Morgunblaðið - 06.12.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
söei ga&M.ap.aa ,c> gyeAuufflmp. ataAaimuugOM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1992
ERLEIMT
INIMLENT
BHMR fær
hækkunina
Hæstiréttur hefur dæmt félög-
um í BHMR aftur 4,5% launa-
hækkun þá, sem af þeim var tek-
in með bráðabirgðalögum í ágúst
1990. Rétturinn komst að þeirri
niðurstöðu að með lögunum hefði
jafnræðisregla íslenzks réttarfars
verið brotin. Forystumenn Al-
þýðusambandsins og Kennara-
sambandsins krefjast sömu hækk-
unar fyrir félagsmenn sína.
Vinnustöðvun sjúkraliða
Sjúkraliðar lögðu niður vinnu í
tvo daga vegna kjaradeilu við rík-
ið var ástand á sjúkrahúsum mjög
erfítt á meðan. Dæmi voru þess
að aðstandendur sjúklinga byðust
til að ganga í störf sjúkraliða.
Samkomulag náðist um að sjúkra-
liðar mættu aftur til starfa, en
endanlegur samningur strandar á
kröfu sjúkraliða um að fá verk-
fallsdagana tvo greidda og að
engin eftirmál verði.
ERLENT
Hernaðar-
íhlutun í
Sómalíu
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti á fímmtudag að
heimila hernaðaríhlutun í Sómalíu
sem hefði það að markmiði að
tryggja að matvæli sem send eru
til landsins sem neyðaraðstoð ber-
ist til sveltandi íbúa. Verða ailt
að 20 þúsund herménn sendir til
landsins tii að halda stríðandi
fyikingum í skefjum. Ályktunin
var samþykkt samhljóða í örygg-
isráðinu.
Panic ekki í framboði
Serbnesk kjörnefnd felldi í vik-
unni þann úrskurð að Milan
Panic, forsætis-
ráðherra Júgó-
slavíu, gæti ekki
boðið sig fram í
forsetakosning-
unum þann 20.
desember nk.
Rökstuðningur
með ákvörðun-
inni var að Panic
uppfyllti ekki
reglur um búsetu í landinu. Þar
með er talið að möguleikar Panic
á að koma í veg fyrir að Slobod-
an Milosevic nái endurkjöri séu
að engu orðnir.
Slagsmál á rússneska
fulltrúaþinginu
Leysa þurfti upp þingfund þeg-
ar til handalögmála kom á full-
trúaþingi Rússlands á fímmtudag.
Áflogin hófust þegar róttækir
umbótasinnar æddu að ræðupalli
Hjálparbeiðnum fjölgar
Mun fleiri en áður leita til hjálp-
arstofnana vegna fátæktar.
Hjálparstofnanir hafa gefíð fólki
matarmiða og þjóðkirkjan hyggst
koma til móts við atvinnulaust og
peningalítið fólk.
Fylgi stjórnarinnar lítið
breytt
Afstaða almennings til ríkis-
stjórnarinnar hefur lítið breytzt
síðan í júní, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar, sem Fé-
lagsvísindastofnun Háskólans
hefur gert fyrir Morgunblaðið.
Rúmlega 51% eru andstæðingar
stjórnarinnar, 29% stuðnings-
menn og um 19% hlutlausir. í
sömu könnun kom fram að fylgi
flokkanna hefur lítið breytzt nema
Framsóknarflokksins, sem missir
um 3% fylgi frá síðustu könnun,
en aðrir bæta lítillega við sig.
Sjálfstæðisflokkur fær í könn-
uninni 32,5%, Alþýðuflokkur
10,9%, Alþýðubandalag 19,3%,
Framsóknarflokkur 23% og
Kvennalisti 13,5%.
Rekstur Flugleiða I járnum
Tölur úr níu mánaða uppgjöri
Flugleiða benda til að reksturinn
verði í járnum á árinu. Hagnaður
félagsins fyrstu níu mánuðina var
246 milljónir króna, um helmingi
minni en á sama tima í fyrra.
Verkefnaskortur hjá
verktökum
Um 25-30% samdráttur er hjá
verktakafyrirtækjum vegna verk-
efnaskorts og hafa fyrirtæki um
allt land þurft að segja upp fleira
fólki en venjulegt er á þessum
árstíma.
Áhugi á Aipa-flutningum
Samgönguráðuneytið hefur
sótt um leyfí fyrir Islendinga að
flytja vörur um austurrísku Alp-
ana með stórum vörubílum. Is-
lenzkir aðilar hafa sýnt áhuga á
að flytja físk frá N-Evrópu til
suðlægari landa.
þingsins til að mótmæla þeirri
ákvörðun forseta þingsins að láta
fara fram leynilega atkvæða-
greiðslu um stjórnarskrábreyt-
ingu, sem kveður á um skert völd
Borís Jeltsíns forseta. Hefur
Jeltsín lagt fram tillögu um nýja
stjómskipan, þar sem gert er ráð
fyrir að fulltrúaþingið verði svipt
löggjafarvaldi sínu.
Játa morð á Tyrkjum
Tveir ungir Þjóðveijar, 19 og
25 ára, hafa játað að hafa hent
bensínsprengju á hús tyrkneskra
innflytjenda í bænum Mölln, með
þeim afleiðingum að þrjár tyrk-
neskar konur létu lífið. Reyndi
annar mannanna að fyrirfara sér
í fangelsi á miðvikudag. Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, vill að
Evrópubandalagið móti sameigin-
iegar reglur um veitingu pólitísks
hælis og innflytjendamál. Hann
sagði að eins og væri lægi straum-
ur flóttamannanna fyrst og
fremst til Þýskalands en fyrr en
varði myndi koma að öðmm EB-
ríkjum.
Lamont í vanda
Mikið hefur mætt á Norman
Lamont, fjármálaráðherra Bret-
lands, í vikunni vegna frétta um
að fjármálaráðu-
neytið hafí greitt
hluta lögfræði-
kostnaðar við að
koma óæskileg-
um leigjanda,
vændiskonunni
frú Svipuhögg,
út úr húsi hans
í fyrra. Auk þess
hafa fjölmiðlar
greint frá því að hann hafí átt í
erfiðleikum með að greiða
greiðslukortaskuldir sínar og farið
yfír úttektarheimildir.
Aldagömul sérstaða eða
samvinna við nágranna
SVISSLENDINGAR eru harðir samningamenn og fulltrúar
þeirra þóttu oft smámunasamir í samningaviðræðum Fríversl-
unarsamtaka Evrópu (EFTA) við Evrópubandalagið (EB) um
Evrópska efnahagssvæðið (EES). Þeir áttu það sameiginlegt
með fulltrúum íslands, sem voru heldur ekki alltaf vinsælir við
samningaborðið, að þeirra þjóð ætlar ekki örugglega inn í EB.
Þeir urðu þess vegna að gera samning sem er í fullu samræmi
við sljórnarskrá landsins og takmarkar ekki sjálfsákvörðunar-
rétt þjóðarinnar. Þar að auki vildu þeir margar sérundanþágur
og -klausur fyrir sína þjóð. Hún dæmir núna um helgina hvort
þeir náðu góðum samningi.
Ahugi almennings á þjóðarat-
kvæðagreiðslu hefur sjald-
an verið eins mikill. Svisslending-
ar eru spurðir álits á hinu og
þessu þrisvar til fjórum sinnum
á ári en áhugi á kosningum er
yfírleitt dræmur og þátttakan
eftir því. Að
þessu sinni hef-
ur hins vegar
verið fullt út úr
dyrum á kosn-
ingafundum,
blöð og tímarit hafa aldrei fengið
eins mörg iesendabréf og gífur-
legur áhugi var á helstu umræðu-
þáttum sjónvarpsins um EES.
Samskipti Sviss við Evrópu eru
í húfi. Fjallabændur stofnuðu
svissneska sambandsríkið fyrir
701 ári og sóru þess eið að standa
saman gegn valdamiklum útlend-
ingum og láta þá aldrei dæma í
sínum málum. Síðan hefur sam-
bandsríkið stækkað, kantónun-
um fjölgað, og Svisslendingar
halda enn saman af því að þeir
hafa minna á móti hver öðrum
en stórþjóðunum í kring. Nú
leggja ríkisstjórnin, þjóðþingið
og stjómir allra kantónanna til
að þjóðin gangi til aukins sam-
starfs við nágrannana, opni
landamærin fyrir þeim, vörum
þeirra og þjónustu og taki yfír
lög og reglur EB. Þetta brýtur í
bága við tilhneigingu þjóðarinnar
að standa utan við ijölþjóðastofn-
anir, að takmarka fjölda útlend-
inga í landinu og að ráða sínum
málum sjálf - jafnt í stóru sem
í smáu. Baráttan hefur því verið
hörð og útkoman er óviss.
Svisslendingar eru 6,7 miiljón-
ir og ein ríkasta þjóð heims.
Velferð þeirra byggist á fijálsum
viðskiptum og dugnaði. Þeir eru
almennt á móti höftum og bönn-
um í milliríkjaviðskiptum en hika
ekki við að setja eigin reglur
innanlands. Landbúnaðurinn er
til dæmis vemdaður eins og
vöggubam og ýmis sérákvæði
koma í veg fyrir að fólk geti
keypt suma hluti erlendis. Bíla-
innflytjendur em meðal þeirra
sem njóta góðs af því. Það er því
engin furða þótt nokkrir hávær-
ustu andstæðingar EES séu úr
þeirra hópi. Sérákvæði falla niður
ef Sviss verður hluti af Evrópska
efnahagssvæðinu og vömverð
mun þar af
leiðandi
lækka, en
Sviss er eitt
dýrasta land
Evrópu.
En almenningur setur við-
skiptahlið samningsins ekki svo
fyrir sig. Hann hefur þyngri
áhyggjur af sjálfsákvörðunarrétti
þjóðarinnar. Honum fellur illa að
embættismenn í Bmssel geti í
framtíðinni sett lög og reglur án
þess að spyija Svisslendinga ráða
og að evrópskur réttur muni vega
þyngra í sumum málaflokkum
en svissneskur. Svisslendingar
em vanir því að geta lagt fram
tillögur sem verða að lögum í
landinu ef þjóðin samþykkir þær
og vera spurðir hvort bæjarfélag-
ið eigi að eyða fé í foreldra-
fræðslu eða kantónan að hækka
bílagjöld, eins og Ziirich-búar
greiða atkvæði um á sunnudag.
Þeim vex því í augum að hægt
verði að taka ákvarðanir sem
munu snerta þá án þess að þeir
séu hafðir með í ráðum. Stuðn-
ingsmenn samningsins minna á
að ákvörðun um hann er tekin á
lýðræðislegan hátt og lýðræðið
ráði hvort öðmm verði falið að
setja viðskiptareglur fyrir þjóðina
eða ekki. Og það er hægt að
segja samningnum upp eða beita
neitunarvaldi þegar þjóðin vill.
Svisslendingar hafa auk þess nú
þegar gefíð upp hluta af rétti
sínum með því að vera í Evrópur-
áðinu þar sem mannréttindadóm-
stóllinn hefur síðasta orðið í
málum sem er áfrýjað til hans.
Sumir Evrópusinnaðir and-
stæðingar samningsins taka
ákvörðunarrétt þjóðarinnar svo
hátíðlega að þeir vilja að Sviss-
lendingar hunsi EES og gangi
beint í EB. Nokkrir ráðherrar
sögðu um tíma að EES væri ekki
annað en millispor inn í EB en
þeir hafa haft hljótt um það und-
anfama mánuði. Skriffínnabákn-
ið í Bmssel er algjor andstæða
við stjómarfyrirkomulagið í
Sviss. Það mun þurfa stórt átak
eða veralegar breytingar á
bandalaginu til að þjóðin sam-
þykki inngöngu í það.
Ríkisstjómin hefur þeg'ar farið
fram á undirbúning umsóknar
um aðild að EB í Brassel. Það
hefur ekki auðveldað stuðnings-
mönnum EES baráttuna nú en
Rene Felber utanríkisráðherra
telur rétt að þjóðinni sé ljóst hver
stefna stjórnarinnar er í Evrópu-
málum. Lok kalda stríðsins Hafa
gjörbreytt aðstæðum i Evrópu
og ríkisstjómin telur svissnesku
þjóðina geta gefíð upp aldagam-
alt hlutleysi sitt og tekið virkan
þátt í samstarfí þjóðanna.
Felber og Jean-Pascal Delam-
uraz viðskiptaráðherra, sem
gerðu EES-samninginn fyrir
hönd svissnesku ríkisstjómarinn-
ar, em báðir frá frönskumælandi
Sviss. íbúarnir þar og í ítalska
hiutanum era fijálslyndir og opn-
ir fyrir samvinnu við nágranna
sína. Þeir ecu vanir því að verða
undir í þjóðaratkvæðagreiðslum.
Það skiptir þá kannski þess
vegna ekki ýkja miklu máli hvort
reglurnar era settar í Brassel eða
þýska hluta Sviss.
72% Svisslendinga era þýsku-
mælandi. Það er undir þeim kom-
ið hvort samningurinn verður
samþykktur. Þeir byggja 19 af
kantónunum 26. 6 þeirra era
fámennar og gilda sem hálfar
kantónur í kosningum en meiri-
hluti kantónanna þarf að sam-
þykkja tillögu í þjóðaratkvæða-
greiðslu svo að hún verði að lög-
um. Meirihluti íbúa 12 kantóna
þarf því að samþykkja tillöguna
um aðild að EES til að samning-
urinn gangi í gildi um áramótin.
Þýskumælandi Svisslendingar
era íhaldssamari en rómanskir
landar þeirra og sumir hafa and-
úð á nágrannaþjóð sinni í norðri.
En margir gera sér grein fyrir
að velferð þjóðarinnar er í veði
og munu þess vegna greiða at-
kvæði með aðild að EES. Aðrir
treysta því að Svisslendingar
geti komist af án fjölþjóðasamn-
inga héðan í frá sem hingað til.
Hvorir hafa betur kemur í ljós á
sunnudagskvöld.
BAKSVID
eftir Önnu Bjamadóttur