Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
Fyrsta ræða breska fjármáiaráðherrans
Megináhersla á
aukinn hagvöxt
London. The Daily Telegraph.
KENNETH Clarke, nýskipaður fjármálaráðherra Bretlands, hélt á
þriðjudag sína fyrstu ræðu frá því hann tók við embættinu. Gaf hann
þar í skyn að hann hygðist taka upp aðrar áherslur en forveri hans i
embætti, Norman Lamont, og leggja mesta áherslu á hagvöxt og bætt
lífskjör.
Clarke sagðist áfram ætla að
standa við það meginmarkmið forvera
síns að halda verðbólgu niðri en bætti
við: „Lág verðbólgu getur ekki verið
eina markmið efnahagsstefnunnar."
Hann sagði Breta vera á leið út úr
efnahagslægðinni þó að vísbendingar
um það væru ekki einhlítar. Lagði
Clarker mikla áherslu á mikilvægi
viðskiptalífsins í að stuðla að hag-
vexti og sagðist vilja ná tökum á ríkis-
útgjöldunum með aðhaldi og hag-
vexti. Hann sagðist þó ekki mundu
hika við að hækka skatta reyndist
það nauðsynlegt.
Þótti tónninn í ræðu Clarke vera
mjög frábrugðin þeim sem menn voru
vanir við frá Lamont. Minni áhersla
var lögð á peningastefnu en meiri á
þau pólitísku markmið sem ríkis-
stjómin yrði að ná til að bæta stöðu
sína gagnvart kjósendum.
Hann minntist ekkert á framboðs-
hlið hagstjórnar sem forverar hans í
embætti töldu lykilinn að árangri.
Framboðshlið hagfræðinnar leggur
mesta áherslu á að draga úr höftum
í hagkerfinu og þegar Margaret
Thatcher var við stjómvölinn barðist
hún m.a. fyrir því að draga úr valdi
verkalýðsfélaga, auka frelsi á pen-
ingamarkaði og í bankakerfínu.
Nýi fjármálaráðherrann tók eins
og áður sagði einnig afstöðu gegn
því að meginmarkmið ríkisstjómar
væri að halda niðri verðbólgu. „Hag-
vöxtur og bætt lífskjör eru þau mark-
mið sem öll efnahagsstjórnun hlýtur
að stefna að,“ sagði hann og bætti
við að til að ná þessum markmiðum
myndi hann láta vaxtaákvarðanir
stjómast af aðstæðum hveiju sinni.
* Reuter
A flótta undan frægðinni
POPPSÖNGVARINN Elton John var í Tel Aviv í ísrael í gær en þar ætlaði hann að halda tónleika í gærkvöld.
Bjó hann á hó'teli í bænum en svo mikill var atgangurinn í aðdáendum hans, að hann sá þann kost grænstan að
forða sér burt. Hér er hann á hlaupum ásamt lífverði sínum en skömmu síðar fór hann frá ísrael með flugvél.
Hart deilt um skilgreiningu mannréttinda á Vínarráðstefnunni
Kína sakar Vesturlönd
um einstrengingshátt
Friðarsinnar
HANDHAFAR Friðarverðlauna Nóbels funduðu með fréttamönnum
á mannréttindaráðstefnunni í gær. Riguberta Menchu frá Guate-
mala hefur hér orðið, en við hlið hennar situr Dalai Lama, andlegur
leiðtogi Tíbeta.
DJUPSTÆÐUR ágreining-
ur er kominn upp á mann-
réttindaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) í Vín.
Fulltrúar Vesturlanda fara
fram á strangar reglur um
algild mannréttindi, en full-
trúar þróunarlanda og Asíu-
ríkja krefjast sjálfsákvörð-
unarréttar og að menning
þeirra og hefðir séu virtar,
og hafa varað við hugmynd-
um Vesturlanda um ein-
skorðaða skilgreiningu á
hugtakinu mannréttindi.
Warren Christopher,. utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og Bo-
utros Boutros-Ghali, yfírmaður
SÞ, sögðu við setningarathöfn ráð-
stefnunnar sl. mánudag að mann-
réttindabrot kæmu öllum við og
að þeir sem gerðu sig seka um
slík brot, hlytu að verða kallaðir
til ábyrgðar. Christopher hvatti
við það tækifæri til þess að stofn-
að yrði embætti yfirmanns mann-
réttindamála á vegum SÞ, sem og
rfíannréttindadómstóll. Rússar,
Evrópubandalagið og aðrir fulltrú-
ar Vesturlanda tóku í sama streng.
Engin samstaða
Til þess að svo megi verða þarf
að nást samstaða á ráðstefnunni,
en að sögn fulltrúa eru litlar líkur
til þess að slík samstaða náist.
Deiluaðilamir tveir, Vesturlönd og
Asíulönd, eru ekki einungis ósam-
mála um hvað beri að telja til
grundvallarréttinda mannkyns,
heldur einnig um hvort samfélag
þjóða heims hafí rétt til að gæta
þess að slík réttindi séu virt um
allan heim.
„Að saka aðrar þjóðir um að
virða ekki mannréttindi og vilja
þröngva þeim hugmyndum sem
ríkja í manns eigin landi upp á
aðrar þjóðir, jafnast á við atlögu
að sjálfstæði þeirra,“ sagði Liu
Huaqiu, utanríkisráðherra Kína, í
ávarpi á ráðstefnunni. Yasser Ara-
fat, leiðtogi PLO, tók í sama streng
þegar hann ávarpaði ráðstefnuna
í gær, og sagði að SÞ og aðrar
alþjóðastofnanir væru leppar
valdaaðila sem þröngvuðu eigin
hugmyndum um mannréttindi upp
á þá sem væru fátækir og veikir
fyrir.
Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, brást harkalega við
og bað ráðstefnugesti að láta ekki
„hóp málþófsmanna" koma í veg
fyrir að árangur næðist. „Hér eru
sendinefndir ríkja sem hafa aldrei
verið reiðubúin að samþykkja
grundvallaratriði um mannrétt-
indi. Nú vilja þau segja: Mannrétt-
indayfirlýsingin á ekki við í okkar
tilviki," sagði Carter.
Metflug
Airbus
París. Reuter.
FRÖNSK Airbus A-340 lagði
í gær af stað í 19.100 kíló-
metra flug frá París til Auck-
land á Nýja Sjálandi í einum
áfanga. Gangi allt að óskum
verður það lengsta flug sem
farþegaflugvél hefur flogið.
Flugvélin lagðj upp frá Le
Bourget flugvellinum í París
og er áætlað að flugið taki 22
klukkustundir. Leiðin liggur
yfir norðanverða Evrópu, Rúss-
land, niður með Japansströnd-
um, til Nýju Kaledoníu og það-
an til Nýja Sjálands. Venjulega
tekur það 24 stundir að fljúga
þessa leið ef frá er talin að
minnsta kosti ein millilending
til eldsneytistöku en Airbus-
þotan á hvergi að lenda á leið-
inni.
Franskur flugstjóri og bresk-
ur aðstoðarflugmaður voru við
stjórnvölinn í upphafi ferðar en
fleiri flugmenn voru með til að
leysa þá af hólmi. AIls eru
ferðalangar 20, þar af þýsk
flugfreyja og nokkrir blaða-
menn.
Airbus A-340 þotan er fjög-
urra hreyfla og ein nýjasta
smíði evrópsku flugvélaverk-
smiðjanna Airbus Industrie.
Á heimleiðinni frá Nýja Sjá-
landi mun þotan fljúga áfram
í austurátt, um Kyrráhaf, yfir
Alaska og heimskautahéruðin,
þaðan niður yfir Bretlandseyjar
áður en hún lýkur hringferð
um hnöttinn í París um hádegi
á morgun, föstudag.
... þú verður að smakka það!
tm wmm
5 Continents er ný kaffíblanda frá
EL MARINO í MEXICO.
% mm
heildsala & dreifing; S: 686 700
100% ARABICAKAFFI %