Morgunblaðið - 21.04.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
19
Ágúst Einarsson formaður bankaráðs á ársfundi Seðlabankans
Ekkert bendir til að atvinnu-
leysi eigi að vera minna hér
■ L * J 111 I I
opnað nýja
verslun að
Faxafeni 11
Videovél bamai
Gerir aUt nema .
ommjntmm.
tilboð
taka myndir.
Venjuíegt verö
kr. 1645-
Þroskaleikfani
þau yngstu - pi
meö dýrabljóö
Venjulegt verö
kr.1.720-
TOMY
aman
Myndm er af Sylvaman sveitasetri meö fleiri fylgihlutum en eru i tilboöinu
Óskaskógurinn.
Bangsafjölskyldan.
Venjulegt verö
kr. 1.410-
tanianfQmji
ies
Sveitasetur me<
tveimurJylgibi
Venjulegt verö
kr. 2.880-
ÁGÚST Einarsson prófessor, formaður bankaráðs Seðlabanka
íslands, sagði í ræðu á ársfundi bankans í gær að ekkert í hag-
kerfi landsins bendi til þess að atvinnuleysi hér eigi að vera
mun minna en í nágrannalöndunum þar sem það er víða 10% á
sama tíma og atvinnuleysi hér er um 5%. „Það er enginn eðlis-
munur á atvinnulífi okkar og annarra. Við erum hins vegar.
óvön atvinnuleysi og erlend skuldasöfnun undanfarin ár hefur
haldið uppi vinnu á föskum forsendum," sagði Ágúst.
„Það er óskynsamlegt að auka
erlendar skuldir til að reyna að
minnka atvinnuleysi. Atvinnuleysi
er hins vegar ekki framtíðarsýn, síð-
ur en svo. Stöðugleiki, eins og við
höfum búið við síðustu 3 ár, bætir
smátt og smátt samkeppnisstöðu
fyrirtækja. Þetta tekur tíma og það
er ekki hægt að stytta sér leið á
þeirri braut. Óðaverðbólga síðustu
áratugi ól af sér meinsemd í efna-
hagslífinu, alls kyns kýli sem nú eru
að springa. Þessi hreinsun, sem
bankamönnum er fullkunnugt um,
er nauðsynleg, sársaukafull, tíma-
frek og mjög kostnaðarsöm. Fyrir-
tæki sem voru fyrir löngu komin að
fótum fram verða nú ásamt lánar-
drottnum sínum að horfast í augu
við mistök fortíðarinnar. Þennan
kaleik þarf að drekka í botn. Þá fyrst
mun samkeppnishæfni atvinnulífsins
eflast og laða til sín vinnuafl og fjár-
magn,“ sagði Ágúst. Hann sagði að
til að leysa efnahagsleg vandamál
væri ekki til nein
leið betri en að láta
lögmál hins frjálsa
markaðar leika um
efnahagslífið.
Ágúst sagði að
stöðugleiki væri
grundvöllur hag-
vaxtar. Stöðugleiki
markaðist af geng- . ,
isfestu, raunhæfum Agust Elnarsson
kjarasamningum og traustum ríkis-
fjármálum. Hann sagði að þetta
hefði tekist nokkuð vel síðustu þijú
ár og ekki megi hvika frá markmið-
um um stöðugleika, þótt atvinnu-
leysi væri vissulega vandamál. Eina
alvarlega hættan í hagkerfi okkar
væri erlendar skuldir. Aukning
þeirra væri banabiti efnahagslegs
sjálfstæðis.
Ríkisfjármál veikur þáttur
„Ríkisfjármálin eru veikasti þáttur
efnahagsstjórnunarinnar. Það er
milljörðum á síðasta ári. Vaxtagjöld
voru 1,4 milljarðar og rekstrarkostn-
aður 608 milljónir. Eigið fé bankans
jókst um 2,5 milljarða kr. og nam
um síðustu áramót 11,5 milljörðum.
Eiginfjárhlutfall var 22,6%.
Rekstrarkostnaður minnkaði
Störf í Seðlabankanum voru 142
í árslok og fækkaði lítillega á árinu.
Ágúst sagði að rekstrarkostnaður
bankans hefði lækkað að raungildi
um 1,5% frá árinu á undan. Rekstr-
arkostnaður Seðlabankans lækkaði
milli áranna 1987 og 1990, hækkaði
nokkuð árið 1991 en lækkaði aftur
á síðasta ári.
„Seðlabankinn liggur stundum
undir því ámæli í opinberri umræðu
að ekki sé gætt aðhalds í rekstri.
Þessar tölur sýna að það er ekki
rétt. Verkefni Seðlabankans hafa
aukist síðustu ár en tekist hefur að
mæta þeim án hækkunar rekstrar-
kostnaðar. Þess væri óskandi að
menn kynntu sér staðreyndir áður
en vaðið er fram á opinberum vett-
ekki skynsamlegt frá efnahagslegu
sjónarmiði að kjarasamningar á al-
mennum vinnumarkaði séu hvað eft-
ir annað gerðir á kostnað ríkissjóðs.
Slíkum vinnubrögðum verður að
breyta. Bág staða ríkissjóðs kemur
fram í skuldasöfnun og hærri vöxt-
um og þá er til lítils barist," sagði
Ágúst Einarsson í ræðu sinni.
Bankakerfið óhagkvæmt
ogdýrt
Ágúst sagði að samkvæmt nýjum
upplýsingum kæmi í ljós að bankar
hérlendis tækju hærri þjónustugjöld
og væru með meiri vaxtamun en
bankar erlendis. Rekstrarkostnaður
væri hærri hér á landi og hlutfalls-
lega mun fleira starfsfólk. „Því er
óhætt að álykta að íslenskt banka-
kerfi sé enn óhagkvæmt og við-
skiptamönnum dýrara en þyrfti að
vera,“ sagði Ágúst.
Hann sagði að bankastarfsemi
væri fyrst og fremst faglegt starf.
„Pólitísk áhrif og byggðasjónarmið
eiga þar ekkert erindi, ekki vegna
þess að pólitísk áhrif og byggðasjón-
armið séu vond, heldur vegna þess
að vettvangur þeirra er ekki á sviði
viðskiptabanka. Pólitísk áhrif eiga
að koma fram í efnahagsstefnu ríkis-
stjórna ög byggðamál hljóta úrlausn
í ijárlögum hvers árs. Það að hafa
blandað saman faglegum bankasjón-
armiðum, pólitískri varðhundagæslu
og byggðastefnu í starfsemi ríkisvið-
skiptabanka á undanfömum áratug-
um hefur leitt til þeirra vandkvæða
að afskriftaþörf er mikil, veikburða
atvinnurekstur víða og ekki nægjan-
legt aðhald í rekstri bankanna,"
sagði Ágúst Einarsson.
2,3 milljarða hagn-
aður Seðlabankans
HAGNAÐUR Seðlabankans á síðasta ári var 2,3 miiyarðar kr.
eftir skatta að því er fram kom í ræðu formanns bankaráðs,
Ágústs Einarssonar. Hagnaður bankans myndast fýrst og fremst
vegna þess að gjaldeyrisvarasjóðurinn er varðveittur í bankanum.
Gengisþróun síðasta árs, ekki síst gengisfellingin í nóvember,
olli gengishagnaði sem skýrir góða afkomu bankans.
Tekjur Seðlabankans námu 5,5 vangi með sleggjudóma um rekstrar-
Markaðsviðskipti
með gjaldeyri hefj-
ast um miðjan maí
UNDIRBÚNINGI að opnun gjaldeyrismarkaðar, svokallaðs milli-
bankamarkaðar með gjaldeyri, er nú að verða lokið. Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri sagði á ársfundi Seðlabankans í gær að
gert væri ráð fyrir því, að markaðsviðskipti með gjaldeyri geti
hafist um miðjan næsta mánuð.
kostnað Seðlabanka. Vitanlega má
gera betur í rekstri bankans og leit-
ast verður við að lækka rekstrar-
kostnað enn frekar. Seðlabankinn
gæti einnig tekið að sér verkefni sem
nú eru unnin annars staðar," sagði
Ágúst.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
sagði í ræðu sinni að Seðlabankinn
hefði ásamt viðskiptabönkum og
sparisjóðum að undanfömu undir-
búið opnun gjaldeyrismarkaðar þar
sem dagleg viðskipti hefðu bein áhrif
á gengi krónunnar innan settra-
marka. Flest væri nú til reiðu að
stíga þetta tímamótaskref.
Breytt hlutverk Seðlabanka
Jóhannes Nordal sagði að breyt-
ingar á peninga- og gjaldeyrismark-
aðnum sem unnið hefur verið að
stefndu að því að aðlaga stjóm og
skipulag peningamála hér á landi því
sem tíðkaðist í öðmm löndum V-Evr-
ópu. Væntanlega væri þess skammt
að bíða, að samningurinn um Evr-
ópskt efnahagssvæði gengi í gildi og
allar hömlur á fjármagnsflutninga
yrðu úr sögunni. Þá myndi Seðla-
bankinn þurfa að einbeita sér í ehn
ríkari mæli en áður að því að tryggja
stöðugleika á gjaldeyrismarkaðnum
og gengis krónunnar. Hann sagði
að því væri mikilvægt að hraða þeim
umbótum, sem unnið hefði verið að
undanfarið, en þeim fylgdu einnig
ýmsar breytingar á innra skipulagi
bankans. Nefndi hann í því sam-
bandi niðurfellingu gjaldeyriseftir-
lits, jafnframt því sem upplýsinga-
söfnun og virk starfsemi á peninga-
og gjaldeyrismarkaðnum yrði efld.
Jóhannesi og Tómasi þakkað
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, færði Jóhannesi Nordal og
Tómasi Arnasyni, seðlabankastjórum, sérstakar þakkir ríkissljórn-
arinnar á ársfundi bankans í gær. Jóhannes hefur sem kunnugt
er ákveðið að láta af starfi sínu um mitt þetta ár og Tómas í
árslok. Þá færði Ágúst Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabank-
ans, þeim þakkir fyrir hönd ráðsins og starfsfólks bankans.
Viðskiptaráðherra sagði í Jóhannesar Nordal í meira en ald-
ávarpi sínu í gær það ekki of- arfjórðung bæði á innlendum og
mælt að þetta markaði tímamót erlendum vettvangi. Á þessum
í sögu bankans því Jóhannes hefði tíma hefur Jóhannes gegnt lykil-
setið í bankastjóm allan starfs- hlutverki sem seðlabankastjóri og
tíma bankans eða 32 ár. ráðgjafi ríkisstjóma í efnahags-
„Ég hef átt því láni að fagna málum. Það hefur verið lærdóms-
að vera náinn samstarfsmaður ríkt að starfa með honum og
ánægjulegt að kynnast því mikla
áliti og trausti sem hann nýtur
hvarvetna sem fulltrúi íslan’ds,
hvort sem er á sviði gjaldeyris-
mála og bankaviðskipta eða iðn-
aðar- og orkumála. Á því er eng-
inn vafi að hans mikla reynsla,
þekking og hæfileikar hafa verið
Islandi mikils virði.“
Viðskiptaráðherra sagði að
Tómas hefði gegnt starfi seðla-
bankastjóra nokkuð á níunda ár
og verið farsæll í því starfi sem
fyrri störfum sínum.
Óskaskógurintt
LEIKBÆR
Mjódd - Þönglabakka 6,
Kjörgarði - Laugavegi 59,
Hfj. - Reykjavíkurvegi 50,
Ný verslun - Faxafeni 11,
sími 7 91 11
sími 2 63 44
sími 5 44 30
sími 68 48 70