Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 * Ovissa um árangur leið- togafundar Brussel. Reuter. MIKIL óvissa einkennir allar vangaveltur um hver verði árangur leiðtogafundar Evrópu- bandalagsins, sem hefst í Edin- borg á morgun. A fundinum á meðal annars að finna lausn á því, hvernig bregðast eigi við höfnun Dana á Maastricht-sam- komulaginu, í þjóðaratkvæða- greiðslu fyrr á árinu, og móta fjárhagsramma bandalagsins fyrir næstu ár. Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjórnar EB, sagði á blaða- mannafundi í gær, að ef aðildarrík- in væru ekki samstíga í að stefna að nánari samruna þá væri það hans tilfinning að sum ríki myndu samt sem áður halda áfram ótrauð. Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti viðraði svipuð sjónarmið í við- tali við dagblaðið Financial Times. Sagði forsetinn að ef Danir og Bret- ar gætu ekki staðfest Maastricht ætti að halda áfram án þeirra. Noregur Holst lætur umdeilda fundargerð af hendi Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. JOHAN Jorgen Holst, varnarmálaráðherra Noregs, sagðist í gær myndu verða við beiðni Hægriflokksins og afhenda skriflega fundar- gerð frá viðræðum sínum við ráðamenn í Moskvu. Eftir fundina í Moskvu sagði hann hins vegar í samtali við blaða- mann Aftenposten að hann hefði boðið Rússum til sameiginlegra flotaæfinga með þátttöku skipa úr flota Atlantshafsbandalagsins. í gær átti Holst nokkurra klukkustunda fund með varnar- málanefnd Stórþingsins og sagði þar að stjórnarandstaðan fengi skýrslur um viðræðumar í Moskvu. Ráðherrann var beðinn um að útskýra hvers vegna hann hefði sagt utanríkismálanefnd Stórþings- ins allt annað en blaðamanni Aften- posten í Moskvu um viðræður sínar þar í borg. Nefndinni sagði hann að í Moskvu hefði hann rætt við Rússa um hugsanlegar sameigin- legar björgunaræfingar með tilliti til væntanlegra aðgerða á höfunum af hálfq Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Landganga Banda- ríkjahers snýst upp í fjölmiðlasýningu Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞEGAR landgönguliðar bandaríska sjóhersins þustu á land á ströndinni fyrir utan Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, skömmu fyrir dögun j gær, fór lítið fyrir mótspyrnu. Hins vegar komu móttökur fjölmiðla þeim í opna skjöldu. Á ströndinni varð ekki þverfótað fyrir hljóðnemum og mynda- og kvikmyndatökuvélum með tilheyrandi fljóðljósum og hávaða og fréttamönnum, sem vildu hver um annan þveran varpa tíðindunum viðstöðulaust inn á stofugólf sjónvarps- áhorfenda. Dagblaðið The Boston Globe hóf í gær frásögn sína af land- göngunni á því að fréttamenn hefðu gert aðsúg að landgöngu- liðunum og sjónvarpsfréttamaður einn sagði að atgangurinn hefði einna helst minnt á kvikmyndirn- ar um bleika pardusinn með Pet- er Sellers í hlutverki Clousaus lögregluforingja. Víst er að engu var líkara en herinn hefði farið staðavillt og gert innrás í Holly- wood í stað þess að fara til hijáðrar Sómalíu. Um klukkustund eftir að her- mennirnir stigu á land bárust mótmæli til bandarísku sjón- varpsstöðvanna vegna fljóðljós- anna. Embættismenn varnar- málaráðuneytisins í Washington sögðu að flóðlýstir landgöngulið- arnir hefðu litið út eins og skot- skífur í flæðarmálinu og frétta- menn hefðu með ofurkappi sínu stefnt lífi þeirra í hættu. Málið var hins vegar ekki alveg svona einfalt. Blaðafulltrúi hers- ins í Sómalíu hafði daginn áður veitt fréttamönnum allar upplýs- ingar um það hvar og hvenær fyrstu hermennimir stigju á land og í raun boðið þeim til strand- veislu. Fréttamönnum, sem þurftu að allt að því að beita glóandi töng- um til að fá fréttir S Persaflóa- stríðinu, kom á óvart hve varnar- málaráðuneytið var skyndilega ósínkt á upplýsingar. Fréttamenn BBC sögðu í fréttatíma upp úr hádegi á mánudag að svo virtist sem Bandaríkjaher hygðist láta til skarar skríða í dögun þriðju- dags til þess eins að tryggja bandarískum sjónvarpsstöðvum beina útsendingu á besta sjón- varpstíma á heimavígstöðvunum. Það eina sem gleymdist, var að segja fréttamönnunum að slökkva ljósin. Þegar bandarísku landgönguliðar’nir, þar á meðal David Rankin frá Texas, sem hér sést, stigu á land, biðu þeirra flóðljós sjón- varpsmanna. B R EITLING 1884 v Gullfallegt úraval Olíuverð stórlækkar OLÍUVERÐ stórlækkaði á mörkuðum í gær og nemur lækkunin því 15% á undanförn- um sjö vikum. Ástæðan er of- framleiðsla, birgðasöfnun og spádómar um að draga muni úr eftirspum á næstunni. Verð á Brent-blöndu, sem haft er til viðmiðunar í olíuviðskiptum, lækkaði um 30 sent í gær og kostaði fatið 17,65 dollara mið- að við 21 dollar um miðjan október. Hefur verðið ekki ver- ið lægra frá því um miðjan mars. Nasistafor- ingi í dýfliss- una THOMAS Dienel, einn helsti foringi nýnasista í Þýskalandi, var dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi í gær fýrir að hvetja til kynþáttaof- beldis og fjöldamorða á gyðing- um og útlendingum. Dienel er 31 árs og er fyrrverandi leið- togi í svæðissamstökum ungl- iðadeildar kommúnistaflokks Austur-Þýskalands. Stjómin í Bonn ákvað i gær að óska eftir því að hann og Heinz Reisz, annar nýnasistaforingi, yrðu sviptir borgaralegum réttindum til langframa. Næði það fram að ganga yrði þeim bannað að tala um stjórnmál opinberlega eða í fjölmiðlum eða stofna til eða ganga í stjómmálasamtök. NATO ræðir íhlutun í Bosníu Varnarmálaráðherrar Atl- antshafsbandalagsins (NATO) koma saman til fundar í Bruss- el í dag. Helsta viðfangsefni þeirra verður að ræða hugsan- lega íhlutun til þess að stöðva bardaga í Bosníu en þrýst hefur verið á Vesturlönd um að stöðva blóðbaðið þar. Heimildir hemídu í gær að áætlanir um hugsanlegar aðgerðir væru þegar fyrir hendi hjá NATO en framkvæmdion ylti á því hvað Sameinuðu þjóðimar leyfðu. Gengur vel í pólferðinni NORSKI ævintýramaðurinn Erling Kagge, sem freistar þess að verða fyrstur manna til þess að ganga einn síns liðs á Suður- pólinn, er á undan áætlun. Hefur hann lagt 520 kílómetra að baki á skíðum sínum frá því hann lagði upp frá ísröndinni 17. nóvember sl. og á því eftir 800 km á leiðarenda. Kagge, sem er 29 ára lögmaður, gekk á Norðurpólinn við annan mann árið 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.