Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 27
RAICHLE - SKÓR VERÐÁÐUR 2Í .700,- VERÐ NÚ 13.900,- GÆÐA SPORTFATNAÐUR OG MARGT FLEIRA MEÐ ALLT AÐ 80% AFSLÆTTI GAP G.Á.PÉTURSSON HF. NÚTlÐINNI, FAXAFENI 14 SÍMl 68 55 80 ÞRÍHJÓL VERÐ FRÁ 3.500,- MONGOOSE VERÐ FRÁ 19.900,- STIGA - SLEÐAR VERÐ FRÁ 4.900,- KONSTANTÍN Mitsotakis, for- sætisráðherra Grikklands, vék öllum ráðherrum sínum frá í gær og kvaðst ætla að mynda nýja stjórn innan sólarhrings. Hann vill hafa fijálsar hendur við uppstokkunina eftir lang- varandi deilur innan stjórnar- innar um stefnu hans í efna- hags- og utanríkismálum. Sprengjutil- ræði afstýrt BRESKA lögreglan kom í veg fyrir mikla eyðileggingu í mið- borg Lundúna í gær þegar hún gerði öfluga sprengju óvirka í bíl við fjölfarna götu. Liðsmenn írska lýðveldishersins (IRA) komu sprengjunni fyrir og talið er að samtökin hyggist herða hryðjuverkastarfsemi sína í borginni fyrir jól. Franskir hægrimenn í sókn FRANSKIR hægri- og mið- flokkar ynnu stórsigur ef geng- ið væri til kosninga nú, ef marka má skoðanakönnun sem tímaritið Paris-Match birti í gær. Flokkarnir fengju alls 418 þingsæti af 555, en hafa nú aðeins 259. Sósíalistaflokkur- inn fengi aðeins 115 þingsæti, hefur 270. Þingkosningar verða í Frakklandi í mars. Li Peng í Víetnam LI Peng, forsætisráðherra Kína, sagði í gær eftir þriggja daga viðræður við víetnömsk stjórnvöld í Hanoi að Kínverjar vildu auka áhrif sín í Austur- löndum fjær og að bætt sam- skipti þeirra við Víetnama myndu stuðla að stöðugleika í þessum heimshluta. Hann und- irritaði ennfremur samninga um efnahags, tækni-, vísinda- og menningarsamvinnu ríkj- anna. en sönn sagal ...prakkarastrik...fyrsta kynlífsfræðslan...pabbi handtekinn á striðsárunum...pabbabílarnir klessukeyrðir... fyrstu ástarskotin...sungið með KK-sextett...sungið með Hljómsveit Svavars Gests... merkilegur miðilsfundur... kýldur gegnum rúðu í Noregi...sögur úr leigubílastarfi... þegar Raggi Bjarna varð landeigandi í Ameríku... gamansögur frá Sumargleðiárunum...þegar Raggi Bjarna upprætti þjófahring á SpánL.glímt við áfengisvanda... partí með blómahippum í New York...kynni af milljónamæringum...eltur af glæpamönnum í Bandaríkjunum... Lifssaga Ragga Bjarna - bókin sem allir eru að tala um! ------------------------------1/ESKANf------------------------------- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 Reuter Njósnahnetti komið á braut umjörðu Áhöfn geimfeijunnar Discovery gengur glaðbeitt til feijunnar rétt fyrir geimskot frá Canaveralhöfða á Flórída í gær. Geimskotið tafðist um 85 mínútur vegna ísingar á eldsneytistanki feijunnar. Ekki var skýrt frá því hversu lengi feijan verður í geimnum en auk vísindatil- rauna áttu geimfararnir að koma njósnahnetti á braut um jörðu fyrir bandaríska varnarmálaráðuneytið. Með honum er ætlunin að fylgjast með herflutningum í austanverðri Evrópu. Með geimskoti Discovery hafa bandarískar geimfeijur farið átta sinnum út í geiminn á þessu ári en flestar hafa þær orðið níu á einu ári en það gerðist árið 1985. Var þetta jafnframt 52. ferð bandarískrar geimfeiju frá upphafi. Seðlabankar verja veika gjaldmiðla Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. SEÐLABANKAR Þýskalands, Frakklands, Hollands og Danmerkur neyddust í gær til að kaupa franska franka og danskar krónur til að koma í veg fyrir að gengi þeirra lækkaði. Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins gerir ekki ráð fyrir verulegum efnahagsbata í aðildarríkjunum á næsta ári. Uppstokk- un í grísku stjórninni ERLENT Talsverður órói var á gjaldeyris- mörkuðum eftir ummæli Helmuts Schlesingers, forseta þýska seðla- bankans, þess efnis að ótakmörk- uð íhlutun seðlabanka sterku gjaldmiðlanna til að veija þá veik- ari stuðlaði ekki að stöðugleika í gengismálum. „Þýski séðlabank- inn er auðvitað skulbundinn til að skerast í leikinn samkvæmt regl- um ERM [Gengissamstarfs Evr- ópu] en á mörkuðunum hafa menn á tilfinningunni að hann geri það aðeins með hangandi hendi,“ sagði David Cocker, hagfræðingur Chemical Bank í Lundúnum. Spákaupmenn túlkuðu ummæli Schlesingers þannig að nú væri rétti tíminn til að gera atlögu að veikustu gjaldmiðlunum því seðla- bankamir myndu ekki skerast í leikinn. Gengi franska frankans lækkaði og nálgaðist neðri mörk gengisviðmiðunar ERM en hækk- aði aftur eftir íhlutun seðlabank- anna. Hún varð einnig til þess að gengi dollars hækkaði nokkuð. Danski seðlabankinn þurfti einnig að kaupa danskar krónur til að veija hana en þrýstingurinn á írska pundið minnkaði sem gerði írska seðlabankanum kleift að hækka skammtímavexti sína all- nokkuð. í efnahagsspá framkvæmda- stjórnar Evrópubandalagsins fyrir árið 1993, sem birt var í Brussel í gær, er gert ráð fyrir að hagvöxt- ur í aðildarríkjunum verði á bilinu 1,1-1,5%. Samkvæmt endurskoð- aðri spá fyrir yfirstandandi ár verður hagvöxturinn 1,1%. Fram- kvæmdastjórnin gerir ráð fyrir vaxandi halla á fjárlögum aðildar- ríkjanna og auknu atvinnuleysi. Hún telur þó að útlitið til lengri tíma litið sé öllu bjartara og reikn- ar með 3% hagvexti innan banda- lagsins eftir næsta ár. ■ PHNOM PENH - Samn- ingaumleitanir við Rauðu khmer- ana í Kambódíu um að þeir sleppi sex friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sem þeir tóku í gíslingu í fyrradag, hafa reynst . árangurslausar. Gæsluliðarnir voru teknir höndum í héraðinu Kompong Thom síðdegis í fyrra- dag að staðartíma og voru sakað- ir um njósnir í þágu stjórnarinnar í höfuðborginni Phnom Penh. Ör- yggisráð SÞ samþykkti daginn áður viðskiptaþvinganir gegn Rauðu khmerunum fyrir að þver- skallast við kröfum um að þeir virði alþjóðlegt friðarsamkomulag sem allir deiluaðilar í Kambódíu samþykktu í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.