Morgunblaðið - 21.04.1993, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
47
ÚRSLIT
ÍBV-Valur 20:26
íþróttamiðstoðin í Vestmannaeyjum, fs-
landsmótið í handknattleik, 2. leikur í átta
liða úrslitum, þriðjudaginn 20. apríl 1993.
Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 4:3, 7:4, 7:7,
9:9, 9:13,11:14, 13:14,15:16,16:20,18:21,
19:24, 20:24, 20:26.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 6/2, Guðfinnur
Kristmannsson 3, Erlingur Richardsson 3,
Sigurður Friðriksson 3, Björgvin Þór Rún-
arsson 2, Sigbjörn Óskarsson 2, Haraldur
Hannesson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
13/1 (þaraf 3/1 til mótheija). 7/2 lang-
skot, 2/1 af línu, 2 hraðaupphlaup, eitt
gegnumbrot og eitt víti aftur til mótheija.
Utan vallar: Tvær mínútur.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7, Dagur
Sigurðsson 6, Valdimar Grímsson 6/3, Jón
Kristjánsson 5, Jakob Sigurðsson 1, Geir
Sveinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 3/1
(þaraf vítið til mótheija). Eitt langskot og
eitt úr horni. Axel Stefánsson 11 (þaraf tvö
til mótheija). 3 langskot, 3/1 úr homi, 2
hraðaupphlaup, 2/1 gegnumbrot og eitt af
línu.
Utan vallar: Átta mínútur og rautt spjald
fyrir mótmæli.
Dómarar: Einar Sveinsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson.
Áhorfendur: Um 600.
Knattspyrna
England
Middlesbrough - Tottenham........3:0
(Wright 3., 26., Wilkinson 76.). 14.472.
1. deild
Bristol City - Derby................0:0
Leicester - Southend................4:1
Oxford - Peterborough...............2:1
Skotland
Airdrieonians - Hibernian............3:1
Celtic - Falkirk.....................1:0
Dundee - Dundee United...............0:4
Motherwell - Hearts..................2:1
Partick - Aberdeen...................1:3
Litla-bikarkeppnin:
Keflavík - Selfoss...................6:1
Kjartan Einarsson 3, Gestur Gylfason 2,
Eysteinn Hauksson 1 - Sigurður F. Guð-
mundsson.
BLeikið er í þremur riðlum f keppninni.
A-riðill: ÍA 2 stig, Grindavík 2, Stjaman
0, Haukar 0.
B-riðill: ÍBK 2, HK 2, ÍBV 0, Selfbss 0.
C-riðill: FH 2, UBK 2, Víðir 0, Grótta 0.
Reykjavíkurmótið:
Staðan
A-riðill:
Fram..................3 3 0 0 18: 1 8
KR 2 2 0 0 8: 1 5
Víkingur 3 1 0 2 2: 4 2
Ármann 2 0 0 2 1:11 0
Leiknir 2 0 0 2 0:12 0
■Þegar lið skora þijú mörk eða meira í
I leik, fá þau aukastig. Næsti leikur: KR -
Armann á laugardag kl. 17.
B-riðiU:
Valur.................2 2 0 0 2:0 4
I Fylkir.................2 1 0 1 5:2 3
ÍR....................2 1 0 1 2:2 2
Þróttur...............2 0 0 2 2:7 0
■Næsti leikur: Valur - Þróttur á mánudag
kl. 20. Tvö efstu liðin í riðlunum leika f
undanúrslitum. Efsta liðið f A-riðli mætir
liðinu nr. tvö f B-riðli og öfugt.
Körfuknattleikur
Leikir í NBA-deildinni í fyrrínótt:
Seattle - San Antonio........ 96: 89
Ricky Pierce skoraði 27 stig og Shawn
Kemp 15 stig fyrir Seattle, en David Robin-
son skoraði 15 stig fyrir San Antonio, sem
tapaði sínum þriðja leik í röð.
Phoenix - Houston............ 97:111
Hakeem Olajuwon skoraði 30 stig, tók 14
fráköst og varði fimm skot, þegar Houston
vann sinn tíunda leik í röð. Kenny Smith
skoraði 18 stig og átti 14 stoðsendingar.
Kevin Johnson skoraði 18 stig og Negele
I Knight 16 fyrir Phoenix.
Íshokkí
NHL-deildin
( 1. umferð úrslitakeppninnar:
Vancouver - Winnipeg.................4:2
Detroit - Toronto....................6:3
i HM í Þýskalandi
I A-riðill:
Kanada - Svíþjóð.....................4:1
■Svíar eru núverandi heimsmeistarar.
Tékkn. lýðv. - Þýskaland.............5:0
Ítalía - Sviss.......................1:0
B-riðill:
Finnland - Bandaríkin...............1:1
Skíði
Fjarðargangan var' haldin á Skeggja-
brekkudal sunnudaginn 18. aprfl. Gangan
er hluti íslandsgöngunnar. Gengið var með
hefðbundinni aðferð. Helstu úrslit:
17 til 34 ára. 20 km
Sigurgeir Svavarsson, Ó............54,05
Ámi Freyr Eifasson, í..............56,29
Kristján Hauksson, Ó........... 1:01,46
Kári Jóhannesson, A..............1:05,10
Sigurður Sigurðsson, Ó...........1:05,19
35 til 49 ára. 20 km
Sigurður Gunnarsson, í...........1:03,50
Jóhannes Kárason, A..............1:06,58
Konráð Gunnarsson, A.............1:11,41
50 ára og eldri. 20 km
i Björn Þór Ólafsson, Ó............1:03,48
1 Elías Sveinsson, í...............1:08,42
Svavar B. Magnússon, Ó...........1:24,40
13 til 16 ára. 10 km
á Þóroddur Ingvarsson, A.............35,04
* Gísli Harðarson, A.................35,36
Helgi Jóhannesson, A...............44,46
17 ára og eldri. 10 km
Bergur Bjömsson, Ó.................36,20
Brynjar Sæmundsson, Ó..............46,23
HANDKNATTLEIKUR / 8 LIÐA URSLIT ISLANDSMOTSINS
Jón Kristjánsson til vinstri og Ólafur Stefánsson, sem er á myndinni til hægri, voru bestir hjá Val í gærkvöldi.
Valsmenn fögnuðu
í Vestmannaeyjum
VALSMENN fögnuðu í Eyjum
eftir annan leikinn gegn IBV í
átta liða úrslitum íslandsmóts-
ins í handknattleik. Bikarmeist-
ararnir unnu 26:20 í gærkvöldi
og mæta Haukum eða Selfyss-
ingum í undanúrslitum, en liðin
leika um sætið í kvöld.
Eyjamenn byrjuðu af miklum
krafti og léku geysivel fram
eftir fyrri hálfleik, skoruðu úr fjór-
um fyrstu sóknum
Sigfús Gunnar sínum og Sigmar
Guðmundsson Þröstur varði einsog
skrifar frá Eyjum hann gerði í lok fyrri
leiksins. Eftir rúm-
lega 10 mín. leik voru Eyjamenn
komnir í 7:4, en þá skiptu Vals-
menn um markvörð. Guðmundur
Hrafnkelsson, sem hafði ekki fund-
ið sig, fór útaf og í staðinn kom
Axel Stefánsson. Hann reyndist
Eyjamönnum óþægur ljár í þúfu,
varði átta skot það sem eftir lifði
hálfleiksins, mörg hver úr opnum
færum, og lagði grunninn að því
að Valsmenn náðu að jafna og kom-
ast yfir fyrir hlé.
í síðari hálfleik náðu heimamenn
oft að minnka muninn í eitt mark,
en um miðjan hálfleikinn í stöðunni
16:17 fór að draga af Eyjamönnum,
Valsarar gengu á lagið, bættu við
og sigruðu örugglega með sex
marka mun.
Jón Kristjánsson var mjög góður
í fyrri hálfleik og gerði þá fimm
„þrumumörk" fyrir Val, en hann
hafði hægar um sig eftir hlé. Þá
var Ólafur Stefánsson í aðalhlut-
verki, en Dagur Sigurðsson lék
einnig vel í sókninni. Axel varði
geysivel í fyrri hálfleik, en minna
SÓKNAR-
NÝTING
ÍBV
Mötfc Sóknir %
Valur
MörkSóknir %
Úrslitakeppnin i
handknattleik 1993
11 25 44 F.h 14 25 56
9 24 38 S.h 12 23 52
20 49 41 Alts 26 48 54
6 Langskot 9
3 Gegnumbrot 8
1 1 Hraðaupphlaup 3 ;
5 Hom 2
1 3 Lína 1
2 3
Mæling á réttum
tímaeða 10:Otap
Valsmenn fengu skeyti frá for-
manni mótanefndar í fyrra-
kvöld þar sem fram kom að leiknum
í Eyjum yrði ekki aftur frestað, en
eins og fram hefur komið varð ekki
af leik ÍBV og Vals á mánudags-
kvöld þar sem ekki var flogið til
Eyja. I orðsendingu mótanefndar
kom fram að ef ekki yrði flogið á
þriðjudag (í gær) yrði liðið að fara
með Herjólfi, en kæmi það ekki á
tilsettum tíma tapaðist leikurinn
10:0.
Lúðvíg Sveinsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, sagði
við Morgunblaðið að Valsmenn
hefðu haft samband við Eyjamenn
og sameiginlega hefðu þeir ákveðið
að fara ekki eftir tilmælum móta-
nefndar, því þó ekki yrði flogið
væri nægur tími til að ljúka tveim-
ur leikjum fyrir helgi ef á þyrfti
að halda.
Málið leystist á farsælan hátt í
gær, Valsmenn flugu til Eyja og
mættu á tilsettum tíma.
bar á honum eftir hlé, og vörnin
var mjög sterk lengst af.
„Þetta var rosalega erfitt, virki-
lega erfíður leikur, þó svo hann
hafí unnist með sex mörkum,“ sagði
Geir Sveinsson, fyrirliði Vals. „Þá
var hann ekki svo auðveldur. Mér
er sama hvort við mætum Haukum
eða Selfyssingum og tel möguleika
okkar ágæta en þó ekkert betri en
hinna. En það er ekki spuming að
þessi sigur hérna þjappar okkur
saman, eykur sjálfstrtaustið og
styrkir okkur.“
Hjá Eyjamönnum stóð enginn
uppúr, en Zoltan Belany átti þó
ágæta spretti sem og Sigmar Þröst-
ur í markinu. „Þeir eru einfaldlega
mikið betri," sagði Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari IBV. „Þetta er 800
landsleikja lið, allir leikmennirnir
eru mjög erfíðir og mjög góðir.‘
Rögnvald og
Stefón dæma í
undanúrslitum
Evrópumóts
meistaralida
Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnaldsson dæma fyrri leik
Evrópumeistara Massenheim gegn
Spánarmeisturum Barcelona í
undanúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða í handknattleik. Við-
ureignin verður í Þýskalandi á
sunnudag, en seinni leikurinn
verður á Spáni viku síðar og þá
dæma Jug og Jeglic frá Slóveníu.
íslenska dómaraparið fékk
verkefnið fyrir HM í Svíþjóð, en
sumir óttuðust að það yrði tekið
af þeim vegna ummæla um dóm-
aramál í alþjóðlegum handknatt-
leik. Óttinn var ástæðulaus og
þegar liggur fyrir að strákarnir
eiga að dæma tvo leiki í Evrópu
keppni landsliða á Spáni í júní,
17. júní dæma þeir leik Spánar
og Lettlands og tveimur dögum
síðar viðureign heimamanna gegn
Póllandi, en Bogdan Kowalczyk,
fyrrum landsliðsþjálfari íslands,
er þjálfari Pólverjanna.
FOLK ■
MARCO van Basten, knatt-
spyrnumaður Evrópu sem hefur
verið á sjúkralista frá því um ára-
mót, fór fram á það við þjálfara
sinn hjá AC Milan að hann fengi
að leika gegn' PSV Eindhoven í
Evrópukeppninni í kvöld. „Marco
bað mig um að fá að leika í 30
mínútur. Ég sagði honum að slaka
á og gefa sér meiri tíma,“ sagði
Fabio Capello, þjálfari AC Milan.
BASTEN fór í uppskurð vegna
hnémeiðsla í desember og hefur ,
verið lengur að ná sér en reiknað
var með. Félagið vill ekki taka þá
áhættu að láta hann spila í kvöld
enda tryggði félagið sér sæti í úr-
slitum með því að sigra IFK Gauta-
borg fyrir tveimur vikum og mun
þar mæta annað hvort Glasgow
Rangers eða Marseille.
FRANCO Baresi, varnarmað-
urinn sterki og miðjumennirnir
Demetrio Albertini og Stefanio
Eranio verða hvíldir í Evrópuleikn-
um í kvöld þar sem þeir hafa allir
fengið áminningu í Évrópuleikjun-
um á undan.
JEAN-Pierre Papin verður
heldur ekki með AC Milan í kvöld
vegna meiðsla sem hann hlaut á
æfíngu í síðustu viku. Serbinn
Dejan Savicevic og Marco Simone
verða í fremstu víglínu gegn PSV,
sem hefur aðeins hlotið eitt stig í
fímm leikjum í Evrópukeppninni.
ANTONIO Rinaldo Goncal-
ves, fyrrum landsliðsmaður Brasil-
íu í knattspyrnu, hefur skrifað und-
ir samning við japanska liðið Pana-
sonic Gamba Osaka, eitt tíu liða
í nýrri japanskri úrvalsdeild. Gonc-
alves, sem lék með landsliði Brasil-
íu Í989 og 1990 og fyrir Sao Paulo
FC frá 1991, gerði eins árs samn
ing.
HENNY Meijer, hoilenski
framheijinn hjá Groningen, kom
til Japans í gær til að skoða aðstæð-
ur hjá Yomiuri Nippon og leika
æfíngaleik. Ef Japanir verða
ánægðir með Hollendinginn verð-
ur gengið til samninga. Meijer lék
áður 10 ár með Ajax.
JAPANSKA úrvalsdeildin í
knattspyrnu hefst 15. maí. Margir
útlendingar hafa verið keyptir til
liðanna tíu í deildinni og frægastir
þeirra eru Gary Lineker, fyrrum
fyrirliði enska landsliðsins, sem
ieikur með Nagoya Grampus
Eight og Brasilíumaðurinn Zico
sem leikur með Kashima Antlers.
■ ANTONIO „Toni“ Gomes,
brasilíumaður sem leikur á Spáni,
hefur verið uppvís af því að taka
inn anaboliska stera. Sýni sem var
tekið úr honum 27. mars leiddi það
í ljós. Gomes er samningsbundinn
Valencia en var á lánssamningi hjá
Valladolid sem leikur í 2. deild.
Annað prófsýni, sem var tekið sama
dag, verður einnig rannsakað og
ef það reynist jákvætt kemur til
kasta spænska knattspyrnusam-
bandsins að skera úr um refsingu.
■ LEEDS keypti í gær markvörð-
inn Mark Beeney frá Brighton og
borgaði um 37,5 millj. kr., en þarf
að bæta við 22 millj. þegar pilturinn
hefur náð ákveðnum fjölda leikja.
■ BAYER Leverkusen gerir sér
vonir um að fá Bernd Schuster,
sem hefur leikið með með Atletico
Madrid til liðs við sig fyrir næsta
keppnistímabil. Félagið hefur einn-
ig augastað á Maurizio Gaudino
hjá Stuttgart.
■ STUTTGART er að leita eftir
sóknarleikmanni og hefur félagið
tvo leikmenn undir smásjánni.
Belgíska landsliðsmanninn Marc
Wilmots, Standard Liege og
Duncan Ferguson, Dundee Utd.
I kvöld
Handknattleikur:
Haukar og Seifoss leika þriðja leik
sinn í 8-liða úrslitakeppninni i
íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 20.