Morgunblaðið - 12.01.1993, Page 45
45
áttu vel við hana.
Jóna var næstelst barna þeirra
Fríðgerðar Skarphéðinsdóttur og
Bjama Bjamasonar. Elst var Guð-
finna, fædd 2. janúar 1916, gift
Prímanni Pálmasyni, þau em bæði
látin, þá Jón Ólafur, fæddur 1. októ-
ber 1925, kvæntur Þorgerði Maríu
Gísladóttur, og yngstur er Skarp-
héðinn, fæddur 21. febrúar 1927,
kvæntur Sigríði Karlsdóttur. For-
eldrar Jónu misstu sjö böm sín
mjög ung.
Eftir að faðir Jónu varð ekkju-
maður kvæntist hann Ólöfu Jónu
Jónsdóttur og eignuðust þau dóttur
árið 1946, Fríðgerði Elínu. Ég
minnist þess hvað Jóna hlakkaði
alltaf til að heimsækja Fríðgerði
systur sína sem bjó á Akranesi.
Jafnkært var á milli Jónu og Guð-
finnu og fór hún oft til hennar norð-
ur að Garðshomi á Þelamörk og
þá-einkum þegar systir hennar lá
á sæng.
Fyrir tuttugu árum veiktist Jóna
af krabbameini, en þrátt fyrir það
átti hún mörg góð ár. Við höfðum
alltaf mikið símasamband og þá
einkum síðastliðin þijú ár. Þegar
ég veiktist af sama sjúkdómi þá óx
samkennd okkar. Hún fann aldrei
til beiskju og við vomm báðar sam-
mála að það ríkti bannhelgi yfir þv'
að nefna krabbamein á nafn og
sérstaklega í minningargreinum.
Því nefí ég þetta frænku minni til
heiðurs sem vildi nefna hlutina sín-
um réttu nöfnum. Síðastliðið ár var
Jónu sérstaklega erfitt, en hún
missti aldrei móðinn. Hún fann
mikið öryggi í því að vita af mág-
konu sinni Sigríði í nábýli við sig
þar sem hún leit til hennar daglega
og þá einkum síðustu mánuðina.
Hún sagði mér líka frá öðrum ætt-
ingjum og vinum og þá sérstaklega
Jónínu vinkonu sinni sem alltaf var
tilbúin „að keyra mig hvert á land
sem er“, eins og hún orðaði að.
Jóna Bjarnveig lést í Landspítal-
anum að kvöldi þriðja þessa mánað-
ar. Ég kveð frænku mina með virð-
ingu og hryggð, þakka henni frænd-
semi, tryggð og velvilja í minn garð
og fjölskyldu minnar. Blessuð sé
minning hennar.
Pálína Kjartansdóttir.
Þegar ég sest niður eina ögur-
stund til að minnast Jónu frænku
minnar hrannast hlýjar og ljúfar
minningar löngu liðinna daga í huga
minn. Við Jóna frænka áttum sam-
leið oftar en einu sinni. Hún verður
ekki tíunduð hér að neinu ráði, að-
eins smá brot af minningum.
Ég hleyp um sjónarsviðið, reyni
að setja saman samhengi yfir árin
okkar Jónu. Jóna frænka kom á
heimili móður minnar á Egilsgötu
12 í Reykjavík, ung stúlka, móður
minni til aðstoðar við heimilisstörf-
in. Móðir mín og Fríðgerður, móðir
Jónu, voru hálfsystur, Skarphéð-
insdætur.
Einhvem veginn æxlaðist það svo
að Jóna tók að hlúa að mér með
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Erötlrykkjur
Glæsilej» ividli-
hlaðborð íallegir
salir og mjög
góð þjónusla.
IJpplvsingar
ísíma22322
, FLUGLEIDIR
llím LOFTLEIDIR
íieei HA'JViAl ,£T RUDAG JlölíId GIGAJÖ'/UUBOF.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDÁGURl2rjANÚAR 1993.
nærfærni og umhyggju. Ekki veit
ég hvað réð, ef til vill var ég rétta
bamið í röð okkar systranna. Ekki
man ég gjörla hversu lengi Jóna
frænka var á heimili móður minnar
en einhver ár hafa það verið og þá
yfir veturna, því að flest sumur fór
Jóna til átthaganna og oftar en
ekki með mig í farteskinu. Nú þeg-
ar ég hugsa aftur í tímann, hlýtur
Jónu frænku að hafa þótt dulítið
vænt um þessa litlu mig, því mikill
var kærleikur hennar í minn garð.
Til Bolungarvíkur fór ég vel
þriggja ára með Jónu og dvaldist
þar yfir sumartímann. Þar kynntist
ég bræðmm hennar vel, þeim Jóni
Olafi og Skarphéðni, en ég kallaði
þá einungis Nonna og Héðin. Þeir
voru mér sem bræður og kölluðu
mig líka systur. Bjami faðir þeirra
var mér einnig mjög góður. Mér
er afar minnisstætt hversu veik
Fríðgerður móðir Jónu var, þó enga
grein hafi ég gjört mér fyrir veik-
indum hennar, enda aðeins þriggja
ára. Man ég gjörla hljóðin í henni,
en hún lá helsjúk í rúmi undir súð
uppi á lofti. Þá var reynt að trítla
hljóðlega fram hjá skörinni og niður
stigaopið er lá niður í eldhús. Það
er með ólíkindum hversu vel ég
man eftir mér í Bolungarvík hjá
Jónu frænku.
Hvar hafa dagar lífs míns á
æskuámm notast mér best? Frá
æskuámm mínum í Hnífsdal hjá
þeim Jónu, Bjarna og bræðmnum
á ég einungis hlýjar og góðar minn-
ingar. Þá var búið í Heimabæ. Eina
kvöldstund man ég vel. Ég sit uppi
á eldhúsborði, Jóna frænka að þvo
mér, sex ára telpu eftir amstur
dagsins, síðan fæ ég rúsínur og
sveskjur í poka, koss á kinnina,
góða nótt. Ég sef uppi á lofti í her-
bergi ásamt Bjarna föður Jónu.
Þarna komu einnig við sögu Nonni
og Héðinn, ég var áfram litla syst-
ir og þeir mér alltaf góðir bæði í
stríðni og leik.
Jóna var vel greind og hafði jafn-
framt kímnigáfu í góðu lagi og yfir-
drepskap var ekki að fínna hjá
henni. Hún þjónaði alltaf öðmm af
kærleika og hlýju, allt fram í andlát-
ið var hún hjálparhella og fékk hún
það líka margfalt endurgoldið.
Hana skorti hvorki manndóm né
vilja til starfa. Ég veit að sambýlis-
fólk hennar minnist hennar með
góðvilja, þannig kona var Jóna
frænka, einnig var hún mjög
skyldurækin við sína nánustu, mik-
il frænka í ölduróti lífsins. Þeir
munu vera margir sem á einhvem
hátt nutu hjálpar handa hennar,
bæði í þjónustu og öðrum vett-
vangi. Hún hafði skapstyrk til að
láta viðmælendur gleyma þverrandi
líkamsþreki hennar. Hennar innri
styrkur kom jafnan fram, þar til
endalokin urðu ekki umflúin.
Sjöfn Kjartansdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERGUR Á. ARNBJÖRNSSON
fyrrverandi bifreiðaeftirlitsmaður,
er lést 5. janúar, verður jarðsunginn miðvikudaginn 13. janúar
kl. 14.00 frá Akraneskirkju.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að
láta líknarstofnanir njóta þess.
Ólafur Bergsson, Þóra Stefánsdóttir,
Þorgerður Bergsdóttir, Hannes Hjartarson,
Guðrún Bergsdóttir, Gunnar S. Jónsson,
Björn A. Bergsson, Ingibjörg Ingólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur faður okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ARNÞÓR JENSEN
fyrrv. pöntunarfélagsstjóri á Eskifirði,
síðasttil heimilis á Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést hinn 9. janúar síðastliðinn.
Útförin verður tilkynnt síðar.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, Hjálmar Kjartansson,
Hlíf Christensen, Bent Christensen,
Gauti Arnþórsson, Sólrún Sveinsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MAGNEA JÓNSDÓTTIR
frá Sólbakka,
Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Gunnarsbraut 26,
Reykjavfk,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 31. desember sl.
Jarðarförin fór fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardag-
inn 9. janúar sl. í kyrrþey að ósk hinnar.látnu.
Þökkum auðsýnda samúð. _
Valgerður Andersen, Gunnar Kristinsson,
Jóhann Júlfus Andersen, Soffía Zophaniusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis á Brunnstig 2,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 14. janúar
kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast henn-
ar, er bent á slysavarnadeildina Hraunprýði í Hafnarfirði.
Þórlaug Júlíusdóttir,
Eyþór Júlíusson, Bergljót Gunnarsdóttir,
Sigriður Júlíusdóttir, Arnfinnur Arnfinnsson,
Þorkell Júlíusson, Erla Friðjónsdóttir,
Guðbjörg Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaöir,
ÞORVALDUR SNORRASON,
Æsufelli 2,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. janúar
kl. 13.30.
Elín Guðjónsdóttir,
börn og tengdabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi okkar,
ÓFEIGUR J. ÓFEIGSSON
læknir,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 13. janúar kl. 15 frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík.
Unnur Sigurðardóttir,
Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir, Vilhjálmur Egilsson,
Anna Katrin Vilhjálmsdóttir, Bjarni Jóhann Vilhjálmsson,
Ófeigur Páll Vilhjálmsson, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir,
Anna Balle, Viggó Balle, Unna Balle,
Uggi Balle, Bjarki Balle.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, sonar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR,
Suðurbraut 8,
Þórdís Halldórsdóttir,
Halldóra Ó. Sigurðardóttir, Ásmundur Sveinsson,
Gisli B. Sigurðsson, Gfslína S. Gísladóttir,
Sigurður Stefán Ásmundsson.
+
Einlægar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför
SIGRÍÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Blöndubakka,
Hróarstungu.
Fædd 6. desember 1945, dáin 30. nóvember 1992.
Eiginmaður, móðir, bróðir, .
synir, tengdadætur
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur vináttu
og samúð við andlát og útför móður minnar,
ÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR
frá Eystri-Gjábakka,
Vestmannaeyjum.
Þakkir sendum við einnig til starfsfólks og íbúa Hraunbúða.
Sérstaklega viljum við þakka Stellu og Gunnari fyrir alla tryggð
og vináttu, sem þau hafa sýnt mömmu og okkur öllum.
Ásta Þórarinsdóttir og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Bjarkarlundi,
Kirkjulundi 6,
Garðabæ.
Sara Jóhannsdóttir, Sigurberg H. Elentínusson,
Helga Jóhannsdóttir, Halldór H. Jónsson,
Jóhann Ingi Jóhannsson, Ásthildur Einarsdóttir,
Guðrfður Hallsteinsdóttir, Stefán Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÍSLEIFS PÁLSSONAR
frá Ekru,
Heiðvangi 2,
Hellu.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sjúkrahúss Suðurlands
og heilsugæslulæknum, Hellu.
Guðrún Valmundsdóttir,
Árni ísleifsson, Helga Óskarsdóttir,
Sigrún isleifsdóttir,
Valborg ísleifsdóttir,
Páll ísleifsson,
Ingimar ísleifsson,
Margrét ísleifsdóttir,
Guðbjörg ísleifsdóttir,
Jónas Jónsson,
Karl Stefánsson,
Halldóra Valdórsdóttir,
Aubert Högnason,
Árni Hannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.