Morgunblaðið - 12.01.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993
Ævi hljómsveitar
Békmenntir
Kristján Kristjánsson
SYKURMOLARNIR
Arni Matthíasson
l76- bls-..
Örn og Örlygur 1992
I fyrsta hluta bókarinnar er sagt
frá aðdragandanum að stofnun
sveitarinnar og er forvitninlegt að
skoða hvaða hugmyndir var lagt upp
með þegar sveitin varð til: „Snemma
fór Einar að ámálga við Sigtrygg
hugmynd hans og Þórs um að setja
saman einskonar smekklaust „big-
band“ sem spila ætti popptónlist og
raða saman poppfrösum á sem ós-
mekklegastan hátt. (...) Þegar upp
var staðið skipuðu sveitina Einar
Örn, Björk, Sigtryggur, Þór, Bragi,
Einar Melax og Friðrik Erlingsson.
(...) tók sveitin að æfa af kappi
haustið 1986 með þeim formerkjum
að semja popptónlist þar sem allar
klisjur væru nýttar af fullkomnu
smekkleysi" (bls. 18). Sveitin kom
fyrst fram opinberlega í ágúst og
fýrsta smáskífan kom út í nóvember
og var fálega tekið.
Þegar Sykurmolarnir slógu í gegn
í Bretlandi síðsumars 1987 þótti
mörgum sem orðatiltækið um spá-
manninn og föðurlandið hefði gengið
eftir einu sinni enn. Og hvort ef
ekki að kolbítar hefðu risið úr öskus-
tóm í leiðinni. Smáskífa með laginu
Birthday var gefíð út á Bretlandi
17. ágúst 1987 og var valin smá-
skífa vikunnar 23.-30. ágúst í
breska tónlistartímaritinu Melody
Maker. Fjölmiðlar og hlustendur
tóku við sér og þar með fór skriðan
af stað — og nú, rúmum fimm árum
seinna, eru Sykurmolarnir sú popp-
Menningarhátíðin Skottís í Geysishúsinu
Sýning á verkum 26
grafíklistamanna
Sýning á verkum 26 skoska grafíklistamenn stendur nú yfir í Geysis-
húsinu við Vesturgötu. Sýningin er hluti af menningarhátíðinni
Skottis, skosk-íslenskir menningardagar.
Sýningin ber yfírskriftina Ater
ego. Viðfangsefni hennar er sjálfs-
mynd listamannsins og hvernig
ungir myndlistarmenn líta á sjálfs-
myndagerð, mitt í hringiðu þeirra
íjölda listastefna sem hvarvetna
gefur að líta. Myndlistarmennimir
eru lfka meðvitaðir um hinn sögu-
Ásmundarsalur
Sýningá
arkitektúr
Sýning stendur yfir á loka-
verkefnum nýútskrifaðra arki-
tekta í Ásmundarsal við Freyju-
götu. Um er að ræða lokaverk-
efni sex arkitekta sem stunduðu
nám í Englandi, Noregi, Dan-
mörku og Bandaríkjunum.
Sýningin stendur til sunnudags-
ins 17. janúar og verður opin virka
daga kl. 9-16, um helgar kl. 13-17.
lega bakgrunn sjálfsmyndar og þá
þróun sem verið hefur undanfarin
30 ár.
í fréttatilkynningu segir að
tvennt sé áberandi við skoðun
myndanna. Annars vegar frásögn-
in, sem undartekningarlítið er í
flestum myndanna. Hins vegar tví-
hyggjan eða andstæður mannssál-
arinnar, sem eru greinilega ofarlega
í hugum listamannanna. Það ætti
að vera ljóst að sjálfsmyndahefðin
er síður en svo dauð úr öllum æð-
um, en tekur á sig nýjar myndir
með nýjum kynslóðum.
Sýningin er sett saman að frum-
kvæði Glasgow Print Studio, sem
er í senn sýningaraðstaða og vinnu-
stofa fyrir grafíklistamenn. Frá
Skotlandi koma tveir listamenn til
að vera viðstaddir opnunina, þær
Ashley Cook og' June Carey. Auk
þeirra verður forstöðumaður
Glasgow Print Studio, Katherine
Shaw, viðstödd.
Sýningin í Geysishúsinu stendur
til 7. febrúar og er opin daglega
kl. 10-18.
ÚTSALA
Verðhrun
Fayette TWain
Stœrðir: 128 -176, 3 - 9. Stærðlr 3-9.
Verð: Áður 7^8Ú,- fullorðins, Verð: Áður 08^0,-
bama, Nú 3.990,-
NÚ 3.490,-
Stærðin 30 - 35, 3 - 12.
Verð: Áðun 0*jJÓ,-
Nú 2.990,-
Mallorca
Sydney bolir
Verð: Áður £j9(f6,-
NÚ 1.490,-
Húfur, liðasett, stuttbuxur,
skfðagallar, sundbolir,
sundskýlur.
Stærðin 30 - 35, 3’A- 6.
Verð: Áður
Nú 1.490,-
Allt á
Útsalan
stendur
aðeins í 3
daga,
mánudag,
þriðjudag
og
^mlðvikudag^
að seljast!
Árni Matthíasson
hljómsveit íslensk sem hvað frægust
hefur orðið.
Það sem byrjaði sem sprell í
skemmu úti á Granda varð allt í einu
vinsælt úti í heimi. Hvað hafði klikk-
að? Höfðu ekki allir séð í gegnum
platið? Meðlimir sveitarinnar lentu í
einhveiju stappi við nokkra fulltrúa
íslenskra fjölmiðla sem fannst sér
núið um nasir að hafa ekki tekið
eftir hæfíleikum sveitarmeðlima á
réttum tíma. Má ségja að Sykurmol-
arnir hafí frá fyrstu stundu verið
vandræðaóskabörn þjóðarinnar.
Bók Árna Matthíassonar um Syk-
urmolana hlýtur að vera aðdáendum
sveitarinnar kærkomin lesning þótt
öðrum þyki kannski ekki mikill feng-
ur að henni. Áhugi á tónlist Sykur-
molanna er þó ekki skilyrði þess að
lesandinn geti haft nokkra ánægju
af lestri bókarinnar. Þótt efnið þyki
sértækt þá sver bókin sig að formi
til í ætt við þá tegund „sagnfræði-
rita“ sem hvað vinsælust hafa verið
á íslandi um nokkurt skeið. Bókin
spannar allan feril hljómsveitarinnar
en hún hefur starfað í rúm sex ár.
Einnig er tíundað ýmislegt sem
meðlimir hennar hafa tekið sér fyrir
hendur á þeim tíma.
í heimi dægurlaga og vinsælda-
lista teljast sex ár nokkuð langur
tími. Ævi sumra hljómsveita er talin
í vikum eða mánuðum; þær spila
sitt lag og deyja síðan drottni sínum
hávaðalaust. Orðrómur hefur komist
á kreik um að sveitin hyggist slíta
samstarfinu en dánarvottorðið hefur
ekki verið undirritað enn! Framtíð
Sykurmolanna er óráðin, hlutimir
eru í raun ennþá að gerast þótt í
bókinni sé leitast við að gera dæmið
upp: Svona var þetta! Hljóðritanir,
tónleikar, plötur, uppslagstölur, vin-
sældalistar, sætanúmer, samningar,
sölutölur, tónleikaferðir!
Einnig er sagt nokkuð ítarlega frá
útgáfufyrirtækinu Smekkleysu.
Smekkleysa er grein á sama meiði
og Sykurmolamir og saga þess er
vissulega samofín ferli hljómsveit-
arinnar en hefði mátt aðgreina betur
í textanum. Frásögnin verður stund-
um skrykkjótt líkt og fjallað sé um
tvennt ólíkt því tengslin em ekki
alltaf augljós. Framan af sérstaklega
er vaðið úr einu í annað svo yfirsýn-
in verður ruglingsleg.
Frásögnin er annars nokkuð læsi-
leg. Stíllinn er einfaldur og einkenn-
ist af þeim staðreyndartón sem
blaðamenn temja sér gjama. Leitast
er við að segja frá atvikum á sem
hlutlægastan hátt þótt Árni fari
ekki í felur með álit sitt ef svo ber
undir og sendi þá jafnvel skeyti í
ýmsar áttir. Þetta er hin opinbera
ævisaga hljómsveitárinnar og er
Hugleysa tm./hf., fyrirtæki Sykur-
molanna á íslandi, skráð sem rétt-
hafí við hliðina á höfundi bókarinn-
ar. Ámi forðast yfirleitt að leggja
dóm á orð eða athafnir þeirra sem
hann segir frá þótt sjónarmiðum
Sykurmolanna sé haldið á lofti. Fær
lesandinn því nokkurt svigrúm til
að vega og meta sjálfur.
Margs konar „ítarefni" fær að
fljóta með megintextanum, þ.á m.
textar við lög, teikningar, jafnvel
póstkort. Bókin er eins og búast
mátti við ríkulega myndskreytt og
þótti mér myndavalið dálítið hæpið
á köflum. Uppsetning texta og
mynda annars ágæt og annar frá-
gangur góður. Nafna og myndaskrá
fylgir ásamt afrekaskrá Smekk-
leysu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá æfingu á Sardas-furstaynjunni. Frá vinstri: Kjartan Ragn-
arsson leikstjóri, Kristín Kristjánsdóttir sýningarstjóri, Olöf
Kolbrún Harðardóttir óperusljóri, Þorleifur Magnússon sviðs-
stjóri, Bergþór Pálsson söngvari, Þorgeir Andrésson söngvari
og Siguijón Jóhannesson kórfélagi.
Islenska óperan
Tólf þúsund manns sáu
Luciu di Lammermoor
Æfingar hafnar á Sardas-furstaynj unni
SYNINGUM íslensku óperunnar á Luciu Di Lammermoor sem
frumsýnd var 2. október sl. lauk nú um helgina. Alls urðu sýn-
ingar 24 og sýningargestir því sem næst tólf þúsund.
Æfíngar á næsta verkefni ís-
lensku óperunnar, óperettunni
Sardas-furstaynjunni eftir Em-
merich Kálmán, eru nú hafnar af
fullum krafti. Texta óperettunnar
sem er upprunalega eftir Leo
Stem og Bela Jenbach hafa þeir
Flosi Ólafsson og Þorsteinn Gylfa-
son þýtt. Flosi þýddi talað orð en
Þorsteinn söngtexta. Kjartan
Ragnarsson leikstýrir Sardas-
furstaynjunni og Páll P. Pálsson
er hljómsveitarstjóri. Siguijón Jó-
hannesson gerir leikmynd, Hulda
Kristín Magnúsdóttir búninga og
Auður Bjamadóttir semur dansa
í sýninguna.
Sardas-furstaynjan var sýnd í
Þjóðleikhúsinu snemma á sjöunda
áratugnum og var sú sýning nokk-
uð umtöluð á þeim tíma. Óperettan
gerist í Búdapest og Vínarborg
árið 1915 og fjallar um ástir
greifasonarins Edwins af Lippert-
Weylersheim og kabarettsöngkon-
unnar Sylvu Varescu. Faðir Edw-
ins er lítt hrifinn af þessu tildrag-
elsi og þykur sonurinn ætla að
taka illa niður fyrir sig. Af þess-
ari togstreitu spinnst mikil flétta
sem í óperettunni er sett fram á
gáskafullan hátt með leikandi
léttri tónlist.
Signý Sæmundsdóttir fer með
hlutverk Sylvu í sýningu íslensku
óperannar á Sardas-furstaynjunni
og Þorgeir Andrésson verður í
hlutverki Edwins. Með önnur stór
hlutverk fara þau Bergþór Páls-
son, Jóhanna Linnet og Sigurður
Björnssón. Fjöldi annarra söngv-
ara og leikara kemur fram í sýn-
ingunni. Meðal þeirra era Kristinn
Hallsson, Sieglinde Kahmann og
Bessi Bjamason auk kórs íslensku
óperannar.
Framsýningjn á Sardas-fursta-
ynjunni er fyrirhuguð 19. febrúar
nk. Hún er þó ekki næsta framsýn-
ing á sviði íslensku óperannar því
að á næstunni framsýnir P-leik-
húsið þar Húsvörðinn eftir Harold
Pinter í leikstjóm Andrésar Sigur-
vinssonar. Með hlutverkin í þeirri
sýningu fara þeir Róbert Amfíns-
son, Amar Jónsson og Hjalti
Rögnvaldsson.
(Fréttatilkynning)
Dansatriði æfð í Sardas-furstaynjunni.
Tveir námsstyrkir til
myndmenntanáms
Rými, myndmenntaskóli mun veita tvo námsstyrki til ungs fólks
sem hefur hug á að helga sig myndlist í framtíðinni.
Um tvo styrki er að ræða. Annar
verður veittur til náms í Dagskóla
Rýmis, sem er undirbúningsnám-
skeið fyrir þá sem hyggja á nám
í Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á næsta vetri, segir í fréttatil-
kynningu frá Rými.
Námskeiðið stendur í níu vikur
eða þijá eftirmiðdaga vikulega, auk
þess sem nemendur geta komið og
unnið sjálfstætt á öðrum tímum
dags. Einnig geta þeir tekið þátt í
öðrum námskeiðum sem Rými býð-
ur upp á. Lögð verður áhersla á
að undirbúa möppu fyrir inntöku-
prófíð. Leiðbeinandi verður Guðrún
Tryggvadóttir myndlistarkona og
skólastjóri Rýmis.
Hinn styrkurinn verður veittur
ungling 13-16 ára, sem hefur
áhuga á að sækja myndlistarskóla
í framtíðinni. Styrkurinn er fólginn
í námi á unglinganámskeiði Rýmis,
þar sem kennd er teiknun, málun
og mótun. Leiðbeinandi er Sóley
Eiríksdóttir myndlistarkona.
Umsækjendur sendi 3-5 teikn-
ingar og stutta yfírlýsingu um
framtíðaráætlanir. Umsóknir ber
að senda til: Rými myndmennta-
skóli, Listhúsinu í Laugardal,
Engjateigi 17-19, 105 Reykjavík.
Umslagið eða mappan sé merkt
„RÝMIS-STYRKIR ’93“. Skila-
frestur er til 24. janúar ’93.