Morgunblaðið - 21.04.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
Tillaga um lán til viðhalds
á félagslegu húsnæði
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur að undanförnu látið
fara yfir reynsluna af félagslega íbúðalánakerfinu. Er
greinargerðar að vænta innan fárra daga en þar er m.a.
lagt til að opnað verði fyrir lánveitingar Húsnæðisstofnun-
ar til meiriháttar viðhalds á félagslegu íbúðarhúsnæði.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- kæmi fram fyrr en næsta haust.
ráðherra greindi frá þessu á Al- Jóhanna sagði að áður en lána-
þingi í gær en kvaðst ekki eiga von flokkurinn yrði opnaður þyrfti að
á að lagafrumvarp um þá breytingu liggja fyrir kostnaðarathugun og
Thomas Möller til Olís
THOMAS Möller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Olís. Starfið felur í sér stjórnun á tæknilegri
hlið rekstrar félagsins.
Thomas er 39 ára gamall rekstar-
verkfræðingur. Hann lauk rekstrar-
verkfræðiprófi frá Tækniháskólan-
um í Vestur-Berlín og hefur starfað
hjá Eimskip sl. 12 ár. Síðastliðin 4
ár hefur hann verið forstöðumaður
rekstrardeildar Eimskips. Thomas
hefur jafnframt haft umsjón með
stjórnunarnámskeiðum hjá Stjórn-
unarfélagi íslands um nokkura ára
skeið. Thomas er kvæntur Bryndísi
M. Tómasdóttur og eiga þau þtjú
börn. Hann mun hefja störf hjá
Olís innan skamms.
hvernig ætti að fjármagna slík lán.
Félagsmálaráðherra sagði einnig
að félagsmálaráðuneytið, við-
skiptaráðuneytið og fjármálaráðu-
neytið hefðu nú til skoðunar hvort
hægt sé að 'grípa til sérstakrar
aðstoðar við þá sem eiga í miklpm
greiðsluerfiðleikum vegna hús-
næðiskaupa.
Félagsmálanefnd afgreiðir
húsnæðisfrumvarp
Ummæli ráðherra komu fram í
svari við fyrirspurn frá Jóni Krist-
jánssyni Framsóknarflokki sem
benti á að félagsmálanefnd þings-
ins hefði afgreitt frumvarp félags-
málaráðherra um húsnæðismál út
úr nefndinni í gærmorgun. Þar
hefði nefndin ekki tekið til greina
ábendingar frá Húsnæðismála-
stjórn um að taka upp lán til meiri-
háttar viðhalds félagslegra íbúða.
Harmaði þingmaðurinn að ekki
stæði til að grípa til aðgerða í þess-
um málum fyrir þinglok í vor.
VEÐURHORFUR I DAG, 21. APRIL
YFIRLIT: Milli fslands og írlands er allvíðáttumikið 988 mb lægðarsvæði
sem hreyfist norðaustur. Yfir sunnanverðu Grænlandshafi er 1000 mb
lægð sem hreyfist austur. Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1018 mb hæð
sem fer minnkandi.
SPÁ: Norðaustanátt, víða kaldi. Léttskýjað og 6-9 stiga hiti yfir hádag-
inn sunnan- og vestanlands, en dálitil él og hiti nálægt frostmarki við
norðausturströndina og á annesjum norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG, SUMARDAGINN FYRSTA: Austlæg átt.
Dálítil rigning eða slydduél á Suðaustur- og Austurlandi. Úrkomulaust
og jafnvel bjart veður um landið vestanvert. Hiti rétt ofan við frostmark
á Norðausturlandi, en annars 3-6 stig að deginum.
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðaustan strekkingur með
slydduéljum um landið norðanvert, en bjartviðri syðra. Hiti 1-7 stig,
svalast við norðurströndina.
Nýir veöurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.4S, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsimi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o -a ■ö & Q Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjööur er 2 vindstig..
r r r * r * * * * • * 10° Hitastig
r r r r r * r r * r * * * * * V V V v Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrír Slydduél Él = Þoka '
FÆRÐÁ VEGUM: iki. 17.30 rgær)
Vegir á landinu er víðast greiðfærir. Steingrímsfjarðarheiði er þó þung-
fær og búist við að hún geti orðið ófær með kvöldinu. Austanlands er
ófært á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði en Breið-
dalsheiði er jeppafær. Víða eru í gildi öxulþungatakmarkanir vegna aur-
bleytu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni linu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti voður
Akureyri 3 rigning og súld
Reykjavfk 6 léttskýjað
Bergen 7 rigning
Helslnki 2 heiðsklrt
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk +1 snjókoma
Osló 6 alskýjað
Stokkhólmur 3 hálfskýjað
Þórshöfn 7 súld
Algarve 18 þokumóða
Amsterdam vantar
Barcelona 14 þokumóða
Berlín 12 skýjað
Chicago 3 rigning
Feneyjar 15 þokumóða
Frankfurt 21 íéttskýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 14 hciðskirt
London 17 léttskýjað
LosAngeles 23 léttskýjað
Lúxemborg 1B léttskýjað
Madrtd 22 skýjað
Melaga 17 mistur
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal 0 rlgning
NewYork 18 skýjað
Orlando 26 léttskýjað
Parfs 23 skýjað
Madeira 17 skýjað
Róm 14 léttskýjað
Vín 12 iéttskýjað
Washington 24 atskýjað
Winnipeg 9 léttskýjað
Sjö fjölbýlis-
húsalóðum
úthlutað
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
gefa Ármannsfelli hf. kost á fimm
lóðum undir fjölbýlishús og Mót-
ási hf. kost á tveimur lóðum undir
fjölbýlishús í Rimahverfi í Borgar-
holti I.
Þijár af lóðum Ármannsfells hf.
eru við Hrísarima og er þar gert ráð
fyrir 33 íbúðum. Tvær lóðir eru við
Rósarima og þar er gert ráð fyrir
25 íbúðum. Lóðir Mótáss hf. eru við
Mosarima og er þar gert ráð fyrir
35 íbúðum í tveimur ijölbýlishúsum.
Nýjar lóðir fyrir
um 200 íbúðir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að heimila útboð á gatna-
gerð við Hrísarima, Runnarima, Mosarima og Laufrima í
Borgarholti I. Þar yrðu þá byggingarhæfar Ióðir fyrir um
200 íbúðir auk íbúða sem þar
kvæmt skipulagi.
í erindi Stefáns Hermannssonar
borgarverkfræðings segir að við
gerð fjárhagsáætlunar hafi komið
fram að unnt sé að gera byggingar-
hæfar lóðir undir fjölbýlishús í
eru ætlaðar stúdentum sam-
Rimahverfí með tiltölulega litlum
aukafjárveitingum. Engin fjölbýlis-
húsalóð er laus en eftirspurn það
mikil að lagt er til að heimilað verði
að bjóða út gatnagerðina.
Forstjórí Lánasjóðs V-Norðurlanda um Óðin hf.
Ekkert vilyrði gefíð
fyrir lánveitingu
STEINAR B. Jakobsson, forstjóri hjá Lánasjóði Vestur-Norðurlanda,
segir að sjóðurinn hafi ekki veitt flugfélaginu Óðni hf. vilyrði fyrir
láni til kaupa á flugvélum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Að
sögn Steinars liggur fyrir lánsumsókn frá félaginu sem hefur ekki
enn verið lögð fyrir sljórn sjóðsins og enga afgreiðslu hlotið. Sigurð-
ur I. Halldórsson, lögmaður flugfélagsins, segir að það hafi fengið
vilyrði frá sjóðnum, sem sé ein meginforsendan fyrir tjárhagslegri
endurskipulagningu félagsins í tengslum við umsókn þess um flug-
rekstrarleyfi.
Lánsfjárhæðin sem um ræðir
nemur um 20 milljónum króna.
Fulltrúar Óðins hf. hafa haldið því
fram í erindum til Flugmálastjórnar
vegna flugrekstrarumsóknar að eitt
af skilyrðum sem fylgi vilyrði Lána-
sjóðs Vestur-Norðurlanda sé að
Helgi Jónsson og'kona hans Jytte-
M. Jónsson fái bú sitt aftur til
fijálsrar ráðstöfunar. Steinar neit-
aði þessu og sagði alveg fráleitt að
sjóðurinn setji slík skilyrði.
Sigurður sagði að það leiddi af
þessari lausn málsins að þau hjónin
fengju bú sitt aftur til fijálsrar ráð-
stöfunar þar sem þessi atriði væru
öll samtvinnuð. Eitt meginatriði
málsins væri að samningar tækjust
við danska bankann Bikuben um
kaup á fjórum flugvélum sem Helgi
notaði í flugrekstri sínum og voru
í eigu fyrirtækisins J. M. Aviation
sem nú er gjaldþrota.
Innbrot á heimili samgönguráðherra upplýst
Mikið af þýfí fannst
í íbúð í Breiðholti
LÖGREGLAN í Breiðholti og Rannsóknarlögregla ríkisins handtóku
í gærmorgun sex ungmenni, 14 til 20 ára gömul, í húsi við Suðurhóla
í Breiðholti og lögðu þar hald á mikið af ýmiss konar þýfi, þar á
meðal seðlaveski með greiðslukortum Halldórs Blöndals, samgöngu-
og landbúnaðarráðherra, sem stolið var í innbroti á heimili ráðherr-
ans nýlega. Flest hafa ungmennin margsinnis komið við sögu lögreglu.
Örbylgjuofn sem stolið var á heim-
ili ráðherrans fannst einnig í gær-
morgun í bíl sem þrír piltar, þar á
meðal einn sem handtekinn var í
Suðurhólum, veltu við Selásskóla í
gærmorgun. Sá bíll var þá eftirlýst-
ur meðal lögreglumanna eftir að lög-
reglu í Breiðholti höfðu borist vís-
bendingar um að piltar á þeim bíl
væru að reyna að selja örbylgjuofn
og geislaspilara.
Ekki hafðist upp á bílnum fyrr en
í gærmorgun þegar honum var velt
við Selásskóla. Þá voru í honum
þrír piltar, einn hljóp á brott en hin-
ir voru handteknir á staðnum. Annar
þeirra, sem er tæpra 16 ára, hefur
margsinnis komið við sögu lögreglu
fyrir ýmiss konar afbrot. Hinn er
tvítugur. Þeir voru ölvaðir og í bil
þeirra fannst margskonar góss, þar
á meðal örbylgjuofn Halldórs Blön-
dals.
Skömmu síðar fór lögreglan í
Breiðholti ásamt manni frá RLR í
húsleit í íbúð við Suðurhóla vegna
gruns um að þar væru bækistöðvar
þjófaflokks. Þar voru handtekin sex
ungmenni, þar á meðal 14 ára stúlka
og pilturinn sem hlaupist hafði á
brott frá bílveltunni. í íbúðinni fund-
ust geislaspilarar og hljómtæki,
sjónvörp og myndbandstæki, m.a.
tæki sem stolið var úr innbroti í hús
í Fossvogi nýlega. Þá fundust þarna
tvö seðlaveski með greiðslukortum
sem stolið hafði verið í innbrotuifí,
þar á meðal í innbrotinu á heimili
Halldórs Blöndals.