Morgunblaðið - 21.04.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1993
31
Geir H. Haarde formaður þingflokks sjálfstæðismanna
Frumvarp til lyfjalaga skynsamleg
millileið o g samkomulagsmál
SIGHVATUR Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra
hefur í gær og fyrradag fylgt fram frumvarpi til lyfjalaga. Stjórnarand-
stæðingar töldu marga annmarka á frumvarpinu og var stórum til efs
frumvarpið yrði til að lækka dreifingarkostnað lyfja. Nokkur blæbrigða-
munur kom fram um afstöðu sjálfstæðismanna. Arni M. Mathiesen
(S-Rn) telur frumvarpið ganga of skammt í ýmsum greinum. Pálmi
Jónsson (S-Nv) telur að takmörk verði að hafa á fijálsræðinu, ekki
verði við þetta frumvarp unað óbreytt. Geir H. Haarde (S-Rv) þing-
flokksformaður sjálfstæðismanna telur frumvarpið skynsamlega milli-
leið í meginatriðum í samræmi við stefnumarkmið ríkisstjórnarinnar.
I fyrradag mælti heilbrigðisráð-
herra fyrir frumvarpinu til lyfjalaga.
Framsögumaður, Sighvatur Björg-
vinsson heiibrigðis- og tiyggingar-
ráðherra vísaði til þess að þetta frum-
varp ætti sér nokkra forsögu. Hann
hefði skipað nefnd 18. ágúst 1991
til að athuga hugmyndir um breyt-
ingu á lyfjadreifingu í samræmi við
þá stefnu ríkisstjórnarinnar að stuðlá'
að lækkun dreifingarkostnaðar á
lyfjum og með því að koma á sam-
keppni á öilum stigum. Þessi nefnd
hefði skilað áliti í apríl 1992.
Heilbrigðisráðherra sagði að laga-
frumvarp þetta hefði verið samið i
sínu ráðuneyti en sent fjölmörgum
aðilum til umsagnar á ýmsum stig-
um, þ.á m. Læknafélagi íslands,
Apótekarafélagi Islands, Lyfjafræð-
ingafélagi íslands o.s.frv. Hefði þess
verið freistað eftir föngum að taka
tillit til athugasemda sem fram hefðu
komið. Þá hefði þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins gert athugasemdir
og breytingartillögur við einstakar
greinar frumvarpsins sem einnig
hefði verið tekið tillit til.
Að endingu tíundaði framsögu-
maður helstu nýmæli frumvarpsins
m.a:
Aukið frelsi til að setja á stofn
lyfjabúðir. Gert væri ráð fyrir að
ekki þyrfti lengur forsetaleyfi til
lyfjasölu og að reglur um stofnun
apóteka yrðu rýmkaðar. En frum-
varpið gerir ráð að lyfjafræðingar
geti almennt fengið lyfsöluleyfi að
uppfylltum nokkrum skilyrðum.
Aukið frelsi verður í verðlagningu
lyfja og dregið verður úr opinberum
afskiptum af Ivfjaverði og lyfjaverð-
lagsnefnd verður lögð niður.
Lyfjagreiðslunefnd verður skipuð.
Nefndinni verður ætlað það verkefni
að ákveða hámarksverð á lyfseðils-
skyldum lyfjum, dýralyfjum og þátt-
töku almannatrygginga í lyfjakostn-
aði sjúkratryggðra í samræmi við lög
um almannatryggingar og fjárlög
hveiju sinni.
Sjúkrahúsaapótek munu geta ann-
ast afgreiðslu lyfja til sjúklinga sem
útskrifast og göngudeildarsjúklinga.
Heilbrigðisráðherra lagði að lokum
til að þessu máli yrði vísað til heil-
brigðis- og trygginganefndar að lok-
inni fyrstu umræðu. En þegar hann
hafði lokið sinni framsöguræðu var
umræðu frestað til næsta þingfundar
sem var í gær.
Millileið
Geir H. Haarde (S-Rv) tók undir
orð heilbrigðisráðherra um að frum-
varp þetta hefði haft langan aðdrag-
anda enda væri hér um viðamikinn
og viðkvæman málaflokk að ráða.
Það væri nú svo að verslun með lyf
væri um margt frábrugðin verlsun
með annan varning. Lyf væru vand-
meðfarin og meðferð þeirra krefðist
faglegrar kunnáttu. Einnig gildi
nokkuð annað samspil um ákvörðun
um neyslu og greiðslu á þessari vöru.
Geir sagði að frumvarpið markaði
þá stefnu sem ríkisstjórnin og stjórn-
arflokkarnir hefði orðið ásáttir um.
Frumvarpið hefði sætt sérstakri með-
ferð stjómarflokkanna og væri orðið
að samkomulagsmáli milli þeirra.
Geir H. Haarde sagði leiða af sjálfu
sér í máli sem þessu að þingnefnd
hlyti að skoða ýmsa faglega þætti í
frumvarpinu til að tryggja að allt
yrði vel úr gárði gert í jafn vanda-
sömum málaflokki.
Ræðumaður vek að ýmsum atrið-
um sem umdeild hafa verið. Hann
sagði það vera ætlunina að sjúkrahús
og heilsugæslustöðvar hæfu sam-
keppni við einkaðila í stórfelldum
stíl. Sjúkrahúsum væri gefin kostur
á því að afgreiða og selja lyf til sjúkl-
inga sem væru að útskrifast og til
göngudeildarsjúklinga. Geir H. Ha-
arde sagði þá sína skoðun að hann
teldi sjálfsagt að sjúkrahús nýttu sér
þá heimild sem væri í 34. grein frum-
varpsins og leituðu útboða um slíkan
rekstur. Ekki væri heldur ætlunin
að heilsugæslustöðvar hæfu sam-
keppni við apótek í stórum stíl. En
sá möguleiki væri fyrir hendi sam-
kvæmt frumvarpinu að á þeim stöð-
um þar sem ekki fengist lyfsali gætu
heilsugæslustöðvar tekið að sér slíka
þjónustu. Enda væri það eðlilegasti
valkosturinn í slíkri stöðu.
Geir sagði fullljóst að menn greindi
á um hve langt skyldi ganga í átt
til aukins fijálsræðis, valin hefði ver-
ið skynsamleg millileið þótt eflaust
sýndist sitt hveijum.
Blæbrigðamunur
Árni M. Mathiesen (S-Rv) sagðist
ekki vera sammála öllu sem fram
kæmi í þessu frumvarpi. Hann taldi
að í ýmsum atriðum væri ekki geng-
ið í átt nógu langt til aukins fijáls-
Þetta kom fram í svari ráðherra
við fyrirspurn Svavars Gestssonar
(Ab-Rv). Vildi Svavar fá svör við því
hvor segði satt, menntamálaráðherra
eða ráðuneytisstjórinn.
Ólafur kvaðst í svari sínu heldur
ekki þekkja til fundarins sem Knútur
segir hafa verið haldinn í ráðuneytinu
með fulltrúum fjölmiðla um bréf
Hrafns. Þá vísaði hann því á bug að
hann hefði ljáð máls á að bera málið
upp á fundi norrænu menntamála-
ráðherranna í nóvember. „Það vill
svo til að ég á í fórum mínum minnis-
blað þar sem þessa er farið á leit en
ég hef skýrt frá því áður að það kom
að sjálfsögðu aldrei til greina og var
ekki gert,“ sagði Ólafur.
ræðis. Skynsamlegra hefði verið
binda ekki lyfsöluleyfið við lyfjafræð-
ing heldur hefði átt að setja svipuð
skilyrði og sett væru um lyfjafram-
leiðslu og lyfjaframleiðslu. Árni taldi
að það ætti að vera sjúkrahúsum
skylt að leita útboða um lyfsölu en
einungis heimilt.
Pálmi Jónsson (S-Nv) sagði að þetta
málasvið væri hið vandasamasta,
væri því ekki hjá því komist að gaum-
gæfa þetta frumvarp vel. Það væri
svo að fijálsræði hlytu að fylgja
nokkur takmörk. Hann skoraði á
heilbrigðisráðherra og heilbrigðis- og
tryggingarnefnd til að taka sér þann
tíma sem þyrfti til að skoða frum-
varpið. Og það jafnvel þótti af því
hlytist að þetta frumvarp fengi ekki
afgreiðslu fyrr en á næsta þingi.
Víða háttaði því þannig að mun færri
viðskiptavinir stæðu að baki hverri
lyfjaverslun. Stæðu ýmsar lyfjaversl-
anir í strálbýlinu höllum fæti. Sýnd-
ist ræðumanni að kippt yrðu með
öllu fótunum undan þessum lyfja-
Verslunum ef veitt yrðu fleiri lyfsölu-
leyfi í þeirra nágrenni. Pálmi hvatti
til þess að settiryrðu skilmálar um
fólksfjölda í einhveijum tilteknum
byggðalögum áður en ráðherra yrði
heimilt að veita lyfsöluleyfi. Pálmi
sagði sitt álit að þessi atriði væru
með þeim hætti að ekki yrði við það
unað og yrði að breyta.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra vildi að þetta mál
fengi afgreiðslu fyrir þingfrestun í
vor. Hann benti á að lyfjamálin og
þetta frumvarp hefðu flestum málum
fremur fengið betri og ítarlegri um-
fjöllun. Sumir vildu ganga lengra og
sumir skemur og það væri ekki eftir
flokkum. Heilbrigðisráðherra taldi
frumvarp sitt vera „hinn gullna með-
alveg“. Fjöldi þingmanna tók þátt í
þessari umræðu sem stóð í u.þ.b.
fimm klukkustundir.
Tillaga um rannsóknarnefnd þingsins
Yísað frá með 33 at-
kvæðum gegn 25
MEIRIHLUTI Alþingis samþykkti í gær að vísa frá þingsályktunartil-
lögu um skipun rannsóknarnefndar til að skoða ráðningu framkvæmda-
stjóra Sjónvarpsins með 33 atkvæðum gegn 25 en fimm þingmenn
voru fjarverandi. Allir viðstaddir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna
samþykktu frávísunartillöguna en þingmenn stjórnarandstöðuflokk-
anna voru á móti. Þegar niðurstaðan lá fyrir lögðu nokkrir þingmenn
sljórnarandstöðu til að þingnefndir notuðu heimild þingskapa til að
taka þetta mál upp til rannsóknar að eigin frumkvæði. Lýstu nokkrir
þingmenn sem sæti eiga í fjárlaganefnd yfir vilja til að slíkt yrði gert
í nefndinni og þeirra á meðal var Gunnlaugur Stefánsson, þingmaður
Alþýðuflokks, sem greitt hafði atkvæði með frávísunartillögunni.
Menntamálaráðherra um ummæli Knúts Hallssonar
Kom aldrei til greina að ræða mál-
ið á fundi norrænu ráðherranna
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra sagði á Alþingi í gær, að
þeim sem vilji stimpla sig ósannindamann hafi bæst öflugur liðsauki
þar sem væri fyrrverandi ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu,
ef rétt væri eftir honum haft í dagblöðum í gær. Ólafur endurtók fyrri
ummæli sín um að honum hefði ekki verið kunnugt um bréf Hrafns
Gunnlaugssonar til ráðuneytisins áður en bréf Knúts Hallssonar, fyrrv.
ráðuneytisstjóra, var sent til stjórnar Norræna kvikmyndasjóðsins.
Svavar Gestsson furðaði sig á að
haldnir væru miklir fundir í mennta-
málaráðuneytinu án þess að ráðherra
vissi af því og sagðist hafa vitneskju
um að bréf Hrafns hafi verið sýnt á
fundinum og þar komið fram alvarleg
athugasemd við það. Spurði hann
ráðherra einnig hvort hann teldi eðli-
legt að bréf frá Samtökum kvik-
myndagerðarmanna til ráðherra um
þetta mál hefði ekki aðeins farið til
Kvikmyndasjóðs og annarra skyldra
aðila, heldur einnig í afriti til forsæt-
isráðherra.
Ólafur svaraði að hann teldi að
bréfaskipti í þessu máli hefðu ekki
verið eðlileg.
Atkvæðagreiðslan fór fram ineð
nafnakalli og gerðu nokkrir þing-
menn bæði úr stjórn og stjórnarand-
stöðu grein fyrir atkvæðum sínum
og þegar niðurstaðan lá fyrir kvöddu
nokkrir þingmenn sér hljóðs um
þingsköp til að ræða ákvæði þing-
skapa sem heimila nefndum þingsins
að rannsaka mál af þessu tagi að
eigin frumkvæði.
Tilraun til valdbeitingar
í máli stjórnarandstæðinga við
atkvæðagreiðsluna kom m.a. fram
gagnrýni á stjórnarþingmenn fyrir
að þora ekki að láta sérstaka nefnd
alþingismanna fara yfir málið. Nauð-
synlegt væri að rannsaka málið
vegna pólitísks siðferðis á íslandi.
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir (SK)
sagði að tillagan gengi bæði út á að
kanna íjárhagsleg samskipti fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins við Sjón-
varpið og við menntamálaráðuneytið
og undirstofnanir þess. Ráðherra
hefði hins vegar eingöngu óskað eft-
ir við Ríkisendurskoðun að hún kann-
aði þau samskipti er sneru að Sjón-
varpinu. Sagði hún að frávísunartil-
lagan væri í raun tilraun til valdbeit-
ingar á Alþingi, til þess eins að stöðva
umræðuna um þetta mál. „Þeir sem
það gera liðka ekki fyrir þingstörfum
hér á Alþingi og menn verða að
muna að æ sér gjöf til gjalda,“ sagði
Ingjbjörg.
Óssur Skarphéðinsson (A-Rv)
þingflokksformaður Alþýðuflokks
hefur við fyrri umræður um málið
gagnrýnt vinnubrögð ráðherra vegna
ráðningar framkvæmdastjóra Sjón-
varps greiddi atkvæði með frávísun-
artillögunni og sagði m.a. að ráð-
herra hefði haft lagalegan rétt til
að ráða Hrafn í stöðu framkvæmda-
stjóra. Því væri þarflaust að setja
sérstaka rannsóknarnefnd á laggirn-
ar til að rannsaka þann þátt. Þá
benti hann á að óskað hefði verið
eftir að Ríkisendurskoðun kannaði
ávirðingar um fjárhagsleg samskipti
Hrafns við stofnanir sem heyrðu
undir menntamálaráðuneytið. Benti
Össur á að þingnefndir Alþingis
hefðu einnig rétt til að taka upp mál
sem þær teldu brýnt að fjalla um og
sagði að slík athugun gæti farið fram
í fjárlaganefnd.
Gunnlaugur Stefánsson (A-Al)
nefndarmaður í fjárlaganefnd sagð-
ist hafa verið ósammála mennta-
málaráðherra varðandi ráðningu
framkvæmdastjóra Sjónvarpsins.
Sagði hann mjög eðlilegt að Alþingi
ætti hlut og aðild að úttekt Ríkisend-
urskoðunar. Sagðist þingmaðurinn
styðja að slík athugun færi fram í
fjárlaganefnd.
Sma auglýsingor
FÉIAGSLÍF
I.O.O.F. 7= 1744216’/20. R.H.
□ HLÍN 5993042119 VI 2
□ GLITNIR 5993042119 I 1
Frl. atkv.
I.O.O.F. 9 = 1744218'/2 =
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
UTIVIST
Ha!lveigarstig 1 • sirni 614^
Myndakvöld 21. aprfl
kl. 20.30
Á síðasta myndakvöldi vetrarins
mun Hörður Kristinsson, for-
stööumaður Náttúrufræðistofn-
unar Norðurlands, sýna myndir
úr sumarleyfisferðum Útivistar
um stórkostlegt landsvæði
Austfjarða, allt frá Borgarfirði
eystri og suður í Vaðlavík. Einnig
frá ferð í Héðinsfjörð og úr
Hvanndölum. Sýningin hefst kl.
20.30 á Hallveigarstig 1 og inni-
falið í aögangseyri er hlaðborð
kaffinefndar.
22. apríl
- sumardagurinn fyrsti
Kl. 10.30. Eldvörp - Útilegu-
mannakofar norðvestan Grinda-
víkur. Ekið i Eldvörp, gengið
þaöan að útilegumannakofunum
og áfram niður i Staðarhverfi i
Grindavík. Verð kr. 1.700/1.500.
Fararstjóri: Gunnar Hólm Hjálm-
arsson.
Helgarferð 23.-25. apríl
kl. 18.00
Skíðaferð á Fimmvörðuháls.
Gengiö á skíðum upp frá Skóg-
um í Fimmvöröuskála. Farið
verður m.a. á Eyjafjallajökul.
Heimferð á sunnudag frá Skógum.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni.
Fararstjóri: Sveinn Muller.
Brottfarir i ofangreindar ferðir
eru frá BSÍ, bensínsölu, fritt er
í dagsferð fyrir börn 15 ára og
yngri.
Sjáumst i Útivistarferö.
Útivist.
Frá Sálarrannsóknafélagi
íslands
5. og síðasta námskeið Helgu
Sigurðardóttur á þessum vetri,
„I litum Ijóss, hugar og handa",
verður haldið föstudagskvöldið
23. og laugardaginn 24. apríl.
Bókanir eru hafnar í símum
18130 og 618130.
Stjórnin.
SAMBANO ÍSLEN2KRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58-60.
Kristniboössamkoma i kvöld kl.
20.30 í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður verður Sigursteinn
Hersveinsson.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sumardagurinn fyrsti 22. apríi
(fimmtudagur).
1) Kl. 10.30 - sumri heilsað á
Esju. Gengið frá Esjubergi.
Verð kr. 1.000,-
2) Kl. 13.00 - Álfsnes - Þerneyj-
arsund. Gengið frá Álfsnesi um
strönd Þerneyjarsunds.
Verð kr. 1.000,-
22.-25. aprfl: Landmannalaugar
- skiðagönguferð. Tveir dagar
um kyrrt í Laugum.
Ferðafélag l'slands.
Frá Sálarrannsóknafélagi
íslands
Breski miðillinn Keith Surtees
verður með einkafundi á vegum
félagsins þar sem fólk getur val-
ið milli hefðbundinnar sambands-
miðlunar eða leiðbeininga um
andlega hæfileika.
Bókanir eru hafnar.
Stjórnin.