Morgunblaðið - 12.01.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993
Vegagerð-
in býður út
flutninga
Sæfara
STARFSMENN Vegagerðar rík-
isins hafa unnið að undirbúningi
lokaðs útboðs á flutningum Eyja-
fjarðarferjunnar Sæfara að und-
anförnu. Hannes Már Sigurðsson,
viðskiptafræðingur, segir að stefnt
sé að því að nýr rekstraraðili taki
við flutningunum í byijun apríi.
Vegagerðin yfirtók rekstur ferja
1. janúar s.l.
Hannes sagði að um lokað útboð
væri að ræða og hefði verið talað við
helstu hagsmunaaðila, s.s. Akur-
eyringa, Grímseyinga, Hríseyinga og
Dalvíkinga og þá rekstraraðila sem
til greina þættu koma. Mætti þar
nefna Samskip og Eimskip.
Ætlunin er að halda kynningar-
fund með þessum aðilum á Akureyri
á miðvikudag. Stefnt er að því að
útboðsgögn verði tilbúin strax í næstu
viku og áætlað að gögnum verði skil-
að í byijun febrúar. Búist er við að
nýr rekstraraðili taki við flutningun-
um, þ.e. vöru og fólksflutningum til
og frá Grímsey og vöruflutningum
til og frá Hrísey, í byijun apríl.
Vegagerðin rekur 7 feijur, Heijólf,
Akraborgina, Baldur, Fagranes, Sæf-
ara, Sævar og Anní. Hinnes sagði
að það væri stefna vegagerðarinnar
að bjóða reksturinn að sem mestu
leyti út. Vegagerðin hygðist sjálf
ekki standa í feijurekstri í framtíð-
inni.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda bauð greiðslu 25% krafna
Kröfu hafarnir sam-
þykktu nauðasamning
Mikill léttir að málið skuli vera komið í höfn, segir
Sigurður Arnórsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins
SAMÞYKKT hefur verið meðal lánardrottna og kröfuhafa
súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu frumvarp til nauðasamn-
inga, en boðin er greiðsla 25% samningskrafna eins og þær
voru 21. ágúst I fyrra. Landsbanki Islands hefur keypt
fasteign verksmiðjunnar við Hvannavelli og er stefnt að
því að flytja starfsemi hennar í hentugra húsnæði um
mitt þetta ár.
„Það er mikill léttir að málið
skuli í höfn, þetta hefur verið
endalaust puð í tvö ár á meðan
fjárhagsleg endurskipulagning
fyrirtækisins hefur staðið yfir.
Við erum ánægð með þennan
árangur, það að geta haldið fyr-
irtækinu hér í bænum og varið
þau störf sem hér eru er mikill
áfangasigur,“ sagði Sigurður
Arnórsson, framkvæmdastjóri
Lindu, en hann sagði að reynt
hefi verið að fá fyrirtækið keypt
burtu úr bænum. Markmiðið
hefði verið að halda þeirri at-
vinnu sem það skapaði á Akur-
eyri og það hefði tekist.
Landsbanki íslands hefur
keypt fasteign Lindu við
Hvannavelli og sagði Sigurður
að viðræður myndu væntanlega
hefjast fljótlega um kaup á nýju
húsnæði undir starfsemina, en
stefnt væri að kaupum á húsi á
einni hæð. Hlutafé Lindu er nú
30 milljónir króna og sagði Sig-
urður að einnig væri stefnt að
því að auka hlutafé í fyrirtæk-
inu, en ákvörðun þar um yrði
tekin á aðalfundi þess.
Frumvarp til nauðasamninga
var samþykkt með um 93% at-
kvæða eftir höfðatölu og um
76% eftir kröfufjárhæð og verð-
ur það tekið fyrir í héraðsdómi
Norðurlands eystra 4. febrúar
næstkomandi til staðfestingar
fyrir dómi. Samkvæmt frum-
varpinu er lánatdrottnum boðin
greiðsla 25% samningskrafna
eins ogþærvoru 21. ágúst 1992.
Við innköllun krafna samþykktu
65 aðilar nauðasamningafrum-
varpið með samtals tæplega 79
milljóna króna kröfur, en tveir
aðilar með kröfur upp á tæplega
25 milljónir króna höfnuðu
frumvarpinu.
Aflaverð-
mætiUA
1.460 millj.
AFLAVERÐMÆTI togara Útgerð-
arfélags Akureyringa var um 120
milljónum króna minna á nýliðnu
ári en árið 1991 og afiamagnið var
um 2.000 tonnum minna. Verð-
mæti aflans á liðnu ár var um 1.460
milljónir króna, en var árið á und-
an um 1.579 milljónir króna. Heild-
araflinn var um 21.600 tonn á síð-
asta ári, en 23.600 árið á undan.
Aflaverðmæti ísfisktogara ÚA var
755.5 milljónir á liðnu ári, en var
790,8 milljónir árið á undan. Frysti-
togararnir tveir komu með afla að
verðmæti 704,1 milljón á síðasta ári,
en aflaverðmæti þeirra árið á undan
var 788 milljónir króna.
Kaldbakur EA var með mest afla-
verðmæti ísfisktogara, 170 milljónir,
en hann landaði 25 sinnum á síðasta
ári, samtals um 3.387 tonnum. Afla-
verðmæti Svalbaks var 162 milljónir
króna og landaði skipið einnig 25
sinnum, samtals 3.448 tonnum. Þá
landaði Hrímbakur 2.678 tonnum
eftir 27 veiðiferðir, að aflaverðmæti
149,2 milljónir, og Harðbakur EA
landaði 17 sinnum, samtals um 2.700
tonnum, en verðmæti aflans var
136.6 milljónir. Verðmæti afla Ár-
baks var um 118 milljónir á síðasta
ári og var aflinn 2.258 tonn í 20
veiðiferðum.
Afli frystitogarans Sléttbaks var á
síðasta ári 4.177 tonn og aflaverð-
mætið 443,5 milljónir króna, en Sól-
bakur EA 307 fékk 2.569 tonn af
verðmæti 260,6 milljónir króna.
Erill í ófærð
Okumenn lentu márgir í vandræðum á leið til vinnu í gærmorg-
un, en götur voru víða ófærar. Strax upp úr kl. 7 var farið
að ryðja strætisvagnaleiðir og var reynt að halda þeim opnum
yfir daginn, en ekki reyndist tóm til að hreinsa götur í hverfun-
um. Lögreglumenn komu fjölda fólks sem starfar hjá heilbrigð-
isstofnunum til vinnu í gærmorgun og óku þá næturvaktafólki
heim. Þá aðstoðaði lögregla ökumenn sem fest höfðu bíla sína
í ófærðinni. Ófært var út frá Akureyri, mikill skafrenningur
gerði að verkum að blint var og vont að aka. Það gekk á með
éljum fram eftir degi, en undir kvöld var heldur farið að lægja,
í mestu vindhviðunum mældust um 10 vindstig.
Formaður Verkalýðsfélagsins Einingar
Beri viðræður eng-
an árangnr er fólk
tilbúið í verkföll
FORMAÐUR Verkalýðsfélagsins Einingar í Eyjafirði segir að í kom-
andi samningaviðræðum verði áhersla lögð á fáar en skýrar kröfur
og á hann von á stuttri en snarpri samningalotu. Beri viðræður ekki
árangur segir hann fólk tilbúið í átök, en mikill urgur sé nú í fólki
og það sé tilbúið að leggja allt í sölurnar til að rétta sinn hlut.
Á fundi sem haldinn var að frum-
kvæði Alþýðusambands íslands með
forsvarsmönnum og stjórnum verka-
lýðsfélaga á Norðurlandi eystra á
Ákureyri kom fram mikil samstaða.
„Það er ljóst að menn vilja víðtæka
samstöðu, ekki bara innan ASÍ-
felaganna heldur einnig annarra
samtaka launafólks og kom það skýrt
fram á fundinum," sagði Björn Snæ-
björnsson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar.
Hann sagði að lagðar yrðu fram
fáar en skýrar kröfur og menn ætl-
uðu sér ekki langan tíma til viðræðn-
anna. „Ég á von á að samningalotan
verði stutt og snörp. Beri hún ekki
árangur fljótlega er fólk tilbúið í
aðgerðir. í komandi samningum
verður leitað allra leiða til að rétta
hlut okkar fólks og takist það ekki
í viðræðum um nýjan kjarasamning
verður farið út í þær aðgerðir sem
nauðsynlegar eru, það er mikill urgur
í okkar fólki og það er tilbúið til
verkfallsátaka," sagði Bjöm.
Hann sagðist vona að atvinnurek-
endur sæju að sér í kjarasamninga-
viðræðum og að samningar tækjust
án þess að til átaka kæmi á vinnu-
markaði. Þau atriði sem áhersla yrði
lögð á að ná fram væri að ná til
baka þeirri kjaraskerðingu sem sér-
staklega lægst launaða fólkið hefði
orðið fyrir og einnig yrði mikil
áhersla lögð á að fínna leiðir til að
bæta atvinnuástandið, þá nefndi
Björn einnig að væntalega yrði tek-
ist á um vaxtamál og veikindarétt í
viðræðunum.
Um það hvort verkafólk væri til-
búið til verkfallsátaka nú sagði hann
að það hefði engu að tapa, en allt
að vinna.
Ohapp á vélsleða
Lá slasaður
í klukkutíma
UNGUR maður frá Dalvík
slasaðist og var fluttur á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri eftir að hafa kast-
ast af vélsleða sem hann ók í
Svarfaðardal.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Dalvík hafði maður-
inn ekið vélsleða sínum eftir
veginum í Svarfaðardal, hann
fór út af í beyju, lenti upp í ruðn-
ingi og sveif yfir hann og virðist
hafa kastast af sleðanum. Atvik-
ið varð um kl. 10 á laugardags-
morgun við bæinn Hánefsstaði,
en maðurinn fannst ekki fyrr en
um klukkutíma síðar þegar birti
af degi og var það bóndi á bæn-
um sem fyrstur varð mannsins
var.
Hjá lögreglunni á Dalvík
fengust þær upplýsingar að
maðurinn hefði ekki verið mikið
slasaður, hann var lemstraður
en óbrotinn.