Morgunblaðið - 21.04.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1993
Töluvert tjón varð af völdum elds á húsi á Bergstaðastræti
Grunur um íkveikju
ELDUR kom upp í tvílyftu
timburhúsi á Bergstaða-
stræti 46 um kl. 18.30 í gær-
kvöldi. Tveir íbúar eru í hús-
inu, mæðgin, en þau voru
hvorugt heima þegar eldur-
inn kom upp. Talið er að
upptök eldsins hafi verið í
viðbyggingu og læsti hann
sig í efri hæð hússins. Ekki
er útilokað að um íkveikju
hafi verið að ræða.
Kristín Ásmundsdóttir býr ein á
neðri hæð hússins og er húsið í henn-
ar eign. „Það voru engir íbúar í hús-
inu þegar eldurinn kom upp en sonur
minn hefur verið uppi á lofti. Ég var
sjálf í heimsókn hjá bróður mínum
vestur á elliheimili þegar eldurinn
kom upp. Þegar ég kom hingað fann
ég stæka lykt og fór út að skúmum
en sá þá engan reyk og engan reyk
inni í húsinu. Ég fór inn í húsið og
vissi ekki fyrr en mér var sagt frá
því að eldur logaði í skúmum. Það
hlýtur að hafa verið kveikt í skúm-
um,“ sagði Kristín.
Reykjarmökkur Morgunbiaðið/RAx
MIKINN reyk lagði um nærliggjandi götur frá eldsvoðanum, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum
Ætlaði að laga skúrinn
eldsins á um einni klukkustund.
Kristín hefur búið í húsinu í 20
ár, en hún ber út Morgunblaðið í
hverfinu. Hún var stödd inni í húsinu
þegar kviknaði í þessari sömu við-
byggingu síðastliðið haust, en þá
kviknaði í út frá rafmagni, og hafði
hún nýlega fengið greiðslu frá trygg-
ingafélaginu til að byggja skúrinn
upp að nýju.
„Ég er viss um að það hefur verið
kveikt í. Það er hægt að komast
þama inn þvi skúrinn var opinn.“
Ekkert rafmagn á skúrnum
Stefán Þorbergsson, sonur Krist-
ínar, býr á efri hæð hússins. Hann
var að koma heim úr vinnu þegar
hann varð var við að reyk lagði frá
heimili hans. „Mér dauðbrá náttúr-
lega þegar ég kom hingað. Ekki síst
vegna þess að það kviknaði líka í
skúmum síðastliðið haust. Mér skilst
að slökkviliðsmenn hafí brotið
gluggann á gaflinum, en ég veit
ekki hve miklar skemmdir em á
húsinu," sagði Stefán.
Ragnar Sólonsson, aðalvarðstjóri
hjá Slökkviliðinu, sagði að það hefði
skíðlogað þegar slökkvilið kom á
staðinn. Eldsupptök hefðu verið í
viðbyggingunni og eldurinn átt
greiða leið upp í risið. Miðhæðin
væri einnig skemmd, bæði af völdum
elds og bleytu. Hann sagði að hugs-
anlega væri um íkveikju að ræða því
sl. haust hefði rafmagn verið tekið
af skúrbyggingunni og þar átti ekk-
ert rafmagn að vera núna. Slökkvi-
starfí var lokið laust eftir kl. 19.30
en vakt var við húsið fram eftir
kvöldi.
|i / • • Morgunblaðið/Sverrir
Ibuinn og mnbuið
KRISTÍN Ásmundsdóttir blaðburðakona stendur við hluta af innbúi
sínu sem borið var út úr íbúð hennar. Kristín var ekki heima þegar
eldurinn kom upp.
Um 75 milljóna króna
tap hjá Skagstrendingi
HEILDARTAP Skagstrendings hf. á sl. ári nam alls um 75
milljónum króna samanborið við 29,6 milljóna hagnað árið
áður. Reksturinn var mun erfiðari en árið áður og einnig
sala afurða. Þannig drógust rekstrartekjur saman að raun-
gildi um 15,1% milli ára en veruleg aflaminnkun á sóknarein-
ingu varð annað árið í röð.
Afurðaverð fór lækkandi síðari
hluta ársins jafnframt því sem geng-
isþróun var óhagstæð. Lækkaði
gengi sterlingspunds um 6,9% á ár-
inu en um 59,9% af afurðunum fóru
til Englands miðað við verðmæti. Þá
minnkaði kvóti fyrirtækisins úr um
7.700 tonnum af þorskígildum í um
6.800 tonn við úthlutun á aflakvóta.
Heildarafli togara félagsins á sl. ári
var alls 6.537 tonn að verðmæti um
635 milljónir. Á árinu 1991 var afli
alls 7.708 tonn að verðmæti 794
milljónir. Af heildaraflanum voru
3.054 tonn þorskur eða 46,7% og
1.237 tonn grálúða eða 18,9%. Sam-
tals var framleiðsla sjófrystra afurða
2.374 tonn samanborið við 2.878
tonn árið áður.
Heildareignir félagsins f árslok
voru bókfærðar á 2.044 milljónir og
var eigið fé um 578 milljónir þannig
að eiginfjárhlutfall var 28,3%. Fyrir-
tækið fjárfesti í nýjum frystitogara,
Amari HU-1 á sl. ári og nemur
smíðaverð skipsins rúmum einum
milljarði króna. Þá festi fýrirtækið
kaup á framtíðarkvóta fyrir alls tæp-
lega 139 milljónir. Á aðalfundi Skag-
strendings sem haldinn verður nk.
þriðjudag verður lögð fram tillaga
um að greiddur verði 6% arður af
hlutafé.
í dag
Yfir Grænlandsjökul___________
Þrír íslendingar í 30 daga skíða-
göngu 20
Forsetar komu viö_____________
Aðgerðir árí of seint - Gætum náð
Vesturlöndum 21
Ásakanir á hendur forstjórum
Volvo _______________________
Sömdu sín í miili um gífurieg laun
ogkunna örlögPehrs Gyilenhamm-
ars að ráðast í dag 23
Leiðari
ítalir hafna „ítölsku ástandi“ 24
Fasteignir
► Stúdentabær - Sjávarlóð á
Arnamesi - Markaðurinn -
Vöruvottun á húsgögn og inn-
réttingar
Serblad UM SiÁVARÚTVFC
■viiyii-i/miftxfmi —JtcTn jrf'irh'Bi .IIII..I—flttíL
Úr verinu
► Verðfall á saltfiski - Afkoma
útgerðar með versta móti - Skotr
ar vilja ekki kvótakerfi - Frekari
Qárfestingar í skipum borga sig
ekki - Bretar þurfa Rússafiskinn
Myndasögur
► Svör við þrautum - Fyrsti
sumardagur - Lumar þú á
sögu? - Drátthagi blýantur-
inn - Hvað vantar?
Tillögii imi
rannsókn-
amefnd
vísað frá
TILLÖGU stjórnarandstöð-
unnar um skipun sérstakrar
þingnefndar til að kanna fjár-
hagstengsl og forsendur fyrir
ráðningu Hrafns Gunnlaugs-
sonar var vísað frá við at-
kvæðagreiðslu á Alþingi í
gær með 33 atkvæðum stjórn-
arliða gegn 25 atkvæðum
sljórnarandstæðinga.
Þegar úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar lágu fyrir lýstu nokkrir þingmenn
sljómarandstöðunnar yfir að skoða
bæri hvort meirihluti væri fyrir því
að þingnefndir ákvæðu að eigin
frumkvæði að fjalla um þetta mál.
„Ég hef ekki orðið var við að þing-
menn Alþýðuflokksins leggist gegn
því að fjárlaganefnd taki upp málið
eins og þingsköp gera ráð fynr.
Ekki hvað síst til að gefa þeim ein-
staklingi, sem orðið hefur fyrir hvað
hörðustum ásökunum, tækifæri til
að rétta sinn hlut,“ sagði Össur
Skarphéðinsson formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins í samtali við
Morgunblaðið.
Gunnlaugur Stefánsson, þing-
maður Alþýðuflokks í fjárlaga-
nefnd, sagði á Alþingi í gær að
eðlilegt væri að Alþingi ætti aðild
að úttekt Ríkisendurskoðunar á
fjárhagslegum tengslum fram-
kvæmdastjóra Sjónvarps við stofn-
unina og sagðist styðja að slík at-
hugun færi fram í ljárlaganefnd.
Össur segist styðja afstöðu Gunn-
laugs fullkomlega og hann hafí
ekki orðið var við að aðrir þing-
menn Alþýðuflokksins leggist gegn
því að fjárlaganefnd taki málið upp.
í fjarvinnslu
SVERRIR Ólafsson rafmagns-
verkfræðingur.
Forritar
fyrirRock-
well í fjar-
vinnslu
SVERRIR Ólafsson rafmagns-
verkfræðingur starfar við
rannsóknardeild örtölvudeild-
ar Rockwell International
Corp. í Suður-Kaliforníu í
Bandaríkjunum. Hann hefur
hins vegar aðsetur á skrif-
stofu í Tæknigarði Háskóla
íslands og vinnur þar alla sína
vinnu í fjarvinnslu.
Tildrög þessa fyrirkomulags eru
þau að Sverrir hóf störf hjá Rock-
well eftir nám í Kaliforníu á árunum
1982-86 og þegar hann flutti til ís-
lands 1987 lögðu yfirmenn hans það
til að hann ynni áfram á íslandi við
þau verkefni sem hann hafði með
höndum.
Sverrir er í daglegu sambandi við
deildina sem hann starfar í og segir
hann að bréfsíminn sé nauðsynlegur
til að senda riss og teikningar en
að auki fer hann utan til funda á
2-3 mánaða fresti.
Sjá bls. 20 „Markaðsmálin
lykil atriði...“
I
P
»
i
fe
I
I