Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 I BMF. Örugg festing með ábyrgð. L Skútuvogi 16, Reykjavík Helluhrauni 16, Hafnarfirði Við Bifreiðastöð Akureyrar. VORFERÐ TIL AKUREYRAR eftir Leif Sveinsson i. Klukkan er 15.30 þegar Akra- borgin sígur út úr Reykjavíkurhöfn áleiðis til Akraness þann 2. júní 1993. Það er sléttur sjór og hið ákjósanlegasta ferðaveður. Fyrsta sjóferð mín um Faxaflóa rifjast upp, en það var árið 1932 með Suðurlandinu frá Reykjavík til Borgarness. Móðir mín var þá á ferð með okkur bræðurna í heim- sókn til afasystur okkar, Mörtu Níelsdóttur, er þá var húsfreyja að Álftanesi á Mýrum. Seinna eignuð- umst við Haraldur bróðir Álftanes- ið og rákum þar búskap árin 1957- 1963. Á laugardag fyrir hvítasunnu árið 1958 fórum við á skak þrír menn úr Álftaneshreppi, Gísli á Vogalæk, Magnús í Straumfirði og ég. Ekki minnist ég þess að hafa lifað skemmtilegri dag. Fyrst var haldið í Þormóðssker, sem tilheyrir Álftanesi. Ég stóð frammi í stefni trillunnar og kallaði til manns, sem ég hafði séð upp í eynni, en var nú að forða sér í burtu, er hann sá menn koma úr landi: „Hvaða lögmæt erindi áttuð þér í eyju mína?“ og fékk snjallasta svar ævi minnar: „Það voru engin egg.“ Afli okkar þremenninganna var um 90 fiskar, ýsa og þorskur. Ég lýsti róðrinum þannig: „Þetta var eins og himnaríki á jörðu, engir víxlar, ekkert útvarp, enginn sími, ekkert nema kyrrðin." II. Ég ek geimvagninum (Space Wagon) upp á bilabryggjuna á Akranesi og enn kemur gömul saga upp í hugann. Kristján konungur tíundi var í íslandsheimsókn sum- arið 1936. Hringt var úr stjórnar- ráðinu í Pétur Ottesen á Innra- Hólmi: „Þú átt að standa á bryggj- unni í fyrramálið, þegar Laxfoss leggur upp að og heilsa Kristjáni konungi og leiða hann að bifreið, sem á að flytja hann norður í land. Það er skylda þín sem þingmaður Borgfírðinga." Þá svaraði Pétur, sem sumir Greinarhöfundur hjá Nonnahúsinu á Akureyri. hafa nefnt „síðasta þingmanninn": „Ég ansa ekki þessu kjaftæði, ég verð í mógröfum." Klukkan 16.38 höldum við hjón- in af stað frá Akranesi, leiðin er greið meðfram Hafnarfjalli, þá yfir Borgarfjarðarbrú, gegnum Borgar- nes eins og leið liggur áleiðis að Holtavörðuheiði. Utsýni er frábært til jökla, Eiríksjökull gnæfir yfir óbyggðina í allri sinni dýrð. Ég minnist föður míns, sem hélt mest upp á þessa hluta Islands: Borgar- fjörð, Þingvelli og Vestmanneyjar. Hann umgekkst landið eins og heil- ög vé, t.d. fór hann ávallt út úr bíl sínum við læk einn í Grábrókar- hrauni, þar sem skammt er til Hreðavatns. Þar þótti honum feg- urst í Borgarfirðinum. Nú eru vega- gerðarmenn því miður búnir að spilla þessum fagra stað. III. Það var oft fjörugt hjá Fúsa vert í Hreðavatnsskála um versl- unarmannahelgina. Ég minnist ferðar 1951 á slíka skemmtun, þegar fimm ungir menn héldu að Hreðavatni og síðan að Búðum. Félagar mínir voru: Andrés Péturs- son (nú látinn), Geir Zoéga, Guð- mundur Jónsson og Kjartan Jóns- son (nú látinn). Farartækið var amerískur Ford, blár að lit, árgerð 1950, ráðherrabíll Jóns Pálmasonar og nefndur Akurhænan. Við fímmmenningamir drógum ekki af okkur í skemmtanalífínu, hvorki að Hreðavatni né Búðum og höfum þá ekki verið taldir líkleg- ir til þess að bjarga Fróni á örlaga- | stund. Þó varþað Guðmundur Jóns- son, sem tók við forsæti í Hæsta- rétti, þegar mest á reið og bjargaði þar með heiðri lögfræðingastéttar- innar. IV. Brúarsmiðir eru að störfum við gömlu brúna yfir Hrútafjarðará, svo fara verður yfir ána á bráða- birgðabrú skammt frá Hrútatungu- rétt. Við borðum fískrétt í Staðar- skála hjá þeim ágætu veitinga- mönnum og skoðum minnismerkið nýja um landpóstana. Ferðin sækist vel, brátt komum við í Víðidalinn og er þá margs að minnast, laxveiðiferðanna með Morgunblaðsmönnum í Víðidalsá. Árum saman áttum við Mbl.menn síðustu dagana í júní. Það brást aldrei, að þar var vit- laust veður þessa daga. Lofthiti var 5 stig, en vatnshiti 8 stig. Þegar bændur í Víðidal sáu bílalest Mbl.manna renna norður heiðar, varð þeim að orði: „Nú skellur Morgunblaðshretið á.“ Afli var yfirleitt 1 minna lagi, en vistin í veiðihúsinu að Lækjarmóti, hjá hinni stórhöfðinglegu ráðskonu Gunnlaugu Jóhannsdóttur, var ógleymanleg. Kekkonen Finnlands- forseti og Benny Goodman höfðu a.m.k. ekki sest að öllu glæsilegra veisluborði en hjá Gunnlaugu. Það er eitthvað stórbrotið við Víðidal- inn, enda óhugsandi að Flateyjar- bók hefði verið rituð í einhveiju lágkúrulandslagi. V. Þá nálgumst við Laxá í Ásum, draumaána, sem talin er ein gjöf- ulasta á í heimi. Þar átti ég því láni að fagna að veiða daglangt þijú ár í röð um miðjan áttunda áratuginn. Þórður Jasonarson húsasmíðameistari var félagi minn á stönginni, en ég réði hinni stöng- inni. Að veiða í Laxá í Ásum er opin- berun, ekki aflinn, sem getur verið misjafn, þótt oftast sé hann mjög góður. En kyrrðin og friðurinn, oftast fjarri allri bílaumferð, veran við ána er ólýsanleg og ógleyman- leg öllum þeim sem reynt hafa. Mest fengum við Þórður 12 og 7/8 úr laxi, ég 6, Þórður 6, en svartbakurinn fékk 1/8 úr laxi, áður en Þórður nái hinum 7/8 af honum. VI. Það verður að aka á löglegum hraða um Húnavatnssýslur, því skólabróðir minn Jón ísberg sýslu- maður er ávallt í veiðihug svo sem valurinn forðum. Á Vatnsskarði eru aftur á móti sýslumörk og þá spýti ég ögn í, því ég þarf að ná í mat- vörubúð á Akureyri fyrir kl. 22.00. Ákvörðunin um bílveg yfir Öxna- dalsheiði var slys. Hörgárdalsheiði milli Norðurárdals og Hörgárdals er 7 km styttri og miklu snjólétt- ari. Bernharð Stefánsson alþingis- maður réði því hins vegar, að bíl- vegurinn var lagður um Öxnadals- heiði framhjá heimili hans að Þverá í Öxnadal. Þessar upplýsingar veitti mér Páll Arason ferðagarpur í Bug í Hörgárdal. Það fer að styttast í skólann að Laugalandi á Þelamörk, en áður liggur leiðin framhjá Skógum. Þar ólst upp vinur minn Eiríkur Stef- ánsson kennari, sá maður sem ég hefi heyrt tala fegursta íslensku. Vonandi er eitthvað til af upp- lestrum hans á segulböndum í út- varpinu. Það er bjart yfír Eyjafirði, er við beygjum fyrir Moldhaugaháls í átt að Akureyri. Liðin eru 57 ár frá því ég kom
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.