Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 27
MQJRGUNBIAÐIÐ, FIMMTUQAGUR 10. DESEMBER 1992
hvað þær voru að skrifa undir. Fæst-
ar hinna þekkti hún.
Barátta um formannssætið
Halla Hjálmarsdóttir kvaðst munu
bjóða sig fram til formennsku á aðal-
fundi 16. desember. Á móti henni
býður sig fram Súsanna Haraldsdótt-
ir, varaformaður, en hún hefur ritað
undir bréf fyrir hönd 22 stjórnar-
og nefndarmanna samtakanna, þar
sem lýst er yfir stuðningi við Selmu
og andstöðu við samstarf við Höllu.
Aðspurð kvað Halla óánægjuna
fyrst og fremst beinast að framkomu
formannsins við dagmæður. „Það var
haldinn fundur 2. nóvember þar sem
voru mættar 112 dagmæður, þar af
sex stjórnarkonur. Þessar konur og
aðrar á fundinum samþykktu með
handauppréttingu að þær vildu nýjan
formann og í framhaldi af því var
varaformaður spurður hvort hún vildi
gefa kost á sér í formannsembættið.
Hún neitaði -því alfarið. Hún hefur
verið varaformaður í eitt ár og lýsti
því yfir á fundinum að hún hefði
aldrei fengið að starfa sem slík og
hefði reyndar ekki hug á því að vera
varaformaður, hvað þá formaður. Því
var ég eindregið beðin að hugsa
málið og ákvað þá að gefa kost á
mér, en þá ákvað hún að fara fram
fyrir Selmu,“ sagði IJalla.
Að sögn Höllu var ekki auglýst
eftir framboðum til formennsku sam-
takanna í fundarboðun. „Það hafa
hringt í mig yfir tuttugu konur nú
í morgun, sem hafa verið lengi innan
samtakanna en ekki fengið fundar-
boðun. Þær hafa reynt að fá þetta
leiðrétt, en ekki fengið."
2$o
Ólíklegt að spamaður
náist með tílvísanakerfi
- segir Högni Oskarsson formaður Læknafélags Reykjavíkur
FORMAÐUR Læknafélags Reykjavíkur telur óvíst að nokkur sparnaður
náist fram með því að taka aftur upp tilvísanakerfi á sérfræðilæknis-
hjálp, og raunar séu líkur á að slíkt kerfi yrði dýrara en það sem nú er
í gildi. Sérfræðingar eigi i viðræðum við samninganefnd Tryggingástofn-
unar um raunhæfar Ieiðir til ná fram sparnaði fyrir ríkið í kostnaði við
sérfræðilæknishjálp.
í frumvarpi um breytingu á lögum
um almannatryggingar er gert ráð
fyrir að ríkið greiði ekki niður kostn-
að við læknisþjónustu sérfræðinga
nema að undangenginni tilvísun frá
heimilis- eða heilsugæslulækni.
Högni Óskarsson sagði að slíkt tilvís-
anakerfi væri mjög óheppilegt ef til-
gangurinn væri að ná fram sparn-
aði. Heimilis- og heilsugæslukerfið
gæti ekki annað slíkum tilvísunum,
frekar en þegar svipað kerfi var í
gildi fyrir 1984. Að auki ykist kostn-
aðurinn bæði fyrir sjúklinga og ríkið
ef fólk þyrfti fyrst að fara til heimil-
islæknis og síðan sérfræðings.
„Þegar tekið er tillit til óhagræðis
og þes's að fólk þarf e.t.v. að fá frí
frá vinnu, þá er ljóst að í mörgum
tilvikum verður kostnaðurinn tvö-
faldur. En tilvísanahugmyndin er
trúaratriði fyrir suma, og það er
ekki hægt að rökræða við menn um
trú,“ sagði Högni. Þegar hann var
spurður hvort hann ætti við heil-
brigðisráðherra og aðra ráðamenn
ráðuneytisins svaraði hann að ýmsir
stjórnmálamenn tryðu þessu, en vildi
ekki útskýra það nánar.
Högni sagði að læknum hefði allt-
af verið þetta ljóst, og viidú því frek-
ar taka eitthvað á sig af sparnaði,
svo framarlega sem iim raunhæfan
sparnað yrði að ræða. Hann vildi
ekki upplýsa hvaða leiðir væru þar
færar þar sem samningaviðræður
stæðu yfir við Tryggingastofnun.
Ráðherrar hafa notað orðið sjálf-
tökukerfí yfír núgildandi samninga
Tryggingastofnunar og sérfræðinga.
Á blaðamannafundi á þriðjudag
sagði Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra, að kerfí sem þetta
þekktist hvergi annarstaðar. Högni
sagði það alrangt, að sérfræðingar
skömmtuðu sér laun með þvi að kalla
sjúklinga oftar til sín nauðsyn krefði.
Samkvæmt upplýsingum Trygginga-
stofnunar kæmu um 85% sjúklinga,
sem leituðu til sérfræðinga, sjaldnar
en 5 sinnum á ári. í flestum tilfellum
sem sjúklingar kæmu oftar væri um
að ræða meðferð hjá geðlæknum sem
tæki yfirleitt langan tíma.
Högni sagði einnig rangt að kostn-
aður við sérfræðiþjónustu lækna
hefði farið 180 milljónir fram úr
áætlun fjárlaga á þessu ári. „Komum
til sérfræðinga hefur fækkað á árinu
þótt heildareiningafjöldinn hafi auk-
ist innan við 4% vegna þess að dýr-
ari aðgerðir eru að færast af sjúkra-
húsum og inn á stofu sérfræðinga.
Þessi aukning svarar e.t.v. til 40
milljóna á ári. Þessar 180 milljónir
eru einkum vegna þess, að miklu
fleiri fríkort hafa verið gefín út en
búist var við og einnig var fjárhagsá-
ætlun fjárlaga á röngum forsendum,
þeim að komum til sérfræðinga
myndi fækka á árinu, án þess að
nokkrar læknisfræðilegar forsendur
væru fyrir því,“ sagði Högni.
A ÞRIGGJA ARA GOMLU VERDI
MÝTT
GRElDSi.OKORTATlMABlt
L A
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070
OG GOTT BETUR!
UORÐNVANMSPiMUR,
BARRHEi-DNA ióUTREO.