Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
39
sér. Fótbolti var ávallt númer eitt í
lífí okkar og var hans draumur að
spila erlendis og hafa lifíbrauð sitt
af knattspymunni og það tókst hjá
honum.
Við eigum erfítt með að skilja
hvers vegna svona ungur og hraust-
ur drengur sem Indriði var skuli
vera tekinn frá okkur svona
snemma, en honum hefur sjálfsagt
verið ætlað eitthvert mikilvægara
hlutverk sem við ekki skiljum.
Við kveðjum vin okkar Indriða
með söknuði og vottum móður hans,
systrum, unnustu og öðrum að-
standendum einlæga samúð.
Ingvar, Finnur og Kristinn.
Kær vinur okkar og félagi er horf-
inn af leikvelli í hinsta sinn. Að þessu
sinni verðum við að horfast í augu
við þá bitru staðreynd að nú kemur
ekki maður í manns stað. Indriði var
okkar félagi í blíðu og stríðu á und-
anförnum árum og frá þeim tíma
að leiðir okkar lágu fyrst saman
hafði hann tekið miklum framförum.
Hann var einstakur baráttumaður
sem oft á tíðum lagði hvað þyngst
lóð á vogarskálarnar í sókn okkar
eftir sigri. A þessari stundu eru
kveðjur okkar fullar trega og sakn-
aðar en það væri ekki í anda Indriða
að leggja árar í bát í þessari stöðu.
Einlægni og eindrægni hans mun
verða okkur hvatning í framtíðinni
og við munum keppast við að halda
merki hans hátt á lofti.
Fjölskyldu, unnustu og öðrum
ástvinum sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
„Þú skalt ekki hryggjst, þegar þú skilur
við vin þinn, því að það, sem þér þykir
vænst um í fari hans, getur orðið þér
ljósara í fjarveru hans, eins og fjall-
göngumaður sér fjallið best af slétt-
unni." (Kahil Gibran.)
Fari vinur okkar í friði.
Leikmenn meistaraflokks
Fylkis í knattspyrnu.
Laugardaginn 21. nóvember sl.
fengum við þá harmafregn að Ind-
riði Einarsson væri látinn, aðeins
21 árs gamall. Mig langar í örfáum
orðum að minnast hans.
Það var árið 1989 að ég fékk að
kynnast Indriða, er hann gekk til
liðs við knattspyrnufélagið Fylki, ég
var þá þjálfari hjá meistaraflokki
félagsins í knattspymu.
Indriði vakti strax athygli mína á
æfíngum vegna ósérhlífní og dugn-
aðar, einnig hve hann var metnaðar-
gjam fyrir hönd síns nýja félags.
Hann var orðinn fastur maður í liði
meistaraflokks ári seinna og segir
það sína sögu um hve hart hann
lagði að sér.
Er knattspyrnuvertíðinni á íslandi
lauk sl. haust fór Indriði til liðs við
félagslið á Möltu. Indriði ákvað að
fara þetta eftir að hann ásamt félög-
um sínum í Fylki náði þeim áfanga
að vinna sér sæti í 1. deild knatt-
spyrnunnar að ári.
Hann hefði því komið vel undir-
búinn til leiks. En Indriða hefur ver-
ið ætlað annað hlutverk.
Það er mikill sjónarsviptir að góð-
um íþróttamanni og góðum félaga.
Ég og fjölskylda mín sendum
móður, systrum', unnustu, aðstand-
endum og vinunum öllum okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Indriða verður sárt saknað en
minningin um góðan dreng lifir.
Blessuð sé minning hans.
Marteinn Geirsson
og fjölskylda.
Góður vinur og félagi er látinn.
Þegar við setjumst niður og minn-
umst Indriða rifjast upp góðir tímar
sem við félagarnir áttum saman.
Við sem ólumst upp með Inda vitum
að þar fór ákveðinn og hógvær pilt-
ur og sjálfkjörinn foringi í boltanum.
Margt brölluðum við vinirnir sam-
an, s.s. íþróttir, prakkarastrik og
síðar meir skemmtanir. í íþróttum
var Indi undrabarn og ná,ði hann
frábærum árangri í öllum þeim
greinum sem hann stundaði. Má þar
nefna golf sem hann varð strax best-
ur í með lítilli fyrirhöfn. Á yngri
árum var Indi virkur þátttakandi í
mörgum bernskubrekum okkar. Eitt
af skondnari prakkarastrikum okkar
í skólanum var að færa litla Fíatinn
sem stóð við skólavöilinn okkar og
fara með hann út á miðja götu þar
sem bíllinn stóð oft tímunum saman
án þess að neinn skipti sér af honum
á meðan við spiluðum fótbolta.
Myndlistartímarnir fóru ávallt út um
þúfur sökum þess að við vorum varla
komnir inn um dyrnar áður en við
skriðum út um gluggann og fórum
í fótbolta.
Á seinni árum fóru skemmtanim-
ar að verða stærri hluti af lífí okkar
og margt flokkaðist undir þær. En
þó er fernt sem er okkur minnisstæð-
ast. Þegar Indi varð tvítugur hélt
hann og einn af okkur upp á afmæl-
ið sitt í Hollywood og var það vel
sótt teiti. Þar komu 230 manns og
sýnir það hvað vinir hans voru marg-
ir. Seint í maí horfðum við félagarn-
ir á Eurovision-keppnina saman og
varð það að vana frá upphafí keppn-
innar. Þegar árið var á enda hitt-
umst við og héldum áramótafagnað.
Þar skemmtum við okkur og fórum
svo á ball og upp undir mörgun fylkt-
um við liði og fórum heim til Stellu
þar sem hún tók ávallt á móti okkur
með opnum örmum og gaf okkur
að borða, hlúði að okkur á allan
hátt og kom okkur svo seint og um
síðir í rúmið. Þessi þáttur vonum við
að falli aldrei úr gildi og við hlökkum
allir til að koma aftur á nýju ári.
Eitt er það þó sem við eigum sam-
an sem fáir eiga. Einu sinni í mán-
uði hittumst við allir saman þar sem
við áttum saman kvöldstund. Við
skiptumst á að halda kvöldin og var
skyldumæting. Á þessum kvöldum
borðuðum við góðan mat sem gest-
gjafinn eldaði þó svo að réttirnir
hafí stundum verið nokkuð frumleg-
ir. Eftir matinn var svo setið og
spjallað og vinaböndin styrkt. Þessi
kvöld voru látlaus, stemmningin
þægileg og okkar sérstaki húmor
naut sín.
Þessi fátæklegu orð eru aðeins
hluti af minningum okkar um Ind-
riða en hann mun alltaf lifa í huga
okkar og þaðan mun hann aldrei
hverfa.
Elsku Stella, Arndís, Arna, Auður
og fjölskylda, okkar innilegustu
samúðarkveðjur á þessari erfiðu
stund sem nístir okkur öll sárt en
minningin um góðan dreng mun allt-
af lifa.
Steini, Raggi, Haukur,
Bjössi og Bjarni.
Nú legg ég augun aftur
6, guð þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofí rótt.
(Þýð. S.E.)
Það voru hörmuleg tíðindi sem
við fengum laugardaginn 21. nóv-
ember; Indriði dáinn. — Indriði var
einn úr strákahópnum sem kemur
oft á heimili mitt með sonum mínum
þeim Þórði og Róbert, hann var ekki
úr hvérfinu, kom seinna í Fylkishóp-
inn en það var eins og hann hefði
alltaf verið þarna.
Það var engin lognmolla í kringum
Indriða það gustaði af þessum sí-
brosandi, hressa, ljúfa dreng. Mér
fínnst ég eiga pínulítið í þessum
strákum og þó heyrist stundum hátt
í þeim sitja kurteisin og elskulegheit-
in alltaf í fyrirrúmi.
Nú er stórt skarð höggvið í þenn-
an glaðværa samheldna hóp og verð-
ur Indriða sárt saknað.
Börnin mín og ég sendum móður
hans og öðrum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þú
aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú
grætur vegna þess sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran).
Guð blessi minningu Indriða Ein-
arssonar.
Systa.
Það var laugardagseftirmiðdag-
inn 21. nóvember að fjölmenni var
í Fylkishúsinu að vanda. Það var
kallað: „Steini, viltu finna okkur
aðeins! Hann Indriði okkar dó í dag
úti á Möltu." - Hvað ertu að segja?
„Hann Indriði okkar dó í dag úti á
Möltu.“ Það getur ekki verið satt!
Þetta hlýtur að vera einhver mis
skilningur! Því miður reyndist þac
ekki vera. Maður varð gjörsamlegt
lamaður.
Þetta var svartur laugardagur
fyrir okkur Fylkismenn. Þessi mikli
keppnismaður, sem á stundum gat
verið hrjúfur á yfirborðinu en hafði
undir niðri að geyma hinn besta
dreng, var hrifínn frá okkur á einu
andartaki. Þvílík harmafregn. Þvílíkt
óréttlæti, þetta er svo óumræðilega
sárt.
Hann Indriði hafði verið úti á
Möltu í tæpa tvo mánuði, mestallan
tímann einn síns liðs. Hann þurfti í
fyrsta skiptið að standa á eigin fót-
um. Hann sýndi gamla keppnisskap-
ið. Hörkuna og dugnaðinn og tryggði
sér fast sæti í byijunarliði Hibem-
ian, kominn á fastan samning. Indr-
iði var kominn á beinu brautina. Við
fréttum síðast af honum á miðviku-
daginn, glöðum og reifum. Við
hlökkuðum til að fá hann til okkar
aftur í vor. Stundum getur lífið ver-
ið miskunnarlaust, það skiptist á
gleði og sorg. í dag er sorg hjá okk-
ur Fylkismönnum.
En við emm sannfærðir um að
við munum hitta Indriða aftur. Við
eigum eftir að spila með honum
marga leiki. Hann bíður eftir okkur
í rólegheitunum. Minningin um Ind-
riða er geymd en ekki gleymd.
Við vottum móður hans, systmm,
unnustu, svo og öllum aðstandend-
um okkar dýpstu og innilegustu
samúð. Megi minningin um góðan
dreng lifa.
F.h. knattspymudeildar Fylkis,
Þorsteinn J. Þorsteinsson.
Vinur minn Indriði Einarsson lést
þann 21. nóvember. Vegir guðs em
órannsakanlegir og maður getur
ekki sætt sig við að svona ungur
maður skuli hrifinn á brott. Fyrstu
kynni mín af Indriða voru fyrir fjór-
um árum, þegar hann býrjaði að
spila með Fylki og upp frá því höfum
við mátt þola saman súrt og sætt.
Að Iokum náði liðið okkar að kom-
ast upp í þá deild, sem okkur lang-
aði til þess að spila í, þ.e. fyrstu
deild. Indriði var einn af lykilmönn-
um í Fylkisliðinu og er mikil eftirsjá
af honum, ekki aðeins sem spilara
heldur líka góðum dreng, sem er
horfínn á braut hins ókunnuga.
Pabbi Indriða dó, þegar Indriði var
mjög ungur og það hafa örugglega
verið fagnaðarfundir er þeir hittust
og líður þeim örugglega vel saman.
Við kynntumst enn betur þegar við
fórum saman út til Belgíu til þess
að æfa og spila og ekki hefði ég
viljað missa af því. Þar vorum við í
níu daga og komst maður þá að
raun um hve góður félagi hann var.
Þó svo að Indriði sé farinn þá eigum
við minningar um góðan dreng, sem
mun aldrei hverfa úr huga okkar.
Vil ég votta Stellu móður Indriða,
systrum hans Amdísi og Ömu og
Auði unnustu hans mínar samúðar-
kveðjur. Megi góður guð blessa
minningu vinar míns.
Þórhallur Dan Jóhannsson.
Kveðja frá Knattspyrnu-
sambandi íslands
Það vom mikil sorgartíðindi sem
bámst frá Möltu til íslands fyrir
skömmu.
Þar hafði látist mjög skyndilega
og .óvænt Indriði Einarsson, aðeins
21 árs að aldri.
Indriði spilaði knattspyrnu með
Fylki í Reykjavík. Hann var einn
af efnilegustu knattspyrnumönnum
íslands og hafði þegar leikið einn
landsleik fyrir íslands hönd í U-21
árs liði. Indriði var stór og sterkur,
mikill baráttumaður, hafði mikla
knattspymuhæfileika en umfram
allt var hann afbragðs félagi.
Með fráfalli Indriða hefur íslensk
knattspyma misst einn af efnileg-
ustu knattspyrnumönnum landsins.
Hann átti bjarta framtíð fyrir sér
í knattspyrnu og er íslensk knatt-
spymuhreyfíng slegin miklum
harmi við hið sviplega fráfall hans.
Við sendum öllum aðstandendum
hans innilegar samúðarkveðjur frá
knattspyrnuhreyfíngunni.
Blessuð sé minning Indriða Ein-
arssonar.
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ.
3M
Sólarfilma
Jólaráðstefna Skýrs/utæknifé/ags Islands:
ET dagur
Hótel Loftleiðum- 4. desember 1992
Dagskrá
13:00 Skráning
13:15 Setning
Halldór Kristjánsson - ráðstefnustjóri
13:20 Að ná sáttum við sina töivu og sigia mikinn
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
13:45 Viðhaldsvakinn
Hjörtur Emilsson,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samskipa hf.
14:10 Notkun einkatöiva í klíniskri taugalífeðlisfræði
Sigurður St. Hjálmarsson,
framkvæmdastjóri Taugagreiningar hf.
14:35 Tölvusjón
Magnús Þór Ásmundsson,
rafmagnsverkfræðingur hjá Marel hf.
15:00 Kaffi og meðiæti
15:30 Að hemja myndir
Guðjón Már Guðjónsson frá OZ hf.
15:55 Boðil - Könnun á mörkum töivutækninnar
Heimir Þór Sverrisson,
verkfræðingur hjá PlúsPlús hf.
16:20 Oft var þörf en nú er nauðsynl
Halldór Kristjánsson,
verkfræðingur hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni
16:45 - 18:00Léttar veitingar
Þátttökugjald er kr. 3.950 fyrir félagsmenn SÍ
en kr. 4.700 fyrir aðra
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins
f síma 27577
eigi síðar en 3. desember 1992
A1IKLIG4RDUR
VIÐ SUND
HVÍTA HÖSIÐ / SÍA