Morgunblaðið - 21.04.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBIAÐIÐ MIDVIKUDAGUK 21. APKÍL, 1993
Minning
Margrét Sigmar
Fædd 2. desember 1891
Dáin 23. desember 1992
Á Þorláksmessu síðastliðinni
andaðist vestur á Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna frú Margrét Sigmar
á hundraðasta og öðru aldursári.
Dregist hefur að geta um þessa
merku konu hér heima, en skal nú
bætt úr, þótt aðeins sé það gert
með fáum orðum.
Anne Margrethe, eins og íslensk
nöfn hennar hafa verið skrifuð á
ensku, fæddist 2. desember 1891 í
bænum Minneota í Minnesota, þar
sem verið hefur til skamms tíma
íslenskur söfnuður, enda bjuggu
margir íslendingar í þeim bæ, þar
á meðal Valdimar Björnsson, sem
títt kom hingað til lands og var
áhrifamaður í stjórnmálum í heima-
fylki sínu og bróðir hans, Björn, sem
var ræðismaður íslands.
Faðir Margrétar var séra Niels
Steingrímur Þorláksson frá Stóru-
Tjörnum í Ljósavatnsskarði Jóns-
sonar og þjónaði hann íslenskum
söfnuðum bæði í Minnesota og í
Norður-Dakota, en lengst í Selkirk
í Manitoba, Kanada. Kona séra
Steingríms og móðir Margrétar var
Erika Christofa Rynning frá Eids-
vold í Noregi, en bræður frú Mar-
grétar hinir þekktu Þorlákssynir,
séra Steingrímur, sem var m.a.
kristniboði í Japan, Páll læknir og
forystumaður samtaka þeirra í
Winnipeg, Frederik læknir og
Hálfdán verslunarmaður og í
forystusveit íslenska safnaðarins í
Vancouver.
Margrét lauk prófi frá kennara-
skóla og kenndi í fjögur ár í
Manitoba, en giftist 25. júní 1914
Haraldi Sigmar, en foreldrar hans
voru Sigmar Siguijónsson frá Ein-
arsstöðum í Reykjadal og Margrét
Ingjaldsdóttir frá Mýri í Bárðardal.
Séra Haraldur Sigmar þjónaði
söfnuðum íslendinga víða í Kanada
og Bandaríkjunum, en lengst eða í
19 ár sátu þau í Mountain í Norður-
Dakota. Séra Haraldur var m.a.
forseti íslenska kirkjufélagsins og
bæði létu þau kirkju og mennirigar-
mál mikið til sín taka auk þjóðrækn-
isstarfs.
Frú Margrét var prýðileg söng-
kona og stjórnaði auk þess kórum
í söfnuðum sínum. Hún var frábær
húsmóðir og kunni þá list að láta
gestum sínum líða vel, þegar þeir
vitjuðu heimilis hennar og dvöldu
þar lengri eða skemmri tíma. Nut-
um við aðhlynningar hennar hjónin,
þegar við komum til Mountain svo
til beint frá íslandi 1955 og hún
og séra Harald gerðu allt til þess
að létta okkur dvöl og aðstoða við
messugjörð, sem var bæði framand-
leg vegna tungumáls og hefða.
Seinast sáum við hana síðan fyrir
tveimur árum, er hún naut aðhlynn-
ingar á hjúkrunarheimili í Seattle
í Washington-ríki. Sami höfðings-
bragurinn einkenndi hana sem
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
KARL ROWOLD, R.
fyrrverandi sendiherra.
F. 12. ágúst 1911 - D. 17. apríl 1993.
Ragnhild, Finn og Jens.
t
Ástkær eiginkona mín,
JÓHANNA GUÐRÍÐUR ELLERTSDÓTTIR,
Tangagötu 4,
Stykkishólmi,
lést í St. Fransiskusspítalanum, Stykkishólmi, mánudaginn
19. apríl.
Finnbogi Ólafsson.
Maðurinn minn. ÓSKAR ÞÓRÐARSON,
Grenimel 8,
lést 19. apríl. Þóra Þorkelsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÞORLÁKUR EIRÍKSSON,
Tómasarhaga 16,
lést 18. apríl á Hrafnistu í Reykjavík.
María Guðjónsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AGNAR SIGURÐSSON
flugumferðarstjóri,
Vogatungu 73,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavik i dag, miðvikudag-
inn 21. apríl, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið.
Magnúsína Guðmundsdóttir,
Agla Bjarnadóttir,
Anna Agnarsdóttir, Páll Garðarsson,
Helgi Agnarsson, Hrefna Guðmundsdóttir,
Erna Agnarsdóttir, Bjarni Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ævinlega, þótt elli hefði vissulega
merkt sér hana. En augun voru
tær, kærleikur hennar umvefjandi
og trúarþelið jafn sterkt og óbifan-
legt og á árum áður.
Frú Margrét Sigmar gat nokkuð
notið heimsókna fjölskyldu sinnar
og vina, þegar hundrað ár voru að
baki og hlutverk ættmóður rækti
hún ævinlega af mikilli reisn og
skörungsskap með takmarkalausri
umhyggju.
Fimm börn ól Margrét og fædd-
ust öll í Wynyard í Saskatchewan
í Kanada og við lok farar hennar
voru barnabörnin fjórtán talsins og
langömmubörnin eru orðin tuttugu
og sex.
Af börnum frú Margrétar lifa
aðeins synir hennar tveir, séra Har-
ald Sigmar, sem kvæntur er Ethel
Kristjánsson frá Mountain í Norður-
Dakota og séra Eric, en kona hans
er Svava Pálsson úr Geysisbyggð-
um í Manitoba. Eru þeir bræður
og konur þeirra vel þekkt hér heima
á Islandi, hafa komið hingað í heim-
sóknir og til starfa og eru hinir
bestu fulltrúar gamla landsins, eins
og Vestur-íslendingar nefna títt
ættland sitt í Norðurhöfum og hafa
auk kirkjulegra starfa sinna unnið
mikið í þjóðernisfélögum og öðrum
samtökum, er hafa það á stefnu-
skrá sinni að auka tengsl milli landa
og einstaklinga hér heima og fyrir
vestan.
Synir frú Anne Margrethe Sig-
Minning
Sigríður Jónsdóttir
Því veldur mér trega tónanna slagur,
sem töfrar og dregur og er svo fagur?
Ég veit það og finn, hvers sál mín saknar.
Söngvanna minning af gleymsku raknar.
Ómur af lögum og brot úr brögum,
bergmál frá æfinnar liðnu dögum,
af hljómgrunni hugans vaknar.
(Einar Ben.)
Það er undarlegt að hugsa til
Siggu frænku með trega í huga,
hennar sem alltaf var hress og kát.
Lífsgleði einkenndi allt hennar fas,
en sorg og sút voru víðs fjarri, Sigga
varðveitti barnið í sjálfri sér alla tíð.
Sigga fæddist í Siglufirði, næst-
yngst í stórum systkinahópi, dóttir
Sigríðar Friðbjarnardóttur og Jóns
Friðrikssonar, sem þar bjuggu.
Æskuárin liðu við leik og störf
og Sigga tók þátt í síldarævintýrinu
á Sigló af lífi og sál. Síðar vann
hún um allmörg ár á Sjúkrahúsi
Siglufjarðar, sem starfsstúlka.
Sigga var alltaf mikill Siglfirðingur
og fór oft þangað til að viðhalda
tengslum og rifja upp gamalar
minningar. Oft sagði hún okkur
eitt og annað frá gömlu dögunum,
þá hafði nú verið fjör á ferðum og
margt að gerast, gleði og grín með
hlátrasköllum. Sigga fluttist „suð-
ur“ um 1960 og vann um tíma á
Vífilsstöðum. Síðar vann hún í
frystihúsi í Hafnarfirði og víðar.
Árið 1964 giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Áma Helgasyni bif-
reiðastjóra, sem er fæddur 19. júní
1926, traustum og góðum manni,
og bjuggu þau í Suðurgötu 85 í
Hafnarfirði. Þau eignuðust einn
son, Ragnar Gísla, sem fæddur er
15. janúar 1965. Hann býr í for-
eldrahúsum.
Þegar við systkinadætur Siggu
komum suður til náms, ungar stúlk-
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
LILJA KRISTDÓRSDÓTTIR
frá Sævarlandi,
Þistilfirði,
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, þann
19. apríl.
Már B. Gunnarsson, Guðrún Einarsdóttir,
Stefán B. Gunnarsson, Elsa Traustadóttir,
Indíana B. Gunnarsdóttir, Pétur Þór Kristinsson,
Rósamunda B. Gunnarsdóttir Taylor, Robert Lee Taylor,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn,
HRAFNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Víðigrund 26,
Sauðárkróki,
sem lést af slysförum aðfaranótt 18. apríl sl., verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 24. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minn-
ast hennar, láti Sauðárkrókskirkju njóta þess.
Anna Katrin Hjaltadóttir, Guðmundur Karlsson,
Jón Júlíusson, Jónína Zophaníasdóttir,
Hjalti Guðmundsson, Kristín Svavarsdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir,
systkini, langömmur og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns,
KARLS ÓSKARS FRÍMANNSSONAR.
Kristin H. Jónsdóttir.
mar töluðu báðir, er móðir þeirra
var kvödd, og frú Svava söng ein-
söng.
Við brotthvarf frú Margrétar
Sigmar er ekki aðeins verið að
minnast mætrar konu, heldur er
hún einnig fulltrúi þeirrar kynslóð-
ar, sem vann ótrúlegt starf meðal
fólks af íslensku bergi brotnu í
Ameríku. Nýjar kynslóðir hafa tek-
ið við, en hljóta að byggja á því,
sem skilað hefur verið þeim í hend-
ur af brautryðjendum, sem í hug-
sjónagleði, trúarvissu og köllunar-
tryggð töldu hvorki eftir stundir
né fé í framlagi sínu til þess, sem
talið var þess virði að fórna fyrir.
Minning frú Margrétar lifir og
er hún glæsilegur fulltrúi þeirrar
fylkingar, sem meira hefur afrekað
en almennt er hugsað um.
Við hjón þökkum henni og fjöl-
skyldu hennar vináttu og góðar
stundir og það veit ég allir þeir
aðrir taka undir, sem hafa hina
sömu sögu að segja af kynnum.
Guð blessi minningu frú Margrét-
ar Sigmar, ættmenni hennar og þær
hugsjónir, sem hún studdi og vann
ævi sína alla og langa.
Olafur Skúlason.
ur, og bjuggum í heimavistum stóð
heimili þeirra opið fyrir okkur og
vöndum við mikið komur okkar
þangað. Alltaf vorum við velkomnar
og vel gert við okkur og mátti segja
að þama væri okkar annað heimili.
Við gátum farið til Siggu til þess
að baka köku ef okkur langaði til
og alltaf var velkomið að nota
þvottavélina þegar á þurfti að
halda. Þá var nú ekki ónýtt að fara
í heimsókn á sjónvarpskvöldum
fyrst eftir að íslenska sjónvarpið
kom og fylgjast með Steinaldar-
mönnunum- eða Dýrlingnum og
missti maður af þætti var Sigga fús
til að rekja gang mála næst þegar
maður kom. Einnig var oft gaman
að leika sér að litla frænda eða
fara með hann í bæinn og oft feng-
um við að fara með fjölskyldunni í
bfltúra, bæði innan bæjar og utan.
Það var okkur ómetanlegt að eiga
þetta athvarf hjá frænku okkar og
Árna. Það þökkum við af heilum
hug og geymum alltaf góðar minn-
ingar frá þessum tímum.
Sigga frænka átti við vanheilsu
að stríða undanfarin ár. Andlát
hennar bar þó brátt að á annan dag
páska. Kæru Árni og Ragnar, við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur, með þakklæti fyrir allt
gamalt og gott. Biessuð sé minning
Siggu frænku.
Anna og Hallfríður.
Erfidiykkjiir
Glæsileg kaffi-
lilaðborð Mlegir
síilir og mjög
góð þjónusta
Ipplysingar
í síma 2 23 22
FLUGLEIDIR
HATEL LOFTLEIIIIt