Morgunblaðið - 21.04.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
Fiskeldi náttúnmnar
— nýting áa og vatna
eftir Guðmund
Gunnarsson
Inngangur
í ljósi þeirrar umræðu sem nú er
í gangi og í ljósi þeirra staðreynda
að í gangi er hröð uppbygging fisk-
eldis í landinu, með þeim erfíðleikum
sem hafa verið því samfara að
byggja jafn kostnaðarsöm mann-
virki og tölur liggja fyrir um, þá
fínnst mér að eðlilegt væri að til
væri kostað nokkru fé til þess að
athuga hvort ekki megi nýta betur
þær sjálfbyggðu eldisstöðvar sem
við eigum í landinu, en það eru ár
okkar og vötn, einkanlega ef sú
uppbygging styður við bakið á físk-
eldisstöðvunum (kaupi seiði af
stöðvunum).
Þau meginmál sem hér koma til
álita eru:
1. Að gera ámar laxgengar, lengra
til íjalla en nú er (fískvegi).
2. Vatnsmiðlanir í ár. (Tryggja
betra og öruggara rennsli og
veiði).
3. Endurbætur á of grunnum vötn-
um (botnfijósa).
4. Fjölgun veiðistaða og bæting
þeirra í ánum (nýir veiðistaðir
búnir til og þeir bættir sem fyrir
era).
5. Fóðran og áburður í ár og vötn.
Eg mun reyna að gera þessum
þáttum nokkur skil hér.
1. Gera ámar laxgengar lengra til
fjalja en nú er:
Á undanfömum áram hefur verið
unnið nokkuð átak í því að lengja
ámar, og allt frá árinu 1956 hafa
verið byggðir ekki færri en 40 físk-
vegir í ár hér og yfírleitt með góðum
árangri. Ekki liggur fyrir hve mikið
mætti lengja árnar með stigagerð
on nokkuð ljóst er að hagkvæmni
slíkra framkvæmda er í mörgum
tilfellum mikil í Ijósi þeirra leigu-
tekna sem nú fást fyrir laxveiðiár.
Markaður ætti að vera vaxandi
með auknum túrisma. Með þeirri
þekkingu og reynslu sem er á þess-
um málum í dag, á að vera auðvelt
að gera hagkvæmniútreikninga fyr-
ir þær framkvæmdir sem til greina
koma.
Gangur mála yrði þessi:
Kannað verði hverjir möguleikar
era fyrir hendi, gerðar framáætlan-
ir vegna mögulegra framkvæmda
og arðsemi áætluð. Slíkar áætlanir
yrðu lagðar fram til veiðifélaganna
og veiðirétthafa sem taka síðan
ákvörðun um framhald í samráði
BV
Hand
lyffi'
vagnar
BÍLDSHÖFDA 16 SIMI 6724 44
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
við fískræktarsjóð og lánastofnanir.
Framáætlanir mætti greiða úr fís-
kræktarsjóði.
2. Vatnsmiðlanir í ár vegna veiði-
hagsmuna:
Nú er það svo að vatnsrennsli i
íslenskum ám er mjög misjafnt eins
og allir þekkja, er hér búa. Þetta
veldur oft talsverðum erfiðleikum, í
sambandi við veiði í ánum. Erfíðleik-
arnir eru tvíþættir, flóð og vatns-
þurrð. Erfítt verður að takast á við
stærri flóð og jafnvel þau meðal-
stóra en þau verða flest vor og haust
svo þau falla oft utan venjulegs
veiðitíma. Hvað varðar vatnsþurrð,
þ.e.a.s. þegar mjög lítið verður í
ánum, þá er hægt að lagfæra slíkt
mjög mikið, með tiltölulega einföld-
um vatnsmiðlunum sem þó geta
haft úrslitaáhrif á veiði og glætt
veiðina verulega. Flestar ár hérlend-
is, og þá sérstaklega laxveiðiár
tengjast í meira eða minna mæli
vötnum eða uppistöðum, sem nýta
má í þessu tilliti, enda sé það gert
með fullri gát og tekið tillit til lífrí-
kisins í vötnunum. (Vatnsborðs-
sveiflur mega ekki verða of mikl-
ar). Þetta mál tengist því lið 3.
Endurbótum á of grannum vötnum.
Varðandi þessi mál er rétt að undir-
strika að til viðbótar því að bæta
núverandi laxveiðiár með þessum
aðgerðum, þá er það einnig svo að
allmargar ár era hér á mörkum
þess að teljast veiðiár. Jafna má
rennsli í þessum ám yfír sumarið,
geyma vorflóðin eða í það minnsta
hluta þeirra ásamt sumarsveiflum
sem koma í miðlunarlónum, sem
síðan væra notuð til þess að jafna
meðalrennslið á veiðitímanum og
stórbæta eða jafnvel breyta á sem
ekki er nú talin laxveiðiá í litla
snotra laxveiðiá. Hér þarf að sjálf-
sögðu að gera framáætlanir og hag-
kvæmniathuganir eins og varðandi
fiskvegina.
3. Endurbætur á vötnum:
Nú er það svo að afrakstur vatna
hvað varðar fískframleiðslu er mjög
mismikil hér á landi og kemur margt
til. Að öðra jöfnu era tiltölulega
grann vötn með mestu afkastagetu
á flatareiningu. Þetta tengist því
að sumarhiti slíkra vatna verður
yfírleitt hagstæður fyrir vaxtar-
hraða físka og þess lífríkis er físk-
arnir lifa í. Allmörg vötn og uppi-
stöður era þó svo grann að þau
botnfijósa á vetram og nýtast því
ekki sem skyldi. Ráð við þessu er
að hækka vatnsborð vatnanna með
fyrirstöðum, og má þá oft samnýta
vatnið sem gott eldisvatn og miðlun
fyrir ána, neðan vatnsins. Hér vant-
ar framáætlanir og hagkvæmniat-
huganir.
4. Auka við veiðistöðvar í árnar:
Þetta er tvíþætt mál:
Svo háttar til í allflestum ám, að
veiðistöðum er mjög misskipt milli
svæða og jarða og oft er það svo að
á löngum köflum ánna er ekki reynt
að renna öngli í vatn.
Miðað við „normal" framleiðslu
árinnar hefur þetta ef til vill ekki
svo mikið að segja nema það að
tekjum árinnar verður mjög mis-
skipt milli eignaraðila. Með aukinni
ræktun og þar með aukinni físk-
gengd í ána, þarf að auka veiðiálag-
ið og verður að telja eðlilegast að
reyna að ná því marki með tvennum
hætti, lengja veiðisvæðin með físk-
vegum eða/og fjölga veiðistöðum.
Yfirleitt era þetta tiltölulega ein-
faldar aðgerðir er kosta mismikið
eftir aðstæðum. Hér er sem áður
vantar framáætlun og hagkvæmni-
athugun.
5. Fóðran í ár og vötn.
Nú er mikið rætt um fiskeldi og
eflingu fískræktar í landinu.
Undirritaður hefur um árabil eða
allt frá árinu 1956 helgað frístundir
sínar fískiræktarmálum og kynnt
sér þau mál eins og kostur hefur
verið á, enda um árabil verið ráð-
gjafí um byggingu fiskvega í ár og
lagfæringu áa varðandi fískirækt.
Ég hef mikið hugleitt þessi mál.
þess utan, og eftirfarandi hugleið-
ingar eru settar fram í því ljósi.
Staðreyndin er, að hér á landi
fellur til mikið af úrgangi, er auð-
veldlega mætti breyta í fiskifóður,
má þar nefna sláturútgang, ýmis-
konar innyfli og einnig fískúrgang.
Mest hefur verið rætt um að búa
til þurrfóður til notkunar í fiskeldis-
stöðvar, og er það vissulega áhuga-
vert mál sem halda þarf vakandi,
og er nú þegar hafíð.
Um það mál hefur undirritaður
og Gísli Pálsson bóndi á Hofí í
Vatnsdal ritað nokkrar hugleiðingar
að lokinni kynnisferð er við fórum
til Noregs og Svíþjóðar fyrir nokkr-
um áram. En það er ekki þetta
mál, sem ég geri að umræðuefni hér.
Hugleiðingar mínar ganga út á
tvennt.
1. Fóðrun með fiski- eða kjötmjöli
í árnar og vötnin annað hvort beint
eða með sjálfvirkum búnaði.
2. Fóðran með físk- og sláturút-
gangi hökkuðum og límdum saman
með matarlími, eða frystum sem
setja mætti í ár og vötn með ýmsum
hætti.
Hvernig staðið verður að þessu
máli hef ég hugsað talsvert og tel
mig hafa fundið hagkvæma aðferð
til þess að hrinda þessu máli í fram-
kvæmd, en vissulega þarf að sann-
reyna hugmyndir þessar með til-
raunum, sem ég tel að standa þurfí
í að minnsta kosti í 4 ár, jafnvel
lengur, en ég tel þó að nokkurs
árangurs megi vænta miklu fyrr,
ef rétt er að málunum staðið og ef
heppilegir staðir fást til tilraunanna
þá mætti jafnvel búast við árangri
strax á fyrsta ári.
Framkvæmdin verður sem hér
segir:
Ef notað er mjöl eða þurrfóður
er hráefnið tiltölulega dýrt en með
sjálfvirkum fóðruram má eflaust
minnka vinnulaun við framkvæmd-
ina. Velja þarf vötn af réttri stærð
og sem liggja ekki allt of fjarri al-
faraleiðum við tilraunastarfíð.
Gera þarf vissar framathuganir,
svo sem að reyna að fá hugmyndir
um stofnstærðir, vaxtarhraða og
afkastagetú vatnanna. Þetta út-
heimtir nokkra vinnu og sérfræði-
kunnáttu, þá þarf að velja mjöl af
réttri gerð. Líkast til nýtist mjöl til-
tölulega vel í vötnum þar sem hér
er um viðbótarfæðu að ræða, en
spumingin er hvort vítamínbæta
þarf mjölið.
Eflaust má einnig bæta lífríki
vatna með hóflegri áburðargjöf.
Einnig er það nokkuð ljóst að vötn
hér á landi batna, ef í þau era látin
skel og úrgangur frá rækju og hum-
arvinnslu o.fl. Þetta þarf allt að
____________Brids_______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Landslið yngri spilara 1993
Helgina 17.-18. apríl var haldið í
Sigtúni 9. Iandsliðskeppni í flokki
yngri spilara og kvenna.
I kvennaflokki kepptu 16 pör, spil-
aður var butler-tvímenningur, 8 spil
milli para, alls 120 spil. Sigurvegarar
í þessari keppni voru Hjördís Eyþórs-
dóttir og Ljósbrá Baldursdóttir með
175 stig og unnu sér það með lands-
liðssæti í kvennaflokki sem fer á Evr-
ópumót til Menton í Frakklandi í júní
í sumar. í öðru sæti voru Esther Jak-
obsdóttir og Valgerður Kristjónsdóttir
með 85 stig og í þriðja sæti Stefanía
Skarphéðinsdóttir og Stefanía Sigur-
bjömsdóttir með 78 stig.
í yngri spilara flokki kepptu 10 pör
og var spilaður butler, sjö spil milli
para, tvöföld umferð, alls 126 spil.
Sigurvegararnir þar voru Sveinn Rún-
ar Eiríksson og Hrannar Erlingsson
með 201 stig og unnu með því landsl-
iðssæti í yngri spilara flokki. í öðru
sæti voru Halldór Sigurðsson og Hlyn-
ur T. Magnússon með 65 stig og í
þriðja sæti Ragnar T. Jónsson og
Tryggvi Ingason með 30 stig. Verk-
efni yngri spilaranna á þessu ári er
Norðurlandamót sem haldið er að
Guðmundur Gunnarsson
„Þau meginmál sem hér
koma til álita eru: 1.
Að gera árnar laxgeng-
ar, lengra til fjalla en
nú er (fiskvegi). 2.
Vatnsmiðlanir í ár.
(Tryggja betra og ör-
uggara rennsli og
veiði). 3. Endurbætur á
of grunnum vötnum
(botnfrjósa). 4. Fjölgun
veiðistaða og bæting
þeirra í ánum (nýir
veiðistaðir búnir til og
þeir bættir sem fyrir
eru). 5. Fóðrun og
áburður í ár og vötn.“
kanna kerfísbundið. Megin vinnan
liggur að sjálfsögðu í fóðran og
veiði ásamt skýrslugerð. Þessa
vinnu þarf að skipuleggja vel í upp-
hafí af sérfræðingum en vinnan er
yfírleitt þess eðlis að veiðirétthafar
geta unnið þessa vinnu sjálfír.
Eðlilegt verður að telja að hag-
kvæmniútreikningar séu gerðir áður
en hafíst er handa við verk, sem
þetta, og að þeir verði leiðréttir eft-
ir því sem niðurstöður úr tilraunum
gefa tilefni til.
Hvað varðar tilraunir með blaut-
fóður, úrgang frá sláturhúsum og
frystihúsum verður verkefnið svipað
nema hvað nú verður eflaust erfíð-
ara að koma sjálfvirkum fóðraram
við en ég held að það mál megi leysa,
annað hvort með því að frysta fóðr-
ið í misstóra köggla sem síðan losna
sundur er þeir era settir í vatn og
fískurinn getur þá etið fóðrið er það
losriar og flýtur frá móðurkögglin-
um.
Einnig má líma fóðrið saman með
þessu sinni í Árósum í Danmörku í
júní nk. og verður liðið skipað Ólafi
Jónssyni og Steinari Jónssyni frá
Siglufírði og Sveini R. Eiríkssyni og
Hrannari Erlingssyni.
Vetrarmitchell Bridssambands
Islands
Föstudagskvöldið 16. apríl var met-
þátttaka í Vetrarmitchell Bridssam-
bands íslands. Alls mætti 51 par.
Úrslit urðu þannig:
N/S riðill:
Eðvarð Hallgrimss. - Jóhannes Guðmannss. 503
GuðbjömÞórðarson-JónHilmarsson 482
RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 477
Jörundur Þórðarson - Hrafnhildur Skúladóttir 470
JónStefánsson-SveinnSigurgeirsson 453
A/V riðill:
Valdimar Elíasson - Óli Bjöm Gunnarsson 508
BjörnSvavarsson-TómasSiguijónsson 507
Rögnvaldur Möller—Þórður Möller 488
Eiður Gunnarsson - Lucinda Grimsdóttir 481
Jón ViðarJónmundsson - Anton Vaigarðsson 471
Vetrarmitcell Bridssambands ís-
iands er spilaður á föstudagskvöldum
í Sigtúni 9 og allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfír.
Bridsdeild Félags eldri
borgara
15. apríl:
Ásta Erlingsdóttir - Vilhjálmur Guðmundsson 105
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 98
matarlími en kögglarnir molna síðan
niður á svipaðan hátt eins og frosnu
kögglarnir og þá verkar þessi aðferð
eins, nema við erum lausir við þá
kælingu, sem er samfara frysta
fóðrinu.
Æskilegt væri að fóðrun færi
ekki fram oftar en 1 sinni á dag
helst sjaldnar.
Varðandi ámar er málið ögn
flóknara bæði vegna þess að vatns-
magn í þeim getur verið mjög breyti-
legt og enn fremur má búast við
því að fóðrið dreifíst hratt niður
eftir ánni og að nýting verði ekki
eins góð eins og í vötnunum og erfið-
ara verður að fá öraggar niðurstöð-
ur um árangur fyrr en eftir allmörg
ár. Heppilegir staðir eru stærri hylj-
ir í ánum.
Ekki er ráðlegt að hefja fóðrun
fyrr en eftir vorflóð. Staðarval fyrir
fóðrun þarf að vanda og líkast til
þarf að „tjóðra“ blautfóðrið. Úr-
vinnsla á niðurstöðum tilraunarinn-
ar byggist á rafveiðum á seiðum í
ánni og skýrslugerð á endurheimt-
um fískum (löxum) í árnar og sam-
anburði við hliðstæðar ár í næsta
nágrenni og veiðiskýrslur fyrri ára.
Að fengnum niðurstöðum úr til-
raunum, er síðar hægt að hefja
kerfísbundið eidi og seiðasleppingar.
Lokaorð
Ég hef hér í nokkra máli drepið
á ýmsa þætti sem ég tel að horfa
þurfi til í sambandi við það að nýta
betur þá kosti sem landið býður
uppá í sambandi við fískirækt og
nýtingu þeirra möguleika sem fyrir
hendi era:
Meginniðurstaða mín er þessi:
1. Ég er viss um að hægt er að
stórauka tekjur af veiði í núverandi
vatnakerfí landsins.
2. Áður en hafist er handa um stór-
fellda uþpbyggingu hér að lútandi
þarf að gera forathuganir á málinu.
3. Gæta þarf þess að vel, að eignar-
aðild að vatnasvæðum landsins er á
höndum veiðifélaganna og veiðirétt-
areigendanna og gott samband þarf
að vera við þá um framgang máls-
ins.
4. Þjóðhagslega hagkvæmt er að
gera heildarúttekt á málunum í
formi framathugana og hagkvæmn-
iáætlana og verður hún eflaust best
unnin á vegum hins opinbera, þó
er ef til vill enn betra að styrkja
Landsamband veiðifélaga til þessara
verka og láta framkvæðið vera hjá
því.
5. Lokaframkvæmdir verði á vegum
veiðifélaga með tilstyrk Fiskirækt-
arsjóðs og lánastofnana.
6. Meginmarkmið þessa verks er
að ná fram aukinni nýtingu á nátt-
úraauðævum þeim sem tengjast
veiði í fersku vatni hérlendis og
skjóta styrkari stoðum undir at-
vinnuveg sem er í frambemsku og
á við örðugleika að etja, sem sagt
fískeldi í eldisstöðvum. Sem sagt
tengja fiskeldi náttúrannar við eldis-
stöðvárnar.
Höfundur er verkfræðingvr.
Gísli Guðmundsson - Jón Hermannsson 95
8 pör og meðalskor 84 stig.
18. apríl:
ólöfGuðmundsdóttir-HermannÓlafsson 125
Ásta Erlingsdóttir - Lóa Kristjánsdóttir 124
KristinnJónsson-JónHermannsson 115
Meðalskor 108 stig, 10 pör.
Frá Skagfirðingum
Góð mæting var síðasta þriðjudag,
í eins kvölds tvímenningskeppni deild-
arinnar. 24 pör mættu til leiks. Úrslit
urðu:
N/S
RagnarBjömsson-SævinBjarnason 328
Eggert Bergsson - Jón Viðar Jónmundsson 320
Ármann G. Lárusson 295
Dúa Ólafsdóttir - Margrót Margeirsdóttir 284
A/V
Guðlaugur Sveinsson - Láms Hermannsson 325
Sigrún Jónsdóttir - Ingólfur Lilliendahl 298
Baldvin Valdimarsson - Ólafur H. Ólafsson 296
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson 292
Næsta þriðjudag verður einnig eins
kvölds tvímenningur, svo og næstu
þriðjudaga, fram að upphafi Sum-
arbrids í Reykjavík.
Spilað verður í sunnudagsbrids í
húsi Bridssambandsins að Sigtúni 9,
næsta sunnudag 25. apríl. Spila-
mennska hefst kl. 13.30. Spilaður er
tvímenningur, opinn öllu spilaáhuga-
fólki. Umsjónarmaður er Ólafur Lár-
usson.