Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 ! ■ / "'rivi a/ i. 11 í': / n i 15 Milljónir fiska Mynd 2: 1.600 Þorskur í Barentshaffi Ienska hefur mælt að 25% af fæðu þorsks í október og mars hafi verið þorskur. Þeir hafa líka mælt að þorskurinn hafí étið undan sér 40 þúsund tonn einn mánuðinn! Þegar farið er að kryfja þá frek- ar um þetta mál „vantar meiri rann- sóknir“! Um þetta er lítið fjallað. hvað varð um þorskseiðin þegar þau tóku botn fyrir Norðurlandi á haust- in 1986-1990 ef margir svangir munnar biðu niðri? Þarf að spyrja oft? Hver var fæða þorsks fyrir Norðurlandi í nóvember, desember, •janúar og febrúar 1986-1990? Voru menn svona vissir um að fæðan væri til? Tölur á íslandi um meðalvigt eftir aldri eru eftir því sem best verður að komist varla marktækar til samanburðar á þrif- um þorskstofnsins, vegna þess að þorskurinn er vigtaður með tom- mustokk og engin gögn eru til yfír hlutfallið meðallengd/meðalþyngd eftir aldri! Sundurliða hefði átt þessi gögn um meðalþyngd a.m.k. í hlýsjó fyrir Suðurlandi og kaldari sjó fyrir Norðurlandi til þess að eitthvert vit væri í þessum samanburði og eftir- liti með þrifum mikilvægasta físki- stofns íslensku þjóðarinnar! Svo ekki sé nú talað um að aldursgreina og kanna þrif smáfísks þegar verið er að loka svæðum fyrir „smáfíska- drápi“. Auðvitað átti að veiða fískinn ef hann hafði ekki næga fæðu og var að éta sjálfan sig að vetrarlagi á árunum 1986-1990. Eftirlit með þrifum físka þarf ekki að kosta mikla peninga. Útgerðarmenn hefðu eflaust leyft vísindamönnum að fara með í veiðiferðir til rann- sókna hefði þess verið óskað. Af hveiju er ekki mæld lifur sem hlut- fall af þunga. Er enginn áhugi á þrifum þorskstofnsins við ísland? Lifrarhlutfall segir mikið og ljót Hornsett sem hægt er að breyta í svefnsófa. Með áklæði, 2 sæti — horn — 3 sæti. Á aðeins 89.000,- stgr. Vhlhwsgögn Ármúla 8, símar 812275 og 685375. hefur lifrin verið á grunnslóð fyrir Norðausturlandi undanfarin ár! Firðir fyrir austan og norðan voru fullir af smáfíski vorið 1990. Þessi fískur var rannsakaður og kom í ljós að þama var á ferðinni 7 ára gamall „smáfiskur" mættur til hrygningar og meðalvigtin 2 kg með innyflum! Þetta þótti ekki skipta máli á Skúlagötu 4! I Færeyjum var Færeyjabanki friðaður fyrir þremur árum til að „byggja upp stofninn og koma í veg fyrir ofveiði". Hvernig skyldi það ganga? Fréttir komu frá Færeyjum í fyrra um að lundinn væri að drep- ast úr hor. Jú - það fylgdi fréttinni að til að bjarga málinu hefði verið ákveðið - að friða matarlausan lundann! Er nú ekki skylt skeggið hökunni í friðunarvísindum! Hvað með meinta „ofveiði“ í Kanada og alla lygina sem klifar sífellt í fjölmiðlum að veiðiskip EB á 5% landgrunnsins fyrir utan 200 mílur séu orsökin að lélegum afla þar á bæ! Vísindarannsóknir stað- festa mjög staðbundna þorskstofna við Kanada austanvert og greinist þorskstofninn þarna í a.m.k. 7 stað- bundna undirstofna. Þetta eru stað- reyndir. Samt endurtekur lygin sig í fjöl- miðlum með reglulegu millibili að nokkrir EB togarar utan 200 míln- anna séu að „útrýma“ staðbundnum þorskstofnum uppi í ijöru við Kanada! Af hvetju þegja „fræði- menn“ þunnu hljóði. Prestur á Snæ- fellsnesinu sagði að þar lygju menn með þögninni! Hvernig væri að fjöl- miðlar kynntu sér meðalþunga þorsks eftir aldri í Kanada og bæru saman við aðra stofna áður en næsta lygafrétt verður skrifuð!? Skyldi það vera rétt að 11 ára gam- all þorskur við Kanada sé 2 kg „smáfískur“. Hvernig lítur lifrin út? „Ofveiðiprofetar" ættu að skoða það mál! Hver stjórnar þessari lygi um ofveiði EB-skipanna? Ég bara spyr! Sumum finnst það óréttmætt að skrifa harða gagnrýni um þessi málefni. En það bendir bara allt til þess að fæðuna hafi alltaf vantað til framkvæmdar á „uppbyggingu þorskstofnanna“. Afleiðingarnar af „uppbyggingarstefnunni" virðast alls staðar hafa orðið: fæðuskortur, - stóraukið sjálfát nytjastofna - með minnkandi veiði og er þetta ærið tilefni harðrar gagnrýni! Þorskveiði hefur dregist saman í Norður-Atlantshafi um 60-70% sl. 15 ár án vitrænna skýringa! Tillög- ur Alþjóðahafrannsóknaráðsins nú eru stöðvun þorskveiða við Kanada, Færeyjar og í Eystrasalti. Hvenær kemur röðin að okkur? Sáralítil veiði hér við land um þessar mundir er því að öllum lík- indum afleiðing af fæðuskorti og sjálfáti þorskstofnsins undanfarin ár. Þetta verða menn að fara að skilja! Nú er fæðuframboð aftur byijað að aukast og þá braggast þorskur- inn aftur. Það verður ekki „friðun- inni“ að þakka eða hinni „góðu veiðiráðgjöf“ eins og reynt verður að láta í veðri vaka þegar afli fer aftur að vaxa. Það virðist allt benda til þess, að veiðiráðgjöf undanfar- innar ára sé byggð á vanþekkingu á fæðuframboði hafsins. Menn eiga bara að viðurkenna þetta og vera menn að meiri! Það er fáránlegt að reyna að stjórna náttúrunni neðan- sjávar með stjórnunarofbeldi ofan- sjávar og þykjast hafa til þess þekk- ingu þegar svo er alls ekki! Góð veiðiráðgjöf er: að vinna í takt við náttúruna. Þegar fiski- stofnar gefa vel - þá á að veiða vel - annars skapast fæðuskortur (af manna völdum) sbr. reynsluna hérlendis og erlendis. Sannleikurinn er sá að þekking okkar á nátt- úrunni er afar takmörkuð og þess- vegna verðum við - og eigum - að lifa og vinna í takt við náttúruna en ekki að reyna að stjórna henni. Höfundur er atvinnurekandi. Frumvarp heil- brigðisráðherra Islenskri endurtrygg- ingu breytt í hlutafélag RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á þriðjudag að heilbrigðisráð- herra legði fram frumvarp á Alþingi um stofnun hlutafé- lags um Islenska endurtrygg- ingu. Að sögn Sighvats Björgvins- sonar heilbrigðisráðherra heim- ilar frumvarpið stofnun hlutafé- lags um starfsemina og sagði hann að strax í framhaldi af þeirri breytingn yrði hægt að hefja sölu á hlutabréfum ríkisins í félaginu. Sighvatur sagði að frumvarpið gerði ekki ráð fyrir neinni breytingu á starfsemi ís- lenskrar endurtryggingar eða starfsmannahaldi. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi innan skamms. Ríkissjóður og Trygginga- stofnun ríkisins eiga tæplega 40% af áhættufé íslenskrar end- urtryggingar. skilaði félagið hagnaði á síðasta ári sem nam 44 milljónum króna. Islensk endurtrygging var stofnuð 1939 og hét þá Stríðs- tryggingafélag íslenskra skips- hafna. Hlutverk þess var að tryggja áhafnir íslenskra skipa gegn ófriðarhættu. Nafni þess var síðar breytt og hlutverk þess víkkað út. Er starfsemi þess nú eingöngu bundin við endurtrygg- ingu fyrir íslensk vátryggingafé- lög. UPPBOÐ 45. málverkauppboð Gallerís Borgar í samráði við Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar hf. verður haldið í Súlnasal Hótels Sögu í kvöld, fimmtudaginn 3. desember, og hefst kl. 20.30. Verkin verða sýnd í Gallerí Borg við Austurvöll frá klukkan 10.00 til kl. 18.00 í dag. Meðal verka sem boðin verða má nefna: 58. Gunnlaugur Blöndal Módel. Olía, París 1927. 60x80 cm. Merkt. 59. Jóhannes S. Kjarval Parið í blómunum. Olía. 35x51 cm. Merkt. 60. Hringur Jóhannesson Staur, vír og himinn. Pastel 1991. 49x59 cm. Merkt. 61. Þórarinn B. Þorláksson Innimynd. Oiía. 31x46 cm. Merkt. 62. Kristján Davíðsson . Komposition. Olía um 1967. 40x35 cm. Merkt. 63. Jóhannes S. Kjarval 64. Ásgrímur Jónsson 66. Jóhannes S. Kjarval 67. Ásgrímur Jónsson Skógarfoss. Olía á pappa um 1906. 25x18 cm. Merkt. Frá Þingvöllum. Vatnslitur. 48x60 cm. Merkt. Á berjamó. Olía. 41x107 cm. Merkt. Yfir sundin. Olía. 1909. 24x33 cm. Merkt. 68. Bertel Thorvaldsen Jólagleði á himnum. Blýantur 1843. 24x21 cm. Merkt. Thorvaldsen gerði höggmynd á herragarðinum Nyso í desember 1842. Teikningin er af þessari höggmynd. Bréf á dönsku er segir um tilurð myndarinnarfylgir með í kaup- unum. 69. Jóhannes S. Kjarval Skútur. Olía. 38x79,5 cm. Merkt. 70. Jón Stefánsson Portrett. Olía. 100x80 cm. Merkt. Ath. Þeir sem ekki komast á uppboðið sjálft geta gert skrifleg forboð íverkin í Gallerí Borg eða boðið í þau símleiðis eftir að uppboð hefst. Símar á uppboðsstað, eftir kl. 20.30, eru 985-28173 og 985-28174. BORG Pósthússtræti 9. Fax 624248

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.