Morgunblaðið - 26.02.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
*
Islendingar geta
sótt um lukkuleyfi
BORGURUM allmargra landa, þar á meðal íslands verður gefið tæki-
færi til þess að sækja um svokallað AA-1 innflytjendaleyfi til Banda-
ríkjanna, sem einnig hafa verið nefnd „lukkuleyfin“ (The Visa Lott-
ery), en á fjárhagsárinu 1994 eða frá 1. október 1993 til 30. septem-
ber 1994 verður 40 þúsund slíkum leyfum úthlutað til borgara 33ja
landa.
Samkvæmt þátttökureglum, sem
Menningaarstofnun Bandaríkjanna
hefur látið frá sér fara eru umsókn-
ir ekki gildar milii ára og því verða
þeir, sem sóttu um í fyrra að sækja
aftur um hafi þeir enn áhuga. Um-
sóknartímabil er frá 2. mars til 31.
mars og skal vélrita eða rita umsókn-
ir með skýrum prentstöfum og senda
á til: AA-1 Program, P.O. Box 1994,
Dulles, VA 20199-1994, U.S.A.
Bandaríska sendiráðið í Reykjavík
veitir frekari upplýsingar um um-
sóknir þessar, en sérstakar reglur
gilda um umsóknarblaðið og hvað
þar á að koma fram. Þetta er í þriðja
skipti sem lukkuleyfi eru veitt.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Litadýrð í Grindavík
Að venju gerðu krakkarnir á leikskólanum í Grindavík sér dagamun á öskudaginn og komu grímu-
klædd í Leikskólann. Búningarnir voru fjölbreyttir og litríkir og þekkja mátti margar sögupersón-
ur sem börnin kannast við.
Annríki á öskudaginn
SAMNINGUR
í SÍÐUSTU viku undirrituðu forráðamenn VÍS og Innkaupastofnunar
samning um að félagið tryggði um eitt þúsund bifreiðar og bifhjól
ríkisins. Á myndinni eru standandi f.v. Örn Gústafsson, framkvæmda-
stjóri hjá VÍS, Jón Þór Gunnarsson, deildarstjóri hjá VÍS, og Guðmund-
ur I. Guðmundsson, skrifstofusljóri hjá Innkaupastofnun. Við borðið
eru f.v. Axel Gíslason, forstjóri VÍS, og Ásgeir Jóhannesson, forsljóri
Innkaupastofnunar.
VIS tryggir um eitt
þúsund ríkisbifreiðar
GENGIÐ hefur verið frá samningi
milli Innkaupastofnunar rikisins
og Vátryggingafélags íslands
(VÍ S) um að félagið annist ábyrgð-
artryggingar bifreiða og bifhjóla
f eigu ríkissjóðs og stofnana hans.
Samningurinn er gerður í fram-
haldi af útboði Innkaupastofnun-
ar fyrir hönd ríkissjóðs.
Yfirmaður
útflutning's-
skrifstofu
Japansí
heimsókn
YFIRMAÐUR útflutnings-
skrifstofu Japans í Osló, sem
skammstafað er JETRO og
er stytting á „Japanese Ext-
ernal Trade Relation Offiee“,
hr. Fumio Inui, er væntanleg-
ur til íslands og skipuleggur
Utflutningsráð heimsókn
hans hingað til lands. Inui
kemur til fslands 28. febrúar
og heldur af landi brott 8.
mars næstkomandi.
Erindi hans hingað til lands
er að ræða við viðskiptaaðila
Japana á íslandi. Hann ætlar
að kynnast hér aðstæðum og
hefur m.a. óskað eftir að skoða
jarðhitaorkuver. Útflutnings-
ráð ætlar og að halda opinn
fund með Fumio Inui miðviku-
daginn 3. mars klukkan 09:30
á skrifstofu Útflutningsráðs,
þar sem fyrirtækjum, sem
áhuga hafa á viðskiptum við
Japan verður boðið að koma
og hlýða á hvað JETRO hefur
upp á að bjóða.
Þetta er í þriðja sinn sem Inn-
kaupastofnun býður út ábyrgðar-
tryggingar ríkisbifreiða og hefur
VIS (áður Samvinnutryggingar)
ávalit fengið samninginn. Fyrsti
samningurinn var undirritaður árið
1985, annar árið 1988 og nú hefur
hann verið undirritaður í þriðja sinn.
Samningurinn er til tveggja ára
með ákvæði um framlengingu til
eins árs, sé honum ekki sagt upp.
Undir hann falla tæplega eitt þúsund
bifreiðar og bifhjól en heildarverð-
mæti samningsins er áætlað um 44
milljónir. Þetta er langstærsti ein-
staki samningur um bifreiðatrygg-
ingar hér á landi, samkvæmt upplýs-
ingum frá VÍS.
BÖRN um allt land gerðu
sér dagamun á öskudag-
inn, klæddu sig í furðu-
föt, sungu fyrir verslun-
areigendur og slógu
köttinn úr tunnunni.
Öskudagurinn hefur orð-
ið að æ stærri viðburði hjá
krökkunum í Eyjum síðustu
ár og hefur þeim sem klæða
sig í ýmsa búninga og
ganga um bæinn fjölgað ár
frá ári. Líklega hafa krakk-
arnir aldrei verið fleiri en á
miðvikudag og þrátt fyrir
kulda og éljaveður létu þau
það ekki aftra sér í að
flakka um bæinn og syngja.
Klukkan þijú var kötturinn
sleginn úr tunnunni á
Stakkagerðistúni en að því
loknu var diskótek í Félags-
heimilinu.
Krakkar á leikskólum
Selfoss hafa það sem fastan
lið að fara á öskudag um
bæinn og syngja fyrir versl-
unarfólk og þiggja að laun-
um góðgæti. Þannig fóru
krakkar af leikskólanum
Ásheimum og sungu fyrir
Guðna bakara og starfsfólk
hans og fengu að launum
kleinuhringsbita sem allir
kunnu vel að meta. Hvar
sem farið var mátti sjá
krakka á ferð klædda í hina
skringilegustu búninga,
hressa I bragði með daginn
og tilbreytinguna.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Eyjakrakkar í furðubúningum
Eyjakrakkar fjölmenntu í bæinn á öskudaginn, klæddir ýmsum
furðubúningum, og sungu í verslunum. Fyrir vikið fengu þó eitt-
hvert smáræði, sælgæti, límmiða eða eitthvað annað og voru allir
ánægðir með sinn hlut.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sælgætisköttur sleginn úr tunnu
Á Selfossi færist það í aukana með hveiju árinu að börn klæðist
furðufötum og mæti til þess að slá köttinn úr tunnunni. Reyndar
er sælgæti í tunnunum sem barðar eru utan og mikill atgangur
þegar því er dreift til viðstaddra.
UNDARLEGT
FRÉTTAMAT
eftir Jón Sæmund
Sigurjónsson
Á baksíðu Morgunblaðsins
fímmtudaginn 25. febrúar sl. gat
að líta flennistóra fyrirsögn þess
efnis að spamaður í lyfjakostnaði
hefði ekki tekist sem skyldi. Stærð
þessarar fyrirsagnar bendir til
þess að hér sé stórfrétt á ferðinni
og er hún af þessu að dæma
metin til jafns við frétt á forsíðu
með jafn stórri fyrirsögn þar sem
aðilar innan EB krefjast innflutn-
ingsbanns á þorski og ýsu. Er nú
Bleik brugðið og ekki bara af
þessum sökum.
Hér á árum áður er Sovétríkin
voru í fullum blóma var jafnaðar-
lega tilkynnt um áætlunartölur
næstu fímm ára áætlunar í bú-
skapnum þar. Þar gat að líta
áform um að skara fram úr
Bandaríkjunum á hinum og þess-
um sviðum að fimm árum liðnum
og var farið með þessar áætlanir
eins og þær væru þegar orðnar
sannar með tilheyrandi hugljómun
íslenskra sósíalista og alþýðu-
bandalagsmanna. Morgunblaðið
gerði óspart grín að þessum til-
burðum sem vonlegt var, enda var
þessi óskhyggja óraunhæf með
öllu og þótti hvergi frétt að hún
gekk aldrei eftir. Eins hefur það
hingað til heldur ekki þótt nein
frétt, þótt mismunandi raunhæfar
áætlunartölur fjárlaga hafi ekki
staðist í gegnum árin.
Það sem er hins vegar frétt,
sem á skilið veglega fyrirsögn á
„Morgunblaðið gerði
óspart grín að þessum
tilburðum sem vonlegt
var, enda var þessi ósk-
hyggja óraunhæf með
öllu og þótti hvergi
frétt að hún gekk aldrei
eftir. Eins hefur það
hingað til heldur ekki
þótt nein frétt, þótt
mismunandi raunhæfar
áætlunartölur fjárlaga
hafi ekki staðist í gegn-
um árin.“
Jón Sæmundur Siguijónsson
útsíðu Morgunblaðsins, er að
kostnaðarþróun í lyfjaútgjöldum
hefur verið snúið um tvö ár aftur
í tímann. Með aðgerðum heilbrigð-
isráðuneytisins hefur þjóðarbúinu
verið spöruð útgjöld á þessu sviði
sem nemur rúmum einum millj-
arða króna. Einungis um 200-300
milljónir króna af þessum sparn-
aði er hægt að skýra með aukinni
kostnaðarhlutdeild sjúklinga. Ef