Gjöld á fiskiskip og húseignir
renna til Þróunarsjóðs, en hann
kaupir eignir útgerðar og fiskvinnslu
úr rekstri. Ríkisvaldið er í hlutverki
Hróa hattar og tekur fé frá vel rekn-
um útgerðarfyrirtækjum eins og
Útgerðarfélagi Akureyringa og
Granda og færir hinum, sem hafa
lagt í rangar íjárfestingar. Enn
fremur virðist bönkum og lánasjóð-
um, sem hafa lánað til þessara fjár-
festinga, nú vera borgið."
Höfundur forystugreinarinnar tel-
ur að sú leið, sem fara eigi' með
Þróunarsjóði verði torveld í fram-
kvæmd. „Með því að kaupa eignir
úr rekstri fær opinber nefnd það
hlutverk að ákveða hvar sjávarút-
vegur leggst af. Erfitt er að ímynda
sér að pólitísk eining geti orðið um
slíkt starf. Eflaust verður spurt: Er
rétt að kaupa frystihús úr rekstri,
þannig að eigendur þeirra geti stofn-
að ný fyrirtæki annars staða, án
þess að „úrelda" um leið íbúðarhús
sjávarþorpanna með opinberum
framlögum?
Umdeilt hvort aðgerða var
þörf
Lokaorð forystugreinar Vísbend-
ingar eru svohljóðandi: „Raunar er
umdeilt hvort nokkurra aðgerða var
þörf. Horfur voru til dæmis á að
atvinnuleysi yrði áfram mun minna
en i nágrannalöndum. í þessu sam-
bandi er við hæfí að rifja upp orð
Þorvalds Gylfasonar prófessors hér
í blaðinu 31. október: „En jafnvel
þótt hjöðnun verðbólgu í skjóli stöð-
ugs gengis geti kostað stóraukið
atvinnuleysi árum saman, öndvert
því, sem margir áttu vonaá, virðist
reynslan engu að síður benda til
þess, að minni verðbólga sé forsenda
aukins hagvaxtar, þegar frá líður.“
Hér að framan var á það bent að
kaupmáttur tímakaups hefur ekki
vaxið síðan 1980. Hinar nýju aðgerð-
ir stjórnvalda draga úr líkum á því
að hann komist úr því fari á næst-
unni.“
-í' ÍmmÍí ém 4 /nísmunaiuh /tj/daj^:
HVUNNDAGS
<' i í /
H E L G A R
yurn
<y
S P A R I
/f/Ái/l
<s
1 S Æ L U
'/ít/u/l
<y
INNIFALIÐ f LYKLUM: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður,
auk aðgangs að öllum þægindum hótelsins svo sem jarðgufubaði, útisundlaug,
heitum pottum, þrekæfingasal, tennisvelli, níu holu golfvelli o.fl.
Einnig stendur til boða ýmis sérþjónusta, svo sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa,
hestaleiga, bílaleiga, stangveiði og margt fleira.
GjafalyklarnÍr eru til sölu í Jólagjafahúsi okkar í KrÍnglunnÍ
eða í síma 98-34700 og þú færð lykilinn sendan heim.
Sendum í póstkröfu • VISA-EURO raðgreiðslur.
/fj/afali/Álarnir- (jjií/ay a/ii áriJ
HÓTEL ÖRK
HVERAGERÐI - SlMI: 98-34700 - FAX: 98-34775
Paradu -rétt handan við hœdina