Morgunblaðið - 21.04.1993, Blaðsíða 10
10
.MjORGUJjJBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR, 21. APRÍL 1993
Skagfirska söngsveit-
in í Lang’holtskirkju
Á morgun, sumardaginn fyrsta,
22. apríl kl. 17.00 heldur Skag-
firska söngsveitin tónleika í
Langholtskirkju. Tónleikarnir
verða endurteknir næstkomandi
laugardag, 24. apríl, á sama tíma.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Sigrón Hjálmtýsdóttir, Óskar
Pétursson, Guðmundur Sigurðs-
Tónlistarfélag
Borgarfjarðar
Tónleikar til
heiðurs Þórði
Á SUMARDAGINN fyrsta 22.
apríl klukkan 21 verða tónleikar
í Borgarneskirkju og laugardag-
inn 24. apríl klukkan 16 í Bú-
staðakirkju í Reykjavík til heið-
urs Þórði Kristleifssyni í tilefni
hundrað ára afmælis.
Á tónleikunum verða meðal ann-
ars flutt lög sem Þórður hefur þýtt
eða frumort texta við. Fram koma:
Theódóra Þorsteinsdóttir, sópran,
Kveldúlfakórinn í Borgarnesi,
stjórnandi Ingibjörg Þorsteinsdótt-
ir, Karlakórinn Söngbræður, stjórn-
andi Sigurður Guðmundsson.
son, Fríður Sigurðardóttir og
Sigurður S. Steingrímsson. Sig-
urður Marteinsson leikur undir
á píanó en stjórnandi er Björgvin
Þ. Valdimarsson.
Á efnisskrá þessara vortónleika
eru m.a. sönglög eftir íslensk tón-
skáld frá ýmsum tímum eins og
Pál ísólfsson, Sigfús Einarsson,
Atla Heimi Sveinsson, Jóhann Ó.
Haraldsson og Björgvin Þ. Valdi-
marsson, og verk eftir erlend tón-
skáld, sem sum hver eru fengin úr
óperum; Johann Strauss, Carl Zell-
er, Giuseppi Verdi og Hándel, svo
að einhver séu nefnd.
Starfsemi Skagfirsku söngsveit-
arinnar hefur verið með miklum
blóma í vetur. í nóvember voru
haldnir tónleikar í Hveragerði og í
Njarðvík við góðar undirtektir. Um
miðjan desember voru haldnir jóla-
tónleikar í Langholtskirkju með
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í
Reykjavík og var ágóðinn af þeim
tónleikum látinn renna í orgelsjóð
en kirkjan er að safna fvrir slíku
hljóðfæri. Félagslíf söngsveitarinn-
ar er með ágætum, á hveiju ári er
haldið þorrablót, styrktarfélaga-
samkomur og lokafagnaður. Fjár-
öflun er öflug og virk, m.a. með
sölu veitinga í Kolaportinu.
Fréttatilkynning
Sumardag'sgleði á
afmæli Gerðubergs
Á SUMARDAGINN fyrsta, 22.
apríl klukkan 13, heldur Menn-
ingarmiðstöðin Gerðuberg upp
á 10 ára afmæli sitt með
börnunum. Brúðuleikhúsið
Sögusvuntan sýnir „Músina
Rúsínu" og Möguleikhúsið sýn-
ir „Geira lygara“. Kór félags-
starfs aldraðra og börn úr leik-
skólanum Hólaborg taka lagið
og Skólahljómsveit Árbæjar
og Breiðholts og börn úr
Suzuki-skólanum leika. Iðunn
Steinsdóttir les upp, unglingar
úr félagsmiðstöðinni Fellahelli
flylja skemmtiatriði, trúðar
koma í heimsókn og Pizzabar-
inn í Hraunbergi býður börn-
unum á hestbak.
Þá verður starfandi listsmiðja
í Gerðubergi, þar sem börnin geta
mála eða samið vorljóð og vegg-
irnir verða skreyttir listaverkum
sem börn í listsmiðju Gerðubergs,
Gagni og gamni, hafa gert.
Klukkan 13: Kór félagsstarfs
aldraðra. Klukkan 13.30: Upp-
lestur — Iðunn Steinsdóttir.
Klukkan 14: Sögusvuntan —
Músin Rúsína. Klukkan 14.30:
Börn af leikskólanum Hólaborg
syngja. Klukkan 14.45: Skóla-
hljómsveit Árbæjar og Breiðholts.
Klukkan 15.15: Börn úr Suzuki-
skólanum spila. Klukkan 16:
Möguleikhúsið — Geiri lygari.
Klukkan 16.30: Atriði úr Fella-
helli. Klukkan 13-17: Listsmiðja
— málað, skrifað og skáldað.
Trúður og hestar.
Sögusvuntan — Sagan af músinni Rúsínu.
„Dansað á
haustvöku“
allra síð-
asta sýning
á laugardag
ALLRA síðasta sýning á írska
verðlaunaleikritinu „Dansað á
haustvöku" eftir Brian Friel
verður laugardaginn 24. apríl.
Það er Guðjón P. Pedersen sem
leikstýrir verkinu, en leikmynd
og búninga gerði Guðrún Sig-
ríður Haraldsdóttir.
Leikritið gerist í sveit á írlandi
árið 1936 þar sem Mundy-systurn-
ar fimm Iifa einangruðu lífi í fá-
tækt og stríti. Ein systranna,
Chris, eignaðist eitt sinn dreng í
lausaleik með hjartaknúsara frá
Wales sem átti í sveitinni stuttan
stans og það er í gegnum augu
drengsins sem við sjáum lífið í
Ballybeg einn hlýjan ágústmánuð.
Hann rifjar upp líf sitt með
systrunum fimm í gleði og sorg.
Þær leggja sig allar fram um að
lifa heiðvirðu lífi staðfastar í sinni
kaþólsku trú. En röskun verður á
lífi systranna þegar bróðir þeirra
kemur heim, mikið breyttur eftir
langa fjarveru. Einkennilegir hlut-
ir gerast. Systumar einangrast og
verða smátt og smátt fordómum
þorpsbúa að bráð.
Leikendur eru Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Ragnheiður Steindórsdótt-
ir, Tinna Gunnlaugsdóttir, Erling-
ur Gíslason, Kristján Franklín
Magnús og Sigurður Skúlason.
Tónlistarhátíð í
Kópavogskirkju
ir sem verða í kirkjunni kvöldið fyr-
ir síðasta vetrardag.
Á fimmtudaginn, sumardaginn
fyrsta, verða tvennir tónleikar í
Kópavogskirkju. Klukkan 17.00
koma fram um tvö hundruð grunn-
skólanemendur úr sókninni í Skóla-
kór Kársness, Stóra kór og Litla
kór, undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. Undirleikari verður Marteinn
H. Friðriksson. Sungin verður fjöl-
breytt dagskrá, íslensk og erlend Iög.
Klukkan 20.00 á fimmudags-
kvöldið verður í kirkjunni samsöngur
Hljómkórsins en það er nýr sönghóp-
ur úrvals söngvara sem einkum
starfa við kirkjulegar athafnir. Á
þessum tónleikum syngur hópurinn
fyrst og fremst sumartónlist og and-
leg lög, innlend og erlend. Stjórn-
andi og undirleikari að þessu sinni
verður Stefán R. Gíslason.
Á tónleikunum verður einnig upp-
lestur í umsjá yaldimars Lárussonar
leikara.
Á föstudagskvöldið kl. 20.00 held-
ur Kirkjukór Kópavogskirkju, undir
stjórn Stefáns R. Gíslasonar, tón-
leika í kirkjunni. Sungin verða ver-
aldleg og andleg lög. Fyrri hluti tón-
leikanna samanstendur af Iögum
eftir Guðmund Gilsson, Sigvalda
Kaldalóns, Jón Nordal, Eyþór Stef-
ánsson, George Stebbins, Karl
Clausen og Felix Mendelsohn. Eftir
hlé syngur kórinn hina frægu þýsku
messu eftir Franz Schubert. Ein-
söngvari eru Katrín Sigurðardóttir
(sópran) og Tómas Tómasson (bari-
ton). Undirleik annast Ólafur Vignir
Albertsson (píanó).
Tónlistarhátíð í Kópavogskirkju
lýkur á sunnudaginn 25. apríl kl.
17.00 með því að endurteknir verða
tónleikar Kirkjukórs Kópavogskirkju
frá föstudeginum 23. apríl.
Aðgangur er ókeypis á alla tón-
leikana og allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning)
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Franklín Magnús í hlutverkum
sínum.
TÓNLISTARHÁTÍÐ á vegum
Kársnessóknar hófst í Kópa-
vogskirkju á mánudag. Fjöl-
breytt tónleikahald er í kirkj-
unni alla dag vikunnar fram til
sunnudagsins 25. apríl nk.
Tóniistarhátíðin í Kópavogskirkju
er framlag Kársnessóknar til Kirkju-
listahátíðar 1993, sem haldin verður
í næsta mánuði. Stefán R. Gíslason
organisti hefur skipulagt tónlistar-
vikuna og borið hita og þunga af
öllum undirbúningi hennar. Hann
mun sjálfur stjórna Kirkjukór Kópa-
vogskirkju á tvennum tónleikum og
leika auk þess á orgel við kvöldbæn-
Suðurnes og Snæfellsnes
Guðný og Maté á tónleikum
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðluleikari og Peter Máté
píanóleikari munu haida tónleika á næstu dögum.
Þeir fyrstu verða í Grindavíkurkirkju, fimmtudag-
inn 22. apríl (sumardaginn fyrsta) og hefjast klukk-
an 20.30. Föstudaginn 23, apríl klukkan 20.30 í
Grundarfjarðarkirkju í Stykkishólmskirkju klukk-
an 16, en þau verða jafnframt með kynningu fyrir
tónlistarskólann í Stykkishólmi. Að lokum verða
tónleikar á vegum tónlistarfélagsins í Garði og
verða þeir mánudaginn 26. apríl klukkan 20.30 í
Sæborgu.
Guðný Guðmundsdóttir er nýkomin heim úr ferðalagi
um Bandaríkin þar sem hún hélt m.a. tónleika í Bruno
Walter Auditorium í Lincoln Center við frábærar undir-
tektir. Meðleikari hennar þar var Delana Thompsen.
Peter Máté hefur unnið til margra verðlauna fyrir
píanóleik sinn m.a. í alþjóðlegri keppni í Vercelli á Ital-
íu árið 1986. Hann hefur komið fram sem einleikari í
Ungveijalandi, Júgóslavíu, Rúmeníu, Ítalíu og Sovétríkj-
unum og Þýskalandi, auk heimalands síns Slóvakíu.
Hann lék einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands sl.
vor. Peter hefur starfað sem tónlistarkennari á Stöðvar-
firði og Breiðdalsvík frá því haustið 1990.
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Peter Máté
píanóleikari.