Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 4
. ík&gÍi&íjLáðíe! itkiÍTÍjíi^Giíljfe1 iblfííílMMÍ -í^
f
ASÍ krefst viðræðna í
ljósi breyttra aðstæðna
VSÍ fúst til viðræðna en hafnar kröfum
Miðstjórn ASÍ hefur í bréfi til VSÍ óskað eftir fundi aðilanna sem
fyrst. Mun ASl krefjast sambærilegra greiðslna og BHMR-félagar fengu
samkvæmt nýlegum hæstaréttardómi. Einnig er minnt á úrskurð Fé;
lagsdóms frá árinu 1990, er BHMR var veitt 4,5% hækkun, og hafi ASÍ
þá krafist tilsvarandi hækkunar. Formaður VSÍ lýsir áhuga sínum á
viðræðum, en vísar á bug kröfum um hækkanir í anda Félagsdóms.
í bréfi miðstjómar ASÍ til Magnús-
ar Gunnarssonar formanns VSÍ er
vísað til þjóðarsáttarsamninga 1990,
og segir að samið hafí verið um end-
urskoðun þeirra ef til kæmu hækkan-
ir til annarra hópa launafólks utan
þess ramma. í bréfínu segir m.a.:
„Þegar Félagsdómur úrskurðaði
4,5% umframhækkun til félags-
manna BHMR sumarið 1990, gerði
ASÍ kröfu um tilsvarandi hækkun til
ASÍ-félaga. Samtök atvinnurekenda
höfðu tekið jákvætt í þá kröfu.
Hæstiréttur hefur nú ákveðið að
BHMR-félagar skuli fá yfír tuttugu
þúsund króna greiðslu, og miðstjóm
ASÍ hlýtur því að minna samtök at-
vinnurekenda á fyrri afstöðu og
krefjast samsvarandi greiðslna til
félagsmanna ASÍ. Miðstjóm óskar
hér með eftir fundi með samtökum
atvinnurekenda til að ljúka máiinu."
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
kvað aðal rökstuðning sambandsins
eiga sér rætur í ástandinu árið 1990.
„Þama voru auðvitað alveg sérstakar
aðstæður," sagði hann. „Það var
verið að gera þríhliða samninga
stjómvalda og aðila vinnumarkaðar-
ins um grundvallarbreytingar á skip-
an mála í atvinnu- og fjármálalífínu.
Forsendumar voru að allir tælqu
þátt í þessu. Ef frá því yrði vikið
með einhveijum sláandi hætti, væru
forsendumar í raun brostnar, og taka
þyrfti málið upp að nýju af okkar
hálfu. Það er á grundvelli þessa að
við erum að tala um að ganga til
viðræðna núna, en ekki fyrst og
fremst vegna þess að það sé einhver
lítill bitamunur milli þess sem BHMR
hefur fengið og við.“ Aðspurður
kvaðst Benedikt gera ráð fyrir að
kröfur ASÍ í þessu samhengi yrðu
af svipaðri stærðargráðu og BHMR.
Magnúsi Gunnarssyni, formanni
VSÍ, hafði ekki borist bréfíð í gær-
kvöldi. „Það er mjög nauðsynlegt
fyrir ASI og VSÍ að hittast sem fyrst
til að ræða stöðu mála í dag með
tilliti til erfíðrar stöðu fyrirtækjanna
og vaxandi atvinnuleysis."
Magnús kvað engan grundvöll fyr-
ir kröfum frá ASI sem kynnu að
byggjast á úrskurði Félagsdóms frá
1990 um 4,5% hækkun til BHMR.
„Þetta miðaðist við þær kringum-
stæður sem þá voru, en aðstæður
hafa allar breyst og breytingar hafa
orðið á almennum kjörum á vinnu-
markaðinum," sagði hann. „Það er
ekki hægt að taka þetta mál upp
aftur.“
VEÐUR
V
ÍDAGkl. 12.00
HeimiW: Veðurstofa ístands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.15 f ö»r)
VEÐURHORFUR I DAG, 10. DESEMBER
YRRUT: Á Grænlandshafi er 983 mb lægð, sem hreyfist norðaustur
en þaðan lægöardrag á Grænlandshafi. Suðaustur af landinu er annað
lægðardrag á hraðri hreyfingu norðaustur.
»A: Norðvestan og vestankaldi eða stini
SPA: Norðvestan og vestankaldi eða stinningskaldi austanlands, suð-
vestankaldi suðvestanlands en hægari breytiieg átt norðvestanlands.
Él um landið vestanvert og einnig á annesjum norðaustanlands en ann-
ars staðar þurrt og bjart veður austanlands. Kólnandi veöur, frost á
bilinu 0 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Sunnankaldi og kalsarigning
í fyrstu en suðvestangola og snjóél í nótt og á morgun. Kólnandi veður
og má búast við 1 til 4ra stiga frosti á morgun. Nýir veðurfregna-
tímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30.Svarsími
Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * / *
/ / * /
/ / / r * r
Rigning Slydda
é o
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ ^
Skúrír Slydduél
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig-.
FÆRÐA VEGUM:
(Kl.17.30igær)
Fært er um vegi í nágrenni Reyjavíkur austur um Hellisheiði, Þrengsli
og Mosfellsheiði. Fært er um Suðurland og með suðurströndinni til
Austfjarða og þar er víðast fært. Fært er fyrir HvalfjÖrð um Borgarfjörð
og Snæfellsnes. Fært er í Dali og í Reykhólasveit. Fært er frá Patreks-
firði tii Bíldudais og um Kleifaheiði til Brjánslækjar. Fært er um Holta-
vörðuheiði til Hólmavikur og um Steingrímsfjarðarheiði og Djúp til fsa-
fjarðar og Bolungarvíkur. Frá Isafirði er fært til Þingeyrar. Fært er um
Norðurland, til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Akureyrar. Frá Akureyri er
fært um Þingeyjarsýslur og með ströndinni til Vopnafjarðar. Fært er frá
Húsavík til Mývatns. Viða um land er mjög mikil hálka é vegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
i grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavik
hitl veður
3 akýjað
3 úrkoma
Bergen 3 rigningogstild
Helsinki +1 snjókoma
Kaupmannahöfn 4 súld
Narssarasuaq +♦ skýjaó
Nuuk +s kornsnjór
Osló 1 alskýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjaó
Algarve 14 heiðskfrt
Amsterdam 2 þokumóða
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 4 þokkumóða
Chicago +4 skýjað
Feneyjar 9 alskýjað
Frankfurt 4 þokumóðs
Glasgow 3 reykur
Hamborg vantar
London 7 rigning
LosAngeles 8 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Madrtd vantar
Melaga 16 iéttskýjað
Maliorca 14 skýjað
Montreal +13 heiðskfrt
NewYork +6 heiðskfrt
Orlando 8 þokumóða
París 7 skýjað
Madeira 18 alskýjað
Róm 14 skýjað
Vín 2 aiskýjað
Washington +1 skýjað
Winnipeg +10 þokumóða
Morgunblaðið/Þorkell
Mótsstaður í Sun City, Sólarborginni, í Suður-Afríku.
Keppnin Ungfrú alheimur á laugardag
Lífsreynsla sem ég á
ekki eftir að gleyma
- segir María Rún Hafliðadóttir
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Alheimur verður haldin í borg-
inni Sun City í Suður-Afríku á laugardag. Alls taka 83 stúlkur
þátt í keppninni, en ungfrú ísland, María Rún Hafliðadóttir,
keppir fyrir íslands hönd. Keppninni hefur verið valinn staður
í hinu nýopnaða Cascades hóteli, en í tengslum við það eru
meðal annars tveir átján holu golfvellir og 25 hektara „frumskóg-
ur“ með 7.000 dýrategundum innfluttum frá Madagaskar.
í samtali við Morgunblaðið
sagði María Rún aðbúnað kepp-
enda allan hinn besta og vel stað-
ið að undirbúningi. „Hér er 40
stiga hiti og sól upp á hvern ein-
asta dag, og nokkrir dagar hafa
farið í sólböð og afslöppun,"
sagði hún. „Síðasta vika var frek-
ar róleg, en núna er nóg að gera.
Það eru æfingar á hveijum degi,
og svo er lokaæfing á föstudag.
Allir hér eru mjög almennilegir
og gera sitt besta til að okkur
iíði vel.“
María Rún kvaðst ekki allt of
bjartsýn á sigur, þótt hún hefði
jákvætt, hugarfar gagnvart
keppninni. „Það er skrifað um
ýmsar stúlkur í blöðunum og
sumar eru vinsælli en aðrar. Það
er til dæmis talað vel um ensku,
dönsku og venesúelönsku kepp-
María Rún Hafliðadóttir
endurna. Annars verður bara að
bíða og sjá hvað setur.“
Réttað í máli íslenzku fanganna í Orlando
Starfsmenn tollgæsl-
unnar fara tíl íslands
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl.
RÉTT eftir kl. 10 á miðvikudagsmorgun komu íslendingamir tveir,
sem setið hafa í gæzlufangelsi í Sanford síðan 13. nóvember, í réttar-
sal nr. 6 í dómshúsinu í Orlando í fylgd uppáklæddra fangavarða,
karls og.konu. íslendingarnir vöru f vinrauðum fangafötum úr þunnu
efni, skyrtan kragalaus með stuttum ermum. Hlekkir voru um ökkla
þeirra og hendur í járnum fyrir aftan bak. Þegar komið var í réttarsal-
inn voru hendur þeirra leystar og þeir fengu sér sæti, hvor við hlið
síns veijanda.
Fyrir voru í salnum Randy Gold
saksóknari í málinu og tálbeita toll-
yfírvalda, sem safnað hefur gögn-
um sem lúta að meintum lagabrot-
um íslendinganna frá því í febrúar
sl. þar á meðal um 20 klukku-
stunda mynd- og hljóðböndum af
ýmsum athöfnum þeirra og fyrir-
ætlunum varðandi lagabrotin.
Þarna voru einnig þeir Bandaríkja-
menn sem keyptu smygluðu horm-
ónalyfm af íslendingunum og verj-
endur þeirra. Bandaríkjamönnun-
um hafði verið sleppt eftir hand-
töku gegn 100 þúsund dollara
tryggingum.
Yfir 20 mín. bið varð eftir dómar-
anum D.P. Dietrich. Á þessum tíma
uppiýsti ritari réttarins, að ekki
yrði unnt að taka málið fyrir á
þann hátt sem veijendur hefðu
ætlað, því unnið væri að öflun frek-
ari gagna og þá aðallega rannsókn-
ar á ferli Islendinganna áður en
þeir urðu brotlegir í Florida. Sam-
kvæmt upplýsingum sækjanda og
tálbeitunnar munu starfsmenn
bandarísku tollgæslunnar í London
fara til íslands og kynna sér feril
íslendinganna tveggja.
Þetta réttarhald tók aðeins um
20 mínútur og leiddi ekkert nýtt í
ljós.
--------» » 4--------
Eignir SAL-
sjóða eru 52
milljarðar
RAUNÁVÖXTUN lífeyrissjóða f
SAL nam að meðaltali 6,6% á ár-
unum 1986-1991. í árslok 1991
námu eignir SAL-sjóðanna tæpum
52 miHjörðum króna en rekstrar-
kostnaður var 0,5% af eignum,
sem er sama hlutfall og árið áður.
Þetta kemur fram í fréttabréfí
Sambands almennra lífeyrissjóða.
Vegna neikvæðrar ávöxtunar árin
1982 og ’83 er meðal raunávöxtun
tímabilsins 1982-1991 3,9%. Raun-
ávöxtun miðast við vexti umfram
hækkun lánskjaravísitölu og að frá-
dregnum kostnaði við rekstur.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af
eignum hefur farið lækkandi undan-
farin ár en hann var 1.0% árið 1981.