Morgunblaðið - 21.04.1993, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
wefenAnit
Þetta er til þín
HÖGNI HREKKVÍSI
flfojrðtutfifftMfr
BRÉF TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811
Hugleiðingar á vordögum
Frá Birni Egilssyni:
SÍ OG Æ hefur Morgunblaðið birt
þá ósk til lesenda, að þeir skrifi
bréf til blaðsins. Þess er ekki getið
að þessi bréf eigi umfram allt að
vera prenthæf, en til þess mun
ætlast því við sem búum á íslandi
eigum öll að vera kurteis.
Nú tek ég það fyrir að skrifa
bréf til Morgunblaðsins, en auðna
ræður því, hvort blaðið á pappír til
þess að ritlingur minn komist í
pressuna.
Teljist bréf mitt ekki prenthæft
verð ég að una því. Ég hef orðið
fyrir meiri skaða.
Það sem hefur vakið athygli
mína að undanförnu er þessi mikli
fyrirgangur, allt í kringum þennan
Hrafn Gunnlaugsson. Honum var
vikið úr opinberu starfi, sem er
með fádæmum. Og fyrir hvað var
hann settur af? Það er næsta óljóst.
Mér skilst að sök hans hafi verið
sú, að hann hafi talað óvirðulega
um starfsfólk Sjónvarpsins.
Ég er sannfærður ura að starfs-
fólk Sjónvarpsins vinnur verk sín
af samviskusemi eins og það getur
best, en samt er það ekki heilagt
eins og kýr í Indlandi.
Hafi Hrafni Gunlaugssyni orðið
slys á tungunni á hann að fá bæt-
ur, en lög um almannatryggingar
hér á landi eru svo ófullkomin að
ekki eru ákvæði í þeim um, að
bæta .skuli slys á tungu.
Hrafn Gunnlaugsson er hressi-
legur og slettir úr klaufunum. Að
sletta úr klaufum er hreingeming
eins og þegar borðstofugólf er
skúrað á laugardögum.
Ég hef hugsað með mér. Látið
Hrafn í friði. Hann á að njóta ætt-
ar sinnar.
Þórður læknir á Kleppi var há-
menntaður vísindamaður og lagði
mikla vinnu í að sanna að eitthvað
væri hinum megin.
Og það var ekki honum að
kenna, þó að ekki hafi sannast enn
þann dag í dag, að eitt eða neitt
sé hinum megin, nema kannski
blámi himinsins.
Og þórður Sveinsson læknir
hafði fleira sér til ágætis. Hann
var Húnvetningur og Húnavatns-
sýsla er nærri því eins merkilegt
hérað og Skagafjarðarsýsla.
Nú laugardag fyrir páska ’93
hefur brugðið til hins betra. Hrafn
Gunnlaugsson hefur verið settur í
embætti eftir skamma fjarveru.
Honum var ekki trúað fyrir því
embætti, sem hann hafði, enda
hefur það oft gefíst vel, að færa
menn úr einu embætti í annað. Nú
á hann að stjórna í menningarmið-
stöð hátt uppi og gæta þess að
Mammon ráði ekki of miklu. Vald
Mammons má ekki ná lengra en í
miðja hlíð.
Nú er ófriður í Hafnarfirði, þess-
um friðsæla bæ. Það er út af turni,
sem á að reisa. Því er haldið fram,
að turn þessi skyggi á önnur hús
og útsýn þaðan. Eg get vel skilið
að Hafnfirðingum sé það ekki nóg
að horfa beint upp í loftið. Þeir
þurfa líka að horfa til hliðar og sjá
Esjuna, Snæfellsjökul og Keili. Hitt
er verra ef þeir eyðileggja metra-
málið með því að halda því fram,
að þrír metrar og átta metrar séu
sama stærð. Metramálið er búið
að gera það gott.
Aður var bara þingmannaleið og
dagslátta.
Ég hef verið hrifinn af turnum
frá því að ég sá mynd af Effelturn-
inum fyrir mörgum áratugum.
Turnar hafa dulræna merkingu.
Þeir benda upp í himininn, þar sem
himnaríki er.
Skuggar þurfa að vera til, svo
ljósið njóti sín. Það væri of einfalt
og slétt ef alheimurinn væri eitt
ljóshaf. Mig grunar að Hallgríms-
kirkja skyggi á íbúðarhús á Skóla-
vörðuhæð.
Ég hef áður sagt það og skrifað,
að Morgunblaðið er besta blað
norðan Alpafjalla. Það er eðlilegast
að fjallgarðar afmarki landsvæði.
Alpafjöll suður í Evrópu og Trölla-
skagi hér á landi. Og fjallgarðar
ráða veðrum. Hér rignir minna og
eru mildari veður vestan Trölla-
skaga.
Einhver sagði að mig skorti rök
fyrir svo víðtækri ályktun um
Morgunblaðið. Það er aldeilis ekki.
Morgunblaðið er fjölbreytilegt að
efni. Þar er skrifað um vísindi og
listir, trú og heimspeki, hagfræði
og Ijármál og greinilega skilgreint
hvernig hægt er að græða peninga
innan ramma laga.
Þá má ekki gleyma guðsorði,
sem birtist í blaðinu á hverri helgi
og prófastar og biskupar hafa upp-
hugsað.
Þeir sem gefa Morgunblaðið út
tileinka sér jafnaðarstefnu og gefa
fátækum. Blaðið er gefið hingað í
Neðra — á Króknum.
Þeir vita vel fyrir sunnan að við
hér eigum aungva peninga nema
þessa vasapeninga frá Jóni Bald-
vin, sem ber að þakka, þó að þeir
dugi naumlega fyrir tóbaki.
A hveijum degi verð ég feginn,
þegar Morgunblaðið dettur niður
til okkar. Þá fæ ég veður af heims-
menningunni og fæ líka að vita að
ég er ekki einn í heiminum, sem
ég hef stundum ímyndað mér.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, hefur gegnt hinu háa
embætti með miklum sóma og ekki
verður henni orðs vant á Bessastöð-
um.
Fyrir stuttu var útvarpað viðtali
við frú Vigdísi forseta, þar sem
rætt var um hlutverk Alþingis og
forsetaembættis í stjórn landsins.
Samkvæmt stjórnarskrá getur
forseti neitað að undirrita lög sem
Alþingi hefur samþykkt, en til þess
hefur ekki komið enn.
Frú Vigdís forseti var spurð,
hvort hún gæti nefnt dæmi um,
að hún neitaði að undirrita lög frá
Alþingi. Já, hún gat það. Ef Al-
þingi samþykkt lög um dauðarefs-
ingar mundi hún neita að undirrita
þau. Þetta svar fannst mér svo
snjallt, að ég held að ég muni það
meðan ég man eitthvað.
BJÖRN EGILSSON
frá Sveinsstöðum.
Yíkverji skrifar
Víkveiji reyndi þjónustu Bíla-
þvottastöðvarinnar Bílds-
höfða í fyrsta sinn nú um helgina
og af þessari fyrstu reynslu er ör-
uggt að hann mun oftar notfæra
sér þjónustu þessarar litlu stöðvar
sem hefur á að skipa röskum og
elskulegum starfsmönnum. Tjöru-
hreinsun og þvotturinn sjálfur tekur
ekki langan tíma, en á meðan beð-
ið er, er viðskiptavinum boðið til
lítils afkima, þar sem þeir geta set-
ið og spjallað og fengið sér kaffi-
sopa í boði stöðvarinnar, eða áður
en þeir aka á brott í tandurhreinum
og gljáandi bílum sínum. Og það
sem meira er, þjónustan er seld við
því sem Víkveiji telur mjög sann-
gjarnt verð. Það sem Víkveiji telur
sérlega ánægjulegt við starfsemi
þessarar litlu þvottastöðvar, er
hversu þjónustuliprir og elskulegir
starfsmennirnir eru og svo koma
þeir að þjónustu lokinni og tilkynna
viðskiptavininum með bros á vör
að bíll hans sé tilbúinn.
xxx
Um þessar mundir er sjálfsagt
ein aðalvertíð hjá blómasöl-
um, páskar nýafstaðnir, og ferm-
ingar flesta helgi- eða sunnudaga.
Víkveiji hefur jafnan af því ánægju
að koma í blómabúðir og skoða það
sem á boðstólunum er hveiju sinni,
og þá ekki síður þegar svo miklar
annir eru hjá blómasölum. Kunn-
ingjakona Víkveija fór síðastliðinn
sunnudag í Blómabúð Michelsen í
Hólagarði í Breiðholti, sem rekin
er af Ragnari Michelsen.
Hún sagði Víkverja frá þeirri
skemmtilegu heimsókn sinni, sem
henni fannst bera blómasölumann-
inum afar gott vitni. Hún þurfti að
láta pakka inn fyrir sig lítilli ferm-
ingargjöf og skreyta og spjallaði
stuttlega við afgreiðslustúlkuna og
verslunareigandann á meðan á
þessu stóð. Þegar hún hafði lokið
erindi sínu og ætlaði að hverfa hin
ánægðasta á braut með fagurlega
skreyttan pakkann, sagði verslun-
areigandinn við hana hinn elskuleg-
asti: „Þú ert svo jákvæð, að ég
verð að fá að gefa þér þessa rós,“
og rétti henni fagurrauða og ilm-
andi rós í kveðjuskyni. Það er næsta
víst, eins og Bjarni Fel myndi orða
það að kunningjakonan mun ekki
leggja lykkju á Ieið sína fram hjá
þessari verslun, næst þegar hún
þarf á þjónustu blómaverslana að
halda.
Annars verður þess ekki vart,
þegar { fermingarveislur er
komið, hvers konar kreppa ríkir í
þjóðfélaginu. Fermingarbörnin fá
dýrar og fagrar gjafir, og stórgjaf-
ir í peningum. Það er alls ekki sjald-
gæft að fermingarbörn fái á milli
eitt og tvö hundruð þúsund krónur
í peningagjafir, auk annarra gjafa.
í flestum tilvikum kemur það svo
í hlut foreldrana að hafa vit fýrir
börnum sínum, þannig að daginn
eftir ferminguna sé nú ekki haldið
niður í miðbæ eða Kringlu ogtugum
þúsunda eytt í föt, hljómplötur og
hvað eina sem hugurinn kann að
girnast. Foreldrar ráðleggja þá
börnum sínum iðulega að leggja
megnið af peningagjöfunum inn á
bankabók, því þar muni þau ávaxta
sitt pund.
Hætt er nú við að í einhveijum
tilvikum muni þessi siður leggjast
af, eða stórdraga úr honum, verði
10% nafnvaxtaskattur sparifjár að
raunveruleika - fjármagnstekju-
skatturinn sem samkomulag var
orðið um á milli aðila vinnumarkað-
arins og stjórnvalda, þegar slitnaði
upp úr samningaviðræðum nú fyrir
helgi.