Morgunblaðið - 12.01.1993, Page 38

Morgunblaðið - 12.01.1993, Page 38
HVlTA HÚSIO / SlA 38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1993 18 ReykjaV 826 og 91 *yenð friá 14.490,- fai. Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi Herréttur heiðursmanna Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Heiðursmenn („A Few Good Men“). Leikstjóri: Rob Reiner. Handrit: Aaron Sorkin, byggt á hans eigin leikriti. Aðalhlut- verk: Tom Cruise, Jack Nichol- son, Demi Moore, Kevin Bacon, Kiefer Sutherland, Kevin Poll- ak, James Marshall og J.T. Walsh. Heiðursmenn í leikstjóm Rob Reiners með Tom Cruise, Jack Nicholson og Demi Moore í aðal- hlutverkum er að líkindum besta réttardrama sem maður hefur séð í áraraðir. Vinnubrögðin og fag- mennskan á bak við hana er svo pottþétt, leikstjórnin og leikurinn svo öruggur, að maður situr í eins- konar algleymi yfír hinu full- komna valdi kvikmyndagerðar- mannanna á bíómyndinni. Al- gleymi er það sem afþreyingariðn- aðurinn gengur útá, velheppnaður veruleikaflótti, og það er nokkuð sem Heiðursmönnum tekst að skapa með nokkmm gamalkunn- um brögðum. Það er varla hægt að setja mikið útá myndina þvilík skemmtun sem hún er. Skæmstu stjörnur Hollywood hafa verið ráðnar í bitastæð hlut- verk sem leikritahöfundurinn Aar- on Sorkin hefur mótað úr eigin leikriti og Rob Reiner, einstaklega faglegur og lipur leikstjóri, heldur um stjórnartaumana. Hann trygg- ir að áhorfandinn fái virði að- göngumiðans með því að mynda góða spennu í dularfullu glæpa- máli, halda hraða í frásögninni, doka við skemmtileg samskipti persónanna og æsa upp drama sem drynur í við vitnaleiðslur í réttarsalnum. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin - Saga Bíó: Lífvörðurinn - The Bodyguard Leikstjóri Mick Jackson. Hand- rit Lawrence Kasdan. Aðalleik- endur Kevin Costner.'Whitney Houston, Gary Kemp. Banda- rísk. Warner Bros 1992. í nýjustu mynd sinni (aðeins örfárra vikna) leikur ofurstjarnan Kevin Costner lífvörðinn Frank Farmer sem rekur nú sitt einka- fyrirtæki en hefur m.a. gert garð- inn frægan í þjónustu tveggja Bandaríkjaforseta. Því er hann álitinn rétti maðurinn til að gæta öryggis söngstjömunnar Rachel Marron (Houston) er henni taka að berast óþægilegar heimsóknir og morðhótanir. Samkomulagið er stirt svona framan af, svo tekur rómantíkin við áður en alvaran hefst að nýju. Lífvörðurinn er gott dæmi um hreinræktaða skemmtanaiðnaðar- vöru. Stórstjaman Costner fær til liðs við sig eina vinsælustu söng- Spennandi réttardrama; Nic- holson og Cruise í Heiðurs- mönnum. Myndin er kannski of sleip sem straumlínulöguð og fáguð iðnað- arvara. Stjömumar ungu full meðvitaðar um sitt ágæti og til- veru. Það er alveg ljóst frá byijun að þegar hinn fjallmyndarlegi Tom Cruise gerist veijandi í rétt- arsal mun hann standa uppi sem sigurvegari - sérstaklega þegar búið er að skreyta hann með ein- kennisbúningi bandaríska flotans. En myndin fer nógu margar krókaleiðir að endalokunum til að bægja frá þeirri hugsun. Cmise leikur ungan og óreyndan lög- fræðing sem fær það verkefni að veija tvo landgönguliða sem sak- aðir eru um að hafa myrt félaga sinn í herbækistöð við landamæri óvinarins á Kúbu. Þegar Cruise, sem í byijun er svona svalur flautaþyrill sem tekur lífíð ekkert of alvarlega, fer að rannsaka málið ásamt öðrum lögfræðingi, leikinn af Demi Moore, hitta þau fyrir harðjaxlinn Jack Nicholson yfirmann herstöðvarinnar. Málið snýst um það hvort hermennimir hafi farið að skipunum að ofan og hvort til séu leynilegar og ólög- legar starfsreglur notaðar til að konu samtímans og hún mætir með ömggan smell á heimsmæli- kvarða í farangrinum. Handritið er svo sittlítið af hveiju; róman- tík, drama og spennu. Þessu er síðan hrist saman (reyndar ekkert of fagmannlega) og útkoman er eitthvað fyrir alla. Engin ósköp á mann því þó Lífvörðurinn sé þokkalegasta af- þreying lengst af og fari ekki illa af stað — eða þangað til söng- stjarnan viðurkennir fyrir lífyerð- inum að hún hafi nú verið bann- sett tæfa hingað til en lofar bót og betmn — þá þolir hún alls enga nærskoðun. Persónumar afar gmnnar og lausar við allt sem heitir vídd — utan að reynt er að gera sem mest úr Farmer. Þarna fer ekkert venjulegur maður — enda fellur sjálf súperstjaman kylliflöt fyrir honum áður en hendi er veifað. Þarna fer hið óttalausa valmenni, yfirvegað og glæst. Reyndar á hann erfitt með að fyrirgefa sjálfum sér eitt; að hann skyldi ekki vera á staðnum að veija forsetann sinn er hann var skotinn. En hann var jú að jarða hana mömmu. Aðrar athafnir þessa vökula göfugmennis em á hegna mönnum. Eins og við mátti búast er Jack Nicholson senuþjófurinn. í hvert sinn sem þessi voldugi og sögulegi leikari birtist á tjaldinu hrekkur myndin í annan gír. Það stafar talsverðri ógn af honum sem klúr- um og kjaftforum yfirmanni sem stangar nýliða eins og Cruise og Moore úr tönnunum á sér og telur sig langt yfír aðra hafínn sem sérstakur varðmaður friðar, frels- is og hins ameríska lífsstíls. Há- punktur dramans er þegar hann gengur í öllu sínu veldi inn í rétt- arsalinn og sest í vitnastúkuna. Það hefur trauðla verið til meira spennandi vitni síðan Humphrey Bogart settist í harðan stólinn í öðru góðu réttardrama, „The Ca- ine Mutiny“, sem á reyndar nokk- uð í Heiðursmönnum. Cruise er sjálfsöryggið uppmál- að sem lögmaðurinn ungi og þótt galgopahátturinn sé kannski full útreiknaður tekur hann sig svo vel út í einkennisbúningi (og Rain- er veit svo vel af því) að honum fyrirgefst flest ef ekki allt. Moore virkar ágætlega sem hinn jarð- bundni betri helmingur tvíeykis- ins, er alvarleg og snjöll og mynd- ar gott mótvægi við Cruise. Au- kaleikarar eru ekki af verri endan- um og fylla vel upp í myndina; Kevin Bacon er sækjandi, Kiefer Sutherland er geðsýkislega harður landgönguliði og J.T. Walsh gæti geymt lykilinn að gátunni. Rainer („Stand By Me“, „Mis- ery“) má vera ánægður með hand- verkið. Hann hefur reyndar gletti- lega gott handrit að byggja á, sagan er spennandi og persónum- ar skemmtilegar, en Rainer þekk- ir vel töfra kvikmyndarinnar og nýtir þá til hins ýtrasta. Hann gerir Heiðursmenn að afbragðs- góðri skemmtun. sömu lund. Söngkonan er ámóta yfírborðsleg, heldur ólánleg blanda af hjartahlýrri stjörnu sem lætur ekki frægðina-stíga sér til höfuðs og Madonnu. Og að hún sé leikkona í þokkabót af Óskars- gráðu fínnst örugglega flestum með ólíkindum. Aðrar persónur eru til uppfyllingar. Costner hefur fengið munka- klippingu fyrir hlutverkið en það gerir hann ekki að Steve McQue- en. Þessi afbragðs leikari hefur tæpast stigið feilspor til þessa og hann á svo sem ekki slæman dag hér, hlutverkið hæfír honum öllu frekar ekki. Hann er ekki trúverð- ugur sem hin ofursvala framleng- ing á marghleypunni. Ofursöng- stjömunni Houston farnast vel í sínu fyrsta hlutverki á tjaldinu (stendur sig í öllu falli margfalt betur en Madonna í öllum sínum kvikmyndahlutverkum saman- lagt) og skilar persónunni eins vel og kostur er miðað við efni og aðstæður. Ræður þó ekki við að gera hana að líklegum Óskars- verðlaunahafa í lokaatriðinu. Leikstjórr.in er hvorki fugl né fisk- ur. Tónlistin er lífleg og hress og einsog fyrr segir þá er útkoman eitthvað fyrir alla því þó Lífvörð- urinn sé heldur ómerkilegur, út- spekúleraður skemmtiiðnaður þá ættu flestir að hafa af honum bærilega afþreyingu. Hvítt og svart fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. HRAÐLESTRARNAMSKEID ★ Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina? ★ Vilt þú verða mikið betri námsmaður og auðvelda þér nám- ið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni? ★ Vilt þú lesa meira af góðum bókum? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax. Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 28. janúar. Skráning í síma 641091. Ath.: Sérstakur námsmannaafsláttur. VR og flest önnur félög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum. H RAÐLESTRARSKOLIN N ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! £ 1978-1993 S Umsóknir um laus prestaköll UMSÓKNARFESTUR um tvö laus prestaköll sem biskup ís- lands auglýsti í desember síðast- liðnum rann út 6. þessa mánaðar. Um Hólmavíkurprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi sótti séra Sigríður Óladóttir sem var kölluð til þjónustu á Hólmavík í maí á síð- astliðnu ári. Um Þingeyrarprestakall í ísa- fjarðarprófastsdæmi sótti séra Olafur Jens Sigurðsson fangaprest- ur i Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.