Morgunblaðið - 21.04.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTBR MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÓLAFUR Sveinsson, Gróttu,
var útnefndur besti leikmaður 2.
deildar í handknattleik á lokahófi
deildarinanr. Róbert Sighvatsson,
UMFA, var í öðru sæti og Stefán
Arnarson, KR, í þriðja sæti.
■ OLAFUR var einnig kjörinn
besti sóknarmaðurinn, Páll
Björnsson, KR, var í öðru sæti
og Jón Þórðarson, IH, í þriðja
MÞORSTEINN Viktorsson,
UMFA, var valinn besti vamar-
maðurinn, Ragnar Guðlaugsson,
ÍH, kom næstur og síðan Miodrag
Solaja, Gróttu.
■ ÞÓRIR Sigurgeirsson hjá
UBK fékk flest atkvæði sem besti
markvörðurinn, Sigurður Jens-
son, UMFA, var næstur og þá Jón
Sæmundsson, KR.
■ PÁLL Beck, KR, var kjörinn
efnilegasti leikmaðurinn, Jón
Þórðarson, UBK, var í öðru sæti
og Björgvin Björgvinsson, UBK,
í þriðja sæti.^
■ SIGURJÓN Guðmundsson úr
Fylki var markahæstur með 140
mörk. Jón Þórðarson, IH, gerði
138 mörk og Olafur Sveinsson,
Gróttu, var með 136 mörk.
■ ÓLAFUR Lárusson, þjálfari
KR, var útnefndur besti þjálfarinn,
Guðmundur Guðmundsson,
UMFA, var í öðru sæti og Aðal-
steinn Jónsson, UBK og Arni
Indriðason, Armanni voru í þriðja
til fjórða sæti.
FELAGSLIF
Firmakeppni ÍH
Hin árlega fírmakeppni ÍH í handknatt-
lc'k verður haldin í íþróttahúsinu við Strand-
:u 30. april og 1. maí. Skráning og nán-
i ri upplýsingar í síma 653383 eða 654654.
Aðalfundur Breiðabliks
Handknattleiksdeild Breiðabliks heldur
aðalfund sinn í félagsheimili Kópavogs kl.
20 þriðjudaginn 27. apríl.
Björg Hafsteinsdóttir er með
flesta landsleiki.
Torfi Magnússon, landsliðsþjálf-
ari í körfuknattleik, hefur
valið kvennaliðið, sem keppir á
Smáþjóðaleikunum á Möltu síðustu
vikuna í maí. Eftirtaldar stúlkur
eru í hópnum:
Guðbjörg Norðfjörð, KR.............
Hildigunnur Hijmarsdóttir, ÍR......
Olga Færseth, ÍBK..................
Hanna Kjartansdóttir, ÍBK..........
Björg Hafsteinsdóttir, ÍBK,........
Hafdís Helgadóttir, ÍS.............
Stefanía Jónsdóttir, UMFG,.........
María Guðmundsdóttir, KR...........
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir, UMFG,
Svanhildur Káradóttir, UMFG,.......
Elínborg Herbertsdóttir, ÍBK,......
Helga Þorvaldsdóttir, KR...........
KORFUKNATTLEIKUR
Smáþjóðaleikar:
Kvenna-
liðið valið
SVEITAGLÍMA ÍSLANDS
Kóngaslagur
Þingeyingar sigruðu í 14. sinn í röð
Fyrri hluti sveitaglímu íslands fór
fram á Laugum í Þingeyjar-
sýslu fyrir stuttu og vann sveit
heimamanna, Þingeyingar, 14. árið
í röð.
I karlafiokki kepptu þrjár sveitir:
HSK, HSÞ og KR. Þarna voru
mættir til leiks flestir sterkustu
glímumenn landsins og var keppnin
tvísýn og spennandi. I sveitaglímu
eru oft kallaðir til gamlir jaxlar til
að styrkja sveitirnar og svo var
einnig nú. Þingeyingar tefldu m.a.
fram Eyþóri Péturssyni og Pétri
Yngvasyni.
Qreinilegt var að KR-ingar
stefndu stíft að sigri því þeir sendu
m.a. fram Ólaf Hauk Ólafsson og
Jón Unndórsson. Allir eru þessir
fyrrverandi glímukóngar íslands.
Sá fimmti, Jóhannes Sveinbjörns-
son, núverandi glímukóngur, var
fyrirliði Skarphéðinsmanna.
Sem vænta mátti var ekkert gef-
ið eftir í þessum slag og enginn kom
taplaus út úr keppninni. Mesta
breiddin var hins vegar hjá Þingey-
ingum sem nú unnu það afrek að
sigra í 14. sinn í röð. Hlutu þeir
samtals 31,5 vinning. Er slík sigur-
ganga einsdæmi og vottar mikinn
styrk þingeyskra glímumanna síð-
ustu tvo áratugi. I öðru sæti kom
sveit KR með 27,5 vinninga og
Skarphéðinsmenn í þriðja sæti með
15 vinninga.
SKÍÐI || BLÁK
Setning
Andrésar
andar leika
750 þátttakendur
skráðirtil leiks
Andrésar-Andar leikarnir á skíð-
um, fjölmennasta skíðamót á
Islandi, verða settir í 18. sinn í
Iþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.
750 þátttakendur frá 16 héruðum á
aldrinum 6-12 ára taka þátt í mót-
inu og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Keppendur koma saman í Lunda-
skóla kl. 20.30 og þaðan verður
skrúðganga að íþróttahöllinni þar
sem Björg Finnbogadóttir setur mót-
ið formlega. Keppni hefst síðan í
Hlíðarfjalli kl. 10.00 á morgun og
lýkur á laugardag. Keppt verður í
svigi, stórsvigi, göngu og stökki.
Búist er við að allt að 1.500 gest-
um til Akureyrar vegna mótsins.
AFMÆLISHATIÐ
VÍKINGS
I VÍKINNI
Á sumardaginn fyrsta minnast
Víkingar 85 ára afmælis félagsins
með eftirfarandi dagskrá:
Kl. 11.00 I Víkinni: Kynning á fjölbreyttu
íþróttastarfi á vegum félagsins.
Kl. 14.00 Afreksmenn Víkings heiðraðir.
Kl. 15.00 Leikur hjá meisturum í 6. flokki
karla í handknattleik.
Kl. 15.30 Leikur hjá íslandsmeisturum karla
innanhúss í 4. flokki í knattspyrnu.
Kaffi á könnunni allan daginn.
Víkingar sem og aðrir Reykvíkingar
eru velkomnir í Víkina.
Vikingur 85 ára
k____________________________________
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HK íslands- og bikarmeistari karla 1993
HK var besta karlaliðið í blaki í vetur og vann tvöfalt, bæði íslands- og bikarmeistaratitilinn. Liðið
skipa eftirtaldir. Efri röð frá vinstri: Skjöldur Vatnar Bjömsson, Vingir Hlöðversson, Stefán Þ. Sigurðs-
son, Kristján Arason, Óskar Aðalbjarnarso og Jóhannes Karl Jia, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Samúel
Örn Erlingsson, Guðbergur Egill Eyjólfsson, Albert H.N. Valdimarsson, Einar Þór Ásgeirsson og Karl
Sigurðsson ásamt ungum aðdáendum liðsins.
ÚRSLITAKEPPNI £? DEILDIN
HAUKAR - SELFOSS
í íþróttahúsinu v/Strandgötu í kvöld kl. 20.00
Forsala frá kl. 17.00
Ath.: Dómarar og aðrir fríkortshafar H.S.Í. nálgist miða sína milli kl. 17-18 í dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víkingur íslands- og
bikarmeistari kvenna
Víkingur var með besta kvennaliðið í blaki í vetur og vann tvöfalt
eins og HK. Liðið var skipað eftirtöldum. Efri röð frá vinstri: Skjöld-
ur Vatnar Björnsson, þjálfari, Berglind Þórhallsdóttir, Stella Óskars-
dóttir, Björg Erlingsdóttir og Snjólaug Bjarnadóttir. Neðri röð frá
vinstri: Oddný Erlendsdóttir, Birna Hallsdóttir, Björg Benediktsdótt-
ir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Særún Jóhannsdóttir.