Morgunblaðið - 21.04.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
5
Vöxtum
ekki breytt
BANKAR og sparisjóðir breyta
ekki vöxtum í dag. Bankamenn
sem rætt var við sögðu að eng-
ar breytingar hefðu orðið á
forsendum vaxtaákvarðana
frá síðustu vaxtabreytingum,
m.a. vegna þess að kjarasamn-
ingar væru ekki í höfn.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið,
þegar vaxtaákvarðanir bankanna í
bytjun mánaðarins lágu fyrir, að
búast mætti við frekari lækkun síðar
í mánuðinum. Stefán Pálsson banka-
stjóri Búnaðarbankans sagði að
bankinn ætlaði að doka við að þessu
sinni, meðal annars eftir nýrri lán-
skjaravísitölu. Hann sagði að ekki
væri hægt að breyta miklu, aðstæður
væru svipaðar og verið hefði, meðal
annars vegna þess að kjarasamning-
ar hefðu ekki náðst. Aðrir banka-
menn töluðu á svipuðum nótum.
Lánskjara-
vísitalan
óbreytt
Lánskjaravísitala 3.278
gildir fyrir maímánuð og
er hún óbreytt frá fyrra
mánuði að því er fram kem-
ur í útreikingum Seðla-
banka íslands. Umreiknað
til eins árs hefur lánskjara-
vísitalan hækkað um 1,9%
síðustu þijá mánuði, 2,5%
síðustu sex mánuði og 2,3%
síðasta ár.
Vístala byggingarkostnaðar
lækkar um 0,6% frá síðasta
mánuði vegna niðurfellingar á
vörugjaldi á steypu, sementi,
gleri og fleiri byggingarvörum
og gildir vísitalan 189,8 fyrir
maímánuð. Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitalan hækkað um
1,3% og gildir sama vísitalan
fyrir maí og gilti fyrir febrúar.
Hækkunin síðustu sex mánuði
umreiknað til árshækkunar er
0,7%.
» ♦ ♦-
Sinubruni
FRÁ slökkvistarfinu við Sjúkrahús Suðurlands, en þar var þykk sina sem var mikill eldsmatur.
Eldur í sinu
við sjúkrahús
Selfossi.
KVEIKT var í sinu norðan við Sjúkra-
hús Suðurlands um tvöleytið í gær og
mikill reykur barst yfir sjúkrahúsið.
Eldvarnakerfi þess fór í gang og mikil
reykjarlykt var í húsinu. Ekki þurfti þó
að gera ráðstafanir vegna sjúklinga.
Slökkviliðið var kvatt á vettvang og slökkti
það eldinn með aðstoð manna úr næsta ná-
grenni. Mjög þykk sina var á svæðinu sem brann
og því mikill eldsmatur. Þar var einnig nokkur
tijárækt sem starfsfólk sjúkrahússins hefur stað-
ið fyrir.
Lögreglan gómaði fullorðinn mann sem var
valdur að brunanum en hann hafði kastað frá
sér vindlingi á göngu um svæðið, sem var mjög
þurrt, og ekki gætt að sér. Sig. Jóns.
Oljóst um
framhald
samninga
ENNÞÁ er óljóst með fram-
hald viðræðna um gerð nýrra
kjarasamninga eftir að samn-
inganefnd Alþýðusambands Is-
lands hafnaði því að yfirlýsing
ríkissljórnarinnar gæti orðið
grundvöllur að gerð kjara-
samninga til langs tíma aðfara-
nótt föstudagsins var.
Sjö manna samninganefnd Al-
þýðusambandsins kom saman í gær
og fór yfir stöðu mála. Benedikt
Davíðsson, forseti ASI, sagði að eng-
in niðurstaða hefði orðið á fundinum
enda ekki að því stefnt. Verið væri
að kanna afstöðu félaga og sam-
banda vítt og breitt um landið og
þau væru að berast. Fundir hefðu
verið um helgina og í gær og fleiri
fundir væru ráðgerðir í dag og af-
staða til framhalds viðræðna yrði
mótuð í ljósi þess sem fram kæmi.
„Við látum okkur ekkert liggja á,“
sagði Benedikt. Hann sagði að sjö
manna nefndin myndi hittast aftur
í dag.
Krían komin
KRÍAN sást á Höfn í Hornafirði
í byrjun vikunnar og er hún óvenju
snemma á ferðinni í ár.
Það var Björn Arnarson sjómaður,
sem sá tvær kríur á flugi yfir Ósland-
inu á mánudagsmorgun. „Ég held
að þetta sé það alfyrsta sem sést
hefur til hennar,“ sagði hann, en í
fyrra sást fyrst til hennar 26. apríl.
,Ég sé milljón
möguleikaá
vínníngi
í^íkingalottói
í kvöld!
66
,Náðu þér í Víkingalottóseðil og
framvísaðu honum á næsta
sölustað íslenskrar getspár
fyrirkl. 16ídag!
Röðin kostar aðeins 20 krónur."