Morgunblaðið - 12.01.1993, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1993
550 KRONA MALTIÐ
FYRIR FIMM
Enn berast fregnir af að við íslendingar, þurfum að herða sultarólina. Varla
gildir það þó um alla. Hvað er til ráða? Þrátt fyrir góð áform um að eyða
minna þessi jól, er pyngjan orðin galtóm og plastkortaúttektin svo há, að
margir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Maturinn er sá liður sem vegur einna þyngst og
nýársfregnir berast um að kjúklingakjöt, svínakjöt, egg og nautakjöt fari hækkandi á
næstunni. En ekki lambakjöt. Á að fara að rétta hlut þess? Varla eykst sala á því fyrr
en farið verður að fituhreinsa kjötið betur. Eitt sinn var hægt að borða ódýrt, hafa
soðningu og kartöflur í öll mál. En það er liðin tíð. Kartöflurnar eru rándýrar og fisk-
urinn líka. Svo erum við hvött til grænmetisáts, en grænmetið er líka dýrt. En hvað
með gömlu góðu grautana, getum við ekki vakið þá upp aftur? Margir halda
að það sé óholl fæða, sem er hinn mesti misskilningur. Okkar gömlu góðu
grautar voru flestir búnir til úr mjólk, og mjólkin er þó á viðráðanlegu verði
ennþá. Mjólkurgrautur er léttur í maga og gefur okkur bæði kalk, prótein,
og ýmislegt annað hollt, og ýmsu má bæta í hann. Það er útbreiddur
misskilningur að grautar séu fitandi. Þá má búa til úr léttFIestum börn-
um finnst mjólkurmatur góður og hann er fljótmatreiddur. Flestir
kaupa ýsuflök, enda halda börnin að flökin syndi í sjónum. Ég keypti
um daginn heila frekar litla ýsu og sauð hana í heilu lagi í vatni
og mysu og hvílíkt ljúfmeti. Heilsoðin ýsa er mun betri en soð-
in flök og svo er hún líka um helmingi ódýrari. Kostar 250
kr., þegar flökin kosta allt að 455 kr. Við getum tekið af
henni roðið og hrygginn áður en við berum hana á borð.
Leggið ýsuna í löginn, setjið
hlemm á pottinn en minnkið hit-
ann á hellunni niður í minnsta
straum. Látið vera þannig við
suðumark í 12-15 mínútur.
Ýsa kr. 250,00.
Mysa kr. 22,50.
Soðinn blaðlaukur
Heilsoðin ýsa, borin fram
með blaðlauk
2 ýsur, 500 g hvor
'h 1 mysa (má sleppa en nota
meira vatn)
2 lítrar vatn
l'h msk. gróft salt. .
1. Skerið ugga og þunnildi af
fiskinum, takið úr honum himnur
0g sundmaga og skolið allt blóð
í burtu.
2. Setjið mysu, vatn og salt í
frekar stóran pott, látið sjóða.
1 stór blaðlaukur
2 dl ýsusoð
1 tsk. smjör
sósujafnari
1. Þvoið blaðlaukinn vel, notið
grænu blöðin líka, ef þau eru
heilleg 0g mjúk. Skerið í þunnar
sneiðar.
2. Setjið blaðlaukinn í pott, tak-
ið 1 dl af soði úr ýsupottinum,
þegar ýsan hefur soðið í 5 mínút-
ur og setjið yfir laukinn, sjóðið
við hægan hita í 5-10 mínútur.
3. Hrærið ögn af sósujafnara
út í, setjið síðan smjörið saman
við.
Blaðlaukur kr. 30.00.
Smjör og sósujafnari u.þ.b. kr.
20.00.
Fiskurinn borinn fram
Takið fiskinn úr pottinum með
stórum spaða, fjarlægið roð og
hrygg, takið beinin (beingarðinn)
efst við þunnildin úr. Leggið fisk-
inn á fat, hellið blaðlaukssósunni
yfir.
Berið soðnar kartöflur með.
Vi kg kartöflur kr. 50,00.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Hrísnyölsgrautur
8 dl nýmjólk eða léttmjölk
IV2 dl hrísmjöl
'h dl tsk salt.
1. Hitið helluna vel.
2. Setjið mjólk, hrísmjöl og salt
í pott, hrærið vel saman með þeyt-
ara. Setjið pottinn á helluna,
hrærið í þar til sýður og grautur-
inn þykknar.
3. Minnkið hitann og látið
grautinn sjóða í 5 mínútur. Hafið
hlemm á pottinum annars slettist
grauturinn upp úr honum, hrærið
í svo að ekki festist við botninn.
Berið kanil/sykur og mjólk eða
saft með.
Mjólk kr. 68,00
Hrísmjöl kr. 65,00
Kanil/sykur kr. 10,00
Mjólk eða saft út á kr. 34,00.
Þessi máltíð kostar samtals kr.
49,50, segjum kr. 550,00, og ætti
að duga fyrir fimm manns, eða
110 kr. á mann.
Fyrir alla muni drekkið vatn
með matnum. Það er hollast og
ódýrast.
—
Fullkomin
líkamsrækt
Júdó
Byrjendanámskeiö
Aöalþjálfarar:
Michal Vachun 6. Dan
Bjarni Friöriksson 5. Dan
Líkamsrækt
GYM 80 tækjasalur
Dynavit þrektæki
Lifestep þrekstigar
Sjálfsvörn
Jiu - Jitsu
Þjálfari:
Elín Þóröardóttir 1 Kyu
Líkamsrœkt
• 500 ferm. glæsilegt húsnæði í Einholti 6
• Mánaðarkort kr. 4.500,-
• 3ja mánaða kort kr. 10.900,-
• 3ja mánaða kort (dagíímar frá kl. 10-16) kr. 9.700,-
Upplýsingar og innritun alla virka daga frá kl.
eoa frá kl. 11 -16 laugardaga og sunnudaga.
10-22 fsíma 627295
ARMANN
Júdó GYM
I
1
1
Tsjekhov-vika hjá MÍR
TSJEKHOV-VIKA, kynning á
ævi og verkum hins fræga
rússneska sagnahöfundar og
leikskálds, Antons Tsjekhovs,
verður í húsakynnum MÍR,
Vatnsstíg 10, dagana 17.-24.
janúar.
Sunnudaginn 17. janúar kl. 16
verður kvikmyndin Anna um háls-
inn (Anna kross) sýnd en mynd
þessi er gerð árið 1954 og byggð
á samnefndri smásögu Tsjekhovs,
sem fyrst var birt árið 1895. Þenn-
an dag verður einnig opnuð sýning
á Vatnsstígnum á ljósmyndum úr
leikhúsum í Moskvu o.fl.
Mánudaginn 18. janúar kl.
20.30 verður rússneska leikkonan
Herrakvöld
Njarðar
HERRAKVÖLD Lionsklúbbsins
Njarðar verður haldið fimmtu-
daginn 14. janúar 1993 á Hótel
Sögu,Súlnasal.
Verulega verður vandað til
þessarar skemmtunar eins og
ávallt og boðið verður upp á glæsi-
legan matseðil og frábær
skemmtiatriði.
Matreiðslumeistaramir Úlfar
Eysteinsson og Sigurður Sumar-
liðason sjá um matseðil kvöldsins
ásamt yflrmatreiðslumeistara
Hótels Sögu.
NínaA.kímva, sendiherrafrú, gest-
ur MÍR á Vatnsstígnum og flytur
þá spjall um Tsjekhov og rússn-
eska leiklist. Jafnframt mun hún
segja álit sitt á þeim leiksýningum
sem hún hefur séð í Reykjavík,
einkum Tsjekhov-sýningunum í
Borgarleikhúsinu og Kæra Jelenu
í Þjóðleikhúsinu. Sýnd verður hálf-
tíma löng heimildarmynd um
Tsjekhov með skýringum á
norsku.
Miðvikudaginn 20. janúar kl.
18 verður sýnd önnur heimildar-
kvikmynd um Tsjekhov, 50 mín.
löng mynd með skýringum á
ensku, gerð 1954. í myndinni eru
sýnd atriði úr nokkrum verka
Tsjekhovs flutt af leikurum við
Listaleikhúsið í Moskvu.
Laugardaginn 23. janúar kl. 14
verður sýnd kvikmytidin Vanja
frændi byggð á samnefndu leikriti
Tsjekhovs. Leikstjóri er Andrei
Mikhalkov-Kontsalovskíj og ein-
valalið í hlutverkunum. Myndin er
sýnd með rússnesku tali og án
þýddra texta.
Sunnudaginn 24. janúar kl. 16
verður svo sýnd kvikmyndin Ófull-
gert verk fyrir sjálfspilandi píanó.
Leikstjóri Nikita Mikhalkov. Mynd
þessi er byggð á verkum Tsjek-
hovs og þó einkum leikritinu Plat-
anov. Skýringar með myndinni á
ensku.
Aðgangur að dagskráratriðum
Tsjekhov-vikunnar í MÍR er
ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfír.
(Fréttatilkynning)
VASKHUGI
Byrjaðu nýtt ár með bókhaldið á hreinu.
Vaskhugi er forrit, sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfaldleika
í notkun. Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölukerfi,
birgðir, uppgjör vsk., verkefnabókhald, jafnvel einföld
ritvinnsla. allt í einu kerfi á mjög hagstæðu verði.
Námskeið verða haldin í febrúar, bæði fyrir byrjendur og þá, sem
lengra eru komnir.
Fáðu nánari upplýsingar hjá okkur í síma 656510.
í$lensk tæki, Garðatorgi 5, Garðabæ.