Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.12.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 Yfirlýsing frá Keldum og yfirdýralækni Smáveirusótt í hundum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá til- raunastöðinni á Keldum og yfir- dýralækni: „Kominn er upp hér á landi sjúk- dómur í hundum af völdum svokall- aðra parvoveira. Sjúkdómur þessi fór eins og eldur í sinu víða um heim á árunum 1978-1980 en hefur ekki borist hingað fyrr en núna. Um er að ræða mjög smitandi sjúkdóm. Ur því að þessi sýking er Vitna leitað að árekstri Slysarannsóknadeild lögreglunn- ar í Reykjavík lýsir eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar um klukkan 14.25 á mánu- dag en þá rákust saman Honda- fólksbíll, sem ekið var austur Miklu- braut og Volvo-fólksbíll, sem ekið var vestur Miklubraut og beygt til suðurs Kringlumýrarbraut. Þunguð kona var flutt á slysadeild en meidd- ist ekki alvarlega. Ökumenn greinir á um stöðu umferðarljósa á gatna- mótunum þegar áreksturinn varð og óskar lögregla eftir að ná tali af vitnum að óhappinu. komin til landsins má vænta þess að allur hundastofninn smitist smátt og smátt. Hversu alvarlega afleið- ingar það kann að hafa er erfitt að segja fyrir um. Reynsla erlendis er sú að allt að 20% hunda fá sjúkdóm- seinkenni en 80% smitaðra hunda sýna engin eða mjög væg einkenni. Dánartíðni getur verið frá því að vera minni en 1% og upp í 5% af hundastofninum. Allt er þetta þó háð ýmsum ytri aðstæðum, t.d. lækningu og meðferð, hversu fljótt er brugðist við með bólusetningu og öðrum fyrir- byggjandi aðgerðum, hversu margir hundar eru á svæðinu og aldursdreif- ingu innan hundastofnsins. Sjúkdómurinn kemur fram á tvennan hátt. Annars vegar sem hjartabólga í ungum hvolpum, 6-8 vikna. Þeir geta snöggdrepist eða, ef þeir hjarna við, drepist síðar á ævinni vegna hjartabilunar, t.d. ef þeir verða fyrir óvæntu álagi eða áreynslu. Hins vegar sem garna- bólga með alvarlegum niðurgangi, oft blóðugum. Hundar á öllum aldri geta veikst en ungir hundar, 2-3 mánaða, og fullorðnir eru viðkvæm- astir. Sjúkdómurinn byijar með slappleika, hita og uppköstum og nokkrum klukkustundum síðar fær sjúklingurinn heiftarlegan niður- gang. Dánartíðni getur verið allt frá 10% og upp í 90% af hundum sem Loðfóðraðir kuldaskór. Verð kr. 4.680,- Lambsullarpeysurnar komnar aftur. Verð 2.900,- Háir Getta Grip kr. 7.500,- Milliháir Getta Grip kr. 6.700,- Lágir Getta Grip kr. 5.700,- Doctor Martens kr. 4.500,- Stærðir 36—41. Nýtt greiðslukortatímabil. é ÉRk S 99m Msl S " Eiðistorgi Kringlunni j r-iffsrti fffff Laugavegi 67 veikjast. Tíminn sem líður frá því að hund- ar smitast þar til sjúkdómseinkenna verður vart eru 2-8 dagar. Sýktir hundar skilja veiruna úr með saum- um í stórum stíl og geta verið smit- berar í u.þ.b. 2 vikur. Fólki stafar ekki hætta af þessum sjúkdómi. Ekki er vitað hvemig sjúkdómur- inn hefur borist hingað til lands. Veiran sem veldur honum er mjög harðger og getur lifað í umhverfínu árum saman. Hún getur borist milli landsvæða, landa og jafnvel heims- álfa með skófatnaði ferðamanna. Við aðstæður hér á landi og mögu- Ieikum á víðtækri bólusetningu og einangmn hunda, teljum við hættu á faraldri litla sem enga. Reynslan hefur sýnt að ómögulegt er að ná tökum á þessum sjúkdómi og hindra smitdreifingu öðmvísi en með bólusetningu. Frá bólusetningu geta liðið allt að 4 vikur þar til bólu- sett dýr hefur fengið fulla vöm gegn sjúkdómnum. Hvolpar em sérlega viðkvæmir fyrir sýkingu og getur verið erfiðleikum bundið að veija þá á viðkvæmasta aldursskeiðinu. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að fá bóluefni til landsins. Mælt er með því að bólusetja full- orðna hunda tvisvar sinnum með 3-4 vikna millibili og síðan árlega. Hvolpa skal bólusetja þrisvar sinnum með 4 vikna millibili (8, 12 og 16 vikna). Síðan skal bólusetja þá þegar þeir eru ársgamlir og upp frá því árlega. Á svæðum þar sem mikil brögð eru að sjúkdómnum er mælt með því að byija bólusetningu á hvolpunum þegar þeir em 6 vikna gamlir. Tíkur skal bólusetja við pömn eða á fyrri hluta meðgöngu. Mælt er með því að hundaeigend- ur forðist fyrst um sinn allar sam- komur (hundasýningar, námskeið o.þ.h.) og staði þar sem hundafólk og hundar venja komur sínar. Óhætt er að viðra hunda í bandi en forðast verður að þeir komist í snertingu við aðra hunda eða valsi um lausir.“ Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Á síðastu sýningu vakti einn nemandinn Geirþrúður Hildi- brandsdóttir mikla athygli fyrir framlag sitt til sýningarinnar. Ekki fylgir sögunni hvort hún hafi náð prófum í fyrra þannig að ekki er Ijóst hvort hún kemur fram nú. Nemendasýning á Hólum Fáksspor til framtíðar SÝNING nemenda Bændaskólans á Hvanneyri, „Fáksspor til framtíðar", verður haldin á iaugardag. Munu nemendur sýna þar árangur af frumtamningu trippa í haust, bæði í reiðskála skólans og eins í reið utanhúss. Þá verða skólahestamir sýndir í tvöföldum taum í reiðskálanum. Verður það munstursýning þar sem nemendur stóma hestunum með löngum taum, gangandi fyr- ir aftan hrossin. Einnig verður sýning á reiðtygjum þar sem sýndir verða mismunandi gerðir hnakka, beislisbúnaðar og ýmissa hálpartækja sem notuð em við tamningu og þálfun hrossa. Formaður hestamannafélags nemenda, Elvar Einarsson, sagði að að sjálfsögðu væm allir vel- komnir, dagskrá hæfist klukkan 13.30 og í lokin væri boðið upp á kaffi og meðlæti. Þetta er í annað sinn sem nemendur gang- ast fyrir sýningu á þessum árs- tíma undir þessu heiti og taldi Elvar líklegt að þetta verði ár- viss viðburður í starfí skólans í framtíðinni. Hundagæsluheimilið Arnarstöðum Abyrgðarleysi í yfir- lýsingu yfirdýralæknis Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Guð- ríði Þ. Valdimarsdóttur, for- stöðumanni Hundagæsluheimil- isins Arnarstöðum: „Ég vil lýsa vanþóknun minni á yfírlýsingu Brynjólfs Sandholt yfir- dýralæknis við fjölmiðla um að tveir hundar hefðu drepist á hundagæsluheimilinu á Amarstöð- um. Mér fínnst hann sýna mikið ábyrgðarleysi og lít ég á þetta sem hreinan atvinnuróg. Máli mínu til stuðnings liggur ekki fyrir 100% staðfesting á því, að þetta sé parvoveira, þar sem niðurstaða úr blóðsýnum er ekki komin. Hins vegar veiktist einn hundur á hundagæslunni, en ekki tveir. Annar hundurinn, sem hann vænt- anlega á við, silki-terrier var að- eins einn sólarhring hér og gæti hafa skilið eftir sig smit, sem ég veit þó ekki hvað ég á að halda um, þar sem mínir hundar eru all- ir hraustir og voru þeir í náinni snertingu við hann, ekki síst þriggja mánaða hvolpar, sem sagð- ir eru í mestri smithættu. Að sjálfsögðu geta þeir sem eru með hundagæslu eða aðra þá starf- semi, þar sem margir hundar koma saman, ekki varið sig gegn smit- sjúkdómum. Hlýtur það að verða krafa okkar að parvobólusetningu lokinni, að aðeins þeir fái inni, sem sýna bólusetningarvottorð. Hunda- fólk hér á landi og forráðamenn HRFÍ hafa einmitt óttast mjög það ástand sem nú hefur skapast. Það var í raun ekki spuming um hvort heldur hvenær. Haft er eftir Brynjólfi í DV 8. des. að báðir hundarnir hafi verið í hundageymslu og veiktust með viku millibili og eigi þeir von á að geta hindrað frekari útbreiðslu þaðan. Einnig er haft eftir Brynj- ólfí í Mbl. sama dag „Sennilega verður tekið blóðsýni úr hundun- #5% c/3 ^ ...alltafþegar -V við erum vandlát um“ (A þar við á Arnarstöðum). Mér þykir mjög miður að maður í hans stöðu skuli ekki hafa fyrir því að kynna sér málsatvik. Rétt er, að hundurinn sem veiktist hér kom í hundagæsluna viku eftir að silki-terrierinn fór. Og varðandi blóðsýnin, þá voru þau tekin 3 dögum eftir lokun hundagæslunn- ar, þ.e.a.s. á fimmtudegi og bað ég um að sending þeirra til Dan- merkur hefði forgangshraða. Næsta mánudag þ.e.a.s. 30. nóvember var blóðið enn á Keldum. Mér fínnst eins og yfírdýralækn- ir sé að leita sér að blóraböggli í þessu máli. En kastar ekki Brynj- ólfur gijóti úr glerhúsil! í áðumefndum blaðagreinum segir hann að ýmislegt geti verið þess valdandi að smitið barst til landsins og nefnir þar m.a. bólu- setta innflutta hunda. Er þá ekki óábyrgt að leyfa innflutning á hundum áður en þeir hundar sem fyrir eru í landinu eru bólusettir? Er það ekki einmittt brotalömin við einangrunarstöðina í Hrisey? Margir dýralæknar sem ég hef átt tal við hafa stutt þann grun, að hvolpar sem fæðast hér á landi af bólusettri innfluttri móður, geti borið veiruna í sér í langan tíma. Utanaðkomandi ástæður svo sem streita og margt fleira geti því komið sjúkdómum af stað. Granur leikur á að einmitt þannig hafi farið fyrir silki-terriemum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.