Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ KIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 Málamiðlun í samningum Islands og EB um sj ávarútvegsmál Viðræður áskildar ef „ófyrir- séðar aðstæður“ koma upp „GAT MER HAFA MISSÝNST UM SOVÉTRÍKIN?" MÁLAMIÐLUN sú, sem náðist í samningum íslands og Evrópubanda- lagsins um samstarf í sjávarútvegsmálum síðastliðinn föstudag, felur í sér að báðir aðilar gefa nokkuð eftir af ýtrustu kröfum sínum. íslendingar höfðu krafizt þess að í samningnum væru ákvæði þess efnis, að brygðist loðnuveiði við Grænland, yrði karfakvóti EB í ís- lenzkri lögsögu skorinn niður. EB gerði hins vegar þá kröfu, að útgefnar veiðiheimildir beggja aðila stæðu óbreyttar, hvað sem liði aflabrögðum hins. Málið var leyst með því að áskilja viðræður milli EB og Islands, komi „ófyrirséðar aðstæður" upp. Krislinn E. Andrésson, 1971 Almenna bókafélagið boðar til mikilvægs fundar í tilefni af útgáfu bókarinnar „Liðsmenn Moskvu - samskipti íslenskra sósíalista við kommúnistaríkin" eftir sagnfræðingana Áma Snævarr og Val Ingimundar- son. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 3. desember í Átthagasal Hótel Sögu kl. 17:00-19:00. Fundurinn er öllum opinn. Dagskrá: 11. Ámi Snævarr, annar höfundur bókarinnar, ræðir um vandann við að finna skjöl í skjalasöfnum erlendis, hann greinir frá frekari upplýsingum sem er að vænta um þetta efni og segir frá samtölum sínum við persónur bókarinnar. 2. Bjöm Bjamason alþingismaður og Eysteinn Þorvaldsson dósent segja álit sitt á upplýsingum í bókinni og hvaða lærdóm megi draga af þeim. 3. Pallborðsumræður um bókina. Þátttakendur verða þeir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, Gísli Gunnarsson dósent, ásamt frummælendum. Fundarstjóri og stjómandi pallborðsumræðna er Jón Hákon Magnússon. Verið velkomin! é> ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF í samkomulagi íslands og EB frá 2. maí síðastliðnum, sem var í formi erindaskipta, var kveðið á um að skip EB fengju að veiða 3.000 tonn af karfa í íslenzkri lögsögu, en ís- lendingar fengju á móti 30.000 tonn af loðnukvóta EB í grænlenzkri lög- sögu. Gert er ráð fyrir að íslending- ar veiði loðnuna á tímabilinu janúar til apríl, en að EB fái að veiða karf- ann á tímabilinu frá júlí til desem- ber. íslendingar kröfðust þess í samningaviðræðunum, sem í hönd fóru síðastliðið sumar, að loðnuver- tíðin yrði fyrsta viðmiðun varðandi útgáfu veiðiheimilda. Næðu íslend- ingar ekki öllum loðnukvóta sínum, ættu veiðiheimildir EB að skerðast í sama hlutfalli. Þessi krafa, „veiði fyrir veiði“ var sett inn með það í huga meðal annars, að loðnuveiði brást alveg á vertíðinni 1982-1983. Evrópubandalagið taldi þetta hins vegar alveg nýja kröfu af hálfu íslendinga. Bandalagið taldi að í erindaskiptunum, sem fram fóru í Oportó 2. maí, hefði eingöngu verið rætt um gagnkvæmar veiðiheimild- ir, og þar við skyldi sitja. Samningaviðræðurnar strönduðu í júlí síðastliðnum, en hófust~á ný í haust. Málamiðlunin, sem náðst hefur fram, er fólgin í eftirfarandi málsgreinum í viðauka A við samn- inginn: „Um öll mál er tengjast framkvæmd þessa samkomulags — þ.á m. ef ófyrirséðar aðstæður koma upp — skulu aðilar hafa sam- ráð sín á milli, ef annar hvor þeirra óskar eftir því. Ef svo ber undir að lækka verður aflaheimild annars samningsaðil- ans, vegna ófyrirsjáanlegra líf- fræðilegra ástæðna, skulu samn- ingsaðilar tafarlaust ræðast við í Árið ’93 er skammt undan <n Nýiar spennandi innréttingar XÍd^ög^bato^Sngafi Zi í ^StíÆe“Æeé1lta64«%afstetti. sýmngarsal biða þvi nyr g , nnWVrar nýiar gerðir innrétt- yinnig fram tii 15. desember bjótost no^ f$VCT|iista 1992. m"a d sérstöku kynnrng^er^- tn^dSember. Spariö og panbö nnna ^ etg. ý VCTÖ, Notið tækifærið og eignist nyj Visa og Euro raðgreiftslur. ur Island þeim tilgangi að koma aftur á jafn- vægi.“ Samkvæmt skilningi utanríkis- ráðuneytisins flokkast til dæmis aflabrestur á loðnu undir „ófyrir- séðar aðstæður". Hann leiðir þó ekki til sjálfkrafa niðurskurðar á veiðiheimildum Evrópubandalags- ins, heldur yrðu að fara fram samn- ingaviðræður um málið. Áskilið er í samningnum að árlega skuli samn- ingsaðilar hafa samráð um úthlut- anir á veiðheimildum „með það í huga að ná ásættanlegu jafnvægi í samskiptum sínum á sviði fisk- veiða.“ Samningurinn kveður á um fleira en gagnkvæm skipti á veiðiheimild- um. Evrópubandalagið viðurkennir „grundvallarþýðingu sjávarútvegs fyrir ísland, þar eð hann er undir- stöðuatvinnuvegur landsins." Þá eru í samningnum ákvæði um að ísland og Evrópubandalagið skuli hafa með sér samvinnu til að tryggja vemdun og skynsamlega nýtingu fiskistofna, sem ganga um fiskveiðilögsögur þeirra beggja og aðliggjandi svæði. ÓÞS Mögnleikhúsið og Þórarinn Eldjárn JÓLDAGSKRÁ fyrir börn verður laugardaginn 5. desember í menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Þá mun Möguleikhúsið sýna einþátt- unginn Smiður jólasveinsins og Þórarinn Eldjárn les upp. Dagskrá þessi verður endurtekin laugardaginn 12. nóvember. Leikritið Smiður jólasveinsins fjallar um Völund, gamla smiðinn sem smíðar öll leikföngin fyrir jóla- sveinana. Völundur situr einn í kof- anum sínum, jólasveinarnir eru allir famir til byggða og hann hefur engan til að halda jólin með. Þá ber að garði tröllabörnin Þusu og Þrasa. Þau eru reyndar óvenju lítil og góð- leg af tröllum að vera en þurfa sí- fellt að vera að rífast. Þusa og Þrasi hafa ekki hugmynd um að það eru að koma jól. Völundur fer að segja þeim frá jólunum og í sama mund kemur jólakötturinn í heimsókn. Hann er ekki lengur grimmur og vondur heldur orðinn mesta sak- leysisgrey. Völundur segir þessum óvæntu gestum frá boðskap jólanna og saman leika þau sína útgáfu af jólaguðspjallinu og dansa í kringum jólatré. Fjórir leikarar taka þátt í þessari uppsetningu, þau Alda Arnardóttir, Bjami Ingvarsson, Pétur Eggerz og Stefán Sturla Siguijónsson. Á undan sýningu Möguleikhúss- ins mun Þórarinn Eldjárn lesa óbirta jólasögu sína og úr ljóðabók- um þeim sem hann hefur samið fyrir böm. (Fréttatilkynning) Þeir Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri SÍF og Dagbjartur Ein- arssson stjórnarformaður ásamt Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráð- herra á kynningunni. AB og SÍF gefa út matreiðslubók um saltfisk Þakka útgefanda vel unnið verk - segir Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri sem vonandi á eftir að auðga matarmenningu íslendinga," ALMENNA bókafélagið og Sölu- samband íslenskra fiskframleið- enda hafa gefið út bókina „Suð- rænir saltfiskréttir" eftir Jordi Busquets. Á kynningu bókarinn- ar sagði Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri SÍF að þeir hefðu orðið varir við að Islend- ingar hefðu saknað þess að geta ekki gengið að saltfiskréttum eins og þeir tíðkast í Miðjarðar- hafslöndunum. „Og ég vil þakka útgefenda fyrir vel unnið verk sagði Magnús. Bókin inniheldur uppskriftir að um 60 forréttum, aðalréttum og eftirréttum sem sýndir em með myndum og stutt sögulegt yfírlit yfir saltfískiðnaðinn á Íslandi. Þýð- andi bókarinnar er Sigríður S. Stephensen en aðstoð veittur mat- reiðslumeistaramir Úlfar Eysteins- son og Rúnar Marvinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.