Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 Ýmis álita- mál óleyst varðandi fjármagns- tekjuskatt STEFNT er að því að fjármála- ráðherra leggi fyrir frumvarp um fjármagnstekjuskatt í haust um leið og þing kemur saman. Skattlagningin mun koma til framkvæmda um næstu áramót og vaxtatekjur á næsta ári verða þvi skattlagðar. Undirbúningur frumvarpsins er nú mjög stutt á veg kominn og enn á eftir að leysa ýmis álitamál, að sögn Indriða H. Þorlákssonar skrif- stofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu. Um er að ræða 10% skatt á nafn- vexti en unnið er að nánari út- færslu skattlagningarinnar innan íjármálaráðuneytis. „Það er mjög langt í land að útfærsla á fram- kvæmdinni liggi fyrir. Undirbúning- ur málsins er rétt að byrja,“ sagði Indriði. Gert er ráð fyrir staðgreiðslu- skatti a.m.k. að hluta til og því munu tekjur af skattinum skila sér í ríkissjóð strax í upphafí ársins en stærri hluti af skattinum mun vænt- anlega skila sér um áramótin 1994/95 þar sem vaxtatekjur eru yfirleitt greiddar út um áramót. Aðspurður um hvort vextir af ríkisskuldabréfum yrðu skattlagðir sagði Indriði að það væri eitt af þeim málum sem væru ófrágengin en miðað við yfirlýsingu ríkisstjóm- arinnar eins og hún lægi fyrir yrði að líta svo á að skattlagningin tæki til allra vaxta. Jafnframt sagði hann að verið væri að kanna hvemig skattlagningin yrði á skuldabréfum með afföllum, uppsöfnuðum vöxt- um, verðbótum o.fl. „Það eru fjöl- mörg álitamál og vandamál í þessu sem menn þurfa að vinna sig í gegn- um,“ sagði Indriði H. Þorláksson. ----------»-»--♦.-. Rekstrartap hjá Alpan hf. ALPAN hf. skilaði 18,7 milljón króna rekstrartapi sl. ár eftir að hafa skiiað hagnaði þrjú ár á undan. í þessum mánuði var byij- að að nota nýjar umbúðir um framleiðslu fyrirtækisins. Út- flutningur til Bandaríkjanna hófst aftur í ár eftir að hafa leg- ið niðri íjjijú ár. Aðalorsökina á þessu tapi má rekja til 13,5 milljón króna gengis- taps. Nýju umbúðimar, sem fyrir- tækið hefur tekið í notkun, em efnisminni en hinar gömlu og algjör- lega gerðar úr endurunnum pappír. A aðalfundinum kom fram að um 45 starfsmenn hefðu að jafnaði starfað hjá fyrirtækinu árið 1992 en Alpan hf. framleiðir álpönnur. Mávarnir frekir til matar síns á Tjörninni og reynt verður að fækka þeim ^ Morgunbiaoio/Porkeii I leit að brauði Á SUMRIN flykkjast mávar niður að tjörn. Þeir verpa í hæðunum og eyjunum i kringum Reykjavík og margir koma niður að tjörn í fæðuleit. Sækja þeir sérstaklega í brauðið, sem kastað er til hinna fuglanna. 3-400 mávar við Tjörnina þegar mest er EINS OG undanfarin sumur eru mávar áberandi við Tjörnina í Reykjavík. Þeir koma þangað í fæðuleit og sækja í brauð- ið, sem kastað er til hinna fuglanna á Ijörninni. Ólafur K. Nielsen, líffræðingur hjá Reykjavíkurborg, sagði í samtali við Morgunblaðið að mjög erfitt væri að fækka mávunum við Tjörnina. Ólafur sagði að þúsundir mávapara verptu úti við sundin og í hæðunum kringum Reykja- vík og þótt einhveijir væru drepnir við Tjörn- ina kæmu jafnmargir aftur daginn eftir. Hann sagði að um 300 til 400 mávar væru niðri við Tjörn á daginn þegar mest væri. Þeir hugsuðu fyrst og fremst um að ná sér í brauð en það gerðist alltaf að einhveijir réðust á andarunga. Mávarnir skotnir Guðmundur Þ. Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, sagði að í fyrra hefðu hátt í 200 mávar verið skotnir. Um leið og veður yrði þannig að lítið af fólki væri niðri við Tjörn yrði hafist handa við að skjóta mávana. Hann sagði að það væri nauðsynlegt að bíða eftir þess háttar veðri því að skotin yllu ónæði og lítil böm skildu heldur ekki af hveiju sumir fuglar fengju að lifa en aðrir ekki. Hann sagði að skotin yllu dálitlum óróa meðal annarra fugla en þeir færu ekki neitt. Norðmenn, Japaiiar og Rússar athuga opnun siglingaleiðar um Norður-íshaf Gæti fjölgað skipakom- um til Islands verulega RANNSÓKNASTOFNANIR í Noregi, Rússlandi og Japan hafa gert samkomulag um að kanna möguleikann á alþjóðlegum skipaflutningum um Norður-íshafsleiðina svokölluðu milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Samtals leggja norsku og japönsku stofn- anirnar um 100 miiyónir króna í verkefn- ið og framlag Rússa, í formi fjármagns og aðgangs að gögnum og þjónustu er metið á tæpar 50 milljónir króna. Litið er á samkomulagið sem opinbera staðfest- ingu á að opnun þessarar leiðar geti orðið að veruleika. Talið er að ef af opnun leiðar- innar verði þá geti það orðið mikið hags- munamál fyrir Islendinga og aukið veru- lega skipaumferð um ísland ef hér yrði komið upp uppskipunarhöfn. Upplýsingar um samning rannsóknastofnan- anna komu fram í fréttabréfínu Norinform sem gefíð var út í Noregi í síðustu viku. Nú er hægt að sigla þessa leið með hjálp ís- bijóta á haustin um þijá mánuði árlega. Hingað til hafa rússnesk skip aðallega siglt á milli hafna í Norður-íshafínu. Rannsóknimar nú beinast hins vegar að alþjóðlegum skipaflutningum alla leiðina frá Atlantshafí til Kyrrahafs. Leiðin er talin vera um 18-20 daga sigling ef unnt er að velja Norður-Ishafsleiðina en um 34-36 daga ef farið er um Súezskurð. Þór Jakobsson, deildarstjóri hafísrannsókna- deildar hjá Veðurstofu íslands, er einn þeirra íslendinga sem vel hefur fylgst með möguleikan- um á siglingum um Norður-íshafsleiðina. Hann segir að ef hér yrði komið upp uppskipunarhöfn þá væru það miklir hagsmunir fyrir Islendinga. „Á undanförnum árum hefur vaxandi áhuga gætt á þessari siglingaleið. Ég mæli með að ís- lensk stjórnvöld hafi fulltrúa í umræðum um Norður-Ishafsleiðina sem alþjóðlega siglingaleið. Þótt um ísland færi ekki nema 5-10% af því sem færi um Norður-íshafsleiðina þá yrði um gífur- lega mikla flutninga að ræða,“ sagði Þór. Þórður Sverrisson framkvæmdastjóri flutn- ingasviðs Eimskips segir félagið hafa fylgst með umræðu um opnun Norður-íshafsleiðarinnar. Enn eigi menn talsvert í land með að komast að niðurstöðu um hvort og þá með hvemig skip- um hægt verði að sigla þessa leið, hvort hægt væri að gera það allt árið eða einungis nokkra mánuði á ári. „Meðan ekki liggur fyrir tæknileg niðurstaða um hveijir möguleikarnir eru og með hvaða tilkostnaði er ákaflega erfitt að meta hvaða áhrif þetta geti haft á flutninga til og frá Islandi. Einnig koma upp spumingar um hvaða viðbótartekjumöguleika skip hafa af því að sigla þessa leið.. Þau skip sem sigla í gegnum Súez- skurðinn hafa viðkomu á mörgum stöðum á leið- inni sem skapa þeim aftur á móti tekjur. Það verður spennandi að sjá hver niðurstaða rann- sóknarinnar verður." í dag Einkavæðing ríkisbanka, róm- versku peningamir, kvennahlaup og Hvalfjarðargöng 54-55 Leiöari „Gef heill, sem er sterkari en Hel“ 30 Viðskipti/Atvinnulíf ► Tap þjá Steinullarverksmiðj- unni - Dollarabréf á markað - Verðtrygging gengin sér til húð- ar? - Hræringar á kaffimarkaði - Vörumerki á undanhaldi Dagskrá ► Hönnuður Super Mario Bros. - Fólk í fréttum - Kyntákn eða einkaspæjari? - Breskt morgun- sjónvarp - Ný andlit í Strandvörð- um - Kvikmyndir vikunnar MannréttindaráÖstefnan i Vín Vesturlönd og þríðji heimurinn deila um skilgreiningu mannrétt- inda 28 Samstarf í sjávarútvegi Nýr sendiherra Chile í viðtali 31 Bréf til blaösins Nær óbreytt meðal- ávöxtun ríkisvíxla ÚTBOÐI á þriggja mánaða ríkisvíxlum lauk í gær og alls bárust 13 gild tilboð. Heildarfjárhæð tekinna tilboða er 1.019 milljónir. Meðal- ávöxtun samþykktra tilboða er 8,70% sem er nánast óbreytt meðal- ávöxtun frá síðasta útboði ríkisvíxla fyrir 2 vikum. Af teknum tilboðum voru 500 milljónir króna frá Seðlabanka ís- lands á meðalverði samþykktra til- boða. Meðalávöxtun samþykktra tilboða, 8,70%, svarar til 8,26% for- vaxta. Lægsta ávöxtun er 8,60% og hæsta 8,83%. Það er nokkuð minna bil á hæstu og lægstu ávöxt- un en í síðasta útboði þegar lægsta ávöxtun var 8,52% og hæsta ávöxt- un 8,82%. Pétur Kristinsson, framkvæmda- stjóri Þjónustumiðstöðvar ríkisverð- bréfa, sagði útboðið hafa verið að- gerðarlítið vegna góðrar lausafjár- stöðu ríkissjóðs þessa stundina. En með útboðinu skuldbatt ríkissjóður sig til að taka tilboðum á bilinu 500 til 1.500 milljónir króna. Tekin til- boð, 1.019 milljónir, er nokkuð lægri tala en í síðustu 10 útboðum en tekin tilboð hafa að meðaltali verið fyrir rúmlega 2.323 milljónir frá janúarmánuði síðastliðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.