Morgunblaðið - 26.02.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
15
Vextir, ríkis-
stj órn og bankar
eftir Guðmund Gylfa
Guðmundsson
í tengslum við samþykkt
miðlunartillögu sáttasemjara
síðastliðið vor sendi ríkisstjómin
annarsvegar og bankar og spari-
sjóðir hins vegar frá sér yfirlýsing-
ar um vaxtamál. í haust hækkaði
ávöxtunarkrafa á spariskírteinum
ríkissjóðs og bankar hækkuðu
vexti nú um áramót. Því er tilefni
til að rifja upp yfirlýsingarnar frá
því í vor og skoða vaxtaþróun síð-
an þá með tilliti til yfírlýsinganna.
Ríkisstjórn
í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í
tengslum við gerð kjarasamninga
segir m.a.: „Með tilliti til þessara
meginsjónarmiða mun fjármála-
ráðuneytið lækka vexti á nýjum
spariskírteinum til sölu á markaðn-
um niður í 6,5%. Jafnframt verða
vextir á ríkisvíxlum lækkaðir í
samræmi við lækkandi raunvexti
og horfur um verðlagsþróun. Ríkis-
stjóm og Seðlabanki munu einnig
með tiltækum aðgerðum í fjármál-
um og peningamálum beita sér
fýrir því, að vextir á eftirmarkaði
verði í samræmi við vexti á nýjum
spariskírteinum, sem til sölu era á
hveijum tíma.“
Strax eftir undirritun miðlunar-
tillögunnar í vor lækkuðu vextir á
nýjum spariskírteinum ríkissjóðs.
Jafnframt lækkaði ávöxtunarkrafa
spariskírteina á eftirmarkaði. Á
eftirfarandi töflu má m.a. sjá
ávöxtun spariskírteina ríkissjóðs
að meðaltali í hverjum mánuði eins
og raunávöxtunin var í viðskiptum
hjá Verðbréfaþingi íslands á árinu
1992.
A Raunávöxtunarkrafa á sparisk.
á Verðbréfaþingi íslands í %.
B Vextir af vísitölubundnum
skuldabréfaútlánum bankanna
í %.
C Nafnvextir almennra skulda-
bréfa. Meðaltal algengustu
vaxta í %.
D Raunvextir almennra skuldabr.
í %. Miðað er við sex mánaða
hækkun lánskjaravísitölu. Þrír
mánuðir aftur og þrír fram.
Spáð er gildum næstu mánaða.
Mánuðir A B C D
Janúar ’92 8,13 10,0 16,2 16,8
Febrúar 7,87 10,0 14,3 14,4
Mara 7,84 9,8 13,8 13,0
Aprll 7,67 9,7 13,8 11,4
Ma! 6,93 9,0 12,2 9,7
Júnl 6,96 9,0 12,2 9,6
Júlí 7,08 9,0 12,3 9,9
Ágúst 7,10 9,0 12,3 10,0
September 7,30 9,0 12,3 10,3
Október 7,64 9,1 12,3 11,2
Nóvember 7,79 9,2 12,4 10,3
Desember 7,72 9,3 12,6 10,0
Janúar ’93 7,66 9,6 14,2 11,3
í yfírlýsingu ríkisstjórnarinnar
var ekki tekið fram til hvaða að-
gerða í peningamálum eða íjármál-
um ríkissjórnin myndi grípa til að
ná fram og viðhalda vaxta-
markmiðum yfirlýsingarinnar.
Fram eftir sumri keypti Seðlabank-
inn ríkisskuldabréf og hélt þar með
niðri vöxtum en er leið á haustið
hætti bankinn þessum kaupum.
Þegar ávöxtunarkrafa fór að
hækka á ný greip ríkisstjórnin
ekki til neinna aðgerða sem héldu
aftur af ávöxtunarkröfunni. Ekki
er hægt að draga aðra ályktun af
þessu aðgerðarleysi en að áhugi
ríkisstjórnarinnar fyrir lækkun
vaxta væri ekki mikill.
Ávöxtunarkrafa spariskírteina
lækkaði verulega í maí eftir sam-
þykkt miðlunartillögunnar, þó var
hún enn nokkra hærri en segir í
yfirlýsingu ríkisstjómarinnar að
ávöxtunarkrafan skyldi verða, þ.e.
um 6,5%. Ávöxtunarkrafan hækk-
aði síðan lítillega í júlí en í septem-
ber fer ávöxtunarkrafan að hækka
veralega og nær hámarki í nóvem-
ber. Nú um áramótin er ávöxtunar-
krafa spariskírteina um 1% hærri
en segir í yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar. Jafnframt hefur ríkisstjóm-
in nýverið ákveðið að hækka vexti
nýrra spariskírteina í 7%. Það er
því ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki
staðið við ákvæðið um lækkun
vaxta í yfirlýsingu sinni frá í vor
og þar með svift burt einni helstu
forsendu kjarasamninga.
Yfirlýsingar banka
og sparisjóða
Mun erfiðara reyndist að fá
bankana til markvissra yfirlýsinga
um vaxtamál sl. vor en árið 1990
og báru fulltrúar bankanna því við
að þeir hvorki gætu né væri þeim
heimilt að senda frá sér sameigin-
lega yfírlýsingu um vaxtaá-
kvarðanir. Niðurstaða viðræðn-
anna varð sú að hver banki og
sparisjóðimir sendu frá sér yfirlýs-
ingu sem var í orðlagi og efnislega
nær samhljóða. í framhaldi af
þessum yfirlýsingum tóku ASÍ og
VSÍ/VMS saman minnisblað þar
sem fram kom skilningur þessara
aðila á yfirlýsingunum.
Á ofannefndu minnisblaði segir
m.a.: „Viðmiðun við ákvörðun á
algengustu flokkum fasteigna-
tryggðra skuldabréfa í bönkum og
sparisjóðum eru og munu verða
með u.þ.b. 2% álagi á spariskír-
teini í framsölu eða á eftirmark-
aði. Stefnt verður að því að kjör
verðtryggðra og óverðtryggðra
lána verði á hveijum tíma sem lík-
ust og áhættuálag á nafnvexti
verði að jafnaði innan 1% ofan á
verðtryggð kjör í samsvarandi
áhættuflokki verðtryggðra lána.
Til að tryggja sem mestan stöðug-
leika munu vaxtaákvarðanir á
óverðtryggðum lánum verða mið-
aðar við lengri tíma en áður hefur
verið t.d. 6 mánaða breytingu lán-
skjaravísitölu."
Vaxtaákvarðanir banka og
sparisjóða
Fram kemur í töflu fyrir ofan
að vextir vísitölubundinna skulda-
bréfa í bönkum era mestan hluta
ársins um tveimur hundraðshlutum ■
hærri en ávöxtunarkrafa spariskír-
teina. Þessi mismunur minnkaði
þegar ávöxtunarkrafa spariskír-
teina hækkaði í haust en eftir ára-
mótin þegar ávöxtunarkrafan
lækkaði og bankar hækkuðu vexti
er svipaður mismunur orðinn og
var lengstum á árinu 1992.
Raunvextir vísitölubundinna
skuldabréfa vora fyrstu mánuði
ársins nyög háir og mun hærri en
á vísitölubundnum útlánum.
Ástæður þessara háu vaxta vora
þær að bankastofnanir miðuðu
nafnvaxtaákvarðanir sínar við
mun hærri verðbólgu en þá var
orðin og jafnframt neituðu fulltrú-
ar bankanna að taka gild rök aðila
vinnumarkaðarins um horfur á ört
lækkandi verðbólgu. Einnig töldu
bankarnir sig þurfa að vinna til
baka í tekjum lítinn vaxtamun fyrri
hluta árs 1991.
Á þeim tíma sem liðinn er frá
yfírlýsingunum sl. vor hafa raun-
vextir óverðtryggðra skuldabréfa
verið rúmlega einum hundraðs-
hluta hærri en á verðtryggðum
bréfum. Við gildandi vexti eftir
vaxtalækkun í janúar er allt að
tveggja prósenta vaxtamunur og
er þá miðað við nýlega spá Seðla-
bankans um þróun lánskjaravísi-
tölu til næstu mánaða.
Rök bankamanna fyrir hærri
raunvöxtum á óverðtryggðum
Guðmundur Gylfi Guðmundsson
„Þegar ávöxtunarkrafa
fór að hækka á ný greip
ríkisstjórnin ekki til
neinna aðgerða sem
héldu aftur af ávöxtun-
arkröfunni. Ekki er
hægt að draga aðra
ályktun af þessu að-
gerðarleysi en að áhugi
ríkisstjórnarinnar fyrir
lækkun vaxta væri ekki
mikill.“
skuldabréfum en verðtryggðum
eru þau að áhættuálag þurfi á
óverðtryggðu vextina einkum
vegna þess að innlánin séu að
stærri hluta verðtryggð en útlánin.
Bankarnir hafa viljað miða við 1%
mun en í mun lægri verðbólgu og
meiri stöðugleika en verið hefur
ætti þessi munur ekki að þurfa að
vera meiri en 0,5%. Ljóst er að
vaxtamunur verðtryggðra og
óverðtryggðra skuldabréfalána er
um og ofan við þau efri mörk sem
bankamir sjálfir sögðust ganga út
frá.
Meðalvextir verðtryggðra
skuldabréfa era nú 9,5%, verðbólga
lánskjaravísitölunnar er um og inn-
an við 3% miðað við forsendur í
töflunni fýrir ofan og áhættuþátt
óverðtryggðra skuldabréfa má
ætla um 0,5%. Að þessu samant-
öldu væra nafnvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa að meðaltali
því hæfílegir um 13% eða um einu
prósenti lægri en þeir eru nú.
Vaxtamunur á milli banka
Út frá upplýsingum Seðlabank-
ans um hlutfallslega skiptingu
verðtryggðra og óverðtryggðra
skuldabréfaútlána í kjörvaxtakerf-
inu er mögulegt að reikna út með-
alútlánsvexti skuldabréfa í hveij-
um banka. Það er áhugavert að
skoða þessa vexti á nokkram dag-
setningum á síðustu mánuðum.
í lok maí, fljótlega eftir gerð
kjarasamninganna, var íslands-
banki með lægstu vextina en spari-
sjóðirnir með þá hæstu. ísland-
banki hækkaði vextina er leið á
árið og í byijun nóvember flutti
Búnaðarbankinn skuldabréfaútlán
á milli flokka í kjörvaxtakerfínu
og bjó samtímis til nýjan útláns-
flokk. Við þetta hækkuðu útlána-
vextir bankans nokkuð. Um ára-
mót hækkuðu allar bankastofnanir
óverðtryggða vexti í kjölfar spár
um hækkandi lánskjaravísitölu og
var íslandsbanki þá með hæstu
vextina bæði í verðtryggingu og
óverðtryggðum útlánum.
Eftir lagabreytingu um endur-
greiðslu á vsk. lækkuðu spár um
hækkun lánskjaravísitölu. Þó
lækkuðu bankar almennt ekki
nafnvexti eins og þeirri lækkun
nam. Að framan sagði að bankar
hefðu átt að lækka nafnvexti
skuldabréfaútlána um 1% að með-
altali en miðað við þessar tölur
ættu sumir bankanna að lækka
nafnvexti enn frekar.
Form vaxtaákvarðana
Aðeins era nokkur ár síðan
bankar fengu heimild til að
ákvarða sína vexti sjálfir. Eftir
reynslu þessara ára og einkum
reynsluna frá því í samningunum
1990 er eðlilegt að sú spurning
vakni hvort núverandi fyrirkomu-
lag vaxtaákvarðana í bönkum eigi
að vera óbreytt til frambúðar.
Þessi spurning vaknar m.a. í
ljósi hinna háu raunvaxta á nafn-
vöxtum um ármótin 1991 og 1992
og vegna þess vaxtamunar sem
er á sambærilegum utlánaformum
á milli banka á hveijum tíma sem
og mismunandi meðalvaxta milli
banka sbr. síðari töfluna. Þá era
bankar hér á landi fáir og mikil
tregða á flutningi viðskiptavina á
milli banka sem gerir samkeppni
banka ekki eins virka og annars
væri.
Til skamms tíma hafa ýmsar
atvinnugreinar verið undir opin-
bera verðlagseftirliti en slíkt hefur
farið minnkandi. Skortur á virkri
samkeppni er helstu rök verð-
lagsaðhalds í viðkomandi greinum.
Því ber vissulega að fagna þegar
samkeppni er slík að opinbert verð-
lagsaðhald er óþarft. Það má held-
ur ekki ganga svo hratt fram að
gefíð sé eftir verðlagsaðhald þar
sem samkeppni er ekki virk.
Vaxtaákvarðanir banka gefa til
kynna að samkeppni þeirra á milli
sé ekki nægjanlega virk.
Seðlabankinn á að hafa eftirlit
með vaxtaákvörðunum banka en
reyndin hefur orðið sú að Seðla-
bankinn hefur haft lítil afskipti af
þeim. Um áramótin 1991 og 1992
þegar nafnvextir voru sem hæstir
og aðilar vinnumarkaðarins hvöttu
bankana ítrekað til vaxtalækkana
skipti Seðlabankinn sér lítið af
málinu. Það er vissulega vert að
endurmeta lög og starfsreglur um
vaxtaákvarðanir banka og eftirlit
með vaxtaákvörðunum eftir
reynslu fijálsar vaxtaákvörðunar á
liðnum áram.
Lokaorð
Þegar litið er til baka og metið
með hveijum hætti lækkun vaxta
gæti orðið liður í komandi kjara-
samningum þá er ljóst að ríkis-
stjórnin hefur ekki staðið við yfír-
lýsingar sínar og bankamir hafa
staðið á ystu mörkum og utan við
ystu mörk sinna yfirlýsinga.
Vegna þess hve þessar efndir
hafa verið slæmar duga ekki al-
mennar yfirlýsingar frá ríkisstjóm
og bönkum við komandi kjara-
samningagerð. Eftir þann trúnað-
arbrest sem er orðinn hjá launþeg-
um gagnvart yfírlýsingunum frá
því í fyrra ér nauðsynlegt að að-
gerðir til lækkunar vaxta hafi sýnt
sig í verki áður en gengið verður
frá nýjum kjarasamningum. Mikil-
vægt er að gengið verði frá öllu
verklagi í aðgerðum til lækkunar
vaxta með fastari hætti en síðast
var gert.
Höfundur er hagfræðingur
Alþýðusambands íslands.
Verðtryggð sk.br. útlán Óverðtryggð sk.br. útlán
22. maí 11. nóv l.jan. 1. feb. 21. maí 11. nóv l.jan. l.feb.
Landsbanki 8,75 8,75 9,00 8,99 12,23 12,23 13,74 13,74
íslandsbanki 8,87 9,37 10,12 10,12 11,87 12,42 15,74 14,57
Búnaðarbanki 8,97 9,44 9,69 9,69 12,20 13,07 15,07 14,32
Sparisjóðir 9,40 9,54 9,54 9,54 12,74 12,74 14,24 14,49
með frönskum og sósu
=:£J£Jvs
TAKIÐMEÐ ittii TAKIDMED
- tilboð! VÁW .tilboð!
jarlinn
FJÖLVÍTAMÍN FRAMTÍÐARINNAR
FYRIR NÚTÍMAFÓLK.
MARAÞON samsetningin er byggb á
nýjustu rannsóknum sem sýna fram á
verndandi áhrif lífsnaubsynlegra andox-
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
B71800
OPIÐ SUNNUDAGA
KL. 14 - 18.
Peugout 309 QL Profile '91,5 dyra, rauö-
ur, 5 g. Gott ástand. V. 595 þús. stgr.
Ford Econollne Club Wagon XLT 7.3 dle-
sel 4x4 '90, 12 manna. Sjálfsk., ek. 72
þ., 6 tonna spil, loftlæsingar, rafm. í rúöum
o.fl. V. 3.2 millj., sk. á ód.
MMC Lancer GLX '91, rauöur, 5 g., ek.
40 þ. V. 840 þ. Sk. ód.
Toyota Corolla XL 3 dyra '91, rauöur, 5
g., ek. 25 þ. V. 820 þ.
Subaru Justy J-10 4x4 '85, hvitur, ný yfir-
farinn. V. 230 þ. stgr.
Toyota Corolla XL, 5 dyra '89, grósans.,
ek. 52 þ. V. 630 þ. stgr.
Subaru 1800 Turbo Sedan 4x4 '86, einn
m/öllu, ek. 109 þ. V. 650 þ. Sk. ód.
Lancla Y-10 '87, 3ja dyra, ek, aöeins 47
þ. V, 160 þ. stgr.
Toyota Hilux ExCap m/húsl '91, 5 g.,
ek. 33 þ. V. 1.490 þ.
Toyota Hilux ExCap V-6 '91 m/húsi, 5
g., ek. 42 þ. V. 1.690 þ.
V.W. Golf GL 1.8 sport '92, grænsans,
5 g., ek. 8 þ„ vökvast. o.fl. V. 1090 þús. stgr.
Toyota Corolla XL '88, 5 dyra, blásans,
5 g„ ek.. 65 þ. Gott eintak. V. 540 þ. stgr.
MMC Lancer GLX, station, 4x4 '87, blás-
ans, 5 g„ ek. 88 þ. Gott útlit. V. 670 þ.
Sk. á ód.
MMC Lancer GLXI 4x4 hlaðbakur '91,
vinrauöur, 5 g„ ek. 18 þ„ ramf. í öilu,
þjóv.kerfi, fjarst.læsingar o.fl. V. 1.130 þ.
Bein sala.
Ford Bronco 8 cyl. (302) '74, sjálfsk.,
mlkiö endurnýjaður. Gott ástand. V. 480
þ. Góö lán.
Honda Civlc
þ. Sóllúga o.fl
/ '88, 5 g„ ek. 95
þ. stgr.