Morgunblaðið - 21.04.1993, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
45
Bubbi og Bólu-Hjálmar
Frá Örlygi Siguqónssyni:
ENN HEFUR verið vegið að helgi-
dómi Guðmundar Guðmundssonar
framkvæmdastjóra. Síðast var það
ljóðabók stúdenta við Háskóla ís-
lands sem Guðmundi fannst svo
mikil svívirða við fornar hefðir,
stuðla og höfuðstafi að hann nefndi
ljóðin „óljóð“ vegna þess, og vegna
andleysis þeirra. Hann spurði hvers
vegna enginn tæki sig til og semdi
lag við „óljóðin" og fleiri nútímaljóð
og komst að þeirri niðurstöðu að
þau væru svo slæm að slíkt væri
ekki vinnandi vegur. Síðan fór Guð-
mundur að bera „óljóðin" saman
við ljóð öndvegisskáldanna á borð
við Jónas Hallgrímsson og fleiri
ágæt skáld. Mörg væru lögin nú
orðin sem hefðu verið samin við þau
ljóð.
Guðmundi er einkar lagið að
bregða mælistiku 19. aldarinnar á
vora daga þegar talið berst að nú-
tímaljóðum en ýmislegt er það þó
sem ber að benda á í því tilliti.
Stundum vill það gleymast að and-
laus lesandi staðfestir tilvist and-
lausra ljóða. Að þessu sinni spyr
Guðmundur í grein sinni í Mbl. 14.
apríl sl. hvort Bólu-Hjálmar hafi
verið fyrsti popparinn og ber saman
Bubba Morthens og Bólu-Hjálmar
líkast til með tilvísun í sjónvarps-
mynd sem sýrtd var í Ríkissjónvarp-
inu í byijun desember á síðsta ári.
í það minnsta er lagafræðinni ekki
til að dreifa í ljóðum Buba sem
Guðmundur gerir að umtalsefni nú.
Guðmundur segir: „Nú skal jarða
ljóðstafi og brageyra með sem
mestri háðung!“ Þessi setning telst
eflaust mein Guðmundar, þ.e. sú
ósk að inntakið þjóni forminu og
• þá fyrst megi tala um ljóð á annað
borð. Guðmundi finnst það stirður
biti í hálsi að Bubbi og Bólu-Hjálm-
ar séu settir á sama stall og lesa
má út úr grein Guðmundar að Bubbi
sé ekki þess verður að vera nefndur
í sömu andránni og Bólu-Hjálmar
því orðfæri hans og form sé lakara.
En spurningin snýst ekki um þetta
atriði heldur um það hvort þráðum
slái saman í inntaki sumra ljóða
Bubba og Bólu-Hjálmars og henni
skal svarað játandi. Sömu hughrif
eru tjáð á ólíka vegu sem markast
af þeim samtíma sem skáldið lifir
í, ólíku menningarumhverfi o.s.frv.
En hin sönnu gildi breytast hins
vegar trauðla sem og almennur
hugmyndagrundvöllur þó að tján-
ingarháttur þeirra breytist með
breyttum tímum eins og gengur.
Samanburður ljóða Bubba og Bólu-
Hjálmars sem ljóða á öðrum for-
sendum er því ótækur. Guðmundur
ber saman „Náfregn" Bólu-Hjálm-
ars og „Þingmannagælu" Bubba.
Síðan spyr hann hvort um hliðstæð-
an skáldskap sé að ræða. Illa er
valið til samanburðar en víst mætti
færa rök fyrir því að um hliðstæðan
skáldskap sé að ræða þannig að
„þingmaður“ Bubba sé „drengur"
Bólu-Hjálmars í nútímanum. Þeir
bregða hvor á sinn hátt upp mynd
af manni sem stendur ekki við
skuldbindingar sínar. „Náfregn“
Bólu-Hjálmars er þó meira af trúar-
legum toga en sjá má hliðstæður
ef vel er að gáð. Guðmundur ætti
að bera saman „Segulstöðvarblús"
Bubba og „Umkvörtun" Bólu-
Hjálmars til að skilja samslátt hug-
hrifa. Bæði ljóðin lúta að sjálfu
skáldinu sem stýrir penna og finna
má áþekkar tilfmningar sem birtar
eru á ólíkan hátt.
í seinni hluta greinar sinnar seg-
ir Guðmundur: „Að apa eftir alls-
konar erlendum tískufyrirbærum
er ekki endurnýjun ljóðforms heldur
lágkúra sem fáránlegt er að veg-
sama.“ Þannig er að löngum hefur
verið „apað“ eftir erlendum „tísku-
fyrirbæram" í bókmenntasögunni
' en það hefur kallast að vera undir
áhrifum. Vantrú Guðmundar á ung
íslensk ljóðskáld er því óþörf því
þau kunna gott að meta, jafnt er-
lent sem innlent, og þau vita vel
hvað þeim ber að taka sér til fyrir-
myndar.
ÖRLYGUR SIGURJÓNSSON,
nemi við Háskóla íslands.
Stjórn Kvikmyndasjóð er
ekki úthlutunarnefnd
Frá Ragnari Arnalds:
í bréfí til Morgunblaðsins föstu-
daginn 16. apríl sl. nefnir Þorgeir
Þorgeirson það sem dæmi um
hneykslanlegan hagsmunaárekstur,
að formaður stjórnar Kvikmynda-
sjóðs sé „höfundur handritsins að
kvikmynd sem nýlega fékk vænan
hlut úr þeim sjóði“. Og hann bætir
við: „Ef þetta hefði gerst í fullveðja
lýðræðisríki eins og til að mynda
Danmörku hefði formaðurinn um-
svifalaust verið látinn segja af sér.“
Þorgeir sér hins vegar ekki
ástæðu til að láta þess getið, að
stjórn Kvikmyndasjóðs hefur ekki
valið þau handrit eba kvikmyndir
sem styrki hafa hlotið. Það gera
sérstakar úthlutunarnefndir.
Meðal íslenskra kvikmyndagerð-
VELVAKANDI
SINUBRUNAR
Á VORDÖGUM kemur alltaf
upp sama vandamálið, vítt um
landið. Eru það sinueldarnir og
á það ekki síst við um höfuð-
borgarsvæðið. Það sem eykur á
þannan vanda er að á þessum
tíma er mjög þurrviðrasamt,
ekki síst á suðvesturhorninu.
Oftast era það krakkar sem eru
að fíkta við að kveikja í sinunni
og koma stundum upp margir
eldar sama daginn. Hefur lög-
regla og slökkvilið varla við að
slökkva. Af þessu getur stafað
mikil hætta fyrir mannvirki og
skógrækt. En ég fékk smá
hugdettu í sambandi við þetta
mál. Jörð er oft mjög þurr um
þetta leyti. Hvernig væri að
slökkviliðið dældi vatni á skóg-
arspildur hér í borginni, t.d. Ell-
iðaárhólman eða skógarspild-
urnar í Fossvoginum? Eg er
ekki viss um að þetta þyrfti að
gera nema annan hvorn dag ef
gert væri rækilega. Eg veit að
þarna er í töluvert ráðist en það
er líka dýrt að þurfa alltaf að
vakta þessa staði. Og fýrir-
byggjandi ráðstafanir geta líka
sparað. Eg veit að ég hef ekki
hundsvit á þessu en mér datt
þetta svona í hug.
Gestur Sturluson
Hringbraut 50
ÁRÓÐUR GEGN
HRAFNI
SKELFING er ég orðin leið á
að hlusta á stöðugan
„Hrafns-hatursáróður“ í
Ríkisútvarpinu. Þar hefur Rás 2
vinninginn - er Útvarpið í eigu
starfsfólksins í Efstaleiti en ekki
allra landsmanna, sem borga þó
brúsann? Það er engu líkara en
hlaupinn sé illur andi í liðið. Ég
legg til að presturinn blessi yfir
báknið.
Guðrún Magnúsdóttir
TAPAÐ/FUNDIÐ
Jakki
JAKKI var tekinn í misgripum
á Hressó á föstudagskvöldið 2.
apríl og annar skilinn eftir. í
jakkanum var ökuskírteini og
leðurhanskar. Sá sem jakkann
tók er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 44519.
Hjól
TAPAST hefur hvftt Trekk-hjól,
20 tommu, af gerðinni 820, frá
Seljabraut í Breiðholti. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 670683.
GÆLUDÝR
Læða
SVÖRT læða með hvítar loppur,
hvíta bringu og hvíta snoppu
tapaðist fyrir um þremur vikum.
Hún er hugsanlega kettlinga-
full. Vinsamlegast hringið í síma
79371 ef hún hefur einhvers
staðar komið fram.
Kettlingar
KETTLINGAR fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 682489.
armanna hefur sú skoðun verið ríkj-
andi, að heppilegt sé, að í stjórn
Kvikmyndasjóðs sitji fólk sem þekki
nokkuð til kvikmyndagerðar og
vandamála sem þar koma upp, enda
fjallar sjóðsstjórn mikið um almenn
hagsmunamál kvikmyndaiðnaðar-
ins. Þess vegna hafa margir setið
þar í stjóm sem sjálfir tengjast
umsóknum um styrki úr sjóðnum:
Handritshöfundar, leikstjórar, leik-
arar og framleiðendur. En þetta
hefur ekki aðeins verið vilji kvik-
myndagerðarmanna; í lögum um
Kvikmyndasjóð er beinlínis gert ráð
fyrir, að þar sitji fulltrúar samtaka
framleiðenda, leikara og félags
kvikmyndagerðarmanna. Jafnframt
er svo fyrir mælt í lögunum, að
sérstakar úthlutunarnefndir taki
ákvarðanir um styrki til kvik-
myndagerðar — einmitt til þess að
koma í veg fyrir hagsmunaárekstur.
Fyrrnefndur styrkur sem Þorgeir
býrsnast yfir var mér ekki veittur
heldur Halldóri Þorgeirssyni f.h.
Kvikmyndafélagsins Umba á árinu
1991 út á handrit sem ég var þá
að skrifa og lauk við sama ár.
Reyndar var úthlutunarnefndin sem
ákvörðun tók um þennan styrk kjör-
in á árinu 1990, áður en ég var
skipaður í stjóm sjóðsins.
RAGNAR ARNALDS,
formaður stjórnar
Kvikmyndasjóðs.
Pennavinir
Tvítugur Ghanapiltur með áhuga
á tónlist, bréfaskriftum, ferðalögum
og fijálsíþróttum:
Benjamin K. Agovi,
c/o Mr. Benjamin Yawson,
P.O. Box 908,
Oguaa C. R.,
Ghana.
LEIÐRETTINGAR
Rangt föðurnafn
í frétt Morgunblaðsins í gær um
kynningarfund Tvíhöðfai)efndar-
innar var rangt farið með föðurnafn
Stefaníu Jónasdóttur en hún var
sögð Sölvadóttir. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
stökum.
Plús breyttist í
mínus
í grein eftir Erlend Jónsson sem
birtist í blaðinu sl. laugardag
breyttist útkoma úr jöfnu. Jafnan
er rétt svona:
2) Lyfjadreifing skv. núv. kerfi:
lfj* 200+iH*«-iÍ5> 10°=-90;
PATRICK
BRIAN LAUDRUP
Stærðir 28-46.
Mjúkir og sterkir malarskór ó
sérlega hagstæðu verði.
Fóst í flestum sportvöruverslunum.
Heildsöludreifing
Suðurlandsbraut 22,
sími 688988.
Allor
konur
þró að eiga
grannan
fallegan líkama.
Loksins er komið
ó markaðinn
órangursríkt kremhlaup
fró DIOR sem vinnur
ó móti appelsínuhúð
og óæskilegri
fitumyndun.
DIOR SVELTE
er framleitt fyrir
nútfmakonuna.
Það grennir
og fegrar
líkamann ó
hótt.
Vörumar frá Barbara Farber
og Pointer fást nú aðeins
í Englabörnum
Full búð af fallegum sumarvörum
ENGLABÖRNÍN
Bankastræti 10 ■ sími 22201