Morgunblaðið - 21.04.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
7
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Morgunblaðsskeifan
SKEIFAN sem keppt verður
um á bændaskólunum á
fimmtudag og laugardag.
Skeifudagar í
bændaskólunum
Tilvísunarkerfi sem aðferð til stýringar í heilbrigðiskerfinu
Sjúklingsgjald tíl sérfræð-
ings lækki með tilvísun
NEFND sem heilbrigðis- og tryggingaráðherra skipaði í febrúar
sl. til að gera tillögur um hvernig haga megi framkvæmd, kjósi
ráðherra að nýta lagaheimild um tilvísanir til sérfræðinga, telur
að unnt yerði að fækka komum verulega til sérfræðinga með til-
vísunarkerfi, koma í veg fyrir margföldun sömu rannsókna og
spara í útgjöldum hins opinbera. Nefndin hafnar þó tilvísunar-
skyldu en leggur til að einstaklingar sem heimilislæknar telja að
þurfi sérstaklega á sérfræðiþjónustu að halda njóti þess í lægri
sjúklingagjöldum en hinir sem kjósa að leita beint til sérfræðings.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- verði á tiliögum nefndarinnar taki
isráðherra kynnt málið fyrir ríkis- gildi í fyrsta lagi í júní eða júlí nk.
stjórninni í gær. Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðu- Nefndin telur eðlilegt að fyrstu
neytinu, telur að reglur sem byggðar samskipti einstaklinga við heilbrigð-
isþjónustuna séu að jafnaði hjá heim-
ilislækni. Hún leggur til að sérfræð-
ingi sem fær sjúkling til rannsóknar
eða meðferðar með tilvísun verði
heimilt að ráðfæra sig við einn annan
sérfræðing eða njóta aðstoðar hans
án þess að til komi ný tilvísun frá
heimilislækni. Tilgangur tillagnanna
er að hvetja almenning til að leita
fyrst til heilsugæslulækna fremur en
að leita beint til sérfræðinga. Nefnd-
in leggur til að tillögur þessar verði
kynntar læknafélögunum og Trygg-
ingastofnun ríkisins og framkvæmd
þeirra verði vandlega undirbúin og
1237 undirskriftir gegn
kynnt almenningi áður en reglurnar
taki gildi. Nefndin gerir hins vegar
ekki tillögur um hversu mikið eigi
að lækka sjúklingsgjald þeirra sjúkl-
inga sem leita sérfræðings sam-
kvæmt tilvísun.
Komum fækkað
Um síðustu áramót hækkuðu
greiðslur einstaklinga við komur til
sérfræðinga um allt að 50%, og að
sögn Páls hefur komum til sérfræð-
inga fækkað verulega. Páll segir að
um 400 sérfræðingar séu starfandi
samkvæmt samningi við Trygginga-
stofnun, sem er meiri fjöldi en tíðk-
ist í öðrum löndum. Kostnaður í heil-
brigðiskerfmu hafi hvergi vaxið jafn-
mikið og í sérfræðiþjónustunni.
Ekki gert ráð fyrir hækkun
Hvanneyri
á morgun
— Hólar á
laugardag
KEPPT verður um Morgun-
blaðsskeifuna á Hvanneyri á
sumardaginn fyrsta, næst-
komandi fimmtudag, og á
Hólum á laugardag. Skeifu-
dagurinn á Hvanneyri verð-
ur með hefðbundnum hætti,
þ.e. gæðingakeppni unglinga
og fullorðinna íbúa í Anda-
kilshreppi.
Eftir hádegið fer hópreið frá
kirkjunni á Hvanneyri að váll-
arsvæðinu og að því loknu hefst
sjálf skeifukeppnin, þar sem
nemendur keppa um Morgun-
blaðsskeifuna. Verðlaunaaf-
hending fer fram í matsalnum,
þar sem bornar verða fram
kaffiveitingar í boði skólans.
Á Hólum fer keppnin í gang-
skiptingum fram fyrir hádegi
á laugardag, en eftir hádegið
verða nemendur með sýningu
fyrir gesti skeifudagsins.
Gangskiptingaverkefnið er
jafnframt lokaþátturinn í prófi
nemenda í hestamennsku og
hlýtur sá er efstur verður
Morgunblaðsskeifuna.
stjómsýsluhúsi á Akranesi
SÍÐUSTU vikur hefur farið fram
undirskriftasöfnun meðal Akur-
nesinga til að mótmæla auglýstri
breytingu á skipulagi bæjarins
vegna væntanlegs sljórnsýsluhúss
en athugasemdir þar um bar að
gera fyrir 16. apríl 1993. Undir-
skriftasöfnun hefur farið fram
undir kjörorðunum: „Byggjum
ráðhús með reisn!“ og hefur hóp-
ur áhugafólks um málið beitt sér
fyrir henni, segir í frétt frá
áhugahópi um byggingu ráðhúss
á Akranesi.
Markmið undirskriftasöfnunar-
innar er að hvetja bæjaryfirvöld og
Sjópróf verða
vegna slysanna
við Akranes
SJÓSLYSANEFND hefur ákveð-
ið að fara fram á sjópróf vegna
sjóslysanna við Akranes 17. mars
síðastliðinn þegar tvær trillur
fórust við innsiglinguna og þrír
menn fórust.
Að sögn Ragnhildar Hjaltadótt-
ur, formanns nefndarinnar, er rann-
sókn slysanna ekki lokið af hálfu
rannsóknarlögreglunnar eða heima-
manna. Gerði hún ráð fyrir að sjó-
próf færu fram næstu daga.
ríkisvaldið til að hverfa frá núver-
andi áformum en halda í þess stað
fast við fyrri stefnu um framtíðar-
ráðhús bæjar og ríkis á fyrirhuguðu
miðbæjarsvæði í samræmi við gild-
andi aðalskipulag og ályktun bæjar-
stjórnar Akraness frá árinu 1982 í
tilefni 40 ára afmælis bæjarins.
1.237 Akurnesingar hafa ritað
undir áskorun þá, sem um er að
ræða, og eru undirskriftirnar á 86
tölusettum listum, sem afhentir voru
bæjarstjóra til viðeigandi meðferðar
hjá bæjarstjórn Akraness og skipu-
Iagsyfirvöldum.
Fjárhagsáætlun Tryggingastofn-
unar verður höfð til hliðsjónar við
lækkun sjúkragjalda þeirra sem
heimilislæknar vísa til sérfræðings,
en að sögn Matthíasar Halldórssonar
aðstoðarlandlæknis og eins af nefnd-
armönnunum, er ekki ráðgert að
sjúkragjöld þeirra sem leita sérfræð-
ings án tilvísunar hækki. 011 rök
hnígi að því að sparnaði megi ná
með færri komum til sérfræðinga og
með því að koma í veg fyrir marg-
földun sömu rannsókna.
Attahundruð hross
tamin á 30 árum
„Opið hesthús“ í tilefni tímamótanna
UM ÞESSAR mundir er tamn-
ingastöðin á Hrafnkelsstöðum í
Hrunamannahreppi að ljúka
þrítugasta starfsvetri. Stöðina
hafa rekið hjónin Jóhanna Ing-
ólfsdóttir og Haraldur Sveins-
son en hún mun vera sú elsta á
landinu.
Þau hjón hafa haldið ýtarlega
skrá yfir hrossin sem komið hafa
á stöðina og samkvæmt henni
hafa þau tekið yfir 800 hross til
tamningar á þessum árum. Á
seinni árum hafa þau Haraldur
og Jóhanna ráðið aðstoðarfólk við
tamningamar auk þess sem verk-
nemar frá Bændaskólanum á
Hvanneyri hafa verið hjá þeim í
verknámi. Síðastliðin fímm ár hef-
ur Lilja Loftsdóttir frá Steinsholti
unnið með þeim á stöðinni.
í tilefni afmælisins ætla Harald-
ur og Jóhanna að gera sér og
öðrum dagamun og hafa „Opið
hesthús“ næstkomandi laugardag
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Við tamningar í 30 ár
JÓHANNA og Haraldur í ný-
legu hesthúsi þar sem starf-
semin hefur verið rekin síð-
ustu árin.
og vonast þau til að vinir, velunn-
arar og viðskiptavinir á liðnum
ámm sjái sér fært að líta inn og
fá sér hressingu. - V.K.
sem þeir seqja unTTTndann?
œ
<
Z
*
-o
«/i
z
z
<
ec
oi
<
-j
•<
IA
ac
<
O
•O
LADDI & VINIR
iAiRiRiiMyiiyiw umi m on>.~ ^
pegar a&nr fora ab sofa
Þórhallur „Laddi" Sigurðsson gysmeistari
Hjálmar Hjálmarsson spaugsmiður og
Haraldur „Halli" Sigurðsson spévirki
gera látta úttekt á mannlífinu og
líl
Haukur Hauksson flytur ekki fréttir af
gangi mála ®BÚV
Leikstjóm Bjöm G.Björnsson
Björgvin Halldórsson og hljómsveit
könnuninni
MRTSEOILL
FORRÉTTIR
Freyðandi humarsúpa
eða
Ferskar laxavefjur, fylltar kryddjurta- og valhnetufrauði
AÐALRÉTT/R
Ofnsteiktur lambahryggsvöðvi, gljáður rabarbaracompot
framreiddur með nýjum garðávöxtum
eða
Hœgsteiktur grísahryggur með eplum, smálauk og
hvítvínssósu
eða
Grœnmetisréttur
EFTIRRÉTT/R
Grand Marnier ís með ávöxtum og rjóma
eða
Svartaskógarterta með kirsuberjasósu
Sártilboð á gistingu
-lofar góðu!