Morgunblaðið - 21.04.1993, Page 38
-MQRfiUNRIiÁÐIT) MÍSyiKUDÁGUil. 21. AlUtÍL .121)3.
38
Hún vekur
inargar brennandi
spurningar
29. apríl er
reyklaus dagur.
<
i Þá geturðu byrjað
I nýtt líf.
UÓSMYNDUN
Urslit kynnt í
ljósmyndasamkeppni
Berglind Ingvarsdóttir, 10
ára, og Benedikt Einars-
son, 11 ára, með verð-
launagripina frá
Blackpool. Einn
þeirra, 30 ára gamall
bikar, er þó enn í
Blackpool þar sem
verið er að grafa
nöfnin þeirra í hann.
pöram. En Benedikt
vefst tunga um tönn
þegar hann er spurður
hvaða dans honum finnist
skemmtilegastur. „Stundum
finnst mér voðalega gaman
að dans vals. Áður beið ég allt-
af eftir að latin byrjaði," segir
hann en Berglind er ekki í vafa
og nefnir jive. „Hann er svo
hress og skemmtilegur, Mikill
hraði og mikið að gerast,“ segir
hún. Hana langar til að halda
áfram að keppa í dansi en hefur
minni áhuga á að verða dans-
kennari, gæti frekar hugsað sér
að gera eitthvað annað, t.d. verða
hárgreiðslukona, en Benedikt
segist vilja verða hótelstjóri í
Bandaríkjunum.
Foreldrar þeirra Berglindar og
Benedikts fylgdu þeim í keppnina
en þar eignuðust þau líka kunn-
ingja af hinum ýmsu þjóðemum.
Þau segja að vel hafi verið tekið
á móti þeim og íslensku keppend-
urnir hafi fengið mikinn
stuðning frá
áhorfendum í
salnum.
Morgunblaðið/Július
fréttaritara
Sigurgeir Jónasson Ijósmyndari í Vestmannaeyjum tekur við verð-
launum sínum úr hendi Matthíasar Johannessens ritsljóra.
A
’Trslit í Ijósmyndasam-
^ keppni Okkar manna,
félags fréttaritara Morgun-
blaðsins, voru tilkynnt við
athöfn í anddyri Morgun-
blaðshússins í Kringlunni 1
síðastliðinn laugardag. Þar
voru verðlaunamyndirnar
jafnframt hafðar til sýnis.
Veitt voru verðlaun og
viðurkenningar fyrir 28
myndir og myndraðir í sjö
flokkum. Eldhafið, ljós-
mynd Sigurgeirs Jónasson-
ar í Vestmannaeyjum, var
valin Mynd ársins 1991-
1992 og verðlaunuð sér-
staklega. Myndin er af upp-
hafi Heklugossins í janúar
1991 og var hún tekin úr
Vestmannaeyjum. Sigur-
geir hefur verið ljósmyndari
Morgunblaðsins í Vest-
mannaeyjum í 35 ár og
undanfarna tvo áratugi
jafnframt annast afgreiðslu
blaðsins þar.
Sýning á verðlauna-
myndunum með heitinu Líf-
ið í landinu verður sett upp
á nokkrum stöðum á lands-
byggðinni á næstu vikum
og mánuðum. Ljósmyndirn-
ar fara fyrst á Selfoss og
verða hengdar upp í and-
dyri Hótels Selfoss fyrir
sumardaginn fyrsta. Þar
verður sýningin í vikutíma.
DANS
Óvæntur sigur
Eg sá svo marga góða að ég
bjóst alls ekki við þessu,“ seg-
ir Berglind Ingvarsdóttir sem ásamt
Benedikt Einarssyni, dansfélaga
sínum, sópaði að sér verðlaunum í
alþjóðlegri danskeppni ungri dans-
ara í Blackpool á Englandi dagana
12.-16. apríl. Fyrsta keppnisdaginn
urðu Berglind og Benedikt í öðru
sæti í vínarvölsum í sínum flokki,
11 ára og yngri. Annan daginn sigr-
uðu þau í latin-dönsum, þriðja dag-
inn urðu þau í 3. sæti í quick-stepp
og fjórða daginn í 2. sæti í jive og
3. sæti í landskeppni. Síðasta
keppnisdaginn urðu þau í 5. sæti í
standard-dönsum.
Berglind var aðeins fimm ára
þegar hún byrjaði í dansi. „Bróðir
minn, sem er eldri, fór fyrstur í
dans. Honum fannst svo gaman að
mig og systur mína langaði að fara
líka,“ segir hún en nú dansa eldri
systkini hennar tvö saman. Þegar
systurnar bytjuðu í dansi var Berg-
lind líka í fimleikum. „Ég var bæði
í dansi og fimleikum í þijú ár þang-
að til að ég var átta ára en þá
hafði ég ekki tíma til að gera hvort
tveggja og valdi dansinn.“
Benedikt hefur hins vegar aðeins
verið eitt og hálft ár í dansi. „Ég
fékk áhuga á dansi þegar nágranni
frænda míns, sem heitir Sesselja
Sigurðardóttir og hef-
ur mikið verið í
dansi, kenndi
okkur frændun-
um frumspor-
in. Hún
spurðu J
okkur y
svo / (
hvort , i
við vild- ;
um fara í
dansskóla
enda vantar
þar alltaf dans-
herra og við ákváðum
báðir að slá til,“ segir
hann en dansinn hefur svo
sannarlega undið upp á sig því
að nú æfa þau Berglind dans þrisv-
ar sinnum í viku og eru þar að
auki einu sinni í viku í einkatímum.
Góð pör í Blaekpool
Berglind og Benedikt urðu í
Qórða sæti í latin-dönsum í dans-
keppni í nágrenni London í októ-
ber í fyrra en Blackpool er mun
stærri keppni og þau eru
sammála um að
þar hafi
verið
mikið af
góðum
Freysteinn Jóhannsson fréttastjóri, formaður dómnefndar, og Sig-
ríður Óskarsdóttir starfsmaður ljósmyndadeildar Morgunblaðsins
afhenda Onnu Maríu Ágústsdóttur viðurkenningu Róberts Schmidt.
Alfons Finnsson ljósmyndari í Ólafsvík (fyrir miðju) ásamt konu
sinni, Annette Bertelsen, og Jóni Guðmundssyni fréttaritara á
Reykjum í Mosfellsbæ.
Morgunblaðið/Kristinn
NÍU fréttaritarar fengu verðlaun
og viðurkenningar í ljósmynda-
samkeppni Okkar manna. Á
myndinni eru verðlaunahafarnir
og þeir sem tóku við viðurkenn-
ingum fyrir þá sem ekki gátu
verið viðstaddir. Lengst til vinstri
er Alfons Finnsson í Ólafsvík,
næst honum eru Ágúst Ágústsson
og Anna María Ágústsdóttir sem
tóku við verðlaunum bróður síns,
Róberts Schmidt á Bíldudal, þá
er Sigurgeir Jónasson í Vest-
mannaeyjum, Ulfar Ágústsson á
ísafirði og Vilmundur Hansen í
Trékyllisvík. Þá eru Hólmfríður
Vala og Margrét Hrönn Svavars-
dætur sem tóku við' verðlaunum
föður síns, Svavars B. Magnússon-
ar á Ólafsfirði, næst ystur til
hægri er Sigurður Jónsson á Sel-
fossi og lengst til hægri er Theod-
ór Kr. Þórðarson í Borgarnesi.
Hallgrímur Magnússon í Grund-
arfirði fékk einnig viðurkenningu
fyrir ljósmynd en hann var stadd-
ur erlendis þegar athöfnin fór
fram.