Morgunblaðið - 21.04.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1993
-
17
Sveitakirkja
eftir Gylfa Jónsson
Fyrir skömmu var minnst á
hvernig borgarkirkjan reynir að
bregðast við nútímalifnaðarháttum
borgarfólksins, sem oft á tíðum
telur sig hafa lítinn tíma til helgi-
halds og kirkjugöngu. Var þar
nefnd sú viðleitni kirkjunnar að
efna til helgihalds á virkum dögum,
kyrrðarstunda í hádeginu.
Þarfir aldraðra
Mikill fjöldi aldraðra og trúar-
þarfir þeirra er eitt það verkefni
sem borgarkirkjan hefur orðið að
bregðast við. Áður fyrr voru aldr-
aðir ýmist á sínum eigin heimilum
eða, sem oftar var, hluti af stórljöl-
skyldunni, þar sem bjuggu saman
tveir til þrír ættliðir. í borgarsam-
félaginu hefur stórfjölskyldan tvíst-
rast. Hinir öldruðu búa einir; í sinni
gömlu íbúð, hafa flutt sig um set
og komið sér fyrir í íbúðum aldr-
aðra eða eru komnir á dvalarstofn-
anir.
Samkvæmt skoðanakönnunum
er þetta fólk sem að stórum hluta
til hugsar nú meira um trúmál en
yngra fólk. Les oftar í Biblíunni
og sækir meir kirkju. Einnig ræður
það tíma sínum að miklu leyti sjálft
þar eð það hefur lokið sínum starfs-
degi á vinnumarkaðinum. Þessum
hópi þarf þéttbýliskirkjan að sinna
vel.
í fljótu bragði mætti ætla að
sunnudagsguðsþjónustan væri
nokkuð sjálfgefinn vettvangur fyrir
þennan hóp. Svo er þó ekki um
marga úr þessum hópi. Hjá þeim
er sunnudagurinn sá tími þegar
yngra fólk, börn þeirra og barna-
börn hafa tíma fyrir hina öldnu.
Þeim er boðið í mat hjá börnunum,
eða að börnin koma í heimsókn.
Vinir koma í heimsókn, eða að
borgarkirkja
Frá hádegisverðarfundi í Grensáskirkju fyrir skömmu.
þeir öldnu eru heima, ef einhver
skyldi nú ætla að heimsækja þá.
Nýr starfsvettvangur
Þessu hafa ýmsir söfnuðir áttað
sig á og bjóða því sínum eldri sókn-
arbömum þjónustu í kirkjunum á
rúmhelgum dögum.
Það munu hafa verið kirkjukven-
félögin sem fyrir alvöm fóru að
sinna kirkjustarfí aldraðra, sem ég
kýs að kalla svo. Nú hafa sókn-
amefndir tekið þetta starf föstum
tökum víða og má fínna öflugt
kirkjustarf aldraðra við marga
söfnuði í þéttbýli.
Starf þetta er næsta fjölskrúðugt
sem ætla má. Óskir fólks eru mis-
munandi. En helgihald og upp-
fræðsla í Guðs orði hlýtur þó ætíð
að einkenna kirkjustarf aldraðra.
Fótsnyrting og hárgreiðsla og ann-
að í þeim dúr eru að sönnu hinir
þörfustu hlutir, en sérkenni kirkju-
starfs, hvort heldur með öldnum
eða ungum, hlýtur að markast af
þessu eina nauðsynlega; þræðinum
að ofan.
ur á fjármagni er það, sem koma
skal. Allt of lengi erum við búnir
að vera að flytja fjármagn inn til
landsins. Og hvaða gagn hefir það
gert? Ekkert annað en að steypa
okkur í skuldir upp fýrir haus!
Galdurinn er að flytja fjármagnið
út úr landinu og láta aðra skulda
okkur. Það er stórsnjallt að flytja
fjármagn út og leggja í fyrirtæki
í útlöndum. Þannig getum við lát-
ið útlendinginn vinna erfiðis-
vinnuna við að framleiða hluti, en
við getum verið forstjórar og ráð-
gjafar. Sífelld ferðalög og flottheit!
Það var leitt að sjá, loksins þeg-
ar þjóðin er að vakna til meðvit-
undar um mikilvægi fjármagnsút-
flutnings, að bankayfirvöldin
skyldu ekki veita lífeyrissjóðunum
tveimur leyfí til þess að flytja út
milljón dollara hvorum, til þess að
setja í verðbréfamarkaðinn í New
York. Það er ekki þörf fyrir þessa
aura á Fróni hvort eð er, og þá
alls ekki til að lána í íbúðarhús-
næði þar. Landsmenn eru loks
búnir að sjá, að þeir eiga að koma
með klinkið sitt hingað til útlanda
og kaupa hér hús og íbúðir. Þeir
gera sér grein fyrir mikilvægi þess
að flytja út féð. Greiðslukortin
hafa líka gert mikið til þess að
auðvelda þetta íjárútstreymi. Það
var mikið lán fyrir okkar þjóð, að
þessi dásamlegu kort skyldu halda
innreið síná í okkar góða land.
Útflutningur á hugviti og þekk-
ingu er líka að aukast og er það
vel. Okkar gáfaða þjóð hefír haft
yfirum nóg af sprenglærðu fólki,
sem ekki hefír getað nýtt þekkingu
sína á íslandi. Þess vegna er gott,
að nú skuli vera hafínn slíkur út-
flutningur. Það léttir á þjóðinni,
því þetta gáfaða fólk hefir ekki
haft nóg fyrir stafni og hefir þess
vegna skapað óróa og óánægju.
Svo hefir það líka fýllt blöð og
tímarit með háfleygum skrifum
sínum. Og af er líka pressan að
skapa störf fyrir fólkið á íslandi
og finna því fallegar skrifstofur
og tryggja árlega utanferð gratís.
Fáir hafa líklega veitt því at-
hygli, að vísir er hafinn að útflutn-
ingi á sakamönnum. Þetta er afar
hagstætt fyrir fátækt land. Af-
kastamiklir krimmar hafa af
mörgu að taka í útlandinu og geta
þar haft það mjög gott. Þeir geta
jafnvel flutt illa fengnar fúlgur til
íslands, annað hvort til ættingja
eða bara til að eyða og slá um sig
á heimaslóðum. Ef þeir eru gripn-
ir við iðju sína, eins og verið hefir
að gerast í auknum mæli, ber út-
lendingurinn kostnaðinn af því að
dæma þá og halda þeim í steinin-
um. Og það er ekki svo lítið, sem
það kostar. Það ætti að gera að
því gangskör að flytja út fleiri
afbrotamenn. Það er til dæmis
ágætur markaður fyrir þá hér í
Flórída.
Ekki er hægt að skilja við þessa
ófullkomnu upptalnignu án þess
að minnast á eina grein, sem í
sjálfu sér er ekki arðbær fyrir þjóð-
arbúið. En hún hefir gripið at-
hygli alþjóðar og fyllt fólk þjóðar-
stolti og metnaði, fyrir nú utan
ánægjuna af því að fylgjast með
framvindu mála. Hér á ég við fóst-
urlandsins freyjur, sem hleypt
hafa heimdraganum og þungast
af völdum útlendra illmenna. Síðan
fylgja skilnaðir og spennandi
málaferli og deilur um börnin.
Fyrir utan hinar saklausu, spjöll-
uðu meyjar, hafa komið við sögu
hund-Tyrkjar og vondir Ameríkan-
ar. Ef til vill má skrifa bækur um
þessi ævintýri og búa til kvik-
myndir, sem gætu unnið verðlaun
í útlöndum. Það myndi færa þjóð-
inni bæði frægð og tekjur. Þessar
ungu konur hafa sannarlega unnið
landi sínu vel og verið þjóðinni til
sóma.
Biblíufræðsla og
hádegisverðarfundir
Við Grensáskirkju hefur um
nokkurra ára skeið verið sérstakt
starf fyrir aldraða. Alla þriðjudaga
kl. 2 e.h. hafa verið biblíulestrar,
sem fyrst og fremst hafa verið
ætlaðir öldruðum, en allir auðvitað
velkomnir. Að fræðslunni lokinni,
sem sr. Halldór S. Gröndal hefur
annast, er drukkið gott síðdegis-
kaffi og rabbað saman. Gefst þar
gott tækifæri fyrir prestana að
kynnast frekar hinum eldri sókn-
arbörnum, en ekki síður er þetta
léttur vettvangur margra að ræða
við prestinn sinn og koma á fram-
færi við hann bænarefnum og leita
sér trúarstyrks. Þessi fræðsla hefur
verið vel sótt og fjöldi þátttakenda
farið vaxandi.
„Hinir margþættu lifn-
aðarhættir okkar nú-
tímafólks kalla á fjöl-
breyttari möguleika til
að velja úr. Þar er
kirkjan ekki undanskil-
in. Því er gleðilegt að
sjá hve kirkjustarf aldr-
aðra er nú fjölbreytt og
sinnir æ fleirum með
batnandi fjárhag
sókna.“
Hádegisverðarfundir aldraðra
eru annað form að kirkjustarfi aldr-
aðra í Grensássókn. Þriðja hvern
miðvikudag yfir vetrarmánuðina og
nokkuð fram á sumar eru hádegis-
verðarfundir í kirkjunni. Þeir hefj-
ast kl. 11 f.h. með helgistund en
að henni lokinni eru flutt fræðsluer-
indi um kirkjuleg og trúarleg efni
og er vandað til fyrirlesara. Að
loknum fyrirlestrunum er kirkju-
gestum boðið til sameiginlegs máls-
verðar. Þetta helgihald í miðri viku
hefur mælst vel fyrir. Þá er lýmra
um tíma og hádegið heppilegt til
kirkjugöngu vegna birtunnar, sér-
staklega yfir vetrarmánuðina.
Næsti hádegisverðarfundur í
Grensáskirkju verður .miðvikudag-
inn 21. apríl. Þá-mun Pétur Már
Olafsson bókmenntafræðingur og
útgáfustjóri hjá Vöku Helgafell
flytja erindi um hið þekkta og fal-
lega helgikvæði, Lilju.
Það er oft talað um þunnskipaða
bekki í kirkjunum á sunnudögum.
Stundum má það til sanns vegar
færa, en rétt er að benda á að kirkj-
ur í þéttbýli eru æ meir að verða
lifandi starfsmiðstöðvar alla daga
vikunnar. Hinir margþættu lifnað-
arhættir okkar nútímafólks kalla á
fjölbreyttari möguleika til að velja
úr. Þar er kirkjan ekki undanskilin.
Því er gleðilegt að sjá hve kirkju-
starf aldraðra er nú fjölbreytt og
sinnir æ fleirum með batnandi fjár-
hag sókna.
Höfundur er safnaðarprestur við
Grensáskirkju í Reykjavík.
Grunnskólamót stúlkna í skák
GRUNNSKÓLAMÓT stúlkna fór
fram 17. apr'íl sl. í húsnæði Skák-
sambands íslands í Faxafeni 12,
Reykja-
vfk.
Úrslit urðu þessi: Eldri flokkur (f.
1980-1977): 1. sæti Anna Björg
Þorgrímsdóttir, Seljaskóla, 7 vinn-
inga af 7, 2. sæti Anna María Þor-
steinsdóttir, Húsaskóla, 5,5 vinninga
af 7 og í 3. sæti varð Margrét Braga-
dóttir, Langholtsskóla, og hlaut hún
5 vinninga af 17.
Yngri flokkur (f. 1981 og síðar):-
1. sæti Berta Ellertsdóttir, Grunn-
skóla Akraness, 6 vinningar af 7
(32. stig), 2. sæti Sonja Dögg Gunn-
laugsdóttir, Álftanesskóla, 6 vinning-
ar af 7 (31,5 stig) og í 3. sæti varð
Harpa Ingólfsdóttir, Hjallaskóla, 6
vinningar af 7 (30,5 stig).
(Fréttatilkynning)
A
MORGUN
BLAÐSINS
Husií) og garburinn
b£í
Laugardagsblaði Morgunblaðsins, 1. maí nk. fylgir blaðauki sem heitir
Húsið og garðurinn. í þessu blaði verður fjallað um endurbætur heima
við, jafnt innan húss sem utan. Einnig verður greint frá ýmsum leiðum
við fegrun garða, breytingar og skipulag, gróðursetningu og val á trjám og
plöntum. Þá verður fjallað um garðyrkjusýningu, sem verður haldin
fyrstu vikuna í maí.
Þeim sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að
tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 26. apríl.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Helga Guðmundsdóttir
og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 1111
eða símbréf 69 1110.
- kjarni málsins!
t